Þjóðviljinn - 23.04.1987, Qupperneq 24

Þjóðviljinn - 23.04.1987, Qupperneq 24
4^ I \ ! í í í f í ! t \ Konur eiga innbyrðis ólíkra hagsmuna að gæta, rétt eins ogkarl- ar. Kynið eitt erþví engin trygging fyrirgóðum verkum, hvorki áAl- þinginé annarsstaðar. Árangursrík jafnréttisbarátta hlýturað byggjastá róttœkri lífssýn og vilja til að gjör- breyta samfélaginu. ÍAlþýðubanda- laginu vinna konur og karlarsaman að þessu markmiði. Við miðlum hvertöðru afólíkri reynslu, þekk- ingu og hugmyndum. Þann sam- eiginlega sjóð getum við nýtt til að breyta samfélaginu til betri vegar, svo hérgeti allir lifað meðfullri reisn, ungir sem aldnir, konursem karlar. Olga Guðrún Árnadóttir Alþýðubandalagið er eina vinstra afliðííslenskumstjórnmálum. Hvað þýðirþað? Það þýðir aðflokkurinn mun enn standa vörð um lífskjör launþegannaí landinu, hvortsem þeireruíASÍ, BSRBeðaBHM. Við munum enn standa vörð um íslenska menningu og listir. Við munum enn tryggja öllum jafnan rétt til náms og menntunar. Við munum efla Há- skóla íslands og íslenska þekkingu og koma í veg fyrir að ísland dragist aftur úr öðrumþjóðum. Við vinnum að jafnrétti allra þegna þjóðfélagsins ogfriði ogafvopnun íheiminum. Barátta okkar byggist ekki á sér- hagsmunavörslu heldur á hugsjón- um sósíalista um jöfnuð, frelsi og réttlœti. Guðrún Helgadóttir Sjálfstœðismálin verða stöðugt að vera á dagskrá ella er menningu okk- ar ogframtíð sem þjóðar mikil hætta búin. Vinstri menn mega aldrei sofna á verðinum gegn útþenslu hernámsins og við verðum að koma í veg fyrir að næst verði skálað fyrir nýjum Nató-flugvelli á Norðurlandi. En til að hernámsflokkarnir og Pentagon taki mark á andstöðunni gegn hernum og Nató þarfsterkt Alþýðubandalag - sterktpólitískt afl sem berstgegn hermangsöflunum íþjóðfélaginu, gegn hagsmunavörslu þeirrafyrir Nató og herinn. Það getur ekkertþverpóli- tísktafl borið hugsjónir okkar um herlaust ogfriðlýst íslandfram til sigurs. Álfheiður Ingadóttir

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.