Þjóðviljinn - 02.06.1987, Síða 3

Þjóðviljinn - 02.06.1987, Síða 3
ÖRFRÉTTIR FRETTIR Kjarvalsstofu í París hefur verið úthlutað tii 6 lista- manna frá 1. júlí og fram á haust- ið 1988. Þeir sem fengu úthlutað eru Harpa Björnsdóttir, Ragn- heiður Jónsdóttir, Steinunn Mart- einsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Jón Axel Björnsson og Kjartan Guðjónsson. Hver um sig fær íbúðina í 2 mánuði. Samviskufangar Amnesti International í maímán- uði eru: Namat Issa, fulltrúi í utanríkisráðuneytinu í Eþíópíu. Hún var handtekin ásamt manni sínum í febrúar 1980. Hún var vanfær þegar hún var handtekin og er sonur hennar með henni í fangelsinu, Andi Sukisno, Su- geng VCudiono, Murdjoko og Faizal Fachri, námsmenn í Indó- nesíu og Muhammad Haitham Khoja, verkfræðingur og rithöf- undur í Sýrlandi. Kvenfélagskonur í Kópavogi ætla að hittast hjá Ein- búanum á fimmtudagskvöld ásamt Einari Sæmundsen lands- lagsarkitekti bæjarins til að hlúa að þeim trjáplöntum sem þar voru gróðursettar vorið 1985. Lambaframpartar á grillið fást nú á niðursettu verði í versl- unum en töluverðar birgðir eru til hjá Sambandinu af frampörtum frá haustinu 1985. Framhryggur- inn er seldur niðursneiddur en gæðaminni hlutar eins og bringa, háls og skanki fara ekki á markað heldur er eytt. Kennaratalið nýja er á lokasprettinum. Nú er komið út fjórða bindið, með 2779 æviágripum kennara og nær það yfir upphafsstafina H til Ó. Þegar lokabindið kemur út verða ævi- ágripin orðin yfirellefu þúsund og er Kennaratalið langstærsta stóttatal íslenskt. Útgefandi er Prentsmiðjan Oddi. Ferðastyrkjum hefur verið úthlutað úr Þjóðhátíð- argjöf Norðmanna sem styrkt hefur ferðir hópa til Noregs siðan á þjóðhátíðarárinu 1974. Ráð- stöfunarfé að þessu sinni var 681 þúsund krónur og voru til Nor- egsfarar styrktir hópar frá Barna- list, Dalvíkurskóla, Krabba- meinsfélaginu, Foreldrafélagi norskunema, Pálma félagi æskulýðsfulltrúa, Sambýli fatl- aðra, Skátafélaginu Hraunbúum og Sunddeild Vestra. Samtök íbúðaeigenda í verkamannabústöðum hafa stofnað með sér samtök til að gæta hagsmuna sinna gagnvart löggjafar- og framkvæmdavaldi og til ráðgjafar fyrir félagsmenn. Samtökin eru landssamtök og aðildarrétt eiga allir eigendur og umsækjendur um íbúðir í verka- mannabústað. Framhaldsstofn- fundur samtakanna verður hald- inn síðar í sumar en opnuð hefur veriö skrifstofa að Smiðjustíg 13 sími 623420. Nýr götusópur er kominn til Keflavíkur, glæsi- legur og fullkominn að sögn blaðsins „Reykjanes". Bíllinn kostaði 7,5 milljónir og ætla Keflvíkingar að bjóða öðrum Suðurnesjamönnum afnot af tækinu. Þjóðfræða- félagið hefur hafið útgáfu á fréttabréfi og er [ því m.a. að finna fréttir frá stofnun félagsins sl. haust, erindi Davíðs Erlingssonar á stofnfundinum, lög félagsins og aðrar fréttir. Rósa Eggertsdóttir: í skólastefnudrögunum er lögð rík áhersla á sjálfstæði skóla bæði hvað varðar frumkvæði og ábyrgð. Mynd Sig. i Kennaraþingið Minni miðstýringu Ný skólastefnudrög voru kynnt áþingi KÍígœr. Rósa Eggertsdóttir: í drögunum er ekki tekið undir hugmyndir í nýju grunnskólalögunum um aukna miðstýringu Tónninn í skólastefnudrög- unum er m.a. sá að minni áhersla verði lögð á miðstýringu í skólakerfinu en frumvarp til nýrra grunnskólalaga kveður á um, sagði Rósa Eggertsdóttir, fulltrúi í skólamálaráði KÍ, um stefnudrögin sem kynnt voru ásamt öðrum þingmálum á Kenn- arasambandsþinginu sem sett var í gær. Skólastefnudrögin er ný- breytni í starfi KÍ, en fram til þessa hefur aðeins verið til fagleg stefnumörkun stéttarfélagsins í einstaka málaflokkum. Drögin sem kynnt voru fulltrúum þings- ings í gær eru afrakstur vinnu ein- staklinga og hópa og niðurstaðna 12 uppeldismálaþinga sem haldin voru um land allt haustið 1986 og um 2000 kennarar tóku þátt í. Að sögn Rósu eru drögin sam- in í anda þeirra grunnskólalaga sem hafa verið í gildi, en í þeim sé ekki tekið undir breytingar sem mælt er með í nýju frumvarpi til grunnskólalaga. „Við ítrekum m.a. að fræsluskrifstofurnar haldi því sjálfstæði sem þær hafa haft og við leggjum líka ríka áherslu á sjálfstæði skóla, bæði hvað varðar frumkvæði og ábyrgð.“ Þá sagði Rósa að í drögunum væru tillögur um rót- tækar breytingar á t.d. vinnutíma kennara, mat á skólastarfi og fjölda nemenda í hverjum bekk. Stefnudrögin verða tekin til umræðu á þinginu á miðvikudag en þingið, sem 160 fulltrúar auk gesta sitja, stendur fram á fimmtudag. Meðal annarra mála, auk venjulegra aðalfundarstarfa, sem rædd verða á þinginu, eru kjaramál og lífeyrissjóðsmál. -K.ÓI. r Gámaútflutningur Ognar afkomu fiskvinnslufólks Sambandsstjórn Verkamannasambandsins lýsiryfir vaxandi áhyggjum. Brýntað snúaþróuninnivið. Efekícertverður aðhafst blasir við fjöldaatvinnuleysi og gjaldþrot sveitarfé- laga Útflutningur á ísfiski jókst á s.l. ári úr 35 þúsund tonnum 1985 í 84 þúsund tonn 1986 eða um 140%. Fyrstu þrjá mánuði f fyrra nam útflutningurinn á ísfíski 6% af öllum þorskaflanum en fyrstu þrjá mánuðina á þessu ári nam útflutningurinn 11% af öllum þorskaflanum sem veiddist hér við land. Með þessar staðreyndir á borð- inu samþykkti sambands- stjórnarfundur Verkamanna- sambandsins, sem haldinn var um síðustu helgi, harðorða álykt- un þar sem lýst er yfir vaxandi áhyggjum af þessari þróun. Hún ógni atvinnuöryggi fiskvinnslu- fólks og stefni mörgum sjávar- plássum í voða. VMSI telur brýnt að snúa þessari þróun við hið allra fyrsta og leggur því til eftir- farandi: Hraðað verði undirbúningi nýrra laga um fiskveiðistjórnun og eigi fulltrúar fiskvinnslufólks aðild að þeirri endurskoðun og stjórnun. í þeirri nýju löggjöf verður að taka mið af eftirfarandi atriðum: í fyrsta lagi að allur útflutning- ur á ísuðum fiski verði háður leyfi frá sjávarútvegsráðuneytinu, f öðru lagi að við veitingu leyfa verði tekið mið af þjóðhagslegri hagkvæmni útflutnings á ísuðum fiski, f þriðja lagi að verði kvóta- skipting áfram notuð sem tæki til stjórnunar fiskveiða skuli ekki eingöngu miða kvóta við veiði- skip, heldur verði fullt tillit tekið til fiskvinnslunnar í þeim efnum og í fjórða lagi að öll sala á kvóta verði bönnuð. Innanlands og erlendis hefur á undanförnum árum verið varið tugum milljarða króna til upp- byggingar í fiskiðnaði og til að vinna markaði. Allt útlit er fyrir að með óheftri þróun missum við markaði okkar erlendis til sam- keppnisþjóða okkar. Þá myndi blasa við byggðaröskun meiri en áður hefur þekkst, fjöldaatvinnu- leysi og gjaldþrot sveitarfélaga. Einnig hefur verið upplýst að stór hluti þess ísfisks sem fluttur er út er keyptur af fiskvinnslufyr- irtækjum erlendis en ekki seldur beint til neytenda eins og haldið hefur verið fram. VMSÍ samþykkir ekki að ís- lenskir útgerðarmenn eigi fiski- miðin við landið. VMSÍ mun fylgjast náið með þróun þessara mála og láta hana til sín taka. grh Rafiðnaðarmenn Nýtt launakerfi Samið á laugardag. Atkvœðagreiðslafyrir nœstu helgi Raflðnaðarmenn hjá ríkinu skrifuðu undir samninga á laugardaginn og samtímis var verkfalli frestað þar til úrslit yrðu Ijós úr atkvæðagreiðslu. Að sögn Helga R. Gunnars- sonar, starfsmanns Rafiðnaðar- sambandsins, verða samningarn- ir kynntir félagsmönnum nú í vik- unni og bjóst hann við að at- kvæðagreiðslu lyki fyrir næstu helgi. Helgi sagði að í þessum samn- ingum hefðu rafiðnaðarmenn tekið upp nýtt launakerfi, en áður voru þeir á almennum samningum, þar sem samið var um ákveðin lágmarkslaun og síð- an varð bara hver að bjarga sér sem best hann gat. Nú hefði hins- vegar verið tekið upp fastlaunakerfi og líktust þessir samningar samningum við Landsvirkjun og Rafmagnsveitu ríkisins. í prósentum hélt Gunnar að hækkun væri svipuð og í öðrum samningum ríkisins að undan- fömu. -Sáf Þrlðjudagur 2. júní 1987| ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.