Þjóðviljinn - 14.06.1987, Qupperneq 11
Sjómannadagurinn 50 ára
LÖGSKIPAÐUR
. FRÍDAGUR
I FYRSTA SINN
Það er ekki alltaf tekið út með sitjandi sældinni að vera á sjó. Stundum kemur
það fyrir að menn þurfa að leggja sig fram, í orðsins fyllstu merkingu, til að ná
þeim gula inn fyrir borðstokkinn. Góðar gætur eru hafðar á sjómanninum sem
teygir sig út fyrir borðstokkinn, því sjómenn vita það manna best hvað það getur
kostað ef ekki er sýnd full aðgát við vinnuna.
Það getur verið slítandi að standa á slorugu og flughálu dekkinu við að blóðga
fisk sem er nýkominn upp úr sjónum. Þá er eins gott að hafa sterkt grip í
höndunum og sterka handleggi, ásamt góðu jafnvægi. Á myndinni má sjá að i
þetta sinn er gott í sjóinn en allir vita, sem unnið hafa um borð í fiskiskipum, að
allra veðra getur verið von, þótt hann láti blítt sem stendur.
Alltfrá 1938 hefur
Sjómannadagurinn
verið haldinn hátíð-
legurán undan-
tekningar. Sjómann-
ablaðið komið útár
hvert. Aðalhvata-
maðuraðstofnun
sjómannadagsins
varHenryHálfdán-
arson loftskeyta-
maður
Sjómannadagurinn er hald-
inn í fimmtugasta sinn um
helgina, sunnudaginn 14.
júní. Hann varfyrsthaldinn
hátíðlegur 6. júní 1938. Sjó-
mannablaðið er einnig
fimmtíu ára, en það kom út í
fyrsta skipti um leið og fyrsti
sjómannadagurinn var hald-
inn. Dagurinn í ár er jafnframt
sá fyrsti sem er lögskipaður
frídagur. Það var gert á Al-
þingi 16. mars síðastliðinn.
Sjómannadagurinn varð strax
einn af aðalhátíðisdögum ársins
og þeim sess hefur hann haldið í
gegnum árin. A mörgum stöðum
úti um allt land er hann jafnvel
haldinn hátíðlegri en sjálfur
þjóðhátíðardagurinn, enda oft
nefndur þjóðhátíðardagur sjó-
manna af þeim sjálfum.
í fyrsta sinn
Það var bjart en kalt veður 6.
júní 1938 þegar sjómenn í
Reykjavík og Hafnarfirði héldu
daginn hátíðlegan í fyrsta sinn. í
meginatriðum hefur dagskrá
sjómannadagsins haldist óbreytt í
áranna rás með ýmsum tilbrigð-
um, þó eftir því hvar hann hefur
verið haldinn og undir hvaða
kringumstæðum í sjávarplássum
víðs vegar um landið.
Dagurinn hófst með því að fán-
ar voru dregnir að húni á hverju
skipi sem lá í höfn. Eftir hádegið
söfnuðust sjómenn saman við
gamla Stýrimannaskólann við
Óldugötu og gengu þaðan sem
leið lá upp á Skólavörðuholtið
þar sem aðalhátíðahöldin fóru
fram við Leifsstyttuna. A sama
tíma og athöfnin hófst við
Leifsstyttuna var lagður blóm-
sveigur að leiði óþekkta sjó-
mannsins í Fossvogskirkjugarði
og minning hans heiðruð með
einnar mínútu þögn. Óþekkti
sjómaðurinn var grafinn í maí-
mánuði 1938 og var talinn hafa
farist með Skúla fógeta 1933.
Ræður dagsins fluttu Ólafur
Thors fyrir hönd útvegsmanna og
Skúli Guðmundsson atvinnu-
málaráðherra fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar. Þegar dagskránni
lauk við Leifsstyttuna hófst dag-
skrá við höfnina. f>á var komið
glaða sólskin og dálítill andvari.
Þar fór fram róðrarkeppni þar
sem 11 skipshafnir kepptu sín á
milli og 9 manns tóku þátt í
stakkasundskeppni. Einnig var
keppt í knattspyrnu og reiptogi
milli Reykjavíkur og Hafnarf-
jarðar. Um kvöldið var síðan
dagskrá á Hótel Borg þar sem
flutt voru ávörp frá forvígis-
mönnum hinna ýmsu stéttarfé-
laga sjómann og milli ávarpa var
einsöngur og fleira til
skemmtunar. Seinna um kvöldið
var síðan haldinn dansleikur sem
stóð fram til klukkan þrjú um
nóttina. Þótti þessi fyrsti sjó-
mannadagur lofa góðu og voru
menn ánægðir með hvernig til
tókst. Var talið að um 2 þúsund
manns hefði verið í skrúðgöng-
unni fyrr um daginn.
Frá því þetta var hefur dagskrá
sjómannadagsins verið nánast
hefðbundin úti um allt land í að-
alatriðum eins og var fyrir
fimmtíu árum hér í Reykjavík.
Fyrir utan Reykjavík var hann
fyrst haldinn á sama tíma á ísa-
firði 1938. Sem dæmi um það
hvenær fyrst var farið að halda
sjómannadag á hinum ýmsu stöð-
um á landinu má nefna að á Ól-
afsfirði og í Bolungarvík var hann
haldinn strax árið eftir, á Skaga-
strönd og Siglufirði 1940, á Húsa-
vík 1941, á Suðureyri við Súgand-
afjörð 1942 og í Grundarfirði
1945.
Upphafið
Hugmyndina að sjómannadeg-
inum átti Henry Hálfdánarson
loftskeytamaður, sem síðan varð
formaður sjómannadagsráðs
Reykjavíkur í 23 ár samfleytt.
Ræddi hann þá hugmynd sína að
helga sjómönnum einn dag á ári
hverju fyrst á stjórnarfundi í Fé-
lagi íslenskra loftskeytamanna í
desember 1935. En það var ekki
fyrr en í byrjun marsmánaðar
1937 sem fundur var haldinn í
Oddfellow-húsinu í Reykjavík
þar sem fulltrúar frá níu félögum
sjómanna í Hafnarfirði og
Reykjavík komu saman til að
ræða stofnun sjómannadags. Það
voru fulltrúar frá Sjómannafélagi
Reykjavíkur, Skipstjórafélaginu
Kára í Hafnarfirði, Skipstjórafé-
lagi fslands, Skipstjórafélaginu
Ægi, Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Öldunni, Skip-
stjóra- og stýrimannafélagi
Reykjavíkur, Vélstjórafélagi ís-
lands, Matsveina- og veitinga-
þjónafélagi íslands og Félagi ís-
lenskra loftskeytamanna.
Tilgangur
Á þessum fundi lagði Henry
Hálfdánarson fram hugmyndir
sínar um sjómannadaginn. Þær
voru í fyrsta lagi að á ári hverju
skyldi ákveðinn dagur helgaður
íslenskum sjómönnum, í öðru
lagi að sjómannafélögin mynd-
uðu með sér samtök til að halda
daginn hátíðlegan og til að fá dag-
inn í framtíðinni opinberlega
viðurkenndan sem frídag sjó-
manna af öllum stéttum og að da-
gurinn yrði jafnframt í minningu
sjómanna er farist hefðu við störf
sín á sjónum. Tilgangur dagsins
yrði aðallega tvenns konar: í
fyrsta lagi að efla samhug allra
sjómanna og nota daginn til að
kynna fyrir þjóðinni starf sjó-
mannsins í blíðu og stríðu á sjón-
um með ræðuhöldum valinna
manna og á annan hátt, bæði í
útvarpi og á öðrum vettvangi. í
öðru lagi til að sjá til þess að þeim
yrði reistur veglegur minnisvarði
sem alþjóðlegt tákn þeirra fórna
sem sjórinn hefur krafist.
Enn fremur kom Henry fram
með tillögur um að sjómannada-
gurinn yrði í höndum sérstaks
fulltrúaráðs, sem sjómenn til-
nefndu sjálfir í, sem ynni að fram-
kvæmd dagsins án sérstakrar
þóknunar fyrir störf sín. Einnig
lagði Henry til að öll félög sjó-
manna, hvar sem væri á iandinu,
gætu orðið þátttakendur í sjóm-
annadeginum. Þessar tillögur
Henrys voru síðan teknar sem
ákvæði með litlum eða engum
breytingum f reglugerð fyrir
sjómannadaginn.
Fyrsti sunnudagur
í júní
Á þessum fundi í Oddfellow-
húsinu komu fram ýmsar hug-
myndir um það hvenær á árinu
skyldi halda sérstakan hátíðisdag
sjómanna. Var meðal annars tal-
að um að halda hann í október
eða nóvember. Ennfremur kom
fram tillaga um að halda hann á
lokadaginn 11. maf. En það var
ekki fyrr en í nóvember sama ár,
á fundi í laganefnd, sem tillaga
koma fram að halda daginn fyrsta
sunnudag í júnímánuði ár hvert
sem síðar varð raunin á.
Stjórn fyrsta fulltrúaráðs sjó-
mannadagsins var kosin í febrúar
á fundi á skrifstofu Vélstjórafé-
lags íslands: Formaður var ko-
sinn Henry Hálfdánarson, vara-
formaður Björn Ólafsson, ritari
Sveinn Sveinsson, vararitari Geir
Sigurðsson, gjaldkeri Guðmund-
ur H. Oddsson, varagjaldkeri
Þorgrímur Sveinsson, endur-
skoðendur Þórarinn Guðmunds-
son og Lúther Grímssson og til
Fyrir rúmum fimmtíu árum, þegar sjómenn ræddu oaö sín I milli hvenær halda ætti siómannadag-
inn hátiolegan, kom fram hugmynd um að halda h \nn í vertíðarlok 11. mai. En það varð ofan á að
halda hann fyrsta sunnudag í júnímánuði ár hvertííA þessari mynd er verið að taka netin upp eftir
vertiðina og siðan var báturinn þrifinn hátt og lágj og gert klárt fyrir næstu vertíð.
Allt frá því að landið byggðist hafa
konur sótt sjóinn, í mismiklum mæli
þó. Nú í seinni tíð hefur það orðið æ
algengara eftir að þær fóru að sækja í
hefðbundin karlastörf. Ásjómanna-
daginn hafa þær aldrei legið á liði
sínu við að gera daginn sem ánægjul-
egastan. Ýmist tekið beinan þátt í
keppni dagsins, eins og myndin ber
með sér, eða þá staðið fyrir kaffi og
meðlæti fyrir þyrsta og svanga hátíð-
argesti. Ljósm. Tíminn - Mynd Ari.
vara Einar Þorsteinsson. Margir
þessara manna áttu síðan eftir að
starfa mikið að málefnum sjó-
manna og sjómannadagsins
Sumir hverjir í áratugi.
Haldinn ár hvert
Allar götur síðan fyrsti sjó-
mannadagurinn var haldinn hát-
íðlegur hefur hann verið haldinn
ár hvert án undantekningar. Á
þessu íimmtíu ára tímabili hefur
verið bryddað upp á ýmsu á sjó-
mannadaginn fólki til
skemmtunar og fróðleiks um
sjómannastéttina, ásamt því að
beiðra gamlar kempur fyrir vel
unnin störf á sjónum. Jafnframt
hefur verið safnað fé til hinna
úmsu mála sem talin hafa verið til
heilla fyrir sjómannastéttina með
skemmtunum, skemmtisigling-
um og hin síðari ár með kvik-
myndasýningum og happdrætti.
AÍIt fram á þennan dag hefur
bróðurparturinn að því fé sem
safnast hefur saman farið til
byggingar dvalarheimilis fyrir
aldraða sjómenn. Fyrst í Reykja-
vík og síðar í Hafnarfirði.
grh
Heimildir:
Sjómannadagsblaðið 25. árgangur
1962
Pjóðviljinn í júní 1938
KRISTJÁN Ó.
SKAGFJÖRÐ HF.
eru ekki bara net!
Á sjónum snýst lífið um eitt: FISK.
Þessvegna gera farsælir skipstjómar-
menn miklar kröfurtil veiðafæra sinna.
NICHIMO og KING eru þorskanetsem
má treysta.
NICHIMO japönsku þorskanetin eru
óvenju fiskin, vönduð og meðfærileg.
KING þorskanetin eru einnig afarfiskin
og í góðum litum.
Taktu upp símann, kannaðu málið.
Nú er rétti tíminn fyrir næstu vertíð.
Mundu að skynsamleg ráðstöfun í landi,
getur komið sér vel úti á rúmsjó.
Hólmaslóð 4, sími 24120, Rvk.
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. júní 1987
Sunnudagur 14. júnl 1987 ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 11