Þjóðviljinn - 02.06.1987, Side 2

Þjóðviljinn - 02.06.1987, Side 2
—SPURNINGIN. Finnst þér Bítlaplatan Sgt. Peppers hafa staöist tímans tönn? (Spurt á 20 ára út- gáfuafmælinu í gær.) Ásta Hafþórsdóttir sölumaöur Mér finnst hún hafa gert þaö. Ég get ekki beint sagt aö platan eða tíöarandinn sem gekk í garö við útkomu hennar hafi breytt neinu um mitt líf. Ásta Magnúsdóttir meinatæknir Jú, hún hefur gert það með ágætum. Krakkarnir mínir spila hana oft og Bítlarnir eru númer eitt hjá þeim. Þuríður Hauksdóttir starfsmaöur dvalarheimilisins Hlíðar á Akureyri Mér fannst hún þrælfín og finnst enn og nú á 20 ára af- mælinu rifjast Bítlatímabilið upp fyrir manni. Sigurgeir Benediktsson iðnverkamaður Ég veit ekki hvort þessi plata hefur staðist betur tímans tönn en hinar Bítlaplöturnar, þær hafa allar gert það, enda allar mjög góðar. Þær heyrast ekki' of oft á útvarpsstöðvunum og mættu að ósekju heyrast oftar. Sigmar E. Arnórsson torgsölumaður Já, hún hefur staðist tímans tönn. Platan hafði mikil áhrif á tónlistarviðmiðun mína og maður sá ýmislegt í nýju Ijósi. FRÉTTIR Malbikunarstöð í Straumsvík Óttast hættu á mengun Fyrirtœkið Hlaðbœr-Colas hf. ekki ennfengið rekstrarleyfi. Hollustuvernd ríkisins: Verður að tryggja að ekki stafi mengunarhœttafrá stöðinni Eerfiðlega gengur fyrir fyrir- tækið Hlaðbaer-Colas hf., sem er íslenskt-danskt fyrirtæki sem íslendingar eiga 51% í á móti 49% eignaraðild danskra manna, að fá staðsetningar- og rekstrar- leyfi fyrir maibikunarstöð sem búið er að setja upp í Straumsvík á nýju iðnaðarsvæði sem Hafnar- fjarðarbær úthlutaði þeim lóð á. Ástæðurnar fyrir því eru fyrst og fremst þær að á þessu svæði í Straumsvík, gegnt Álverinu, er að finna í jörðu mikið vatnsforða- búr, sem talið er að sé í hættu ef ekki eru gerðar viðeigandi ráð- stafanir til að koma í veg fyrir mengun jarðvatnsins. Bæði Ál- verið og Pólarlax taka vatn úr borholu á þessu svæði og er þeim, og þá sérstaklega Pólarlaxi, um- hugað um að vatnið sem þeir fá verði ekki mengun að bráð. Þjóðviljinn hefur heimildir fyrir því að Hollustuvernd ríkis- ins hafi verið búin að ganga frá umsögn sinni til heilbrigðisráðu- neytisins um staðsetningar- og rekstrarleyfi, en þegar ráðuneyt- ið fékk umsögnina til sín hafi það sent hana til baka og beðið um frekari upplýsingar. Að sögn Ólafs Péturssonar, forstöðu- manns mengunarvarna hjá Holl- ustuverndinni, hafa þeir skilað málinu til ráðuneytisins og þar liggur það til ákvarðanatöku. Sagði Ólafur að menn yrðu að tryggja það að ekki yrði mengun frá malbikunarstöðinni, því það væri nauðsynlegt að gera við- eigandi ráðstafanir til að fyrir- byggja alla hugsanlega mengun grunnvatnsins sem undir hrauninu væri. Magnús Jón Árnason, formað- ur bæjarráðs í Hafnarfirði, sagði að bærinn hefði úthlutað fyrir- tækinu lóð undir starfsemi sína og það væri fyrirtækisins að sjá til þess að það fullnægði öllum skil- yrðum sem viðkomandi yfirvöld settu um viðeigandi mengunar- varnir. grh Hagfrœði T Óti trúður hefur verið að leika listir sínar í höfuðborginni, en að öðru jöfnu er hann við leik í Tfvolíinu í Hveragerði þar sem hann að eigin sögn „fíflast daginn út og inn". Þegar blaðamaður og IJósmyndari Þjóðviljans voru á ferð í miðborginni var Tóti á fuliu að reyna listir sínar á hjólum og var ekki annað að sjá en að hann kynni ýmislegt fyrir sér í þeim listum. Skilnaður borgar sig Sigurður Snævarr hagfrœðingur í Mannlífi: Skilnaðir kosta hið opinbera 150-200 milljónir á ári / , Arlega skilja 5-600 hjón á Is- landi og má áætla að þessir skilnaðir kosti hið opinbera milli 150 og 200 milljónir, segir Sigurð- ur Snævarr hagfræðingur í grein um fjölskylduna í nýútkomnu Mannlífi. Hjón sem eiga eins árs barn hjá dagmömmu og vinna bæði úti virðast hagnast ágætlega á að slíta samvistum. Samkvæmt grein Sig- urðar hækka ráðstöfunartekjur þeirra samanlagt um 17% við skilnaðinn eftir greiðslu skatta og dagvistunargjalds, en hið opin- bera tapar skatttekjum, þarf að greiða mæðralaun og greiðir nið- ur dagvistarrými og lánar fyrir öðru húsnæði. Hafi hjónin haft um 1200 þúsund í árslaun í fyrra tapar hið opinbera um 350 þús- und krónum á skilnaðinum sam- kvæmt reikningum Sigurðar. Sigurður telur að ráðamenn hafi „gengið of langt til móts við einstæða foreldra miðað við þau kjör sem öðru barnafólki eru boðinu“, og grafi fjölskyldu- pólitík stjórnvalda því undan helsta hornsteininum, hjóna- bandinu. Kjör einstæðra foreldra hafa batnað á síðustu árum miðað við aðrar barnafjölskyldur, „en skortur á samræmdri stefnu í skatta-, húsnæðis- og dagvistun- armálum og fálmkenndar úr- lausnir í málum einstæðra for- eldra hafa í reynd vegið að hinni hefðbundnu fjölskyldugerð á ís- landi“. -m Andlát Neytendasamtökin Burt með haftareglumar Neytendasamtökin hafa skorað á ríkisstjórnina að nema úr gildi starfsreglur landbúnaðar- ráðherra vegna innflutningsleyfa fyrir blóm, nýtt grænmeti, sveppi og kartöflur. Reglur þessar tóku gildi 2. febrúar sl. og eiga að tryggja ís- lenskri framleiðslu forgang á markaðinum. Neytendasamtök- in segja að í þessum reglum felist takmarkalaust virðingaleysi fyrir rétti íslenskra neytenda og aftur- hvarf til löngu liðins tíma hafta- búskapar og leyfisfargans á ís- landi. Auk þess að skora á ríkis- stjórnina að nema reglumar úr gildi hvetja Neytendasamtökin samtök framleiðenda til að virða þær að vettugi. _sá Guðmundur Finnbogason látinn Guðmundur Finnbogason járnsmiður, Grettisgötu 20 b í Reykjavík, lést sl. laugardag á 87. aldursári. Guðmundur var lengi virkur í hreyfingu sósíalista. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN ; Þrlðjudagur 2. júní 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.