Þjóðviljinn - 17.06.1987, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 17.06.1987, Blaðsíða 10
UTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkur f.h. Hitaveitu Reykjavíkur aö Nesjavöllum óskar eftir tilboðum í: „Safnæðar-Jarðvinnaog undirstöður". Verkið fellst í jöfnun leiðslustæðiss, gerð vegslóða, greftri og fyllingu fyrir undirstöðum og festum, steypu á festum og uppsetningu undirstaða. Þá skal leggja hluta vatnsveitu, borveitu og merkjastrengi. Heildarlengd safnæða er um 2,3 km. Bjóðendur skulu bjóða í allt verkið, og eru fráviks- tilboð óheimil nema einnig fylgi tilboð í fullu sam- ræmi við útboðsgögn. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 30. júní kl. 14.00 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800 Auglýsing um lögtök fasteigna- og brunabóta- gjalda í Reykjavík Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunn- ar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 12. þ.m. verða lögtök látin fara fram til tryggingar ógreiddum fasteignasköttum og brunabótaiðgjöldum 1987. Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, hefjast að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess tíma. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík, 12. júní 1987 Óskað er eftirtilboðum í sterila handþvottabursta til notkunar á skurðstofum ríkisspítalanna. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgart- úni 7, Reykjavík. Tilboð verða opnuð föstudaginn 24. júlí n.k. kl. 11:00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Borgartúni 7, sími 26844 DJOÐVILJINN PÍ5S1 I nniiiii 68 18 66 Blaðburóur er og borgar sigí Vantar blaðbera til sumar- afleysinga víðs vegar um bæinn Síðumúla 6 0 68 13 33 ERLENDAR FRÉTTIR Rabuka, forsprakki valdaránsmanna á Fijieyjum: Sendisveinn afturhaldsins. Fijieyjar Valdaræningjar í mótbyr Breska samveldiðþvœr hendur sínar. Utanríkisstefna stjórnar Verka- mannaflokksins helsta átylla valdaránsins Mánuður er nú liðinn frá valdaráni hersins á Fijieyjum, og hafa hinir nýju valdhafar mætt andspyrnu af ýmsum toga. Til allsherjarverkfalls hefur komið, og víðtækar mótmælaaðgerðir urðu til þess að herforingja- stjórnin sá sér þann grænstan að sleppa Timoci Bavadra, fyrrum forsætisráðherra, úr haldi. Þá aukast líkurnar á því að Indverj- ar beiti sér gegn hinum nýju herr- um í eyríkinu, og munar um minna. Bavadra hélt fljótlega til London eftir að honum var sleppt úr haldi, en Fijieyjar eru í Breska samveldinu og er Englands- drottning formlega þjóðhöfðingi landsins. Reyndi Bavadra að ná eyrum drottningar og fleiri ráða- manna í höfuðborginni, en gekk bónleiður til búðar og var vísað á undirtyllur. Þykir þetta mál hið vandræðalegasta fyrir Samveld- ið, og reiða menn sig þar helst á að Ganilau landsstjóri klóri sig fram úr því. Ekki er þó gulltryggt að valds- mönnum á Vesturlöndum sé eins leitt og þeir vera láta þegar valda- ránið er annars vegar, og í eftir- farandi samantekt verður hugað nánar að því hvað herforingja- stjórnin stendur fyrir. Þjóðernis- leiðtogastreita? Foringi valdaránsmanna, Ra- buka, hefur lýst því yfir að ríkis- stjórn Bavadra hafi í einu og öllu gengið erinda Fijibúa af ind- verskum uppruna. „Ég vildi að- eins tryggja hagsmuni innfæddra,“ hefur hann sagt. íbúar landsins eru um 715.000 talsins, og af þeim eru um 47% af melanesísku bergi brotnir. Held- ur fleiri, eða um 49%, eru af ind- verskum uppruna, en hávaðinn af þeim eru afkomendur ind- verskra verkamanna sem breska Bavadra, fyrrum forsætisráðherra: Breska samveldið vill ekkert af hon- um vita. nýlendustjórnin flutti til eyjanna á síðustu öld. Sú fullyrðing að ríkisstjórn Ba- vadra hafi endurspeglað hagsmuni fólks af indverskum uppruna og að valdaránið hafi verið framkvæmt í þágu innfæddra hefur endurómað í flestum fjölmiðlum heimsins. Petta dylur þó hinar dýpri ástæð- ur valdaránsins, og þar vegur þyngst að afturhaldsöflin á eyjun- um hafa ekki sætt sig við niður- stöður kosninganna sem haldnar voru mánuði fýrr. 12. aprfl fóru þingkosningarn- ar fram. Bandalag það þar sem Verkamannaflokkur Bavadra var ráðandi afl bar sigur úr být- um, en Sambandsflokkur Kamis- ese Mara beið ósigur, en Mara hafði þá veitt öllum ríkisstjórnum forystu frá því að Fiji varð sjálf- stætt ríki árið 1970. Verkamann- aflokkurinn hlaut 28 þingmenn kjörna en Sambandsflokkurinn 24. Þessar kosningar voru hinar fyrstu í stuttri sjálfstæðissögu landsins þar sem skipting at- kvæða var ekki eingöngu í sam- ræmi við uppruna kjósenda. Nokkur hluti innfæddra kaus Verkamannaflokkinn, en hann boðaði meðal annars í kosninga- stefnuskrá sinni aukna áherslu á heilbrigðismál, félagsmál og menntun, utanríkisstefnu sem vildi gera kjarnorkuvopn útlæg, og lagði áherslu á að allir íbúar Fijieyja skyldu njóta sömu rétt- inda án tillits til uppruna. Kjarnorkuvopna- lausar Fijieyjar Ósigur Sambandsflokksins hefur valdið Vesturveldunum áhyggjum. Fijieyjar eru mjög miðsvæðis á samgönguleiðum á Kyrrahafi, og er efnahagsþróun- in þar lengra á veg komin en í öðrum sjálfstæðum eyríkjum í nágrenninu. Vestrænir kapítalist- ar hafa fjárfest grimmt á Fiji- eyjum. Sérstaklega hefur sú yfirlýsing stjórnar Verkamannaflokksins vakið ugg á „betri“ bæjum að hún hyggist Ioka höfum landsins fyrir skipum þeim sem hafa kjarna- vopn í farteskinu, svo og kjarn- orkuknúnum skipum. Sú skoðun á sér einnig hljómgrunn í Verka- mannaflokknum að Fijieyjar gangi til liðs við hlutlaus ríki, og fylgi þar fordæmi granna sinna í Vanuatu. Fáeinum dögum eftir valda- ránið lýsti Rabuka því yfir að utanríkisstefna Verkamanna- flokksstjórnarinnar hafi vegið þyngst á metunum þegar herinn ákvað að láta sverfa til stáls. Ra- buka hefur sagt að stjórn Bava- dra væri að slíta hin góðu tengsl landsmanna við Bandaríkja- stjórn. Aðdróttanir um Rússa- þjónkun fylgdu svo að vonum í kjölfarið. Kunnuglegur eftirrétt- ur það. HS 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 17. júní 1987 Aðalheimild: REUTER

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.