Þjóðviljinn - 30.04.1987, Page 6
VJÐHORF
Dvöl í orlofshúsum
Iðju
Iðjufélagar sem óska eftir að dvelja í orlofs-
húsum félagsins í Svignaskarði og orlofsíbúð
á Akureyri, sumarið 1987, verða að hafa sótt
um eigi síðar en föstudaginn 15. maí n.k.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
félagsins, Skólavörðustíg 16. Einnig er hægt
að sækja um símleiðis (símar 13082 og
12537).
Dregið verður úr umsóknum á skrifstofu fél-
agsins mánudaginn 18. maí kl. 17.00 og hafa
umsækjendur rétt á að vera viðstaddir.
Þeir Iðjufélagar sem dvalist hafa í húsunum
að sumarlagi á undanförnum 3 árum koma
aðeins til greina ef ekki er fullbókað.
Leigugjald verður kr. 4.000 á viku.
Sjúkrasjóður Iðju hefur eitt hús til ráðstöfunar
handa Iðjufélögum sem eru frá vinnu vegna
veikinda eða fötlunar og verður það leigt án
endurgjalds gegn framvísun læknisvottorðs.
Stjórn lóju
Þá hlýtur það að vera mjög
hæpið að byggja afstöðu á 15-20
ára gömlum athugunum. Enn-
fremur er ljóst að fyrrnefnd at-
hugun fór ekki fram í ljósi þess að
fara ætti út í mannvirkjagerð á
þessu svæði, heldur augljóslega
gerð m.t.t. þess hver tegundas-
amsetningin var á þessum árum.
Flóð eru náttúruleg
í rökstuðningi Náttúruvernd-
arráðs er ennfremur bent á, að
komi til þess að gera þurfi nýjan
farveg úr Miklavatni, geti það
leitt til breytinga á vatnafari, sem
geti haft í för með sér alvarlegar
afleiðingar fyrir lífríki friðlands-
ins. Þetta er ekkert útskýrt nán-
ar, en líklega er hér átt við aukna
flóðahættu. Þetta atriði er
gagnrýni vert. í fyrsta lagi eru
þetta getgátur því engin athugun
hefur farið fram í þessu sam-
bandi. í öðru lagi er nauðsynlegt
að skilgreina hvað átt er við með
„alvarlegar afleiðingar fyrir lífr-
íki friðlandsins og næsta nágrenni
þess“. Eru það flóð af völdum
náttúrunnar sjálfrar eða einungis
þegar maðurinn með fram-
kvæmdum sínum veldur flóðum?
í mínum huga eru náttúruleg flóð
eðlileg á náttúrufriðuðum svæð-
um. Flóð eru nefnilega eitt af til-
brigðum náttúrunnar, þau eru í
sjálfu sér náttúruleg. Flóð hafa
alltaf verið til staðar og venjulega
hefur gróðurfarið í heild sinni, líf-
heimur viðkomandi svæðis, að-
lagast þeim og notfært sér þau til
lengri tíma litið m.a. sem áburð.
Það er alltof algengt að menn telji
náttúruvemd vera fólgna í því að
halda öllu í óbreyttu ástandi þ.á
m. að koma í veg fyrir flóð, en svo
er alls ekki. Náttúran er alltaf að
breytast og lífríkið að aðlaga sig
þeim breytingum. Stundum
verða breytingamar svo miklar
að líf þurrkast út á svæðum eða
breytist mjög mikið. í fjölmörg-
um tilvikum er það af völdum
náttúrunnar sjálfrar, en í seinni
tíð vegna vaxandi umsvifa
mannsins. Það er það síðar-
nefnda, sem umhverfisvernd og
náttúrufriðun snýst um í mínum
huga, að koma í veg fyrir að mað-
urinn breyti svo umhverfinu að líf
þurrkist út. Það hlýtur því að vera
nauðsynlegt að fá úr því skorið
hvort núverandi flóð séu náttúra-
leg og að lífríkið hafi aðlagast
þeim, sem mér er til efs, áður en
farið er að fjalia um hættu af
völdum flóða. Þetta þýðir ekki
það, að hvergi megi hefta vatns-
föll. Slíkt getur verið nauðsynlegt
á vissum stöðum þar sem maður-
inn hefur „numið“ land.
Niðurstaða mín er sú að frið-
land Miklavatns sé ekki náttúru-
legt svæði og njóti ekki náttúra-
friðunar. Meðan svo er eigi því að
líta það augum umhverfisvernd-
ar, þannig að tekið sé tillit til
hagsmuna mannsins í sambandi
við nytjar af því, eins og raunar
nú þegar er gert. Tryggja þarf
hins vegar að breytingarnar verði
ekki það miklar að lífríkinu geti
stafað hætta af. Til þess að fá svar
við því þarf rannsóknir. Á grand-
velli þeirra er síðan að taka á-
kvarðanir og eftir því hefði Nátt-
úraverndarráð átt að bíða með
skoðun sína á þessu máli.
Vantar
umhverfislöggjöf
Að lokum skal það svo tekið
fram að með þessum pistli er ekki
verið að gera lítið úr þeim er
gengust undir þessa friðlýsingu á
sínum tíma. Menn verða bara að
viðurkenna að sú friðun fól alls
ekki í sér náttúrafriðun. Þá er
ekki heldur verið að setja út á það
ef landeigendur vilja ekki láta
þetta land af hendi til lengingar
flugvallarins, en þá verða þeir að
beita öðram rökum en að þetta sé
friðað svæði.
Það skal svo að lokum ítrekað
að hér er ekki við Náttúravernd-
arráð eitt að sakast, því að ég
þykist vita að það óski í flestum
tilvikum eftir meira afgerandi
friðun en niðurstaða næst um.
Það er löggjafinn sem hefur
brugðist í því að setja hér
heilsteypta umhverfisverndar- og
náttúrufriðunarlöggjöf, þannig
að hægt sé að taka á þessum
málaflokki af einhverju skyn-
samleg viti.
Sauðárkróki í mars 1987.
Jón Gauti Jónsson er kennari og
starfaði hjá Náttúruverndarráði ér
árunum 1976-1985, en er nú kenn-
ari við Fjölbrautaskólann á
Sauðárkróki.
Matráðskona óskast
Þjóðviljinn óskar að ráða matráðskonu strax.
Vinnutíminn er 3 - 4 klukkustundir á dag.
Upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri í
síma 681333.
þlÓÐVILIINN
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ í REYKJAVÍK
Við höldum
DANSLEIK
í lok kosningabaráttunnar og fögnum baráttudegi
verkalýðsins 1. maí
fimmtudaginn 30. apríl
í Risinu, Hverf isgötu 105.
Húsið opnaö kl. 22.00.
Fordrykkur og stutt ávörp
í upphaf i samkomunnar.
Skemmtiatriði.
Tónaf lóð og létt sveifla.
Verð aðgöngumiða
kr. 300.*
Sjálf boðaliöar í kosninga-
starfi G-listans eru boðnir
á samkomuna og eru vins-
amlegast beðnir að nálg-
ast miðana á skrifstofu
ABR miðvikudag og
fimmtudag.
Boðskort
- Hótel Borg
Vinstrisósíalistar munu halda fund á Hótel
Borg að loknum útifundunum 1. maí.
Hjördís Hjartardóttir verður fundarstjóri
Ragnar Stefánsson ræðir stöðu vinstrihreyfing-
arinnar að afloknum kosningum.
Soffía Sigurðardóttir ræðir stöðu verkalýðshreyf-
ingarinnar og baráttuna framundan.
Kristján Ari Arason kynnir hugmyndir og áætlanir
um stofnun útvarpsstöðvar.
Árni Hjartarson og Ársæll Másson syngja og
leika á gítara.
Þorvaldur Örn Árnason stýrir fjöldasöng.
Það er margt áhugavert að gerast í pólitíkinni
sem gaman væri að ræða um við fleiri yfir kaffi-
bolla á Borginni.
Allir velkomnir - Fjölmennum!
Bæjarfógetaskrifstofa
í Vestmannaeyjum.
Tilboð óskast í framkvæmdir við Heiðarveg 15 í
Vestmannaeyjum.
Innifalið í verkinu eru ýmiss konar breytingar og
endurbygging bæði utan og innan húss.
Verktaki tekur við húsinu í núverandi ástandi og
skilar því fullbúnu til notkunar.
Húsið er kjallari og þrjár hæðir, grunnflötur alls
um 1070 m2.
Verkinu skal skila fullgerðu 25. mars 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg-
artúni 7, Rvk., og á teiknistofu Páls Zoþhonías-
sonar í Vestmannaeyjum gegn 5000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri miðvikudag-
inn 20. maí n.k. kl. 11.00.
*r
z
0
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, sími 26844