Þjóðviljinn - 17.06.1987, Qupperneq 1
júní
Þjóðhátíðar-
veðrið
óvenjulega gott
Gott veður verður um allt land
í dag. Hæg breytileg átt á landinu
öllu, skýjað við sjávarsíðuna en
bjart inn til landsins. Samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstofunni
verður úrkomulaust og hitastigið
á bilinu 10-17 gráður á selsíus.
Pað er því útlit fyrir að hátíðar-
höldin geti farið vel fram og þátt-
taka verði mikil.
-gsv
Miðvikudagur 17. júní 1987 128. tölublað 52. árgangur
Krakkarnir fagna þjóðhátíðardeginum með blöðrum og flöggum. Mynd Ari
Stjórnarmyndun
Ítalía
Þríhjól fyrir helgi
Jón Baldvin óléttur afforsœtisráðherratitlinum. Drögað
málefnasamkomulagi liggurfyrir. Samkomulag umfyrstu
aðgerðir í ríkisfjármálum. Tekjuöflun upp á 8-900 milljónir á
árinu. Flokkarnirþrír hundóánœgðir með niðurstöðuna
Mú virðist stefna í það að þrí-
hjóljð verði til um næstu helgi
enn er samt óvíst hver stýrimað-
urinn verður. Samkvæmt heim-
ildum Þjóðviljans mun Jón Bald-
vin vera orðinn óléttur af forsæt-
isráðherratitlinum, einkum
vegna andstöðu framsóknar gegn
því að Þorsteinn verði gerður að
forsætisráðherra.
Nú liggja fyrir drög að mál-
efnasamkomulagi flokkanna
þriggja og hafa flokkarnir náð
samkomulagi um fyrstu aðgerðir
í efnahagsmálum. Hefur sér-
stakri nefnd verið falið að útfæra
þessar hugmyndir. Þá er eftir að
útfæra efnahagsstefnu ríkis-
stjórnarinnar, en Jón Baldvin
boðaði í gær að heildarendur-
skoðun ætti að fara fram á ríkis-
fjármálunum.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hefur náðst samkomulag
um tekjuöflun upp á 800-900
milljónir króna á árinu, en ekki
1,2 milljarð einsog álitið hefur
verið.
Bæði kratar og framsókn eru
hundóánægðir með þessa niður-
stöðu og heimildir innan Sjálf-
stæðisflokksins herma að menn
þar á bæ séu einnig óánægðir.
„Það eru allir í fýlu,“ sagði einn
viðmælandi Þjóðviljans í gær.
Kratar munu mjög óhressir
með hversu litlu þeir virðast ætla
að ná í gegn og leggja því mikla
áherslu á að Jón Baldvin geri þá
kröfu að hann verði forsætisráð-
herra. Jón Baldvin fór upphaf-
lega af stað í viðræðurnar með því
hugarfari að vera verkstjóri fyrir
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar en
virðist nú vera orðinn þungaður
af forsætisráðherranum.
Þó framsókn hafi gengið til við-
ræðnanna með því fororði að Jón
Baldvin yrði ekki forsætisráð-
herra hafa þeir þó átt mun meiri
samstöðu með krötum í þessum
viðræðum en með íhaldinu. Segja
heimildir blaðsins að þeir geti
frekar sætt sig við Jón Baldvin en
við Þorstein, þó helst hefðu þeir
kosið Steingrím Hermannsson.
Kratar geta ekki hugsað sér að
Steingrímur verði forsætisráð-
herra því þá væri einsog þeir væru
varadekkið undir fráfarandi rík-
isstjórn. íhaldið getur heldur
ekki sætt sig við að Steingrímur
verði áfram forsætisráðherra og
er enn þess sinnis að stærsti flokk-
urinn skuli hafa forsætisráðu-
neytið.
Mjög erfitt verður fyrir Þor-
stein að skipa ráðherra og eygir
hann vissa lausn í því að láta Jóni
Baldvini eftir forsætisráðherra-
embættið og sitja áfram í fjár-
málaráðuneytinu. Færi svo
fengju Sjálfstæðismenn örugg-
lega fjóra ráðherra gegn þrem hjá
krötum og framsókn. Helstu ráð-
gjafar Þorsteins ráða honum þó
frá því; ætli hann að treysta stöðu
sína innan flokksins verður hann
að leiða ríkisstjórnina.
-Sáf
Þróunarfélagið
Síminn stoppar varla
Mikill áhugi á hugmyndum Þróunarfélagsins um sjálfstœð
landshlutafélög
Síminn hefur varla stoppafi sífi-
an við kynntum þetta, sagfii
Gunnlaugur Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélagsins í
gær um viðbrögð við nýkynntum
hugmyndum félagsins um sjálf-
stæfi þróunar- og Qárfestingarfé-
lög í landshlutum, sem gætu kom-
ist á legg með haustinu.
Þróunarfélagið býðst til að
leggja fram fimmtung hlutafjár í
þessum félögum, sem hefðu
hvert um sig yfir að ráða að
minnsta kosti 15 milljónum í
hlutafé, og styddust við styrk og
reynslu „móðurfélagsins" í lána-
viðskiptum erlendis.
Gunnlaugur sagði að þessar
áætlanir Þróunarfélagsins væru
liður í því byggðaátaki sem flestir
virtust vera sammála um að
hefja, og þáttur í meiri heima-
stjórn landshlutanna í fjárhags-
eftium. Ef vel tækist til ynnist
hvorttveggja, að auknu fjár-
magni yrði til að dreifa í byggð-
um, og að við fjárfestingar yrði
beitt vönduðum vinnubrögðum.
Peningarnir yrðu þegar fyrir
hendi í landshlutanum, og því
lögð megináhersla á að verja
þeim skynsamlega, í stað þess
sem nú væri alltof algengt, að
meginkrafturinn væri lagður í að
toga þá útí byggðirnar frá mið-
stýringunni, stundum án mikils
tillits til þess hvernig fénu er var-
ið.
Gunnlaugur sagði að best væru
viðbrögðin frá sveitarfélögum,
þótt ætlunin sé að fyrirtæki og
einstaklingar verði líka með, og
nefndi sérstaklega Norðurland
eystra, Suðurland og Suðurnes,
en í þessum landshlutum öllum er
orðinn til vísir að fjárfestingar-
sjóðum innan héraðs.
Þróunarfélagið bindur vonir
við að samvinna komist á milli
þessara félaga og iðnráðgjafa í
landshlutunum, og er að því
stefnt að „yfirbygging" lands-
hlutafélaganna verði sem allra
minnst. Á næstunni verður ráð-
inn starfsmaður til að kynna þess-
ar hugmyndir útum íandið og
kanna viðbrögð, en vonir standa
til að fyrstu landshlutafélögin
spretti upp í september eða októ-
ber. -m
Kven-
skömngur
áþing
Þótt vinstrimenn séu fremur
daufir í dálkinn eflir að úrslit ítöl-
sku þingkosninganna voru gerð
heyrinkunn þá geta þeir þó hugg-
að sér við eitt. Ilona „Cicciolina“
Staller náði kjöri fyrir Róttæka
flokkinn.
Staller er þekkt dirfðarkona á
Ítalíu og hefur haft í sig og á með
því að ástunda sjafnarmál og ást-
arlíf af hinum ýmsu tegundum og
gerðum. En jafnframt hefur hún
aldrei farið dult með pólitísk við-
horf sín né afstöðu til jafnréttis-
mála.
Staller vakti óskipta athygli í
kosningabaráttunni fyrir
skemmtilegar og óhefðbundnar
uppákomur. Hún var ófeimin við
að fletta sig klæðum til að leggja
áherslu á orð sín og stefnumál
sem mörg hver eru hin ágætustu.
Hver er til dæmis ekki hjartan-
lega sammála henni, þótt máski
fari leynt, þegar hún viðrar jafn
heilbrigt sjónarmið og þetta:
„Niður með kjamorku, upp með
kynorku!"
í öllu falli féllu skoðanir henn-
ar íbúum Latina hverfisins í Róm
það vel í geð að þerr tryggðu
henni mjög góða kosningu til setu
í neðri deild ítalska þingsins.
-ks.
- •