Þjóðviljinn - 30.04.1987, Side 14
MINNING
Margrét Þorsteinsdóttir
Fœdd 18. september 1896 Dáin 13. apríl 1987
Með fám orðum vil ég minnast
vænnar konu, Margrétar frá
Reyðará í Lóni, sem kvaddi sitt
jarðlíf þann 13. apríl sl. eftir
langa og farsæla ævi. Hún var
fædd austur á Fljótsdalshéraði en
fluttist ung að árum að Stafafelli í
Lóni á vegum Halldóru föður-
systur sinnar, sem þar vistaðist
hjá þeim séra Jóni Jónssyni og
Guðlaugu konu hans. Voru þær
skyldar frú Guðlaug og Halldóra.
í þá daga var Stafafellsheimilið
mannmargt menningarheimili
eins og þá gerðist gjarnan á vildis-
jörðum prestsetranna í sveitum
landsins. Þar var margt starfs-
fólk, sem bæði vann með trú-
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Austurlandi
Samráðsfundur um kosningaúrslitin verður haldinn í Félagslundi á Reyðar-
firði laugardaginn 2. maí kl. 15.30. Fulltrúar í kjördæmisráði, stjórnir Al-
þýðubandalagsfélaga og trúnaðarmenn í kosningastarfinu eru hvattir til að
sækja fundinn.
Framkvæmdanefnd kjördæmisráðs
Alþýðubandalagið Akranesi
Opið hús í Rein 1. maí
Það verður að venju opið hús og kaffiveitingar í Rein á 1. maí. Opið frá 15 -
18. Allir velkomnir.
Kaffinefndin
ABH
1. maí kaffi í Skálanum
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði verður að vanda með 1. maí kaffi í Skála-
num, Strandgötu 41, þegar að afloknum útifundi verkalýðsfélaganna í
Hafnarfirði.
Hafsteinn Eggertsson trésmiður og formaður ABH og Þorbjörg Samúeis-
dóttir starfsstúlka flytja ávarp.
Félagar fjölmennið í 1. maí kaffið.
Stjórn ABH.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði verður í Skálanum, Strandgötu 41, laugardaginn 2.
maí kl. 10.00.
Umræðuefni: Atvinnumál og verkamannabústaðir: Sigurður T. Sigurðsson
og Þorbjörg Samúelsdóttir opna umræðurnar. Önnur mál. Stjórnln.
ABR
Vinningstölur í happdrættum
Vinningur í happdrætti ungra kjósenda kom á bækling nr. 9009. Ferð til
Rhodos fyrir 2. Hafið samband við Flokksmiðstöð s: 17500.
Vinningur í skyndihappdrætti ABR í kosningamiðstöð á kjördag kom á miða
nr. 313. Vinningur Majorka-ferð. Hafið samband í síma 17500.
Þeir sem eiga enn eftir að gera skil í kosningahappdrættinu eru beðnir að
hafa samband hið fyrsta við Flokksmiðstöðina.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Dansleikur í Rjsinu
ABR heldur dansleik fimmtudaginn 30. apríl kl. 22.00 í Risinu, Hverfisgötu
105.
Sjálfboðaliðar í kosningastarfi eru boðnir á dansleikinn og geta vitjað
miðanna á skrifstofu ABR miðvikudag og fimmtudag.
ABR
1. maí-kaffi
Alþýðubandalagið í Reykjavík hefur opið hús og kaffiveitingar eftir kröfu-
göngu og útifund 1. maí í Risinu, Hverfisgötu 105.
Félagar! Sem fyrr eru listilega bakaðar kökur ykkar vel þegnar. Stjórn
ABR.
ABH
1 .maí kaffi í Skálanum
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði verður að vanda með 1. maí kaffi í Skála-
num, Strandgötu 41, þegar að afloknum útifundi verkalýðsfélaganna í
Hafnarfirði.
Hafsteinn Eggertsson trésmiður og formaður ABH flytur ávarp.
Fólagar fjölmennið í 1. maí kaffið. Stjórn ABH.
ÆSKULYÐSFYLKINGIN
Fylkingin Hafnarfirði
Aðalfundur
Æskulýðsfylkingarinnar í Hafnarfirði verður haldinn í Risinu í Skálanum,
Strandgötu 41, laugardaginn 2. maí kl. 14.00.
Dagskrá: 1) Inntaka nýrra félaga. 2) Venjuleg aðalfundarstörf. 3) Laga-
breytingar. 4) Rætt um hússtjórn. 5) önnur mál.
Allir velkomnir. - Stjórnin.
mennsku að þeim margvíslegu
störfum, sem þar þurfti að sinna
og fann þar jafnframt öryggi og
athvarf f skjóli góðra húsráð-
enda. Sumt starfsfólkið hafði
börn á framfæri sínu, sem þá
ólust um leið upp á góðum
heimilum. Hjá séra Jóni og konu
hans á Stafafelli uxu þannig upp
auk einkasonar hans, Sigurðar, 6
eða 7 börn, og voru þrjú af þeim
algjör fósturbörn hans en hin til-
heyrðu starfsfólki, sem dvaldi
mörg ár á staðnum og tengdust
húsbændum og heimili sterkum
böndum, enda valt heill og hagur
heimilisins ekki hvað síst á því að
samhugur og starfsfúsar hendur
| lögðu fram krafta sína við marg-
vísleg nauðsynjastörf, sem sinna
þurfti. Snemma varð Margrét lið-
tæk f störfum, væn og efnileg á
allan hátt. Er hún var tólf ára orti
séra Jón til hennar:
Svona kemstu á fót, áður varir
og veist,
og vöxt að þú htjótir, því getum
við treyst.
Og nemirðu margt og verðir svo
væn
og vinnirðu þarft, það erallra vor
bæn.
Á unglingsárum fór hún til
Reykjavíkur á garðyrkjunám-
skeið til Einars Helgasonar í
Garðyrkjustöðinni, og er heim
kom lét hún hendur standa fram
úr ermum og fór að planta trjám á
Stafafelli, reynitrjám og
rifsrunnum, sem uxu og döfnuðu
mjög vel. Notaði hún gjarnan
rótarsprota frá reynitrjánum til
að fjölga þeim og fyrr en varði var
kominn vöxtulegur trjágarður á
Stafafelli með háum reynitrjám
og rifsrunnum rauðum af safarík-
um berjum á hverju hausti. Sjálf-
sagt hefur Sigurður, sonur séra
Jóns, rétt Margréti hjálparhönd
við að girða reitinn og fleira, en
beint og óbeint var það áhugi og
elja Margrétar við að planta og
hlú að gróðrinum, sem var drif-
fjöðrin. Síðar sneri hún sér að því
að útvega trjáplöntur í kirkju-
garðinn og annaðist hún hirðu á
honum, ásamt kvenfélagskonum
í Lóni, um langt árabil, svo að
sveitarsómi var að.
Margrét giftist árið 1922 Geir
Sigurðssyni bónda á Reyðará, og
bjuggu þau þar myndarbúi til árs-
ins 1964 er þau flytja á Höfn í hús
Aðalheiðar dóttur sinnar og
manns hennar Sigurðar Hjalta-
sonar, þar sem þau fengu hlýlega
íbúð. Hjá þeim áttu þau síðan at-
hvarf á efri árunum og nutu frá-
bærrar umhyggju frá hendi dótt-
ur og tengdasonar og barna-
barna. Á efstu árum Margrétar
og Geirs bilaði heilsan, eins og
oft vill verða, og þurftu þau
hjúkrunar og aðstoðar með, sem
aídrei brást frá hendi barnanna
þeirra. Geir andaðist fyrir nokkr-
um árum eftir erfið veikindi, og
Margrét kveður nú eftir langt og
farsælt ævistarf. Allra síðustu
árin dvaldi hún, að eigin ósk, á
Skjólgarði, elli- og hjúkrunar-
heimilinu á Höfn, þar sem hún
naut ágætrar umönnunar og
börnin heimsóttu hana stöðugt
og vissu að henni leið þar eins vel
og auðið var.
Blómaskeiðið í ævi Margrétar
voru búskaparárin á Reyðará.
Þar var hún húsmóðir á stóru og
annasömu heimili. Þar fæddust
börnin hennar fjögur. Þeirra
helst er Aðalheiður, gift Sigurði
Hjaltasyni á Höfn, Sigurður,
kvæntur Ástu Guðlaugsdóttur,
búsett á Höfn, Þorsteinn, bóndi
og oddviti á Reyðará, kvæntur
Vigdísi Guðbrandsdóttur og
Baldur, kvæntur Hólmfríði Ara-
dóttur, búsett í Reykjavík. Öll
eru systkinin frá Reyðará nýtir
menn, traust og gott fólk. Börn
og barnabörn þeirra eru orðin
mörg.
Halldóra fósturmóðir Mar-
grétar flutti með henni frá Stafa-
felli að Reyðará og átti þar sitt
heimili til dauðadags. Er mér í
minni hve Margrét lét sér annt
um hana og annaðist af mikilli
prýði, þegar kraftar hennar tóku
að þverra. Margrét var mikil og
góð móðir barnanna sinna:
Fyrst er mæðranna skaut, þai
sem
maðurinn naut,
þess mjúktaks erhófhann á fæt-
ur
lagði ástir og yl, það sem albest
er til,
inn í augað og viljann og hugarins
viðkvæmu rætur.
(Halldúr HelgasonJ
Anna Hlöðversdóttir, móðir
Geirs, dvaldi og átti heimili á
Reyðará fram á efri ár, en var
flutt til sonar síns á Siglufirði
nokkru áður en hún lést. Bræður
Geirs áttu einnig heimili sitt á
Reyðará, eftir að Geir og Mar-
grét tóku þar við búi, en faðir
þeirra bræðra dó á meðan þeir
voru enn í æsku. Geir var þeirra
elstur og tók við búinu að föður
sínum látnum með móður sinni
og síðan konu sinni. Heimilið að
Reyðará bar vott um mikla sam-
heldni fjölskyldunnar og góðan
heimilisbrag og snyrtimennsku
jafn úti sem inni. Börn og full-
orðnir voru félagslynd og tóku
mikinn og góðan þátt í félagslífi
sveitarinnar og safnaðarlífi.
Söngur og hljóðfærasláttur var
mjög iðkaður á heimilinu enda
fjölskyldan öll söngvin og músik-
ölsk svo af bar. Um langan aldur
hefur fjölskyldan á Reyðará ver-
ið burðarás kirkjukórsins í Stafa-
fellskirkju. Aldrei hefur brugðist
ómetanleg liðveisla þeirra við
sönginn í kirkjulegum athöfnum.
Geir, Margrét og börnin þeirra,
öll með góðar söngraddir, lögðu
fram lið sitt - og á heimilinu
þeirra var bæði fyrr og nú vel-
komið að halda söngæfingar, ef
með þurfti - og þaðan fór enginn
þurrbrjósta. Vigdís, sem nú er
húsmóðir á Reyðará, tengdadótt-
ir Margrétar, fellur vel að söng-
hefð hins gamla hefðarbóls. Alla
þá liðveislu vil ég, sem organisti
kirkjunnar,þakka af heilum
huga. Geir var auk þess á sínum
tíma sóknarnefndarmaður og
meðhjálpari í kirkjunni sinni, og
síðar gekk Þorsteinn sonur hans í
sömu spor. Að rækja sína kristnu
trú með því að taka þátt í kirkju-
legu starfi og safnaðarlífi er meira
virði en margur virðist gera sér
grein fyrir. Það er gæfulegt og
það akkeri, sem mörgu gæti vafa-
laust bjargað, af því sem aflaga
fer í þjóðlífinu, væri því sinnt svo
sem vert er.
Margrét var fríð kona sýnum,
glaðleg og hjartahlý. Börnum
sínum frábær móðir, amma og
langamma. Litli 6 ára langömmu-
drengurinn hennar, sem ég sá í
gær, grét, því hann skilur ekkert í
að hún besta langamma hans er
farin í himininn. Hann veit það
ekki ennþá að hún góða lang-
amma fær einhverntíma að taka á
móti ástvinum sínum, þegar að
þeim kemur að ljúka sínu lífi á
jörðu, - og að þá verða áreiðan-
lega fagnaðarfundir.
Blessuð sé minning Margrétar
frá Reyðará. Hafi hún þökk fyrir
allt og allt.
Sigurlaug Árnadóttir
Blákkiðjan
Iðnbúð 3, Garðabæ.
Önnumst hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
46711
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN