Þjóðviljinn - 31.01.1987, Side 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓOVIUINN
Laugardaour 31. janúar 1987 24. tölublað 52. árgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
SteingrímurJ. Sigfússon: Getum ekki beðið lengur. Læt dreifa tillögunni á mánudag.
Verður að ráðast hverjir vilja vera með
Að öllum líkindum verður lögð
fram á Alþingi eftir helgi til-
laga í Neðri deild um að skipa
nefnd á grundvelli 39. grein
stjórnarskrárinnar til að rann-
saka deilur menntamálaráðu-
neytis og fræðsluyfirvalda í
NorðiA'landsumdæmi eystra, þar
með talið réttmæti þeirra ásak-
ana sem menntamálaráðherra
hefur borið á Sturlu Kristjáns-
son, fyrrverandi fræðslustjóra.
Einnig er í tillögunni gert ráð
fyrir að nefndin geri ítarlega út-
tekt á öllum samskiptum fræðslu-
umdæmanna og ráðuneytisins og
einstakra deilda þess.
Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður sagði í samtali við
Pjóðviljann að hann hefði undan-
farna viku beðið með tillögu-
flutning í þeirri von að þingmenn
Norðurlands eystra og þingmenn
allra flokka næðu að sameinast
um aðgerðir sem tryggðu hlut-
lausa rannsókn málsatvika með
einum eða öðrum hætti.
„Nú sé ég ekki að lengur verði
beðið og svo fremi sem ekki næst
um helgina samkomulag um
rannsókn og málsbætur til handa
Sturlu sem allir geta sætt sig við.
Því læt ég dreifa tillögunni á
Viðey
Kláustrið
ófundið enn
„Það hefur enginn fundið þetta
klaustur ennþá“, sagði Mjöll
Snæsdóttir fornleifafræðingur.
Fyrir dyrum stendur að byggja
véla-og verkfærageymslu úti i
Viðey og Mjöll falið að kanna á
fyrirhuguðum byggingastað
hvort einhverjar fornminjar
leyndust þar áður en skurðgröf-
unum og vélskóflunum verður
sleppt lausum.
I þessari könnun fundust
nokkrar menjar um mannlíf, mis-
jafnlega gamlar, þó flestar frá
seinni tímum og nefndi Mjöll þar
á meðal sleggjustein einn mikinn
og góðan. -sá.
I
mánudag. Það verður að ráðast
hverjir treysta sér til að vera með-
flutningsmenn og hverjir ekki.
Undanfarna daga og vikur síð-
an Sturlu var vikið úr starfi hefur
rignt yfir okkur alþingismenn
kjördæmisins áskorunum og
kröfum um að við hlutumst til um
ítarlega og óhlutdræga rannsókn
málsatvika í þessari deilu og það
sýnist mér augljóst sanngirnis-
mál.
Ég hef lfka sjálfur sagt að ég
telji að Alþingi geti ekki horft
upp á ráðherra beita valdi sínu
með þessum hætti án þess að fá á
því fullgildar skýringar."
Aðspurður um hvort með þess-
ari tillögu væru endanlega úr sög-
unni hugmyndir um að flytja van-
traust á menntamálaráðherra
vegna þessa máls sagðist
Steingrímur telja að ekki þyrfti
sérstaka tillögu til þess. „Með at-
höfnum sínum og orðbragði er
ráðherrann sjálfur ein samfelld
„vantraustsyfirlýsing" gangandi á
tveimur fótum og ég er þess
fullviss að kjósendur nota tæki-
færið og láta þetta vantraust
koma fram í kosningum í vor og
þá ekki síst kjósendur á lands-
bygðinni.“ -yk.
Fulltrúar frá Bandalagi kennarafélaga afhentu í gær á alþingi kröfu um að skipuð verði þingnefnd sem rannsaki
brottvikningu Sturlu Kristjánssonar úr embætti fræðslustjóra í Norðurlandskjördæmi eystra. - Helgi Seljan, fyrsti
varaforseti sameinaðs þings veitti kröfunni viðtöku og sést hér taka við henni úr hendi formanns Bandalagsins, Valgeiri
Gestssyni. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Gíslason, Ólafur H. Jóhannsson og Kristján Thorlacíus.
Varaflugvöllurinn
NATO fjáimagni könnun
Tillaga um að athugun verði gerð á óflugvöllum sem hugsanlegum varaflugvelli fyrir
millilandaflug. Mannvirkjasjóður gefur vilyrði um fjármögnun könnunarinnar
Fulltrúar NATO hafa gefið vil-
yrði fyrir því að Mannvirkja-
sjóður Atlantshafsbandalagsins
muni Qármagna forkönnun og
hagkvæmnisathugun á 6 flugvöll-
um sem gætu komið til greina sem
varaflugvöllur fyrir millilandafi-
ug, en kostnaðurinn er áætlaður
um 14 miljónir.
Viðræðunefnd fulltrúa sam-
gönguráðuneytis, varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytis og
fulltrúa frá Atlantshafsbanda-
laginu skilaði áliti sínu í fyrradag
um gerð varaflugvallar. Þar mun
Pétur Einarsson flugmálastjóri
hafa komið með þá tillögu að at-
hugun yrði gerð á flugvallarskil-
yrðum á 6 stöðum á landinu, þar
með talið á Sauðárkróki og mun
Pétur hafa sagt að til þess að at-
hugunin væri framkvæmanleg
þyrfti erlent fjármagn. Flugvell-
irnir sem um ræðir eru auk
Sauðárkróksvallar á Akureyri,
Húsavík, Egilsstöðum, Blöndu-
ósi og Höfn í Hornafirði.
Matthías Bjarnason sam-
gönguráðherra sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að ekkert lægi
enn fyrir um það hvort
Mannvirkjasjóður kæmi inní
dæmið.
„Það er fáránlegt að leita til
Mannvirkjasjóðsins eftir fjár-
magni í athugunina,“ sagði Ingi-
björg Haraldsdóttir formaður
Samtaka Herstöðvaandstæðinga.
„íslendingar geta vel fjármagnað
fýrirtækið sjálfir. Það vita líka að
sjálfsögðu allir að þetta verður
uppphafið að því að sjóðurinn
styrki flugvallarframkvæmdirn-
ar, en Mannvirkjasjóður styrkir
engin önnur mannvirki en hern-
aðarmannvirki og barnalegt að
ætla annað en að NATO noti
hann sem slíkan þegar hann verð-
ur tekinn í notkun,“ sagði Ingi-
björg.
-K.OI.
Q-1^0fú
\c
NDURA
KJ/ SELTJARNARNESI
0 — 0 í T ' I ■ I ' I ' I I. I I I 4 „ nn
I Tónlistarskólanum í dag laugardag kl. 16.00
Geir, Ólafur Ragnar, Ásdís, Bjargey og Jóhanna koma á fundinn
- ALLIR VELKOMNIR
G-LISTINN REYKJANESI