Þjóðviljinn - 12.02.1987, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 12.02.1987, Qupperneq 2
SPURNINGIN Agla Róbertsdóttir, skrifstofu- maður og húsmóðir: Nautakjöt, lambakjöt og svína- kjöt til skiptis. Annars er kjöt af- skaplega dýrt - sérstaklega lambakjötið miðað við gæði. Hlynur Möller, bifvélavirki: Lambakjöt því miður. Nautakjötiö er miklu betra en það er of dýrt. Hvaöa kjöt hefur þú oftast á borðum? Ólafur Guðjónsson, starfsmaö- ur Hagkaupa: Fjallalamb - það er lang best. Maður verður svo fljótt leiður á öðru kjöti. Ingibjörg Elðsdóttir, húsmóðir: Dilkakjöt - það er best. Anna Bjarkan, húsmóðir: Lambakjöt út af gömlum vana. FRÉITIR Kvikmyndasjóður Skiluðu úthlutuninni í fytra Eyvindur Erlendsson: Milljónarfélagið hefur aðeins fengið tœpar 3 milljónir frá Kvikmyndasjóði Eg hef aðeins séð hluta þessara peninga í sjónhendingu. Það var þegar ég afhenti þá fulltrúa fjármálaráðuneytisins aftur sagði Eyvindur Erlendsson við Þjóð- viljann í gær“. Eyvindur og kvikmyndafélagið Milljónarfélagið fékk úthlutun úr Kvikmyndasjóði árið 1985 til að gera mynd sem hefur vinnslu- nafnið Erindisleysan mikla og var upphæðin að núgildi 2.940.000 kr. í fyrra fékk Eyvindur síðan út- hlutað 3,9 milljónum sem hann taldi að væri allt of lítið til að geta fullunnið myndina og fékk þá Kvikmyndasjóði úthlutunarféð aftur til varðveislu. Það lítur hins vegar þannig út í gögnum blaðs- ins um úthlutanir sjóðsins sem Eyvindur hafi þegar fengið allt þetta fé. Staðreyndin er því sú að frá sjóðnum hefur Eyvindur aðeins fengið þessar tæpl. 3 milljónir. „Mér var þessi aðferð ansi mik- ils virði, að taka ekki við þessum peningum í fyrra vegna þess að okkur fundust þeir ekki nógir, þóttumst geta gengið að þeim vís- um núna og höfðum ákveðna von um að við þá yrði bætt, en þessi aðferð okkar hefur greinilega ekki frést og fólk haldið að við værum með alla þessa peninga, einkum af því að okkur þótti við standa heiðarlega að þessu gagnvart sjóðnum og höfðum sett þessa peninga sem við fengum árið 1985 í undirbúning fyrir myndina og komið henni vel á rekspöl, meðal annars greitt fyrirfram fyrir kvikmyndunar- tæki og bfla sem nota á, þannig að ekki er rétt að engin mynd hafi komið út úr þessu. Myndin er komin á góðan rekspöl" sagði Eyvindur Erlendsson kvikmyndagerðarmaður að lok- um. -sá. Það var handagangur í öskjunni í hátíðarsal Flensborgarskóla í gærmorgun þegar nemendur og kennarar og aðrir gestir gæddu sér á afmælistertunni ( morgunkaffinu. Mynd-E.ÓI. SkólahalcL Afmælis- hátíð í Flensborg Nemendur í Flensborgarskóla halda í þessari viku uppá 15 ára afmæli nemendafélags skólans með margvíslegu móti. I gær var .nikil afmælisveisla í skólanum þar sem m.a. nemendum, kenn- urum og velunnurum skólans var boðið að gæða sér á 15 metra langri afmælistertu. Þá hafa ýms- ir þjóðþekktir menn heimsótt skólann í vikunni og tekið þátt í kappræðum. I kvöld standa Flensborgarar fyrir stórtónleikum í íþróttahús- inu við Strandgötu til styrktar Amnesty International. Meðal þeirra sem koma fram eru Bubbi Morthens, Grafík, Greifarnir, Foringjarnir, Rauðir fletir, Syk- urmolarnir og Sverrir Stormsker. Hátíðarhöldunum lýkur á föstudag með dansleik og al- mennri gleði. -lg- Vetrarvertíðin Góður fiskur, góður afli Vetrarvertíðin hefur gengið ágætlega víðast hvar það sem af er. Fiskur er víðast hvar ágæt- ur og gæftir með betra móti. í Keflavík var bátaaflinn orð- inn um mánaðamótin síðustu 1035 lestir og hæsti báturinn með um 200 lestir. Frá Akranesi eru gerðir út litlir bátar og síðan togarar og litlu bátarnir hafa fengið góða ýsu á Löggan Vilja æfa í Saltvík Reiðskólinn fluttur í Víðidal? Lögreglan í Reykjavík fór fram á það við borgarráð í gær að fá afnot af aðstöðu borgarinnar í Saltvík. Þar hefur borgin um langt skeið rekið reiðskóla fyrir börn og unglinga. Lögreglan hyggst nýta þessa aðstöðu til æfinga og telur svæðið mjög heppilegt til þess. Komið hefur til tals að flytja reiðskólann inn í Víðidal, þar sem aðstaða fyrir slíkt er mun betri. - 88- línu og togararnir hafa landað 120-130 tonnum eftir 8-9 daga úthald. Bátar frá Rifi hafa aflað í betra meðallagi og gæftir hafa verið góðar með fáum undantekning- um. Fiskurinn er ágætur þorskur og ýsa. Þorlákshafnarbátar öfluðu í síðustu viku var tæp 697 tonn og 25 bátar eru byrjaðir veiðar. 18 þeirra eru á netum og lönduðu 580 tonnum, 4 línubátar lönduðu 6860 kg og 2 dragnótabátar lönduðu í vikunni 106,4 tonnum og einn trollbátur landaði 2840 kg- Aflahæsti báturinn til þessa í Þorlákshöfn er Höfrungur 3. með tæp 180 tonn. -sá. 80 ára á morgun Jónas Ásgeirsson, Lönguhlíð 23 Reykjavík, verður áttræður föstudaginn 13. þ.m. Hann verð- ur að heiman á afmælisdaginn. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 12. febrúar 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.