Þjóðviljinn - 18.02.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 18.02.1987, Blaðsíða 11
ÚTVARP^SJÓNWRPf 0. 6.45 Veöurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barnanna: „Fjöru- lalli“ eftir Jón Viöar Gunnlaugsson 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. 9.35 Lesiö úr torustugreinum dagblaö- anna. 9.45 Þingfréttir 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. 10.30 Úr fórum fyrri tfðar 11.00 Fréttir. 11.03 islenskt mál 11.18 Morguntónleikar 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfrgnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.30 í dagsins önn - Börn og skóli 14.00 Miödegissagan: „Þaö er eltthvaö sem engin veit“ Líney Jóhannesdóttir les endurminningar sínar sem Þorgeir Þorgeirsson skráði (6). 14.30 Noröurlandanótur Svíþjóö. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpiö 17.00 Fréttir. 17.03 Sfödegistónlelkar: Tónlist eftir Felix Mendelssohn 17.40 Torgiö - Menningarstraumar. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. Fjölmlðlarabb Tón- 20.00 ^Ekkert mál 20.40 Mál mála 21.00 Gömul tónllst 21.20 Á 1 jöllunum 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma 22.30 Hljóð-varp 23.10 Djassþáttur 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. 9.00 Morgunþáttur 12.00 Hádeglsútvarp 13.00 Kliöur 15.00 Nu er lag 16.00 Taktar 17.00 Erill og ferill 18.00 Dagskrárlok. 7.00 Á fætur með Sigurði G. Tómas- syni. 9.00 Páll Þorsteinsson á léttum not- um. 12.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu Harðprdóttur. Fréttapakkinn 14.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd 17.00 Hallgrfmur Thorsteinsson í Reykjavfk síðdegis. 19.00 Hemmi Gunn í miðrl viku 21.00 Ásgeir Tómasson á miðviku- dagskvöldi 23.00 Vökulok 24.00 Næturdagskrár Bylgjunnar. Útrás 19.00 Ný-Bylgja Umsjón: Ásmundur Vil- helmsson og Magnús Kristjánsson (FA) 12.00 Heiðríkja Umsjón: Gunnar Ársæls- son og Þorleifur Kjartansson (FA) 14.00 Kaffibrúsinn Umsjón: Ágústa Ól- afsdóttir og Nína Björk Hlöðversdóttir (KV) 16.00 Blöndungur Umsjón: Gunnar Gíslason, Ólafur Vilhjálmsson og Sig- urður Björnsson (KV) 18.00 Rok(k) úr ýmsum áttum Umsjón: Helga Dóra Helgadóttir og Ragnheiður Adolfsdóttir (FA) 19.00 Á réttri rás Umsjón: Pétur Péturs- son og Kristján Þórarinsson (FA) 20.00 Ungiingar erlendis - þáttur um skiptinema. Umsjón: Anna Maía Guð- mundsdóttir og Thelma Hermannsdóttir (FA) 22.00 Vormenn Umsjón: Stefán Óskar Aðalsteinsson og Atli Helgason (FA) AF- Fjölbrautaskólinn við Ármúla. KV - Kvennaskólinn I Reykjavik. 18.00 Úr myndabókinni 19.00 Prúðuleikararnir 19.25 Fréttaágrip á táknmáli 19.30 Spurt úr spjörunum 20.00 Fréttir og veður 20.35 Auglýsingar og dagskrá 20.40 I takt vlð tfmann 21.35 Sjúkrahúsið í Svartaskógi 22.20 Rokkhátfð f Mainz I 17.00 Besta litia hóruhúsið i Texas Bandarisk kvikmynd með Burt Reynolds, Dolly Parton og Dom Deluise í aðalhlutverkum. Lokað. 18.30 Myndrokk. Lokað. 19.00 Gúmmíbirnlrnlr. Teiknimynd. 19.30 Fréttir 20.00 Opin lína - Gestur er Bryndís Schram. 20.15 Bjargvætturinn 21.05 Húsið okkar. Lokað. 21.50 Tiskuþáttur. Lokað. 22.20 Zarcoz. Bandarisk bíómynd með Sean Connery og Charlotte Rampling i aðalhlutverkum. Lokað. KALLI OG KOBBI Ætlar hann að vera Nei hann ætlar að sitja heima og gefa sælgæti? fyrjr hrekkjalómum GARPURINN FOLDA í BLÍDU OG STRÍDU ORÐ I EYRA Já, ráðherra! Algerlega hlutlaus nefnd, sem Alþingi íslendinga skipaði Hæstarétti að skipa til að kanna embættisrekstur menntamála- ráðherrans hefur nú hafið störf. Treglega gekk þó hvorttveggja að fá rannsóknarnefnd sam- þykkta og eins hitt að fá embætti- smenn til að taka sæti í nefndinni, því að nefndarstörf af þessu tagi þykja ekki vita á gott: Enginn veit hvern enda það tekur ef skyndilega er farið út í þá sálma að rannsaka á hlutlausan hátt störf og embættisrekstur máttar- stólpa í þjóðfélaginu sem ýmist eru kosnir eða skipaðir, en þó fyrst og fremst útvaldir af guði til starfa sinna og embætta. Ákveðið var að hefja rannsóknina á því að kalla fyrir nefndina nánasta starfsmann menntamálaráðherrans og hans hægri hönd - ráðuneytisstjórann í menntamálaráðuneytinu. Nefndarmaður: Það er ekki okkur að kenna að þú varst kall- aður fyrir. Okkur var skipað að rannsaka þetta leiðindamál. Ráðuneytisstjórinn: Á þessi nefnd að kanna rekstur ráðuneyt- isins yfirleitt, eða bara uppátækin í þessum ráðherra? Nefndarmaður: Rannsóknin beinist að ráðherranum sjálfum. Róðuneytisstjórinn: Guði sé lof. Nefndarmaður: Mætti er beð- inn um að tala hærra. Hvað varstu að segja? Ráðuneytisstjórinn: Ég hef ekkert að fela, en ég treysti mér engan veginn til að bera ábyrgð á öllum þessum ráðherrum sem streyma hér út og inn eins og jó- jó. Ég gæti sagt ykkur margar sögur af þeim. Nefndarmaður: Við skulum byrja á sögum af þessum einstaka ráðherra og taka fyrst söguna af því, hvernig það atvikaðist að hann rak úr embætti fræðslustjór- ann á Norðurlandi eystra. Ráðuneytisstjórinn: Það er nú eiginlega mér að þakka. Nefndarmaður: Fyrirgefðu að ég skuli grípa fram í fyrir þér, en er það rétt skilið að þú viljir taka á þig ábyrgðina á þessari brott- vikningu. Ráðuneytisstjórinn: Alls ekki. Ég átti hugmyndina, en ábyrgðin er að sjálfsögðu ráðherrans. Og þessa hugmynd setti ég fram til að afstýra ennþá meiri ógæfu. Þannig var að strax þegar þessi ráðherra kom í ráðuneytið sá ég að erfiðir tímar færu í hönd. Fas og limaburður minnti mjög á ít- alska stjórnmálamanninn Mússó- líni, og sjálfsálit og stórmannleg framkoma minnti á rómverska keisarann Neró, svo að ég var fljótur að sjá út, að þessi ráðherra yrði einn af þeim erfiðari. Ég vil leggja á það áherslu að ég hef einskis látið ófreistað til að halda honum í skefjum, en ég held það sé ekki hægt að misvirða það við mig, þótt ég hafi tvisvar Uenntamálaráðherrann: Ekki ósvipaður ílalska stjórn- málamanninum Mússólíni - i útliti. sinnum neyðst til að fórna peðum í tafli mínu við ráðherrann. Nefndarmaður: Gætirðu út- skýrt þetta nánar. Ráðuneytisstjórinn: Hann var nýlega byrjaður hérna hjá mér þessi blessaður kján.. hm... er verið að taka þetta upp á segul- band? Nefndarmaður: Já. Ráðuneytisstjórinn: Hann var semsé nýbyrjaður þessi gáfaði og velmálifarni heiðursmaður þegar hann kallar MIG inn á skrifstof- una sína og fer að spyrja hvað hann geti gert sem ráðherra. - Skynsamir ráðherrar gera sem allra minnst, segi ég. - Ég er ekki skynsamur ráð- herra heldur mikilmenni, segir hann. - Já, ráðherra, segi ég. Ráðuneytisstjórlnn: Em- bættismenngeta ekkiboriðá- byrgð áþessum ráðherrum sem koma og tara einsog dægurflugur. - Ég er á móti þessum helvítis stúdentum, segir hann. Þetta heimtar af mér námslán með mikilli frekju og er svo í út- löndum og hangir á búllum og svo kemur það heim þetta dót og set- ur af stað rannsóknir sem sanna að allt sem gert er sé ómögulegt. Ertu með blað og blýant? - Já, ráðherra, segi ég. - Skrifaðu þá minnispunkta: 1) afnema námslán 2) taka upp zetuna aftur 3) fjölga yfsilonum. Ég sá strax að það yrði engu tauti komið við manninn, svo að ég neyddist til að grípa til minna ráða og sagði: Þetta líkar mér. Stokka upp kerfið alminlega. Það var tími til kominn. Mér leyfist kannski að koma með tillögu: Það verða allir skíthræddir í kerf- inu ef þú veittir einhverjum emb- ættismanni ærlegt tiltal. Ærlegt tiltal gerir sama gagn og margar reglugerðir og mikil pappírs- vinna. Þá segir ráðherrann: - Haf þú heill mælt. Mér leiðist pappírsvinna. Nú rekum við ein- hvern delann. Réttu mér starfs- mannaskrána. Og nú spyr ég rannsóknarnefndina: hvað gat ég gert annað en að rétta ráðherran- um starfsmannaskrána? Nefndarmaður: Hvað sagði ráðherrann, þegar hann tók við starfsmannaskránni? Ráðuneytisstjórinn: Hann sagði: Ugla sat á kvisti, átti börn og missti... Nefndarmaður: Og þá fauk Lánasjóðsmaðurinn. En hvernig bar þetta til með námsstjórann? Ráðuneytisstjórinn: Það var ósköp svipað. Ráðherrann hafði lítið verið í fjölmiðlum í dáldinn tíma og var orðinn erfiður, kom- inn með fráhvarfseinkenni og far- inn að tala um að þessir sér- kennslupeningar skiluðu litlum árangri. Nefndarmaður: Hvað hafði hann til marks um það. Ráðuneytisstjórinn: Hann sagðist sjá það á starfsmönnum ráðuneytisins yfirleitt og á mér sérstaklega. Maðurinn var sem sagt orðinn til alls vís, svo að ég kunni ekki önnur ráð en rétta honum starfsmannakladdann. Nefndarmaður: Hvað sagði ráðherrann þá? Ráðuneytisstjórinn: Hann sagði: Úllen dúllen doff... Og svo heimtaði hann að þessi fræðslu- stjóri væri rekinn. Nefndarmaður: Og hvað sagð- ir þú þá? Ráðuneytisstjórinn: Ég sagði vitaskuld: Já, ráðherra! Suðri

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.