Þjóðviljinn - 31.01.1987, Blaðsíða 2
^SPURNINGIN-
Hvaö finnst þér um
fræösluherferð Land-
læknisembættisins um
eyöni og smokka?
Ólafur H. Jóhannsson
skólastjóri
Fræösla um þessi mál er sjálf-
sögö, en varast ber að einfalda
málin um of og fólk má ekki skilja
sem svo að smokkurinn sé einföld
lausn. þaö ber aö bregðast við af
ábyrgö og þekkingu.
Stefanía Vigfúsdóttir
skrifstofumaður
Nokkuö málum blandin. Hún
gæti e.t.v. leitt til lauslætis, en á þó
rétt á sér. Það er kannski fullmikill
gauragangur í kring um þetta.
Heiða Sveinsdóttir
starfsstúlka
Þessi mál hafa verið lítiö rædd til
þessa og verið feimnismál svo
kannski er farið full geyst af stað
nú.
Rögnvaldur Johnsen
arkitekt
Mér list vel á hana. Það verður að
minna rækilega á eyðnihættuna og
smokkurinn er vissulega vörn gegn
henni.
Anna María,
foringi í Hjálpræðishernum
Ég hef ekki svo mikið orðið vör
við hana enn, en vonandi að fjallað
verði um þessi mál á eðlilegan hátt
og þau ekki gerð að einhvers kon-
ar skemmtiatriði.
FRÉTHR
Eyðni
1500 mótefnamældir
Ólafur Ólafsson landlœknir: Fráleittað skylda alla ímótefna-
próf. Kostnaðurinn einn yfir 100 miljónir
Fráleitt er að skylda alla íslend-
inga í mótefnapróf vegna
eyðni. Kostnaðurinn einn yrði
um 100 miiljónir sem er fimmfalt
framlag til Vísindasjóðs. Árang-
urinn yrði í engu samræmi við
bæði kostnað og fyrirhöfn og
skapaði hugsanlega falskt ör-
yggi,“ segir Olafur Olafsson land-
læknir.
Síðan mótefnamælingar hófust
hér á landi í nóvemberbyrjun
hafa um 1500 manns verið mót-
efnamældir og hafa 30 reynst með
mótefni.
Mjög er sjaldgæft að smitað
fólk komi sjálft til mótefnamæl-
inga og af þeim 30 sem reynst
hafa smitaðir, komu aðeins 7 af
sjálfsdáðum.
Af þessu mætti nokkuð ráða að
það eru helst áhættuhóparnir,
sem erfiðast er að ná til og annað
þyrfti þar til að koma en lagaboð.
Auk þess eru lög sem heimila
yfirvöldum að mótefnaprófa
hvern sem er að sínum geðþótta
ekki til. Lang öruggasta og skyn-
samlegasta leiðin gegn sjúk-
dómnum er því fræðsla
Öllum er frjálst að láta mót-
efnamæla sig. Það er gert á öllum
heilsugæslustöðvum og allir
heimilislæknar gera það einnig.
Landlæknir sagðist mæla ein-
dregið að fólk gerði slíkt, hefði
það einhvern minnsta grun um að
það hefði smitast.
Fræðslustarf á vegum land-
læknisembættisins er þegar kom-
ið vel af stað. Gefið hefur verið út
myndband með kastljósþætti um
eyðni og annað myndband um
sjúkdóminn, ættað frá Banda-
ríkjunum með íslenskum texta.
Gerðar hafa verið litskyggnur og
texti við þær ásamt ítarefni og
hefur þetta efni þegar verið sent
til allra heilsugæslustöðva og hér-
aðslækna á landinu og miðla þeir
efninu til skóla, vinnustaða og
yfirhöfuð þeirra sem vilja kynna
sér málið.
Læknanemar hafa farið í skóla
landsins og frætt nemendur og
kennara og einnig munu hjúkr-
unarnemar annast fræðslu á
vinnustöðum. Hefur fólk tekið
allri fræðslu mjög vel, sérstaklega
skólafólkið. -sá.
Ólafur Ólafsson landlæknir: Árangur af allsherjareyðniprófi í engu samræmi við kostnað og fyrirhöfn.
Byggðastofnun
Grundfirðingar fá skipalán
Stjórn Byggðastofnunar hefur
samþykkt að veita Hraðfrysti-
húsi Grundarfjarðar 30 miljón
króna lán til kaupa á skuttogar-
anum Gauti frá Garði og stál-
skipinu Skipanesi SH-608. Með
þessu láni eru Grundfirðingum
tryggð kaup á Gauti en mikil óá-
nægja er meðal Suðurnesja-
manna að horfa á eftir enn einum
skuttogaranum burt af svæðinu.
Grundfirðingar misstu skuttog-
arann Sigurfara burt í plássinu
eftir uppboð á honum árið 1985.
Vegna þessarar samþykktar
stjórnar Byggðastofnunar lét
Geir Gunnarsson alþingismaður
Reyknesinga bóka á fundi stjórn-
arinnar að hann liti svo á eftir
þessa lánveitingu að Byggða-
stofnun hefði sérstökum skyldum
að gegna gagnvart íbúum Gerða-
hrepps ef leitað yrði eftir aðstoð
þaðan til skipakaupa þangað eða
atvinnuaukningar með öðrum
Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar tryggð kaup á Gauti úr Garði með 30 milljónum.
Bókun Geirs Gunnarssonar: Stofnunin skuldbundin að styðja Gerðahrepp
Erni Erlingssonum sf. í Keflavík
10 miljón krónum til kaupa á 70 -
80 rúmlesta skipi og Straumnesi
hf. á Patreksfirði 7 miljón krón-
um til að tryggja öruggari hráefn-
isöflun til fiskvinnslu á Patreks-
firði. -vd.
hætti. Halldór Blöndal alþingis-
maður lýsti stuðningi sínum við
bókun Geirs.
Pá hefur stjórn Byggðastofn-
unar einnig ákveðið að veita
Hraðfrystihúsi Keflavíkur 20
miljón króna lán til að koma í veg
fyrir sölu á togara fyrirtækisins en
fýrirtækið fékk 20.6 miljón króna
lán í desember til fjárhagslegrar
endurskipulagningar. Einnig var
Suðurvör hf. í Þorlákshöfn veitt
10 miljón króna lán til kaupa á
þremur fiskiskipum, Þorsteini og
Leikfélag Akureyrar
Dreifar af dagsláttu í suðurför
Leikfélag Akureyrar mun um
helgina gefa sunnlendingum
kost á að sjá og hlýða á sungna og
leiklesna dagskrá með verkum
Kristjáns frá Djúpalæk.
Dagskrá þessi var sett saman til
heiðurs skáldinu í tilefni af 70 ára
afmæli þess sl. sumar. Nefnist
hún Dreifar af dagsláttu eins og
síðasta ljóðabók Kristjáns. Krist-
ján Kristjánsson, sonur skáldsins
og Sunna Borg völdu efnið og
Sunna stýrði einnig uppsetningu
dagskrárinnar. í henni kennir
ýmissa grasa bæði í bundnu máli
og óbundnu enda hefur Kristján
víða komið við á skáldferli sín-
um. Um 12 manns taka þátt í
uppfærslunni sem tekur um 2
tíma í flutningi með hléi.
Sýningar verða í Norræna hús-
inu laugardaginn 31. janúar kl.
14.00 og aftur kl. 17.00. Sunnu-
daginn 1. febrúar verða Dreifarn-
ar svo sýndar í Félagsheimili Ölf-
usinga í Hveragerði og hefst sú
sýning kl. 15.00. - yk/Akureyri.
2 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. janúar 1987