Þjóðviljinn - 17.06.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 17.06.1987, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTT1R Knattspyrna „Ellismellir og Útlendingar“ Leika kúnstir sínar á Laugardalsvellinum í ágóðaleikfyrir Vernd Evrópukeppni Óvænt hjá Noregi Norðmenn komu mjög á óvart er þeir sigruðu Evrópumeistarana Frakkland, 2-0, í 3. riðii Evrópu- keppninnar í gær. Frakkar áttu heldur meira í leiknum en á 71. náði Per Edmund Mordt forystunni fyrir Norðmenn, eftir mistök Joel Bats markvarðar Frakka. Níu mínútum síðar bætti Jö- ern Anderson öðru marki við. Með þessu tapi má segja að vonir Frakka um sæti í lokakeppninni séu úti. Þetta eru einnig slæmar fréttir fyrir íslendinga, því með þessum sigri komst Noregur í 4. sæti, en ísland situr á botninum. Sovétmenn eru efstir í riðlinum með 9 stig, Austur-Pjóðverjar með 6 stig, Frakkar 4, Norðmenn 3 stig og íslendingar 2 stig. Öll liðin hafa leikið 5 leiki, nema Norðmenn sem hafa að- eins leikið fjóra leiki. -ibe 3. deild Fylkir á toppnum Fylkismenn hafa nú þriggja stiga forskot í A-riðii 3. deildar eftir sigur gegn ÍK í gær, 3-1. Pað var samt ÍK sem náði for- ystunni með marki frá Herði Sig- urðarsyni, en þrjú mörk Fylkis- manna í síðari hálfleik gerðu útum leikinn. Baldur Bjarnason, Orri Hlöðversson og Ólafur Magnússon skoruðu mörk Fylk- is. Pá var einn leikur í B-riðli. Reynir og Austri gerðu jafntefli, 1-1. Þorvaldur Hilmisson skoraði mark Reynis, en Sverrir Heimis- son jafnaði fyrir Magna. -ibe Svíþjóð Hysen hættivið Glenn Hysen, leikmaður IFK Gautaborg, hefur ákveðið að taka ekki tilboði Manchester Un- ited. Manchester United bauð hálfa miljón sterlingspunda í Svíann unga, en hann hafði ekki áhuga. Nú bendir flest til þess að hann fari til ítalska liðsins Fiorentina. Þar er landi hans og vinur, Sven Göran Erikson við stjórnvölinn. -ibe/reuter í dag fer fram sannkallaður „Stjörnuleikur“ á Laugardals- velli. Þá keppa gömlu kempurnar gegn atvinnumönnum og útlend- ingum og hefst leikurinnn kl. 17. Allur ágóði af leiknum rennur til Verndar. Líklega hefur íslendingum ekki gefst kostur á að sjá jafn marga landsliðs fyrirliða og í þessum leik. Þeir eru 8 talsins og meðalaldurinn vel yfir 30 ár. Það er „Heimavarnarlið-ið“ sem tekur á móti „Útlendinga- hersveitinni“. Heimarvarnaliðið er skipað reyndum íslenskum leikmönnum sem margir hverjir eru hættir keppni. Útlendinga- hersveitin uppistendur af atvinnumönnum og útlending- um. Lið Heimavarnarliðsins er þannig skipað. Sigurður Dagsson í markinu, Ólafur Sigurvinsson, Grímur Sæmundssen, Marteinn Geirs- son, Jóhannes Eðvaldsson, Karl Þórðarson, Magnús Bergs, Ás- geir Elíasson, Rúnar Júlíusson, Ingi Björn Albertsson og Tómas Pálsson. Varamenn eru Jón Gunnlaugsson, Matthías Hall- grímsson, Ólafur Júlíusson og Jó- hann Einar Jakobsson. Liðstjóri er Guðni Kjartansson. Þessir kappar hafa leikið samtals 332 landsleiki fyrir ísland Það er heldur ekki neinir Aðalsteinn Örnólfsson hefur verið ráðinn þjálfari A-landsliðs og U-16 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu. Aðalsteinn hefur þjálfað hjá Breiðabliki, Stjörnunni, ÍK og Þrótti og mun nú þjálfa bæði landsliðin. Hann tekur við af Sig- urbergi Sigsteinssyni. aukvisar í Útlendingaher- sveitinni. Þorsteinn Bjarnason, Arnór Guðjohnsen, Sigurður Jónsson, Guðmundur Torfason, Janus Guðlaugsson, Albert Guð- mundsson, Robert Walters, sem er líklega þekktastur fyrir að hafa haldið bolta á lofti í 13 klukku- stundir, Peter Farrel, Ian Flem- ing, Ian Ross, Gordon Lee, Bobby Harrison, sem lék eina tíð með West ham, Vladimar Vod- stok Spartak Moskvu, Tom Kleist frá Grænlandi og Heimir Karlsson. Liðstjóri er Tony Step- hens sölustjóri á Wembley. Bundið fyrir augu í upphafi leiks mun Ungfrú ís- land, Anna Margrét Jónsdóttir, svífa til jarðar með boltann og hún og Gígja Birgisdóttir reyna að verja vítaspyrnur frá Arnóri Guðjohnsen, Pétri Péturssyni og Albert Guðmundssyni. Það verð- ur líklega einhverjum vand- kvæðum bundið fyrir kappana að skora því þeir verða með bundið fyrir augu. í Ieikslok verður svo dregin út ferð frá Samvinnuferðum- Landsýn og Jónu Gróu Sigurðar- dóttur, formanni Verndar af- hentur ágóðinn af leiknum. Umsjón með leiknum hefur Halldór Einarsson, en allir þeir sem koma fram gefa sitt framleg. -Ibe Næsta verkefni A-landsliðsins eru leikir gegn Þjóðverjum í sept- ember. U-16 ára landsliðið tekur þátt í Norðurlandamóti í Noregi á næsta ári og hefst undirbúningur nú fljótlega og verður æft af kappi í vetur. -Ibe Kvennalandslið Aðalsteinn tekur við Frjálsar íþróttir Mjög góður árangur Besta hlaup frá upphafi í10.000 m. Drengjametí tugþraut Már Iiermannsson tryggði sér íslandsmeistaratitil í 10.000 metra hlaupi á fyrri hluta meistaramóts íslands í frjálsum íþróttum. í þessum sama hlaupi setti Frímann Hreinsson nýtt ung- lingamet. Þetta hlaup var líklega besta hlaup íslendinga í 10.000 metr- um. Fyrstu sex keppendurnir hlupu á mjög góðum tíma, en þó átti Már nokkuð eftir í íslands- met Sigfúsar Jónssonsar. Frí- mann Hreinsson setti unglinga- met á mjög góðum tíma, 31.48. Úrslit í 10.000 metra hlaupi: 1. Már Hermannsson, UMFK....31.32.6 2. Frímann Hreinsson, FH....31.48.4 3. Jón Diðriksson, (R.......31.53.0 4. Jóhann Ingibergsson, FH..32.02.5 5. Daníel Smári Guðmundsson, USAH 32.37.6 6. Sighvatur Dýri Guðmundsson, ÍR 33.10.0 Jón Arnar Magnússon sigraði í tugþraut á nýju drengjameti. Hann fékk 6232 stig. Úrslit I tugþraut: 1. Jón Arnar Magnússon, HSK..6232 2. Auðunn Guðjónsson, HSK....6175 3. Agnar Steinarsson, ÍR.....5996 Birgitta Guðjónsdóttir, HSK sigraði í sjöþraut kvenna með 4739 stig. Bryndís Hólm, ÍR hafnaði í 2. sæti, hún hlaut 4512 stig og í 3. sæti Ingibjörg ívars- dóttir HSK með 4205. Sveit FH sigraði í 4x800 metra boðhlaupi á 8.12.2. ÍR-ingar höfnuðu í 2. sæti á 8. 20.0 og HSK í 3. sæti á 8.47.5. Steinunn Jóhannsdóttir var eini keppandinn í 5000 metra hlaupi kvenna. Hún hljóp á 18.42.4 mínútum. Einnig var keppt í nokkrum aukagreinum. Jóhann Jóhanns- son sigraði í 100 metra hlaupi á 10.9 sekúndum, Guðni Sigur- jónsson varð annar á 11.0 og Þor- valdur Jónsson hafnaði í 3. sæti á 11.1. sekúndu. Hildur Björnsdóttir Ármanni sigraði í 400 metra hlaupi í 58.5, Berglind Erlendsdóttir Breiða- bliki hafnaði í 2. sæti á 59.5 og Valdís Hallgrímdssóttir UMSB í 3. sæti á 1.00.7. Gunar Guðmundsson sigraði í 400 metra hlaupi karla á 51. 9 sekúndum, Guðni Guðmunds- son hafnaði í 2. sæti á 53. 6 og Cor De Jange í 3. sæti á 55.5 sekúnd- um. Loks var það 1500 metra hlaup karla. Það sigraði Steinn Jó- hannsson, FH á 3.59.4 mínútum. í 2. sæti hafnaði Hannes Hrafnkelsson, Breiðabliki á 4.01.3 og í 3. sæti Bessi Jóhanns- son ÍR á 4.09.1 mínútum. -Ibe Miðvikudagur 17. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Atll Einarsson skorar hér fjórða mark Víkinga þrátt fyrir örvæntingarfullar tilraunir Hreggviðar Agústssonar markvarðar Einherja (Mynd: Ari). 2.deild Stórsigur Víkinga Víkingur-Einherji 4-1 ★. Þetta var ekki sannfærandi sigur sem Víkingar unnu, en þannig er þetta í fótboltanum það lið sem skorar mörkin sigrar og Víkingar hafa nú endurheimt toppsætið í 2. deild. Fyrstu mínútur leiksins voru þær daufustu sem sést hafa í 2. deild til þessa. Leikurinn fór að mestu fram á miðju vallarins og engin færi sáust. t'að var loks á 20. mínútu að Vík- ingar tóku af skarið og skoruðu mark. Hörður Theodórsson gaf þá góða sendingu inn á miðju til Atla Einars- sonar sem stakk vörn Einherja af og skoraði af öryggi. Níu mínútum síðar jafna Einherja- menn eftir hræðileg mistök í vörn Víkings. Það var Kristján Davíðsson sem skoraði auðveldlega. Víkingar fengu svo víti á 38. mín- útu eftir að Arni Ólafsson hafði brugðið Herði Theodórssyni inni í vítateig. Trausti Ómarsson skoraði með föstu skoti úr vítinu. Einherjamenn sóttu mjög í sig veðrið í síðari hálfleik og oft skall hurð nærri hælum við Víkingsmarkið. Þvert gegn gangi leiksins bætti Atli Einarsson við þriðja markinu fyrir Víking á 70. mínútu eftir góða fyrir- gjöf frá Trausta Ómarssyni. Einherjamenn voru ekkert á þeim buxunumm að gefast upp og á 80. mínútu komst Baldur Kjartansson einn innfyrir vörn Víkinga, en Jón Otti Jónsson bjargaði með góðu út- hlaupi. Víkingar innsigluðu síðan sigur sinn með því því að bæta við fjórða markinu. Trausti Ómarsson skallaði þá boltann laglega í markið eftir fyrir- gjöf frá Einari Einarssyni. Tveim mínútum fyrir leikslok fékk Guðmundur Helgason gott færi til að minnka muninn í tvö mörk en hann skaut framhjá fyrir galopnu marki. Atli Einarsson var bestur í liði Vík- inga þeir áttu þó ágæta spretti Trausti Ómarsson og Hörður Theodórsson. Kristján Davíðsson bar af í liði Ein- herja, átti stórleik, en það dugði ekki til. Maður leiksins: Kristján Davíðs- son Elnherja. -Ó.St Punktarúr 4. umferð Valur hefur fengið samtals 700 stig í 1. deildarkeppninni frá upp- hafi eftir sigurinn á FH. Valur er fyrsta félagið til að ná þeirri stiga- tölu. Jón Áskelsson lék sinn 150. leik í 1. deild fyrir ÍA, gegn Þór á Akureyri. Nói Björnsson, fyrirliði Þórs, lék sinn 100. leik í 1. deild, gegn ÍA, og er fyrsti leikmaður félags- ins til að ná þeim áfanga. Júlíus Tryggvason lék um leið sinn 50. leik fyrir Þór í 1. deild. Árni Þór Árnason, Þór, lék þá sinn fyrsta 1. deildarleik. Guðjón Guðmundsson skoraði sitt fyrsta 1. deildarmark fyrir FH í 9 ár þegar hann kom liðinu yfir gegn Val. Hann leikur nú á ný með FH eftir 7 ára fjar- veru. Ingi Björn Albertsson lék sinn fyrsta 1. deildarleik með Val í 4 ár, kom inná gegn FH, sem hann hefur leikið með og þjálfað sl. 3 ár. Guðmundur Baldursson lék sinn fyrsta 1. deildarleik með Val, og jafnframt sinn fyrsta 1. deildarleik í 3 ár. Valur hefur nú sigrað FH í sjö 1. deildarleikjum í röð. FH vann síðast 2-1 árið 1980 en síðan hafa Valsmenn gert 19 mörk gegn 5 í sjö sigurleikjum. Guðmundur Sighvatsson, ÍBK, skoraði sitt fyrsta 1. deildarmark, gegn KR. Víðismenn hafa nú ekki náð að sigra í 9 leikjum í röð í 1. deild, eða frá því þeir unnu Breiðablik 5-0 þann 8. ágúst í fyrra. KA hefur ekki fengið á sig mark í útileik í deildakeppninni frá 7. ágúst í fyrra, og unnið fjóra sigra í jafnmörgum leikjum. Þar af þrisvar 0-1, og Tryggvi Gunn- arsson hefur skorað sigurmarkið í öll skiptin! Laugardalsvöllurinn ætlar ekki að nýtast Fram vel sem heima- völlur. Frá 20. júlí í fyrra hafa Framarar aðeins unnið einn sigur þar í 7 leikjum, að meðtöldum úrslitaleiknum í bikarkeppninni í fyrrahaust! Átta leikir í Laugar- dalnum ef tapið gegn Þór á Val- bjarnarvelli í 1. umferðinni er tal- ið með. -VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.