Þjóðviljinn - 17.06.1987, Side 3

Þjóðviljinn - 17.06.1987, Side 3
'ÖRFRÉTTIR' Dr. Björn Dagbjartsson sem féll af þingi í nýliðnum kosn- ingum, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Þróunarsamvinnu- stofnunar íslands í stað Þórs Guðmundssonar sem hættir að eigin ósk eftir 5 ára starf hjá stofnuninni. Björn var áður for- stjóri Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins og hefur einnig starf- að sem ráðgjafi við þróunarhjálp í Asíu. Okuleikni bindindisfélags ókumanna verð- ur haldin á 33 keppnisstöðum um allt land í sumar. Þetta er 10 árið í röð sem keppnin fer fram og er keppt bæði í reiðhjóla- og bíla- flokki í karla- og kvennaflokkum og eins í ungiinga- og fullorðnis- flokkum. Næsta keppni er á Hellu á fimmtudag og þaðan verður haldið áfram austur með landinu. Vorhefti Skírnis tímarits Hins íslenska bók- menntafélags, 161. árgangur er komið út. Sú breyting verður nú að Skírnir mun koma út bæöi vor og haust. Meðal efnis í vorheftinu eru trúarlegar hugleiðingar Vést- eins Lúðvíkssonar um þjáning- una og lífið og grein eftir séra Gunnar Kristjánsson um lífsvið- horf Matthíasar Jochumssonar. Nýráðinn ritstjóri Skírnis er Vil- hjálmur Árnason. Barðstrendingafélagið býður öllum Barðstrendingum 67 ára og eldri í Jónsmessuferð í Þórsmörk n.k. laugardag. Lagt verður upp frá BSÍ kl. 9 árdegis. Þátttaka tilkynnist til Maríu í síma 656417 eða til Arndísar í síma 53826. íbúasamtök nýja miðbæjarins samþykktu á stofnfundi sínum á dögunum að óska eftir samráði við borgaryfirvöld um umferð ak- andi og gangandi í hverfinu. Einnig að skýr skil verði á milli íbúða og verslunar í hverfinu og drifið verði í því að ganga frá lóð- um og gangstéttum. Garðyrkjubændur eru ósáttir við gagnrýni Neytend- asamtakanna á nýjar innflutn- ingsreglur garðyrkjuafurða. Bændurnir segja þeim hafi tekist að auka neyslu og framboð á grænmeti hérlendis á síðustu árum. Gæðin hafi aukist, vöru- verð lækkað og óheftur og óskipulegur innflutningur myndi eyðileggja þetta starf. FRE1TIR Bandaríkin Vilja íslenskan lax Sjúkdómar í Noregi margfalda eftirspurn eftir íslenskum laxi á Bandaríkjamarkaði. Gott verð Við viljum gjarnan kaupa sem mest af íslenskum iaxi, vegna þess að hér eru engir sjúkdómar á borð við þá sem hrjá Norðmenn. ísland er líka ómengað land, og eftir fregnir af norsku sjúkdóm- unum er fólk farið að spyrja eftir íslandslaxinum“, sagði Banda- ríkjamaður, sem hér er staddur til að kaupa lax og tíðindamaður blaðsins hitti í gær. Mikil eftirspurn er nú eftir ís- lenskum laxi frá Bandaríkjunum og boðið upp í 11 dollara fyrir kílóið. Hjásumum laxeldisstöðv- um linnir ekki símhringingum vestan um haf. Fjölmargir kaup- endur hafa jafnframt komið frá Bandaríkjunum síðustu vikur og viljað festa samninga." „Það færist í vöxt að matvæla- keðjur í Bandaríkjunum leiti eftir samningum til lengri tíma. Þær vilja kaupa beint, og sneiða þarmeð hjá milliliðunum. Einn verslunarhringur í Boston talaði til dæmis við mig í morgun og vildi fá samning upp á 2 til 3 tonn á viku fram eftir ári“, sagði for- stjóri einnar eldisstöðvar við blaðið í gær. „Með þessum beinu kaupum geta þeir greitt hærra verð en ella. Þeir virðast telja að hægt sé að nota mengunarleysi íslands til að selja lax héðan sem Gegn áformum þríhjólsins Vilja að sjávarútvegurinn sitji við sama borð og aðrir Ein af þeim hugmyndum sem hagfræðingatríó krata, íhalds og framsóknar, hefur komið með varðandi fyrstu aðgerðir í efna- hagsmálunum, er niðurfelling á endurgreiðslum uppsafnaðs sölu- skatts á aðföng fiskiðnaðarins. Þannig átti að ná um 400 milljónum króna á árinu. Nú hef- ur fiskvinnslan mótmælt þessum áformum. í sameiginlegri fréttatilkynn- ingu frá Sambandi fiskvinnslu- stöðvanna og Félagi Sambands- fiskframleiðenda í gær segir að samtökin sjái sér ekki annað fært en að mótmæla þessum áformum og minnir á að útflutnings- og samkeppnisiðnaður hafi árum saman fengið endurgreiddan söluskatt á aðföngum og fráleitt Parísarsamningurinn Geislavirkni í brennidepli 9. ársfundur Parísarsamningsins samþykkti tillögu íslands um sérstakar ráðstafanir vegna endurvinnslustöðva fyrir brennsluefni kjarnofna enn meiri lúxusvöru en þann norska.“ í sama streng tók fyrrnefndur Bandaríkjamaður, sem taldi að ómengaður sjór íslands og sjúk- dómafæð í laxinum miðað við Noreg myndi gera að verkum að auðvelt yrði í famtíðinni að tryggja markaði fyrir íslenska laxinn þar í landi, þrátt fyrir framboð úr Noregi. -ÖS Jón Baldvin var kampakátur á blaðamannafundi í gær en Halldór Asgrímsson þungur, enda var eina spumingin sem hann þurfti að svara um mótmæli fiskvinnslunnar. Talaði hann einsog véfrétt og var á svari hans að skilja að fiskiðnaðurinn væri ekkert of góður til að greiða þennan toll til þríhjólsins. Mynd Ari. Fiskvinnslan sé að meðhöndla meginútflutn- ingsgrein þjóðarinnar með öðr- um hætti. Áður höfðu iðnrekendur mót- mælt áformum um aukna skatt- heimtu á fyrirtæki og virðast þeirra mótmæli hafa hrifið því í fyrstu aðgerðum er hvergi minnst á skatta á fyrirtæki né á stóreigna- menn. -Sáf Losun geislavirkra efna í sjó var í brennidepli á 9. ársfundi Par- ísarsamningsins sem haldinn var í Cardiff í Wales í byrjun júní. Magnús Jóhannesson siglinga- málastjóri flutti fyrir hönd Is- Iands tillögu um sérstakar ráð- stafanir vegna nýrra endurvinns- lustöðva fyrir brennsluefni kjarn- aofna og var hún samþykkt með nokkrum breytingum. Fulltrúar 12 aðildarríkja að samningum sóttu fundinn auk fulltrúa ríkja Efnahagsbanda- lagsins og lýstu margar þjóðir stuðningi við þau sjónarmið fs- lands að staðall Alþjóða geisla- varnarráðsins um hámarks geislun væri ófullnægjandi þegar meta ætti áhrif mengunar frá los- un geislavirkra efna í sjó t.d. á fiskveiðar. Tillagan sem var samþykkt fel- ur það í sér að samningsaðilar samþykki að reisa ekki nýjar endurvinnslustöðvar fyrir brennsluefni kjarnaofna né auka að marki endurvinnslugetu nú- verandi stöðva, nema unnt verði að sýna fram á á fullnægjandi hátt að undangenginni athugun á um- hverfisáhrifum, að slík stöð hafi ekki í för með sér hættu á geisla- virkri mengun. Tillagan var borin fram m.a. vegna áforma um að reisa stóra endurvinnslustöð fyrir brennslu- efni kjarnaofna í Dounreay á Skotlandi. -gg Vegagerðarmenn Verkfall á fimmtudag Tíu verkalýðsfélög á Suður- og Vesturlandi höfðu í gær boðað til verkfalla vegagerðarmanna vegna þess að upp úr samningum félaganna slitnaði í síðustu viku. Ef til verkfalla kemur mun það fljótlega að koma fram á ástandi vega og framkvæmdir við brúar- gerð og holræsagerð stöðvast. Að sögn Sigurðar Óskarssonar hjá Verkalýðsfélaginu Rangæingi á Hellu er stífur ágreiningur um hvernig mánaðarlegum greiðslum skuli háttað. Vega- gerðarmenn vilja fá fyrirfram- greiðslu á mánaðarlaun en fá þau nú eftir á. „Við viljum hverfa aftur til fyrri reglna um að fá þá greitt út hálfsmánaðarlega ef þetta gengur ekki upp. Jafnframt viljum við að samningurinn gildi frá l.janúar enekkifrá l.júníeinsogtil stend- ur“, sagði Sigurður. -gsv Hafrannsókn Gott ár í sjónum Gott ástand sjávar og lífríkis á íslandsmiðum, framhald á góðu árferði í sjónum við landið síðan 1983, eru heildarniðurstöður Hafrannasóknarmanna eftir vor- leiðangur með Bjarna Sæmunds- syni. Fyrir Vesturlandi og Vest- fjörðum var hlýsjór í meðallagi heitur, tiltölulega mikill gróður í sjónum nema næst landi, nokkur áta á afmörkuðu svæði meðfram landi. Fyrir Norðurlandi gætti hlýsjá- var austur að Langanesi og eru hlýindi þar sambærileg við þrjú síðustu ár, gróður nokkur og átu- magn í meðallagi. í kalda straumnum djúpt undan Norður- landi var hiti tiltölulega mikill, seltumagn og átu einnig. Fyrir Austfjörðum var sjávar- hiti 3-4 stig, gróður og átumagn í lágmarki en djúpt undan gætti hlýsjávar að sunnan á áturíku svæði. Við suðurströndina var sjávar- hiti 8-9 stig, sjórinn gróðursnauð- ur en áturíkur. Miövíkudagur 17. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.