Þjóðviljinn - 30.04.1987, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUINN
• L
jU^
Fimmtudagur 30. aprfl 1987 97. tölublað 52. árgangur
Alþýðuflokkur
Afneita fulltrúanum
Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi: Kristín Arnalds nýtur ekki lengur stuðnings
Alþýðuflokksins tilsetu ískólamálaráði. Kristín dró tilbaka uppsögnsína úr
skólamálaráði. Var ráðin skólameistari í afleysingum í Fjölbraut í Breiðholti á
samafundi ráðsins. Ráðið ólöglegt samkvœmt niðurstöðu
Lagastofnunar Háskólans
Bjarni P. Magnússon, borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins og
borgarráðsmaður, hefur hafnað
Kristínu Arnalds sem fulltrúa
flokksins í skólamálaráði eftir að
hún dró til baka úrsögn sína úr
ráðinu. Kristín skrifaði forseta
borgarstjórnar bréf þann 15. apr-
fl síðastliðinn þar sem hún til-
kynnir ákvörðun sína. Á fundi
skólamálaráðs sama dag er hún
Búðardalur
Matareítrun
Sigurbjöm Sveins-
son, heilsugœslu-
lœknir: Höfum haft
afskipti afum 30
manns en teljum að
10-20 til viðbótar hafi
sýkst. Þrenntfór á
sjúkrahús
„Við höfum haft afskipti af um
30 manns, en teljum að 10-20 til
viðbótar hafi fengið matareitrun.
Þrennt varð svo alvarlega veikt
að það varð að leggja það inn á
sjúkrahús,“ segir Sigurbjörn
Sveinsson, heilsugæsiulæknir í
Búðardal.
Talið er að fólkið hafi fengið
matareitrunina í þremur ferming-
arveislum sem haldnar voru í
Búðardal um páskana.
Sagði Sigurbjörn að eitrunar-
einkennin hafi verið mjög ein-
staklingsbundin, en þó hefði ver-
ið strax ljóst að um almenna mat-
areitrun hefði verið um að ræða.
Lýsti hún sér í kviðverkjum, al-
varlegum niðurgangi, hita og al-
mennum slappleika. En þetta
væri sem betur fer að ganga yfir
þessa dagana.
Helgi Helgason, heilbrigðis-
fulltrúi Vesturlands, sagði að
merkilega mikið af synum hefði
verið til staðar á heimilunum,
sem matareitrunarinnar hefði
orðið vart og hefði það komið til
góða í söfnun sýna. Vildi Helgi
brýna það fyrir fólki að aldrei
væri of varlega farið með mat-
væli.
Halldór Runólfsson, deildar-
stjóri hjá Hollustuvernd ríkisins
sagði það vera ljóst að hér væri á
ferðinni salmonellusýking af
þeirri hennar sem hvað verstar
væru. En tegundir salmonellu
væru fjölmargar og misjafnar.
Sagði Halldór að verið væri að
rannsaka málið og rækta sýni og
tæki það sinn tíma. En saursýni
hefðu verið tekin af fólkinu og
þau sýndu, svo ekki yrði um villst
að þama hefði verið á ferðinni
ein af verri tegundunum af salm-
onellu. grh.
endurráðin aðstoðarskólameist-
ari við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti, og jafnframt ráðin
skólameistari í ársleyfi skipaðs
skólameistara.
í bókun sem Bjarni P. Magnús-
son hefur lagt fram í borgarráði
vegna þessa máls er ítrekað að
afstaða Alþýðuflokksins sé
óbreytt hvað varðar setu fulltrúa
flokksins í ráðinu, „og í ljósi þess
nýtur Kristín Amalds ekki lengur
stuðnings Alþýðuflokksins til
setu í skólamálaráði," sagði i
bókuninni.
Styrr hefur staðið um skóla-
málaráð eftir að borgarstjórn-
armeirihlutinn setti það á laggirn-
ar til höfuðs Áslaugu Brynjólfs-
dóttur fræðslustjóra. Minnihlut-
aflokkarnir í borgarstjóm hafa
verið samstíga í því að fulltrúar
þeirra ættu ekki sæti í ráðinu. Þar
er um að ræða þau Þorbjörn
Broddason og fyrrnefnda
Kristínu. Hefur enda Félags-
málaráðuneytið komist að þeirri
ótvíræðu niðurstöðu að starfsemi
skólamálaráðsins sé ekki lögum
samkvæmt. í sömu átt hnígur
niðurstaða ráðgjafarþjónustu
Lagastofnunar Háskóla íslands.
Sjá bls. 2 Hs
AH sórstæð giftingarathöfn fór fram I skrúðgarðinum í Neskaupstað á kosningadaginn 25. aprfl sl. Sveinbjörn
Beinteinsson, allsherjargoði gaf þá saman í hjónaband þau Lisu Cordell frá Englandi og Georg Pétur
Sveinbjörnsson frá Kirkjubóli í Norðfjarðarhreppi.
Mikill fjöldi Norðfirðinga fylgdist með athöfninni í blíðskaparveðri og var hún skemmtileg tilbreyting í erli
kosninganna. Mynd - hb/Neskaupstað.
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Fóstrur
Bíða eftir
tilboði
Margrét Pála Ólafsdótt-
ir: Við erum mjög á-
nœgðarmeð þessa vilja-
yfirlýsingu borgaryfir-
valda en teljum okkur
ekkigeta dregið upp-
sagnir okkar til bakafyrr
en viðunandi boð hefur
fengist
„Við erum mjög ánægðar með
þá leið borgaryfirvalda að ræða
við okkur beint og vonum að sú
viljayfirlýsing hafi verið til þess
að bæta kjör, að það eigi að bæta
kjör en ekki halda óbreyttu
ástandi," sagði Margrét Pála Ól-
afsdóttir fóstra í gær. Þá voru ný-
hafnar viðræður borgarráðs við
Starfsmannafélag Reykjavíkur
en fóstrur kynntu ráðinu sérstak-
lega kröfur sínar. 80% fóstra í
borginni hætta störfum á föstu-
dag, nái ekki fram bættum
kjörum.
„Það eitt að viðræður séu í
gangi er ekki nóg til að uppsagn-
irnar verði dregnar til baka. Það
var ályktað á geysifjölmennum
fundi hjá okkur í fyrrakvöld að
við mundum ekki draga þær til
baka fvrr en viðunandi boð lægi
fyrir. A laugardag eiga dagvistar-
heimili Borgarspítalans að vera
opin samkvæmt venju og þá
myndu fyrstu áhrifin af uppsögn-
unum koma f ljós,“ sagði Margrét
Pála. -ing
Bankamenn
24% hækkun
Bankastarfsmenn náðu nýjum
samningum í gærmorgun eftir
næturlangan samningafund, og
hefur boðuðu verkfalli 8. maí
n.k. verið frestað. Að sögn Hinr-
iks Greipssonar formanns Sam-
bands bankamanna er samning-
urinn til tveggja ára og felur í sér
23- 24% kauphækkun á tíman-
um.
„Að auki eru inni ýmis sérmál
eins og fræðslu- og
jafnréttismál,“ sagði Hinrik.
Samningurinn verður kynntur
bankastarfsmönnum á Reykja-
víkursvæðinu á sameiginlegum
fundi á laugardag. -ing.
Alþýðubandalagið
Nýja forystu eða ný vinnubrögð
Framkvœmdastjórnarfundur ígœr vegna ummœla Guðrúnar Helgadóttur í útvarpi. Guðrún:
Aldeilis ekki að bjóða migfram, envið þurfum ný vinnubrögð
Eg er aldeilis ekki að bjóða mig
fram til formanns, sagði Guð-
rún Helgadóttir við Þjóðvfljann í
gær, - en það er Jjóst eftir þessar
kosningar að við þurfum annað-
hvort nýja forystu eða ný vinnu-
brögð.
Nokkur titringur varð í for-
ystuliði Alþýðubandalagsins eftir
þau ummæli Guðrúnar Helga-
dóttur í útvarpsfréttum í fyrra-
kvöld að eðlilegt væri að kalla
saman landsfund fyrr en ráðgert
hefði verið, og að konur gætu
hæglega tekið við forystu í
flokknum, þar á meðal hún sjálf.
í gær var að kröfu Sigurjóns Pét-
urssonar borgarfulltrúa kallaður
saman fundur í framkvæmda-
stjórn flokksins, annar fundurinn
á þremur dögum, og voru fyrir
fundinn uppi hugmyndir um að
flýta miðstjórnarfundi sem í
fyrradag var boðað til um miðjan
maí.
- Ég fagna þessu, sagði Guð-
rún í samtali við Þjóðviljann fyrir
fundinn í framkvæmdastjórn. -
Með því að vilja flýta mið-
stjórnarfundi virðast menn taka
undir mín sjónarmið um að flýta
landsfundinum.
Þú talaðir um kvennaforystu í
útvarpinu?
- Við þurfum annaðhvort nýja
forystu eða ný vinnubrögð hjá
þeirri gömlu. Það er ekkert úr
vegi að fela konum að stjórna
þessum flokki, - en það er auka-
atriði, aðalmálið er að flokkurinn
temji sér nýjar starfsaðferðir,
þótt ekki sé hægt að neita því að
við vorum þrjár konur sem á sín-
um tíma sátum í „mæðranefn-
dinni“ og höfðum frumkvæði um
nýjar verkreglur og áherslur.
Þetta var samþykkt á síðasta
landsfundi, en ekkert farið eftir
því, og það hefur sýnt sig núna að
við vorum þama á réttri leið.
Ertu með ummælum þínum að
bjóða þig fram til formennsku í
flokknum?
- Aldeilis ekki, það hefur ekk-
ert komið upp. Það væri hinsveg-
ar aulaleg auðmýkt ef ég teldi það
- aðspurð - algerlega fráleitt, en
ég hef ekki sóst eftir slíku og hef
ekkert með það að gera. Því
ræður flokkurinn, ekki ég. Enda
var sú spurning aukaatriði í máli
mínu í útvarpinu. Og ég vil leggja
áherslu á að þegar ég er að tala
um forystu á ég við miklu stærri
hóp en formann flokksins einan.
-m