Þjóðviljinn - 12.02.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 12.02.1987, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 12. febrúar 1987 34. tölublað 52. órgangur Útvegsbankinn Hafskip borgar ekki Hlutafjárbréfin íHafskipumfrá 1985 skila sér illa í Útvegsbankann. Aðeins verið greitt af92 bréfum afl50.15 milljónir ívanskilum. Nokkrir hafa neitað að borga Skuldabréfin sem færa áttu Hafskip hf. 80 milljón króna hlutafjáraukningu að kröfu Út- vegsbankans og tryggja þannig fjárhagslega stöðu fyrirtækisins gagnvart bankanum eru í geysi- legum vanskilum. Aðeins hefur náðst að innheimta 7-8 milljónir af þeim um það bil 20 miijónum sem átti að greiða af brcfunum 1. september sl. Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn fékk hjá Útvegsbank- anum átti að greiða af 152 bréfum 1. september í fyrra og voru það fyrstu afborganir af bréfunum. Enn hefur aðeins verið greitt af 92 bréfum og eru um 15 milljónir króna í vanskilum af fyrstu út- borguninni. í þeirri upphæð eru 15% dráttarvextir frá gjalddaga. Þessir aðilar hafa fengið ítrek- anir um að greiða af bréfunum, en ekki hefur verið gripið til al- varlegra innheimtuaðgerða. Nokkrir aðilar hafa lýst yfir því að þeir muni aldrei greiða af bréf- unum enda telja þeir sig hafa ver- ið plataða til þess að skrifa undir bréfin á aðalfundi Hafskips árið 1985. Að sögn hafa nokkrir stórir aðilar farið fram á samninga um greiðslukjör, en bankinn hefur ekki tekið afstöðu til þeirrar beiðni. Eins og kunnugt er gerði Út- vegsbankinn kröfu til þrotabús- ins um veðrétt í þessum bréfum, en þrotabúið hefur þvertekið fyrir að viðurkenna þann rétt bankans. -gg Albert Tákn Hafskips Albert Guðmundsson er enn í réttarstöðu grunaðs manns í Haf- skipsmálinu. Samkvæmt fjölmiðlum var hann til rannsóknar hjá tveimur opinberum embættum vegna meintra skattsvika. HP kveður hann eiga málaferli yfir höfði sér af hálfu hins opin- bera. Á þingi neitaði Albert að hafa þegið nokkuð frá Hafskip. Nokkrum mánuðum síðar viður- kenndi hann að skipafélagið hefði greitt fyrir hann för til Nissa. Síðar kom í ljós, að Nissaförin virtist tvígreidd, því ríkissjóður borgaði hana líka. Yfir 70 af hundraði lands- manna vildu að hann segði af sér vegna Hafskipsmálsins. Samt er Albert Guðmundsson, tákngervingur Hafskipsmálsins, í efsta sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins. -ÖS. Sjá bls. 7 Viltu svín, kjúkling eða lamb? Fólk hefur í æ ríkari mæli hallað sér að þeim tveimur fyrrtöldu á undanförnum árum, en lambakjötið á verulega undir högg að sækja. Mynd E.ÓI. Kjötneyslan Stöðvarfjörður Fiskverkun í fjárhúsi Trillukarlar með fiskverkun ígömlu fjárhúsi Þetta hefur farið vel af stað hjá okkur, sagði Bragi Pálsson starfsmaður hjá Færibak á Stöðvarfirði, en Færibakur hf. er nýtt fyrirtæki, líklega eitt sinnar tegundar á íslandi, en um er að ræða fiskverkunarfyrirtæki trillukarla. Fyrirtækið, sem stofnað var í janúar af 11 trillukörlum, verður rekið allt árið í kring í gömlu fjár- húsi sem nú hefur verið innréttað sem fiskverkunarstöð. Starfs- menn fiskverkunarinnar eru um 6 talsins en auk þess starfa trillu- karlarnir af og til við verkunina sjálfir. Að sögn Braga er fyrir- tækið að senda um 60 tonn af fiski til Grikklands á næstu dögum en þar er að mestu um saltaðan afla að ræða. Fyrirtækið dregur nafn sitt af boða nokkrum sem er á slóðum þar sem Stöðfirðingar stunda handfæraveiðar á sumrin.-K.ÓI. Fjallalambið fer halloka Þótt kjötneysla landans hafi aukist minnkar neysla kindakjöts. Var að meðaltali 38 kíló á mann ífyrra. Hefur mest orðið 53 kíló Enda þótt kjötneysla landans aukist ár frá ári minnkar kindakjötsátið stöðugt. Hver ís- lendingar borðaði að meðaltali aðeins um 38 kíló af kindakjöti eða lambakjöti í fyrra, en hæst hefur þessi neysla komist upp í 53 kfló á ári. Árleg kjötneysla hvers íslend- ings hefur aukist um tæplega 3 kfló síðan árið 1983, en neysla kindakjöts hefur minnkað um Á lafoss/SÍS Setja ullarbann á bændur Alafoss og Iðnaðardeild SÍS hafa stöðvað öll ullarkaup af íslenskum bændum þar til rfldð hefur gert upp niðurgreiðslur frá fyrra ári og tryggt niðurgreiðslur og eða verðlækkun á þessu ári. Umboðsmenn þessara fyrirtækja hafa fengið fyrirmæli um að taka ekki við meiri ull frá bændum. „Við gerðum samning við ríkið fyrir nokkrum árum um niður- greiðslur á ull. Ríkið stóð ekki við þennan samning í fyrra. Þessi tvö fyrirtæki eiga inni niður- greiðslur upp á samtals 40 milljónir króna frá því í fyrra og við munum ekki taka við meiri ull fyrr en þessu hefur verið kippt í lag og samkomulag hefur náðst fyrir þetta ár,“ sagði Gunnlaugur Þráinsson framkvæmdastjóri hjá Álafoss í samtali við Þjóðviljann í gær. Álafoss liggur að sögn Gunn- laugs með talsverðar birgðir af ís- lenskri ull sem það getur ekki flutt út án þess að stórtapa á við- skiptunum. 30% verðfall varð á íslenskri ull á heimsmarkaði á síðasta ári og hún á í erfiðri sam- keppni við ull frá öðrum löndum sem í flestum tilvikum er mýkri. „Með þessari ákvörðun sem tekin var í dag erum við að þrýsta á ríkið með að greiða niður- greiðslur fyrra árs og semja um ráðstafanir á þessu ári,“ sagði Gunnlaugur. „Málið er til meðferðar í ráðu- neytinu og ég á von á að niður- staða fáist innan tíðar. Það er ver- ið að kanna forsendur þessarar kröfugerðar," sagði Sigurður Þórðarson skrifstofustjóri í fjár- málaráðuneytinu í gær. -gg nær 6 kfló á þessu tímabili. Hins vegur hefur svínakjötið unnið talsvert á. Árið 1983 borðuðu menn að meðaltali 3,6 kfló af svínakjöti en í fyrra voru þau orð- in 7,3. Það sama gildir um kjúklinga og annað fuglakjöt. Árið 1983 borðuðu íslendingar að meðaltali um 3,2 kíló af fuglakjöti, en nær 7 í fyrra. Neysla nautakjöts hefur einnig aukist. Hlutdeild kindakjöts í neyslunni hefur þannig hrapað úr 69% í 57% af heildarneyslunni á þessum árum. Félög sauðfjárbænda í Borg- arfjarðarhéraði og Snæfells- og Hnappadalssýslu fjölluðu um þessi mál á fjölmennum fundi í Borgarnesi í vikunni og er sagt frá fundinum í blaðinu. -gg Sjá SÍÖU 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.