Þjóðviljinn - 31.01.1987, Side 1
Laugardagur 31. janúar 1987 24. tölublað 52. árgangur
Vinnuveitendasambandið
Vericbann á verkfallsmenn
Sambandsstjórn Vinnuveitendasambandsins samþykkti verkbann á verkfallsmenn ígœr.
Segja verkfallsrétti beittmeð þeim hœtti að útflytjendum sé mismunað.
Birgir Björgvinsson: Metum stöðuna hverju sinni
Afundi sambandsstjórnar
Vinnuveitendasambandsins í
gær var ákveðið að setja verk-
bann á þá félagsmenn Sjó-
mannafélags Reykjavíkur sem
þegar eru í verkfalli og kemur það
til framkvæmda 7. febrúar nk.
í samþykkt sambandsstjórnar-
innar segir aö Sjómannafélagið
hafi ákveðið að beita verkfalls-
réttinum með þeim hætti að „mis-
muna útflytjendum og farmflyt-
jendum með óskiljanlegum hætti
og virðast geðþóttaákvarðanir
einar ráða því, hvað flutt er út og
með hverjum." Þá segir í sam-
þykktinni að það liggi einnig fyrir
að fjöldi félagsmanna séu nú að
ráða sig til annarra starfa og á
sama tíma liggi íslenski kaup-
skipaflotinn bundinn í höfn.
Þessar aðstæður miði að því að
draga deiluna á langinn og tefja
fyrir endanlegri lausn og því hafi
verið gripið til verkbanns í varn-
arskyni.
„Það eru að sjálfsögðu engar
geðþóttaákvarðanir teknar hvað
undanþágur snertir. Við metum
stöðuna hverju sinni. Reglan er
sú að veita ekki of margar undan-
þágur í einu því við getum ekki
misst of marga af okkar mönnum
út á sjó,“ sagði Birgir Björgvins-
son í samninganefnd farmanna
um yfirlýsingar sambandsstjórn-
arinnar.
Farmenn hafa nýlega gefið
Keflavíkinni undanþágu til þess
að flytja sfld til Sovétríkjanna en
3 aðrar undanþágubeiðnir verða
afgreiddar eftir helgi.
Farmenn hafa farið fram á það
við stjórn Dagsbrúnar að hvetja
hafnarverkamenn til þess að sýna
baráttu þeirra stuðning með því
að neita að afferma leiguskip í
farmflutningum. Að sögn Guð-
mundar J. Guðmundssonar for-
manns Dagsbrúnar mun stjórnin
gefa farmönnum svar eftir helgi.
Von mun vera á 4-5 leiguskipum
á næstu dögum.
-K.Ól.
Sjá Nafn vikunnar
í Sunnudagsblaði
Kvikmyndasjóður
Hrafn fær
15 milljónir
Úthlutun úr Kvikmyndasjóði
er lokið og samkvæmt óstaðfest-
um fregnum fékk Hrafn Gunn-
laugsson mest að þessu sinni, eða
15 milljónir króna.
Hrafn vinnur að gerð fram-
halds við „Hrafninn flýgur“ og
hefur auk þess fengið sænskan
styrk, jafngildan um 80
milljónum svo ekki er hann á
flæðiskeri staddur.
Eftir því sem Þjóðviljinn gat
komist næst í gærkvöldi hafði
Karl Óskarsson fengið 10
milljónir til að gera leikna mynd,
Jón Hermannsson 5 milljónir til
að gera þáttaröð um jarðfræði í
samvinnu við Guðmund Sig-
valdason og er það í fyrsta sinn
sem úthlutað er til gerðar
heimilda- eða fræðslumyndar,
Eiríkur Thorsteinsson fékk 2
milljónir og Páll Steingrímsson
0,5 milljón.
Eyvindur Erlendsson mun hafa
fengið úthlutun, og sömuleiðis
Friðrik Þór Friðriksson og
Kristín Jóhannesdóttir, en
hversu mikið er óvíst.
Til úthlutunar að þessu sinni
voru um það bil 45 milljónir
króna. -sá.
Það er ekki að sjá á Austfjarðarfjöllum að nú sé hávetur á Islandi. Snjólaust upp I efstu hlíðar og háhyrningar skvetta sór í
fjarðarbotnunum. Mynd -hb/Neskaupstað.
Alþýðubandalagið
Lægri skatta á einstaklinga
Svavar Gestsson: Tekjuskattur fyrirtœkja verði hœkkaður.
Gagnrýnum seinagang ríkisstjórnarinnar ískattamálinu. Pólitísk álitamál óleyst
Við teljum að þessa breytingu
eigi að ákveða nú þegar, og
um leið eigi að ákveða lækkun á
sköttum einstaklinga og hækkun
á sköttum fyrirtækja, sagði Svav-
ar Gestsson formaður Alþýðu-
bandalagsins í samtali við Þjóð-
viljann að loknum fundi stjórnar-
andstöðunnar og fjármálaráð-
herra í gær þar sem kynntar voru
tillögur starfshóps um cndur-
skoðun tekjuskattslaga. „Við
erum mjög ákveðið þeirrar skoð-
unar að það eigi að koma á stað-
greiðslukerfi skatta og það eigi að
flýta því máli. Við hljótum hins
vegar að gagnrýna það hvernig að
þessu máli hefur verið unnið,það
hefur ekkert verið haft samband
við stjórnarandstöðuflokkanna
og það hefur ekki verið formlega
rætt við sveitarfélögin, sem eiga
þó mikilla hagsmuna að gæta.
Það hefur ekki verið hugsað
um að flýta þessu máli einsog
kostur er á og ennþá eru öll pólit-
ísk álitamál óleyst.
í tillögum fjármálaráðherra er
allt mjög opið ennþá. Það er gert
ráð fyrir því að tekjuskattur til
ríkisins sé 25-29% og útsvar um
6-8% og afsláttur 7-12.000 krón-
ur á mánuðli. Barnabætur verði
greiddar út,-»íðan komi húsnæð-
isafsláttur en frádráttarliðir yfir-
leitt felldir niður. Þá er rætt um
að fella niður sjómannaafslátt."
Svavar kvaðst leggja mikla
áherslu á að málinu verði flýtt.
Hann sagðist vera fylgjandi því
að árið 1987 verði skattlaust en
að sjálfsögðu yrði það að vera
framtalsskylt. I viðtali stjórnar-'
andstæðinga við fjármálaráð-
herra kom ekki fram hver stefna
ríkisstjórnarinnar er í því máli.
Frumvarpsdrög verða lögð
fyrir þingflokkana eftir helgi.
-vd.
Háhyrningar
Á sfld-
veiðum
Að minnsta kosti fjórir háhyrn-
ingahópar voru á ferð inn á
Norðfirði í vikunni og hver með
sinn sfldarskammt. Mikið fjör
var í kringum þá og fylgdust
margir Norðfirðingar með til-
burðum háhyrninganna. Há-
hyrningarnir fóru langt inn eftir
firðinum og einn hópurinn alveg
inn í botn fjarðarins, þar sem þeir
iðkuðu sfldveiðar sínar við
bryggjusporðinn hjá loðnu-
bræðslunni.
Mikið hefur verið um háhyrn-
inga á Austfjörðum í allan vetur
og koma þeir í hópum inn á firð-
ina. Háhyrningarnir reka með sér
litlar sfldartorfur og beita tals-
verðri tækni við sfldveiðarnar,
sem felst í því að litlir hópar,
gjarnan 10-15 dýr, loka af litla
sfldartorfu með því að umkringja
hana. Hluti hópsins kafar síðan
undir torfuna og heldur henni
upp við yfirborðið, þar sem félag-
arnir dunda við að tína sfldina
upp í sig.
Keflavík
Böm fundu
sprengju
Það voru litlir strákpjakkar
sem komu með skriðdreka-
sprengjuna hingað á stöðina til
okkar. Þeir höfðu fundið hana í
fjörunni hérna neðan við bæinn
og stungið spýtu upp í afturenda
hennar og höfðu verið að slöngva
henni frá sér með spýtunni, sagði
Þórður Kjartansson lögreglu-
maður í Keflavík í samtali við
Þjóðviljann í gær.
„Við fórum síðan með þetta
upp á völl og þar varð mikið
írafár á varnarliðsmönnum þegar
þeir fengu sprengjuna í hendur,
en þetta var skriðdrekasprengja
sem sett er framan á riffla og síð-
an skotið að skriðdrekum, en húrí
var um 30 sm löng, sívöl og sver-
ust um miðjuna. _sá.