Þjóðviljinn - 31.01.1987, Side 15
______________AFMÆLJ___________
Ólafur Stefánsson ffá Víðihóli
Undarleg eru þau örlög oft hjá
íslenska bóndanum á þessari öld
að þurfa að skipta um umhverfi.
Yfirgefa náttúruna, landið og
búsmalann sem hann hefur
máske bundist sterkum tilfinn-
ingaböndum. Ólafur Stefánsson,
sem fagnar sjötugsafmæli í dag,
er einn þeirra íslensku bænda,
sem þurft hefur að yfirgefa víð-
áttuna sína og hasla sér völl að
nýju á mölinni. Og það hefur
ekki verið nein venjuleg sveit,
þar sem Ólafur bjó, á Fjöllum.
Samt dylst engum, sem notið hef-
ur gestrisni þeirra Ólafs og Kri-
stínar Gunnlaugsdóttur, hans
góðu konu, á Löngumýri 12 Ak-^
ureyri, að heimili þeirra er rök- /
rétt framhald af búskapnum á
Fjöllum.
Þau hjón hafa haldið rausnar-
bú á Löngumýrinni og þar hafa
margir notið góðs af höfðings-
skap þeirra í áranna rás.
Það var fyrir árþúsundi, - eða
að minnsta ícosti 15 árum, að erf-
iðustu unglingarnir sem þá stund-
uðu nám við Menntaskólann á
Akureyri, lentu saman í kom-
paní, sem þá var kallað Matarfé-
lagið í Löngumýrinni. í þessu
kompaníi voru menn eins og
Kjartan Stefánsson, þá frjáls-
lyndur íhaldsmaður, en er nú rit-
stjóri Frjálsrar verslunar, þeir
Hallyrmingar Gunnlaugur og
Guttormur Sigurðssynir, þá ung-
mennafélagssinnaðir framsókn-
armenn, en nú er Guttormur
höfuðsmaður Ananda Marga á
íslandi, en Gunnlaugur reikull
mikro-makrófflósóf auk þess að
vera þjóðfélagsfræðingur. Enn
fremur sá sem þessar línur skrifar
fyrir hönd hópsins og Ævar
Kjartansson, en við vorum þá
byltingasinnaðir Framsóknar-
menn en gerðumst anarkókratar
með tímanum.
Pessi hópur og tilfallandi gestir
sjotugur
settust til matar þar sem á borð-
um var íslenskur matur: blóð-
mör, magáll, hrútspungar, salt-
kjet, hangið kjet af Fjöllum og í
endurminningunni margt fleira
eins og var hjá sýslumönnum á
hinni öldinni. Hjá Óla og Stínu
var eilíf veisla.
Þessir menn úr Matarfélaginu
réðust eins og bjarndýr á bráð
sína - settust við borðið. Borð-
haldinu stjórnaði húsbóndinn á
heimilinu, Ólafur Stefánsson, af
mikilli lipurð. Staðreyndin er
nefnilega sú, að þessir unglingar
voru eftir matinn og fyrir matinn
með munninn fullan af skoðun-
um. Skoðanir eiga til að þenja
raddbönd. Og stundum flugu
hnútur um borð eins og í kvæðinu
forðum. En hjónunum tókst
ævinlega að stilla til friðar og
a.m.k. kom einu sinni fyrir, að
Ólafur hóf upp raust sína og fór
að syngja. Söng okkur í dúna-
logn. Og stundum gátu þessi fýlu-
legu ungmenni ekki staðist for-
söngvarann og sungu með hon-
um. Hann er söngvinn og lipur -
og var snillingur í umgengni sinni
við ungmennin. Húsfreyjan
kunni og að slá á ljóðræna
strengi, þannig að þrátt fyrir allan
matinn og pólitíkina urðu ung-
lingarnir skáldlega hreyfir í
Löngumýri. Meira að segja raun-
sæismaður eins og ritstjóri
Frjálsrar verslunar orti ljóð.
Ekki trúi ég að þau Ólafur og
Kristín hafi haft annað en fyrir-
höfnina út úr þessu stússi í kring-
um okkur menntskælingana. Pví
það var ekki einungis þannig að
við, þessi ódælu ungmenni, borð-
uðum bflhlass í mál, heldur sátum
við inni á gafli hjá þeim á Löng-
umýri fram eftir á kvöldin, og oft-
sinnis á daginn varð máltíð að
löngum málfundi, sem fló yfir
alla skólasókn. En Óli og Stína
umbáru okkur með lofsverðri
þolinmæði og aldrei fundum við
fyrir öðru en þeirri hlýju hjón-
anna í Löngumýri, sem yljar
manni við endurminningu alla tíð
síðan. Staðreyndin er nefnilega
sú, að þau báru fyrir okkur slíka
umhyggju, að við litum til þeirra
eins og foreldra, alténd brokk-
gengari hluti Matarfélagsins.
Öll árin á Akureyri hefur
Ólafur Stefánsson unnið hjá
Sambandsverksmiðjunum í bæn-
um. Verkamaðurinn í verksmiðj-
unni hefur samt alltaf verið
bóndi. Fas hans er bóndans
frjálsborna og Ólafur er svo snar-
legur að menn hafa á tilfinning-
unni jafnvel heima í stofu, þá gæti
hann í næstu andrá hlaupið á fjöll
að leita sauða. Á þessum tíma-
mótum í ævi Ólafs Stefánssonar
og Kristínar Gunnlaugsdóttur
verður áreiðanlega mörgum
hugsað til heimilisins að Löng-
umýri, þar sem stór fjölskylda,
sveitungar af Fjöllum, - og ótal
vinir hafa notið gestrisni og höfð-
ingsskapar þeirra hjóna. Við
kumpánar úr Matarfélaginu
sendum þakkarkveðjur og ham-
ingjuóskir.
Óskar Guðmundsson
NÁMSKEIÐ í MYNDBANDAGERÐ
Fyrirhugaö er aö hefja sex vikna námskeið mið-
vikudaginn 11. febr. n.k. Kennslan fer fram í Miö-
bæjarskóla og verða kenndar 4 kennslustundir 2
kvöld í viku.
Megináhersla verður lögð á:
Kvikmyndasögu, mynduppbyggingu, eðli og
notkun myndmáls í kvikmyndum, handritsgerð
auk æfingar í meðferð tækjabúnaðar ásamt
upptöku, klippingu og hljóðsetningu eigin
myndefnis nemenda.
Innritun næstu daga á skrifstofu Námsflokkanna
frá 13-21 í símum 12992 og 14106.
FATASAUMUR GERÐUBERGI
Fyrirhugað er að halda 8 vikna námskeið í fata-
saumi í Menningarmiðstöðini í Gerðubergi.
Kennslan fer fram á miðvikudagskvöldum 4
kennslustundir í senn.
Kennt verður að taka upp snið, breyta sniðum,
sníða og sauma eftir þeim.
Kennslugjald kr. 3.000.-
Kennari: Rannveig Sigurðardóttir.
Innritun næstu daga á skrifstofu Námsflokkanna
símar 12992 og 14106.
ÞORRABLÓT ABR 1987
Laugardag 31. janúar
í RISINU,
HVERFISGÖTU 105.
Húsiö opnaö kl. 19.00.
Boröhald hefst kl. 20.00.
Árni Björnsson,
þjóðháttafræöingur.
Sala miöa og boröapantanir:
á skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105.
Sími 17500.
Sif
Ragnhildardóttir
syngur gömul lög, sem
Marlene Dietrich geröi
vinsæl á fjóröa
áratugnum.
Jóhann Krístinsson, píanó.
Tómas R. Einarsson, bassi.
Framboðskór G-listans
í Reykjavík
syngur nýjar og fornar blótvísur.
-listinn, ekki ein nóta fölsk.
íslenskur
þorramatur
Húsiö opnaö fyrir aöra en matargesti
kl. 23.
Glæsir leika fyrir dansi.
Verö miöa kr. 1.400.»