Þjóðviljinn - 14.06.1987, Blaðsíða 22
KROSSGÁTA
NR. 572
1 2— 3 v— 5' Z ? s 7 T~ >0 U TT~
u >T JiT V <7 )(> )2 )(> >> .... i? 9 w~ líV
T T X, 0O IZ >0 )? (o )Ý u 9 21 02 T~
w >Z ? )3 í> 1/ 1} y )ic H !(p V W~
V 73 (V ú J3 V /3 Co )? )3
~ w )6> T~ 7 V T 05' s V II T~ M
II IZ /3 T T V v~ Vib 'K 5' )É V TT
ii 5 H, I? v ir 7 /4 (p Ý +L 7 w s>
w )S >7 V 26 iz )(o T V 2$ 3o II )/ IS
TSr V !T 0f) II V TT T~ ) /6 J /s >2 d
11 V 5“ 3 V >o 3o ¥ 7/ )S ¥ V )(,
í 1 T~ )S T rW U )Z T~ )(? 7 13 9
ll )2 Y /3 9 S 9 3Z V )(, W bi 19 iS >2
;
ÍÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
m
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kven-
mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr.
572“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinn-
ingshafa.
)( )? K 23 2 2°) 7- I?
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort se. n lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d; getur a aldrei komið í stað á gða öfugt.
Jóhannes Jósepsson,
Rauöamýri 4, Akureyri,
fékk verðlaun fyrir
krossgátu nr. 569. Hann
fær senda bókina „Pott-
réttir“ eftir Guörúnu
Hrönn Hilmarsdóttur.
Lykilorðið var „Jörfa-
bakki“.
Verðlaunin fyrir
krossgátuna þessa vik-
una er bókin „Ólíkar per-
sónur“ eftir Þórberg
Þórðarson. Ljóðhús gaf
út.
SKYRT OG SKORINORT:
BRIDGE
Bömin éta byltinguna
Byltingin étur börnin sín, sagöi
einhver sniöugur maöur hér um
árið. Þessi misskilningurhefur
veriö étinn upp eftir þessum
manni æ síðan, einkum og sérí-
lagi af þeim sem eru andsnúnir
byltingum eða breytingum al-
mennt. Þannig mun rússneska
byltingin hafa kokgleypt gerska
draumhuga; blómabyltingin étið
hippana meö húð og hári o.s.frv.
En þetta er semsagt misskilning-
ur.
Börnin éta byltinguna. Þaö er lóð-
ið.
II
íslendingareru byltingargjarn-
asta þjóð veraldar miðað við
fólksfjölda. Að vísu eru íslending-
ar ákaflega íhaldssamir að f lestu
leyti og því verða byltingarnar
með öðru sniði en í útlöndum. ís-
lendingum dytti aldrei í hug að
fara með lurkum og svívirðingum
að Steingrími; hertaka sjónvarpið
og hengja menn opinberlega á
Austurvellinum. Þetta ervita-
skuld vegna þess að íslenska
þjóðin er siðmenntuð og prúð.
Og það er hið besta mál.
En byltingar gerum við engu
að síður. Þegart.a.m. eru sam-
þykkt ný útvarpslög heitir það
fjölmiðlabylting. Svo einfalter
það nú. Fjölmiðlabyltingin er
auðvitaö besta mál líka þótt vin-
striflokkarnir hafi verið svo
ógæfusamir að halda að ríkis-
sjónvarpið og gufuradíóið væru
þjóðinni fyrir bestu. En það er
náttúrlega bara þessi tilhneiging
til að hafa vit fyrir fólki.
En fjölmiðlabyltingin hefur fært
okkur nýja sjónvarpsstöð og
kássu af útvörpum; Útvarptrú-
aðra, Útvarp menntaskóla-
krakka, Útvarp Ólafs Laufdal og
fleiri og fleiri.
III
Og byltingin hefur komið með
nýja siði og ný viðhorf. Það er
auðvitað hið besta mál líka.
Ein fremsta byltingarhetja
Stöðvar 2 er Bryndís Schram.
Hún fær alveg áreiðanlega orðu
þegar þessi bylting verður gerð
upp og kannski styttu af sér við
hlið Messíasar okkar tíma -
eiginmannsins...
Bryndís snýr lukkuhjólinu í
þáttum sínum og þar getur fólk
unnið sér inn bæði trimmgalla og
brauðristar. Þrírálappalegir
starfsmenn frá einhverju fyrirtæki
útí bæ standa á sviðinu hjá
Bryndísi, en útí sal öskrar af-
gangurinn af staffinu hvatningar-
orð. Fólkið er látið snúa skífu og
þegar hún stöðvast bendir ör á
tiltekna upphæð, til dæmis 5000
kall. Þáávinurinnaðgetasértil
um stafi í orði uppá Ijósatöflu. Ef
hann getur réttfær hann aðsnúa
aftur. Og aftur. Okkarmaðurget-
ur að vísu orðið gjaldþrota og þá
klappar Bryndís saman höndun-
um af gleði. Ef hinsvegar okkar
maður getur ráðið í orðið og á til
að mynda 20 þúsund kall í potti
má hann semsagt velja sér
eitthvað úr dótabúð Stöðvar 2.
Þá kemur þulur inn og tilkynnir:
Ebenezer valdi sér vasadiskó frá
Neskco, síðan fékk Ebenezer sér
húfu frá Álafossi og að lokum
fékk Ebenezer sér vöff lujárn frá
Sambandinu. Til hamingju Eben-
ezer!
Og húsfrúin af Vesturgötunni
stjórnar af miklum myndarskap,
hlær, gantast og virðist stundum
segja brandara.
En Bryndís er bara svo ógur-
lega yfirdrifin að stundum finnst
undirrituðum Snata mesta mildi
að Bjarni P. skyldi ná kjöri íborg-
arstjórn í fyrrameð hana í öðru
sæti.
IV
En fjölmiðlabyltingin á það sam-
eiginlegt með öðrum byltingum
að þegar hetjurnar eru orðnar að-
alatriði gleymist afskaplegafljótt
hvað verið var að fara með þess-
ari tilteknu byltingu. Og börnin
sitja prúð og sæt og éta bylting-
una sína og prísa sig sæl yf ir því
að byltingin sé svona makalaust
góð á bragðið. Þessvegna éta
áhorfendur Bryndísi Schram til
dæmis án þess að hiksta.
Norðurlandamót
ó nœstunni
Norðurlandamót í flokki yngri spil-
ara, f. 1962 og síðar, verður haldið í
Hrafnagilsskóla í Eyjafirði í annarri
viku. Mótið hefst á mánudeginum 22.
júní og lýkur laugardaginn 27. júní.
Alls taka 9 lið þátt í mótinu, tvö frá
hverju Norðurlandanna utan Sví-
þjóðar, sem aðeins sendir eitt lið til
keppni. Okkar lið í mótinu verða
þannig skipuð: (eldra liðið) Jakob
Kristinsson, Júlíus Sigurjónsson,
Garðar Bjarnason, Matthías Þor-
valdsson, Olafur Týr Guðjónsson og
Hrannar Erlingsson. (yngra liðið)
Steinar Jónsson, Ólafur Jónsson, Ari
Konráðsson, Kjartan Ingvarsson,
Gunnlaugur Karlsson og Ingólfur
Haraldsson.
Búast má við að róðurinn verði
þungur fyrir okkar menn, enda á
ferðinni nýliðar í landsliðskeppnum,
utan þeir Jakob og Júlíus sem kepptu
í Búdapest ’86 é Em-ul.
ins, sem spilaður er á þriðjudögum og
fimmtudögum í allt sumar.
Þær fréttir bárust í vikunni að fund-
ist hefðu ýmsir verðlaunagripir, sem
Bridgesambandið á. Þeir hurfu af
skrifstofunni á Laugaveginum fyrir
tæplega 5 árum. Meðal gripanna var
forláta silfurskip sem er gjöf frá
Norðmönnum (víkingaskip). Þarf
ekki að fara mörgum orðum um þann
létti sem þessi fundur er fyrir BSÍ.
Bridgeíþróttin er loksins orðin
hluti af landsmótskeppnum Ung-
mennasambandsins. Ákveðið hefur
verið að keppa í fyrsta skipti í bridge á
landsmóti, á mótinu sem haldið verð-
ur á Húsavík í næsta mánuði. Sú
keppni verður eins konar undanfari
(kynning) áður en ákveðið verður
formlega að taka spilamennskuna
inn, sem fullgilda keppnisgrein á
landsmótum framtíðarinnar. Má þá
segja, að síðasta vígið sé fallið, en
fyrir þessu hefur verið barist í langan
tíma.
Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar á
Siglufirði sigraði sveit Alfreðs Krist-
jánssonar Akranesi í Bikarkeppn-
inni. í dag verður spilað í Sigtúni,
m.a. unglingalandsliðið gegn sveit
Sigurðar Sigurjónssonar.
Jacqui McGreal og Þorlákur Jóns-
son, nýbökuð íslandsmeistarar í
parakeppni, eru orðin efst að stigum í
Sumarbridge 1987 (er þetta er skrif-
að). Má búast við mikilli keppni spil-
ara á þessum vettvangi, en spilað er
um góð heildarverðlaun.
Ný meistarastigaskrá (stöðulisti) er
komin út. Skráin hefur verið send
öllum félögum innan BSÍ, til for-
manna félaganna. Á skrá eru tæplega
3 þús. manns, þaraf nýskráningar
rúmlega 100 frá því í janúar á þessu
ári. 19 spilarar hafa hlotið nafnbótina
stórmeistarar með 500 meistarastig
eða meir. Þórarinn Sigþórsson er enn
efstur á blaði, en Jón Baldursson sæk-
ir að honum. Sigurður Sverrisson er
svo í þriðja sæti og Ásmundur Pálsson
í fjórða sæti.
Fjölmennasta félagið innan BSÍ
eru Akureyringar með tæplega 180
spilara á skrá, en Bridgefélag Reykja-
víkur er með tæplega 150 spilara á
skrá. Breiðfirðingar í Reykjavík eru
svo þriðju í röðinni.
Annars liggur skráin frammi í Sig-
túni, í Sumarbridge Bridgesambands-
Júlíus Sigurjónsson er stiga„kóng-
ur“ síðasta keppnistímabils. Hann
hlaut tæplega 100 meistarastig frá síð-
ustu áramótum, og hefur hlotið alls
um 190 meistarastig, eða tvöfaldað
stigin á 5 mánuðum.
Samkvæmt þessu, hefði Júlíus haf-
ið keppni 1976 (á sama tíma og
meistari Þórarinn) þá á pilturinn að
vera með ca. 1500 meistarastig?
Bridgesambandið minnir á að fyrir-
liðum er skylt að greiða þátttökugjald
sveita sinna í Bikarkeppni BSÍ,
ÁÐUR en viðkomandi sveitir hefja
keppni. Einnig minnir BSÍ á uppgjör
félaganna, en næsti gjalddagi ár-
gjalda er 15. júlí n.k. Þau félög sem
ekkert hafa greitt á öllu þessu kepp-
nistímabili, eru vinsamlegast beðin
um að hafa samband við skrifstofu
BSÍ hið fyrsta.
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. júní 1987