Þjóðviljinn - 14.06.1987, Blaðsíða 21
mm.
Nafn vikunnar:
að hafa bað
Magnús Einarsson, yfirlögregluþjónn, hafði yfirumsjón
með gœsiunni fyrir utan Hótel Sögu ó meðan ó NATO-
fundinum stóð
NATO-fundurinn ersú
uppákoma vikunnar sem fjöl-
miðlarnir hafa snúist einsog
skopparakringla í kringum.
Viðbúnaðurfyrirfund utanrík-
isráðherranna var mjög mikill
og allt tiltækt lögreglulið kall-
aðtil. Löggursemkomnar
voru í sumarfrí urðu að mæta
aftur í vinnuna og auk þess
aðstoðuðu hjálparsveitar-
menn verði laganna. Þó mikið
hafi hvílt á herðum íslensku
kerfiskallanna var þó hlutur
lögreglunnar hvað mestur.
Við höfum því ákveðið að út-
nefna lögregluna sem nafn
vikunnar að þessu sinni og
ræddum í því sambandi við
Magnús Einarsson, yfirlög-
regluþjón, sem stjórnaði
varðstöðunni fyrir utan Hótel
Sögu.
Er það ekki léttir að þessu er
lokið?
„Því er ekki að leyna. Annars
gekk þetta allt mjög vel fyrir sig
og áfallalaust eftir því sem ég best
veit, að minnsta kosti á því svæði
sem ég sá um, fyrir utan Hótel
Landssam-
skáta og
íslands,
hlaupið á
Sögu. Bæði lögregluþjónar og
aðstoðarfólk okkar frá Slysa-
varnafélagi fslands,
bandi hjálparsveita
Björgunarhundasveit
stóðu sig mjög vel.“
Engar snurðrur
þráðinn?
„Ekki það að ég veit.“
Þegar utanríkisráðherrarnir
þinguðu hér 1968 kom til átaka
milli lögreglu og mótmælenda.
Þið óttuðust ekki átök núna þeg-
ar Hernámsandstæðingar mót-
mæltu á Hagatorgi?
„Nei. Fundur hernámsand-
stæðinga fór vel fram einsog gert
hafði verið ráð fyrir. Við ræddum
saman og vissum af því að þeir
ætluðu að halda þarna fund og
það kom ekki til neinna leiðinda
eða átaka.“
Er lögreglan vopnuð undir
svona kringumstæðum?
„Nei. íslenska lögreglan ber
ekki vopn. Hinsvegar eru á-
kveðnir menn sem bera slík verk-
færi við ákveðnar kringumstæð-
ur.“
Hvernig gekk samstarfið við
erlendu öryggisverðina?
„Það gekk mjög vel. Hér var
mikill fjöldi öryggisvarða og ég
veit ekki til þess að nein vanda-
mál hafi komið fram í samskipt-
unum við þá. Þetta var mikil skip-
ulagsvinna, sem var í höndum
lögreglustjóra, Böðvars Braga-
sonar, og fleiri manna og þetta
gekk allt saman upp.“
Ef þú berð saman þessa uppá-
komu núna og leiðtogafundinn.
Hvor atburðurinn var stærri í
sniðum?
„Þetta voru fleiri dagar og ekki
síður stórt í sniðum, þó erfitt sé
að meta það í stærðum. f haust
voru hér æðstu menn tveggja
stærstu stórvelda heims en á
fundinum núna voru mjög margir
utanríkisráðherrar samankomnir
þannig að það er erfitt að bera
þetta nákvæmlega saman.“
Nú gerist þetta með mjög
skömmu millibili, annarsvegar
leiðtogafundurinn og svo þessi
fundur utanríkisráðherranna.
Hefur þetta verið lærdómsríkt?
„Ég tel það. Það komu fram
nokkur atriði á leiðtogafundinum
sem við skoðuðum og reyndum
að lagfæra núna, einsog t.d. ýmis-
legt í samskiptum við lögreglu-
menn. Ég held að lögregluþjónar
hafi staðið sína plikt.“
Þið vígðuð Þjóðarbókhlöðuna.
Magnús Einarsson, yfirlögregluþjónn hafði yfirstjórn með gæslunni fyrir utan
Hótel Sögu.
„Það má kannski orða það svo
en húsið er enn í byggingu og við
fengum aðstöðu í því og vinnu-
skúrnum við bygginguna. Auk
þess vorum við með rútuna okkar
á staðnum. Þá vorum við með
eldhúsbfl á staðnum og reyndum
að hafa þetta huggulegt. Veðrið
hjálpaði líka til.“
Er þessu alveg lokið núna?
„Já, í dag voru allar girðingar
fjarlægðar af svæðinu.“
-Sáf
_____________LEIÐARI__________
Sjómenn ó tölvuöld
í dag, sunnudaginn 14. júní, er sjómannadag-
urinn haldinn hátíðlegur í sérhverju sjárvar-
plássi landsins. í fyrsta skipti í sögunni er nú
hátíðisdagur sjómanna lögboðinn og er það
fagnaðarefni.
Þýðing sjávarútvegs fyrir byggð landsins er
gífurlega mikil og verður svo um ófyrirsjáanlega
framtíð. Það á bæði við um afkomu allra lands-
manna sem og að landinu öllu sé haldið í byggð.
Þegar vel árar hjá útgerðinni eru uppgangstím-
ar í landinu, en þegar illa árar dregst allt saman.
Undanfarið hefur ríkt mikið góðæri, aflabrögð
verið afar góð, olíukostnaður lækkað mikið frá
því sem áður var og verð á erlendum mörkuðum
verið mjög gott. Þetta góðæri hefur vissulega
skilað sér misvel til landsmanna og ekki bara
eftir því hvaða störfum menn gegna, heldur ekki
síður eftir því hvar á landinu menn eru búsettir.
Fjármagnið frá útveginum hefur sótt suður á
höfuðborgarsvæðið og fólkið fylgt á eftir. í tíð
ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar hafa
byggðamálin gleymst. Þensla hefur ríkt í
verslunar- og þjónustugreinum á höfuðborgar-
svæðinu en samdráttur á landsbyggðinni.
Næsta ríkisstjórn verður að gera stórátak í
byggöamálum, enda virtust allir flokkar sam-
mála um mikilvægi þess í kosningabaráttunni.
Þó sjórinn hljóti að verða áfram sú gullkista
sem við sækjum okkar björg til þá mun sú
tæknibylting sem nú er að eiga sér stað hafa
veruleg áhrif á sjómannsstarfið, þannig að í
framtíðinni þurfa æ færri að sækja sjóinn. Tölv-
ubyltingin hefur þegar hafið innreið sína á sjón-
um og mun gegna mun stærra hlutverki í fram-
tíðinni.
í Sjómannadagsblaði Neskaupsstaðar í ár er
gagnmerk grein eftir Albert Einarsson um fram-
tíð sjávarbyggða. í greininni bendir Albert á það
að tölvuvæðingin og sjálfvirknin hljóti að verða
til þess að fólki í sjávarútvegi og vinnslu muni
fækka. Hann bendir á að framundan sé endur-
nýjun á togaraflotanum og að fá rök efnahags-
leg eða tæknileg mæli gegn því að frystitogarar
-fljótandi frystihús- verði fyrir valinu. Hinsveg-
ar séu ýmis félagsleg rök sem varða mannlífið
og byggðina í landinu, sem einnig verði að taka
tillit til.
Niðurstaða Alberts er sú að gegn þróuninni
verði ekki staðið þannig að velja verður um leiðir
til að mæta breytingunum. Ef menn ætla sér að
halda landinu öllu í byggð verður að mæta hin-
um nýja tíma með því að hyggja að fleiru en
útgerð og fiski og það verður ekki gert nema að
veita sjávarplássunum stærri hlutdeild í afla-
verðmætinu.
Svo við hverfum burt frá tölvuöld og aftur á
árabátaöld. Annað starfsár Sjóminjasafns (s-
lands, í Bryde-pakkhúsinu í Hafnarfirði, er nú
nýhafið með sýningu sem byggir á hinu merka
ritverki Lúðvíks Kristjánssonar, Islenskirsjávar-
hættir. Sýningin fjallar um árabátaöldina og er á
henni dregin upp lifandi mynd af atvinnuháttum
og lífi forfeðra okkar fram til þess tíma að vél-
væðing hófst á sjónum.
Það er vel við hæfi nú þegar sjómennskan
hefur stungið sjóvettlingnum inn fyrir dyrastaf
tölvualdar að kynna sér aðstæður fyrir tíma vél-
væðingar.
Þjóðviljinn óskar öllum landsmönnum til ham-
ingju að hafa loksins eignast safn sem varðveitir
og kynnir sögu sjómennsku á íslandi, og sjó-
mönnum óskum við sérstaklega til hamingju
með daginn í dag.
-Sáf
Sunnudagur 14. júni 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21