Þjóðviljinn - 17.06.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 17.06.1987, Blaðsíða 11
"■ ÖRFRÉTTIR Kóngurinn í Afganistan tekur ekki í mál að deila valdi með þeim arma svarki Najib, leiðtoga Kabúlstjórnarinnar, að sögn blaðafulltrúa hans hátignar í gær. Najib hafði látið að því liggja að fýsilegt væri að fá kóngsa til sam- vinnu en hann segist ekki Ijá máls á henni meðan erlendur her er staðsettur í landinu. 200 félagar stéttarsamtaka voru myrtir á síð- asta ári og um 4,500 lokaðir bak við lás og slá. Þetta kom fram á þingi Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga í Genf í gær. Þorri hinna myrtu voru brasilískir landbúnaðarverkamenn eða 190 talsins. Það voru morðingjar á vegum stórjarðeigenda sem vógu þá. Stjórnvöld í Suður- Afríku voru stórtækust við hand- tökur en þau létu fangelsa um 3,400 félaga í stéttarsamtökum blökkumanna. Fjöldi ríkisstjórna hefur óhreint mjöl í pokahorninu hvað þetta snertir. I Evrópu eru austanmenn grimmir við alla sem Ijá máls á stofnun frjálsra verka- lýðsfélaga. Vestan tjalds eiga slík félög erfiðast uppdráttar í Bret- landi. Fred Flinstone björninn Jógi og Stikkilsberja- Snati ásamt hinum ýmsu teiknimyndahetjum öðrum geta átt það á hættu að missa málið. Stéttarfélag leikara þeirra sem Ijá þeim raddir sínar hefur boðað til vinnustöðvunar. Raddirnar krefj- ast þess að laun þeirra verði hækkuð en þær fá nú um 361 dal á dag. Kvikmyndaleikarinn Martin Sheen var í hópi tvöhundr- uð kjarnorkuandstæðinga sem handteknir voru á mótmælafundi steinsnar frá tilraunasvæði Bandaríkjahers í Nevadaeyði- mörkinni. Andófsmenn voru sak- aðir um að hafa farið inná bann- svæði. ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Undarlegt tilboð Aðfengnu samþykki bandamanna íNA TOfyrir núll lausn gefur Bandaríkjaforseti undirmönnum sínum í Genf skipun um að semja. Stingur uppá að risaveldin eyði einnig skammdrœgum kjarnflaugum utan Evrópu. Sovétmenn eiga margarslíkar en Bandaríkjamenn enga Bandarísku samningamennirn- ir í Genf komu í gær nýjum afvopnunarhugmyndum stjórnar sinnar á framfæri við sovéska kol- lega sína. Þær ganga út á að í stað þess að láta staðar numið við eyðingu allra skammdrægra kjarnflauga stórveldanna í Evr- ópu gengju leiðtogar þeirra skrefí lengra og eyddu hverri einustu skammflaug sem þau eiga í fórum sfnum. Reagan forseti hóf máls á þess- um nýmælum í sjónvarpsávarpi í fyrrakvöld og sagðist leggja mikla áherslu á að þeim yrði um- svifalaust komið á framfæri í Genf. Tilboðið er undarlegt og þær spurningar hljóta að vakna hvort tilgangurinn sé fyrst og fremst sá að telja bandarískum almenningi trú um að fleiri geti átt frum- kvæðið í afvopnunarviðræðum en Sovétmenn. Mergurinn málsins er nefni- lega sá að Sovétmenn eiga alls um 130 skammflaugar, hver og ein með einn eða fleiri kjarnodd, en þriðjungur þeirra er í Asíuhluta ríkisins. Bandaríkjamenn segjast á hinn bóginn ekki eiga eina slíka flaug! Bandarísku samningamenn- irnir í Genf hafa ennfremur að____________________________________________________________________________ undanförnu lagt aukna áherslu á Skammdræg sovésk kjarnflaug á bryndreka. Reagan vill að þeim verði öllum komið fyrir kattarnef. Suður-Afríka Viðbjóðslegar pyndingar á bömum Hugkvœmni apartheidböðlanna lítil takmörk sett þegar fólskuverkin Nýlegar frásagnir um ofbeldi og pyndingar suður-afrískrar lögreglu á hendur börnum hefur vakið mikla athygli og óhug. Samkvæmt skýrslu sem var gefin út í Washington í gær uxu ofsókn- irnar hröðum skrefum meðan nýaflétt neyðarlög voru í landinu og hafa svört börn allt niður í 12 ára aldur orðið fórnarlömb grimmdarverkanna. „Pyndingar, morð og fangels- anir í trássa við dóma og lög halda áfram eins og ekkert hafi í skorist,” segir í skýrslunni en það er bandaríski anginn af félags- skapnum „Til varnar börnum” sem gefur hana út. Félagsskapur þessi hefur höfuðstöðvar í Genf. Börn sem sætt hafa fangelsun- um skýra svo frá að þau hafi verið barin með byssuskeftum, blautum nælonpokum hafi verið steypt yfir höfuð þeirra svo þeim lá við köfnun og að þau hafi verið handjárnuð og síðan snúið í hringi. Hinir orðhögu meðal böðlanna hafa kallað síð- astnefndu pyndingaraðferðina „þyrluna”. Neyðarlögin voru felld úr gildi í Suður-Afríku á laugardaginn var og var 800 blökkumönnum sleppt úr haldi í tilefni þess. Höf- undar skýrslunnar telja engu að síður að meira en tíu þúsund börnum hafi verið haldið frá því í eru annars vegar júní í fyrra og að þeim fari fjölg- andi. Skýrslan ber heitið „Börn sem búa við aðskilnaðarstefnu,” og þykir skilmerkilegasta og greinarbesta plagg sem gefið hef- ur verið út að undanförnu um þessi mál, en niðurstaða annarra greinargerða er öll á sömu lund: Fangelsanir barna undir átján ára aldri eru daglegt brauð í Suður- Afríku. Blaðafulltrúi Suður-Afríska sendiráðsins í Washington, Chris Streeter, klóraði í aðskilnaðar- bakkann þegar skýrslan var kynnt og sagði: „Þetta er það al- mesta kjaftæði sem ég hef heyrt á æfi minni.” „Ef höfundar skýrslunnar trúa því að tíu þúsund börn sitji bak við lás og slá og lögreglan hafi skotið meira en þúsund til bana, þá hafa þau fengið rangar upplýs- ingar,” bætti hann við. Micael Jupp, einn höfund- anna, hitti móður eins hinna fangelsuðu barna að máli í fyrra er hann dvaldi þar við eftir- grennslanir sínar og hrekur frá- sögn hennar allar staðhæfingar stjórnvalda um vammleysi lög- reglunnar. Tólf ára gamall sonur hennar var handtekinn. „Hún lýsti því þegar lögreglan kom að ná í hann og þegar hún hafði að endingu upp á honum í sjúkrahúsi. Hún sagðist varla hafa þekkt hann þá, vegna þess að augun voru sokkin. Þá var hún þess fullviss að lög- reglan hefði lúbarið hann,” sagði Jupp. „Hún var ekki reið,” sagði hann, „uppgjöfin var algjör. Það er allt sem bendir til þess að pyndingum í einu formi eða öðru sé beitt gegn börnum.” Ef marka má skýrslu samtak- anna „Til varnar börnum,” gerist rafmagnslost nú æ vinsælla meðal barnapyndingameistaranna: „Lögreglubílar eru núorðið þann veg útbúnir að hægt er að kvelja fórnardýrin í þeim og það áður en þau eru færð á lögreglustöð.” Skýrslan endar á þeirri nótu að börn sæti pyndingum einfaldlega vegna þess að þau eru börn: „Börn eru handtekin og stungið í fangelsi fyrir þær „sakir” einar að vera meðlimir einhverra ung- mennasamtaka í skólunum; fyrir að vera í áletruðum bolum sem eru stjórnvöldum ekki þóknan- legir og jafnvel fyrir að vera úti á kvöldin.” Skýrsiugerðarmenn leggja það til í sínum lokaorðum að komið verði á stofn lögfræðilegri mið- stöð til að sjá fangelsuðum börn- um fyrir aðstoð og til að þjálfa lögfræðinga í lögum sem lúta að unglingum. HS að risaveldin eyði öllum meðal- drægum kjarnflaugum sínum en ekki eingöngu þeim sem staðsett- ar eru í Evrópu. Samkvæmt þeim drögum sem samninganefndirnar vinna út frá skal hvorum aðila um sig heimilt að halda eftir 100 meðalflaugum ef samkomulag næst en þær skuli geymdar á svæði hvaðan ekki stendur ógn af þeim í Evrópu. -ks. Bretland Verður miðju- bandalagið flokkur? David Steel, formaður Frjáls- lynda flokksins og annar af tveim leiðtogum miðjubandalags eigin flokks og jafnaðarmanna, er hlynntur því að bandalaginu verði hægt og hljótt breytt í stjórnmálaflokk. Hann sagði í gær að bandalagið stæði nú á tímamótum en sem kunnugt er vegnaði því mjög illa í þingkjörinu í síðustu viku, aðeins 22 frambjóðendur þess náðu kjöri. Steele sagði að valkostirnir væru þrír. 1 fyrsta lagi að gera bandalagið að stjórnmálaflokki og leggia niður hinn aldna Frjáls- lynda flokk og nýgræðinginn, Jafnaðarmannaflokkinn. í öðru lagi að hafa bandalagið óbreytt en að það lúti forystu eins manns í stað tveggja áður. í þriðja lagi að leysa bandalagið upp og láta flokkana tvo róa eina á báti.-ks. Indland Gandhi þreytir próf Héraðsþingskosningar farafram í Haryanafylki í dag. Mikið í húfifyrirforsœtisráðherrann að Kongressflokkurinn missi ekkifylgi Rajiv Gandhi varð formaður Kongressflokksins eftir að Indira móðir hans féll fyrir morð- ingjahendi árið 1984. Sama ár vann flokkurinn yfírburðasigur í þingkosningum og blandast fáum hugur um að þá hafí Gandhi notið samúðar vegna fráfalls móður sinnar. Síðan hefur hallað undan fæti. Flokkurinn hefur misst meiri- hluta sinn Keralafylki á Suður- Indlandi, deilir völdum í Jammu og Kashmir þar sem hann ríkti áður einn og honum hefur mis- tekist að hnekkja veldi kommún- ista í Vestur-Bengal. í dag ganga íbúar Haryanafylk- is að kjörborðinu og fái Kongressflokkurinn slæman skell þar þá er fátt sem kemur í veg fyrir að Gandhi verði útnefndur „hrakfallabálkur” indverskra stjórnmála. -ks. Aðalheimild: REUTER Miðvikudagur 17. júni 1987 ÞJÓÐViLJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.