Þjóðviljinn - 12.02.1987, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 12.02.1987, Blaðsíða 14
AU»YÐUBANDAIAGK> Skagfirðingar! Um hvað snúast komandi kosningar? Allir frambjóðendur Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra í komandi alþingiskosningum mæta á almennum, opnum fundi í Safnahúsinu nk. laugardag kl. 16. Stutt ávörp flytja: Þórður Skúlason, sveitarstjóri, Unnur Kristjánsdóttir, iðnráðgjafi, Húnavöllum, Hannes Baldvinsson, framkv.stj., Anna Kristfn Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi, Þórarinn Magnússon, bóndi, Frostastöðum, Hafþór Rosmundsson, form. Verkalýðsf. Vöku. Framsögumenn sitja síðan fyrir svörum ásamt Ragnari Arnalds. Frjálsar umræður. Alþýðubandalagið. Alþýðubandalagið Rangárþingi Almennur félagsfundur Almennur félagsfundur verður haldinn föstudaginn 13. febrúar kl. 21.00 að Krókstúni 5, Hvolsvelli. Á fundinn koma menn úr efstu sætum framboðslistans. Nýir félagar veikomnir. Stjórnin. Alþýðubandalagið Vesturlandi Kjördæmisráð Kjördæmisráð AB á Vesturlandi boðar til fundar í félagsheimilinu Lindar- tungu í Kolbeinsstaðarhreppi, sunnudaginn 15. febrúar kl. 13.30. Fundarefni: 1) Undirbúningur alþingiskosninganna. - Allir frambjóðend- ur á lista AB á Vesturlandi mæta á fundinn. S|jóm kjördæmisráðs Alþýðubandalagið á Austurlandi Stuðningsmenn Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi Með hækkandi sól höldum við vinnufund með framboðskonum í Valaskjálf, Egilsstöðum (blái salur), fimmtudaginn 12. febrúar klukkan 20.30. Munið rútuferðirnar. - Kjördæmisráð. Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur Fundur í bæjarmálaráði laugardaginn 14. febrúar kl. 10.00 í Skálanum, Strandgötu 41. Dagskrá: 1) Afgreiðsla fjárhagsáætlunar. 2) frá starfi nefnda. 3) Undirbún- ingur kosninga. 4) Önnur mál. Mætið vel og stundvíslega. ATH! Sími á Skálanum er 54171, skrifið í vasabókina. - Stjórnin. Alþýðubandalagið Kópavogi Fundur um umhverfismál Opinn fundur um umhverfismál verður haldinn í Þinghóli mánudaginn 16. febrúar kl. 20.30. Dagskrá: Rætt um frumáætlanir bæjaryfirvalda um aukna áherslu á um- hverfismál og fegrun bæjarins. Framsögu hefur Valþór Hlöðversson for- maður Umhverfisráðs. Einnig mætir á fundinn Einar Sæmundsson ný- ráðinn garðyrkjustjóri Kópavogs. Allir velkomnir. - Stjórn ABK. Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Byggjum landið allt Alþýðubandalagið Norðurlandskjördæmi eystra verður með opna stjórnmálafundi sem hér segir: Hrisey - fimmtudaginn 12. febrúar kl. 20.30 í Brekku. Á fundinum flytja ávörp: Steingrímur J. Sigfússon, Svanfríður Jónasdóttir, Sigríður Stefáns- dóttir og Björn Valur Gíslason. Framsögumenn sitja síðan fyrir svörum. Reynihlíð - laugardaginn 14. febrúar kl. 20.30. Allir frambjóðendur Al- þýðubandalagsins á Norðurlandi eystra mæta á fundinn og sitja fyrir svörum. Ávörp flytja: Steingrímur J. Sigfússon, Svanfríður Jónasdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Björn Valur Gíslason. - Kjördæmlsráð. Stjórn Alþýðubandalagsfélags Vestur-Húnavatnssýslu Hvað þarf til að snúa vörn í sókn í atvinnu- og búsetumálum Vestur-Húnvetninga? Félagsfundur í Alþýðubandalagsfélagi V-Húnavatnssýslu verður haldinn mánudagskvöldið 16. febr. kl. 21.00 í Versthúsinu. Fundarefni felst í fyrirsögninni og verður það reifað af Þórði Skúlasyni. Síðan verður rætt um undirbúning kosninganna. Við skorum á okkar fólk að mæta á fundinn. Jafnframt minnum við á að nýir félagar eru alltaf velkomnir. Opið hús Alþýðubandalagsins er fyrirhugað á Vertshúsinu laugardaginn 21. febr., 28. febr. og 7. mars milli kl. 15.00 og 17.00. Nánar auglýst síðar. ■ ■■ — ....... ■ ' ■■ .......■■■ ----- " ■■■■■' % ÆSKULÝÐSFYLKINGIN ÆFR Aðalfundur Æskulýösfylkingin í Reykjavík boðar til aðalfundar, fimmtudaginn 19. febrú- ar kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur dagskráratriði auglýst síðar. - Stjórn ÆFR. Kvikmyndasjóður Viðtal við Þráin Bertelsson Þau mistök urðu í umfjöllun Þjóðviljans í gær um úthlutanir Kvikmyndasjóðs, að millifyrir- sagnir féllu niður að nokkru á 6. síðu. Er þetta sérlega bagalegt eink- um hvað varðar stutt viðtal við Þráin Bertelsson kvikmynda- gerðarmann, þar sem lesendur verða að geta sér til hver það er sem talar. Til að ekkert fari á milli mála birtum við hér á eftir viðtalið við Þráin aftur. -sá. „Ég óska Hrafni Gunnlaugs- syni til hamingju. Hann fær núna það tækifæri, sem alla íslenska kvikmyndagerðarmenn hefur dreymt um, sem sé að gera kvik- mynd án þess að þurfa að hafa áhyggjur af fjármálunum. Hrafn hefur gert bæði góða og vonda hluti rétt eins og við hinir og hann á skilið að fá gott tækifæri til að sýna hvað í honum býr. Það sem mér hins vegar sárnar við þessa úthlutun er að sjá enn einu sinni staðfestingu á þeirri ringulreið, geðþóttaákvörðunum og fáfræði, sem alla jafna hafa einkennt störf Kvikmyndasjóðs. Það eru engar reglur til handa úthlutunarnefnd að fara eftir. Á hún að veðja á þá kvikmynda- gerðarmenn sem henni líst best á persónulega? Á hún að úthluta til manna eftir afköstum? Á hún að úthluta eftir aðsókn? Eftir hverju á hún að fara? Mönnunum er vorkunn. Á hinn bóginn er Knúti Hallssyni formanni úthlutunar- nefndar engin vorkunn. Hann hefur haft góðan tíma, allar götur síðan ég byrjaði í kvikmynda- gerð, til að koma skipulagi á hlut- ina, en það hefur hann látið vera. Það er ekki Hrafni að kenna að mönnum gremst, hversu mjög honum tekst að mjólka sjóðinn. Það er Knútur sem ber ábyrgð- ina. Það gengur ekki lengur að dreifa peningum af handahófi, eins og Egill ætlaði að dreifa silfr- inu yfir þingheim forðum. Það þarf að setja um þetta reglur. , Eins og stendur getur allt gerst: Það væri til dæmis ekkert hægt að gera við því, þótt einhver maður fengi peninga í erlenda sampró- dúksjón, og notaði þá peninga síðan til að kaupa íslandsréttinn á myndinni. Og í framhaldi af því ætti styrk- þeginn allan aðgangseyri sem inn kæmi á íslandi án þess að hætta nokkru úr eigin vasa. Ég trúi því ekki að ekki hafi verið sett undir þennan leka varðandi þessa sænsk-íslensku mynd. Ég held að það liggi í augum uppi, að ég sjálfur hef fengið hrikalega útreið hjá Kvikmynda- sjóði. Eg hef gert fimm myndir og fengið rúmar tíu milljónir. Hrafn hefur gert þrjár myndir og fengið tæpar þrjátíu. Ég hef fengið góða aðsókn og getað skrimt, en mig hefur reyndar dreymt um að fá meiri aðstoð til að geta þróast sem listamaður. En ég hef bið- lund. Hrafn hefur fengið gott tækifæri. Kannski kemur röðin einhvern tímann að okkur minni spámönnunum eins og Ágústi Guðmundssyni, Þorsteini Jóns- syni og Þráni Bertelssyni. Mér finnst við eiga það skilið“. Laus staða Lektorsstaða í lífeðlisfræði við námsbraut í hjúkrunarfræði f læknadeild Háskóla Islands er laus til umsóknar. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna frá 1. júlí 1987. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækj- enda, rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6 150 Reykjavík, fyrir 9. mars n.k. Menntamálaráðuneytið, 9. febrúar 1987. Tilkynning til launa- skattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir mánuðina nóvember og desember er 16. febrúar n.k. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. Vináttufélag VÍK íslands og Kúbu Aðalfundur Aðalfundur VÍK verður haldinn laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00 að Hverfisgötu 105 efstu hæð. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kristina Björklund segir frá vinnu- ferð til Kúbu um jólin og sýnir lit- skyggnur. 3. Starfið framundan. Mætum öll. Stjórnin. tímaleysi í umferðinni. Það ert ýtí sem situr undir stýri. UUMFERÐAR £.an*he»(\ ráð T4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN álþýðubandaiagið KOSNINGASKRIFSTOFUR Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Kosnlngaskrifsto,a Alþýðubandalagsins er í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, Akureyri. Til að byrja með verður skrifstofan opin þriðjudaqa oq fimmtudaga kl. 16-18. Starfsmaður er Kristjana Helgadóttir. Síminn er G-listinn Reykjanesi Aðalkosningaskrifstofa G-listans í Reykjaneskjördæmi er ( Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Þareropið alla virka daga frá kl. 10.00-19.00. Alltaf heitt á könnunni og starfsmennirnir Valþór, Ásdís, Helgi og Unnur til þjónustu reiðubúin. Símarnir eru 41746 og 46275. Þá hefur einnig verið opnuð kosningaskrifstofa í Keflavík, að Hafnargötu 34. Síminn þar er 92-4286. - G-listinn Reykjanesi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.