Þjóðviljinn - 14.06.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 14.06.1987, Blaðsíða 2
FLOS! \iku skammtur - La Revolution dévore ses enfants, sagöi sá vísi maður Pierre Vergniaud einhvern tíma um miðja átjándu öld og er það nú enn einu sinni orðið deginum Ijósara, hve sannspár Pétur þessi var. Það er óvefengjanleg staðreynd að byltingin hefur löngum étið börnin sín og nú síðast sjálf smokkabyltingin. Það er forsaga þessa máls að í vetur reið mikil smokkabylting yfir land og þjóð með þeim afleiðingum að smokkurinn náði völdum á (s- landi og eru nú venjuleg samskipti fólks í landinu háð því að smokkurinn sé jafnan til taks. Hann er orðinn stóri bróðir eftir byltinguna. Smokkabyltingin gekk ekki hljóðalaust fyrir sig. Líkt og í stúdentabyltingunni 1968 riðuðu stærstu menntastofnanir þjóðarinnar til falls í vetur, vegna ástríðuofsa menntamanna og kvenna sem kröfðust þess að smokkurinn hlyti verðugan sess á réttum stað og stundu. Stór plaköt voru prentuð í eðlilegum litum með myndum af bestu sonum og dætrum þjóðarinn- ar og allir með smokk - að vísu ekki á réttum stað, enda stóð það aldrei til. Þetta var eiginlega frekar hugsað sem auglýsingaherferð en klám- myndasafn. Myndir voru af ráðherrum og ráðherrafrúm, athafnamönnum og andans mönnum - og kon- um, biskupum, prestum og prelátum, fegurðar- drottningum, lærdómsmönnum, já öllu fræg- asta og besta fólki þjóðarinnar og allir með smokk. Sumir með útblásinn smokk, aðrir með smokk í eyrunum eða þá á hverjum fingri. Á af skít sumum lafði smokkur útúr nefinu og stundum úr báðum nösum. Ein þekktasta konan í íslensk- um stjórnmálum hafði, fyrir myndasmiðinn, gert sér hálsfesti úr smokkum og kunnur skólamað- ur setti þetta gúmmíapparat fyrir vinstra auga, líkt og væri hann með einglyrni og lafði það sem máli skiptir af verjunni niðurá kinn. Allt var þetta auðvitað gott og blessað og vel til þess fallið að vekja athygli á notagildi smokka yfirleitt og þeirri staðreynd að smokkar eru til fleiri hluta nytsamlegir en akkúrat þess sem ekki má nefna. Smokkabyltingin varð til þess að menn fóru að eygja fjölnotagildi verjunnar og virðist nú svo komið að varla sé til það viðvik í daglegri önn að smokkurinn geti þar ekki komið að nokkrum notum, oftast til góðs en stundum hið gagn- stæða eins og gerist og gengur. Ég sagði áðan að smokkabyltingin hefði étið börnin sín og þarf víst ekki vitnanna við. Um hvítasunnuhelgina var semsagt þrem mönnum stungið í svartholið vegna þess að einn þeirra hafði étið sextíu smokka, fulla af einhverju góð- gæti sem nefnt hefur verið hassolía. Mér skilst að þessi hassolía sé vinsæll neysluvarningur hér á landi, fluttur hingað í iðr- um manna í framangreindum umbúðum og los- aður úr saurveginum þegar heim er kornið. Til að flýta fyrir losuninni kváðu vera notaðar sveskjur eða laxerolía. Skemmtilegur innflutningsmáti. Þeir sem stunda þetta töfrandi transport eru af athafnamönnum á eiturinnflutningssviðinu kallaðir „gámar“ og þegar einhver slíkur hefur komist til landsins belgfullur af skít, óþverra og eitri komast hasshausar samtíðarinnar þannig að orði að „gámurinn “ sé kominn. Síðan er gámurinn losaður úr maga, görnum og þörmum útúr saurveginum þar sem móttak- endur taka við kræsingunum og því sem þeim fylgir. Síðan veiða þeir góðgætið uppúr kamrin- um til að gæða börnum og unglingum á því, en þau drekka það, reykja eða taka í æð í góðra vina hópi á glaðri stund. Hér er komin skýringin á því, hvers vegna hass er jafnframt kallað „skítur". Það er vafalaust heillandi og eftirsóknarvert að vera athafnamaður á þessu sviði, innflytj- andi og dreifingaraðili. Fyrirgefið, góðir hálsar, ef ykkur finnst ég ganga of langt á prenti, en allt er nú þetta athæfi líka pínulítið gróft. Satt að segja finnst mér þessi frumlegu inn- flutningsumsvif, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki geðfelldari en þetta. Getið þið-góðir hálsar- hugsað ykkur virðu- legan sextugan lögfræðing og annan þrítugan í blóma lífsins útá Hótel Loftleiðum með sveskjur í poka til að flýta fyrir niðurgangi englendings sem belgfullur er af smokkum, úttroðnum af sérhönnuðu eitri til að sturla börn og unglinga? Getið þið - góðir hálsar - hugsað ykkur hina Ijúfu gleði innflytjendanna þegar gusan kemur og hægt er að fara að veiða góðgætið uppúr gúmmolaðinu til að dreifa því meðal barna og unglinga? Sannarlega glaðningur fyrir hið unga ísland. Ég held að ég verði hér að slá botninn í þess- ar hugleiðingar, því satt best að segja er ég ekki lengur í góðu skapi. Kannske er þetta heldur ekki neinn brandari. Jón Baldvin í bobba Jón Baldvin Hannibals- son - sem eitt sinn steig á stokk og strengdi þess heit að sameina jafnaðarmenn á ís- landi - hamast nú við að mynda ríkisstjórn með Þor- steini Pálssyni og Steingrími Hermannssyni. Jóni sækist verkið vel, enda vinstra megin við miðju, og má búast við að formlega verði tilkynnt um nýja ríkis- stjórn nú í vikunni. Hannibalsson stendur hins vegar frammi fyrir því að fái hann ekki forsætisráðuneytið muni kratar verða áhrifalitlir í stjórninni og hann þurfi þá að éta oní sig öll stóru orðin. Þor- steinn vill líka verða forsætis- ráðherra, enda er það eina leiðin til að hann verði ekki sviptur kjól og kalli á næsta landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins. Steingrímur telur sig að sjálfsögðu sjálfkjörinn í djobb- ið, þótt hann gæti hugsanlega sæst á að verða utanríkisráð- herra. Það eru því nokkrir kallaðir en einungis einn útvalinn. Og 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Jón væntir að sjálfsögðu verðlauna fyrir að framlengja líf fráfarandi ríkisstjórnar með því að nota Alþýðuflokkinn sem hjálpardekk. Maðurinn sem fór í skóla til að læra að verða forsætisráð- herra þarf því að halda vel á spilunum...B Eiður vill í ráðuneyti Meira af krataraunum. Varla er hægt að búast við því að Alþýðuflokkurinn fái nema þrjá ráðherra í Jónínu/Steinu/ Steingrímu. Og þar stendur Jón Baldvin frammi fyrir erf- iðu verkefni. Sjálfur verður hann vitaskuld ráðherra og vísast Jóhanna Sigurðar- dóttir líka. Jón Sigurðsson, sem átti að vera stóra trompið í kosningabaráttunni, en fór langt með að hafa þingsætið af formanninum, ernáttúrlega kandídat líka, samkævmt kokkabókum Jóns Baldvins. Það gengur hins vegar varla að hafa þrjá ráðherra úr Reykjavík. Nægar eru samt dreifbýlisraunir Alþýðuflok- ksins. Þar að auki þykir mörg- um sjálfsagt að Kjartan Jó- hannsson, sem Jón felldi í formannskjöri hér um árið, verði ráðherra, enda nýtur hann almennrar virðingar. Síðan þykir Eiði Guðnasyni að hann sjálfur eigi að verða ráðherra og lítur helst til menntamálanna. Líkleg niðurstaða er sú að fyrrverandi forstjóri Þjóð- hagsstofnunarverði óbreyttur maður í liði Jóns Baldvins og er þá orðið álitamál hvort hann kann formanninum nok- krar þakkir fyrir að teyma sig út í pólitík.B Gleðitíðindi af skáldaþingi Gyrðir Elíasson, sem að margra dómi er eitt besta skáld okkar af yngri kynslóð- inni, hefur verið afkastamikill síðustu árin. Á þremur árum gaf hann út fimm Ijóðabækur og í haust má vænta frá hans hendi fyrstu skáldsögunnar. Það er Mál og menning sem gefur þá bók út, en jafnframt safnbók sem samanstendur af þremur Ijóðabókum Gyrðis sem komu út í litlum upp- lögum og var ekki dreift víða. Þetta eru bækurnar Svarthvít axlabönd, Bakvið maríugl- erið og Blindfugl/Svartflug. Að auki mun Gyrðir hafa unn- ið að þýðingum upp á síðkast- ið, þótt ekki sé vitað um út- gáfu. En Ijóða- og bók- menntaunnendur geta hugs- að gott til glóðarinnar í haust þegar bækurnar tvær koma út. Ilona er þekkt dirfðarfrauka þar í landi og hefur fram að þessu haft lífsviðurværi sitt af því að gera hitt og þetta fá- klædd frammi fyrir myndavél- um eða áhorfendaskörum. Kosningabarátta frökenar- innar hefur borið nokkurn keim af þessu lifibrauði henn- ar því hún hefur trekk í trekk flett sig klæðum á fundum með almenningi sem látið hefur sér vel líka tiltækið. Hitt er svo annað mál hvort kjós- endum þykir fýsilegt að llona taki sæti á þingi ■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.