Þjóðviljinn - 01.07.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 01.07.1987, Blaðsíða 4
LEIÐARI Orökstuddar „vísindaveiðar“ Umræöan um hvalveiðar (slendinga er tilfinn- ingum hlaöin, og af þeim sökum er á stundum erfitt að átta sig á kjarna málsins. Oft eru uppi höfð þau rök hvalfriðenda, að sökum greindar séu hvalir friðhelg dýr. Af siðferðilegum ástæðum er ekki hægt að fall- ast á þá rökrás sem í þessum málflutningi felst. Það er undir engum kringumstæðum hægt að fallast á að greind eða greindarskortur eigi að ákvarða líf. Það gildir jafnt um hvali og aðra hluta sköpunarverksins - manninn þar með talinn. Kiarni hvalveiðideilunnar - einsog hann blasir við íslendingum - er einfaldur. Hann er þessi: íslendingar eru aðilar að samþykkt Alþjóða- hvalveiðiráðsins um bann við hvalveiðum í ábata- skyni. Um það er ekki deilt. Eigi að síður hafa hérlend stjórnvöld skotið sér undan þessu veiði- banni með því að heimila umtalsverðar veiðar „í vísindaskyni". Hin opinbera skýring á veiði- heimildunum er sú, að án „vísindaveiðanna" geti (slendingar ekki uppfyllt þær rannsóknarkvaðir sem Alþjóðahvalveiðiráðið sjálft setti íslending- um. Sjálf deilan snýst svo um, hvort staðhæfing ís- lenskra stjórnvalda um að „vísindaveiðarnar" séu nauðsynleg forsenda rannsóknanna sé rétt eða röng. Það skal því ítrekað að deilan snýst hvorki um það, hvort stofnarnir hér við land séu nægilega styrkir til að þola „vísindaveiðarnar", né um hvort verjandi sé að drepa hvali sökum meintrar greindar þeirra. Sir Peter Scott er einna þekktastur herskara erlendra vísindamanna sem vísar rökum íslenskra stjórnvalda á bug. Sama gildir um innlenda vísindamenn. Hvar eru þeir óháðu sérfræðingar sem fallast á staðhæf- ingar íslenskra stjórnvalda? Þjóðviljinn býðst til að Ijá þeim rúm fyrir skoðanir sínar og rökstuðning. Virtur íslenskur vísindamaður, prófessor Agnar Ingólfsson, höndlar kjarna þessa máls í viðtali við Þjóðviljann í gær. Agnar segir: „Það hafa ekki verið færð vísindaleg rök fyrir því að nauðsyn sé á að veiða þetta marga hvali til rannsókna á hvala- stofnunum." Náttúruverndarráð hefur form-lega tekið sömu afstöðu og prófessor Agnar. Það telur að „vísindaveiðarnar" séu órökstuddar. Hvor segir satt? Brigslyrði, gagnkvæmar ásakanir um óheilindi, yfirlýsingar um vond vinnubrögð og lélega verk- stjórn voru aðalsmerki viðræðuslita þeirra Jóns Baldvins, Steingríms og Þorsteins. í hartnær fjórar vikur tókst þessum heiðurs- mönnum að draga íslensku þjóðina á asnaeyrun- um. Og við trúðum þeim. Hvað eftir annað lýstu þeir yfir að búið væri að ná samkomulagi um mikilvæg atriði. En í öll skiptin reyndist það rangt. Hvað eftir annað lýstu þeir yfir að stjórnin væri í burðarliðnum. í öll skiptin var það rangt. Þjóðin hefur einfaldlega verið höfð að fífli, og ábyrgðin á því hlýtur óneitanlega að liggja að verulegu leyti hjá Jóni Baldvin Hannibalssyni, verkstjóra viðræðnanna. Þjóðviljinn ætlar ekki að taka afstöðu í þeirri hatrömmu deilu sem nú geisar á síðum fjölmiðl- anna millum þeirra Jóns Baldvins og Steingríms Hermannssonar. En hitt er Ijóst, að verkstjóri við- ræðnanna þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum. Hann er borinn þungum sökum af forsætisráð- herra á forsíðu Þjóðviljans í gær, og trúverðugleiki hans sem stjórnmálamanns sekkur niðrá tírætt dýpi gefi hann ekki fullnægjandi skýringar. Jón Baldvin tjáði þjóðinni að stjórnarmyndun hefði strandað á nýrri kröfu framsóknarmanna um fjóra ráðherrastóla í stað þriggja. Þeir hefðu áður samþykkt þrjá. Steingrímur segir þetta helber ó- sannindi. Jón Baldvin tjáði þjóðinni að búið væri að ná saman um málefnasáttmála nýrrar stjórnar. Einn- ig betta segir Steingrímur helber’ósannindi. I viðbót má minna á að verkstjóri viðræðnanna kvað að minnsta kosti tvisvar upp úr með að búið væri að ná samkomuiagi um fyrstu aðgerðir í efna- hagsmálum, þegar ekkert slíkt samkomulag lá fyrir. Enginn gerir því skóna að Jón Baldvin Hanni- balsson fari vísvitandi með ósannindi. Hitt vekur furðu, að æ ofan í æ virðist hann eiga erfitt með tjáskipti við fólk sem ekki er beinlínis löggiltir krat- ar. Slíkur hæfileikaskortur gerir ekki góðan verk- stjóra. Deilur þeirra Jóns Baldvins og Steingríms um hvor segir satt og hvor fer með ósannindi eru þeim báðum til minnkunar og þjóðinni til armæðu. Við höfum heldur ekkert að gera með stjórnmála- menn sem þvælast hver fyrir annars fótum án nokkurs árangurs. Á meðan hrannast óveðursskýin upp í formi vaxandi verðbólgu og óhóflegrar þenslu. Hvar er ábyrgð íslenskra stjórnmálamanna? -ÖS KLIPPT OG SKORIÐ Verslunartími Stjórnarmyndun, Natófundur, hvalamál, Alþýðubandalagsend- urhæfing og fleiri stórtíðindi nú snemmsumars hafa meðal annars skyggt á merkilegt deiluefni sem upp er komið í borgarstjórn Reykjavíkur, um opnunartíma verslana í höfuðborginni. Nokkrir sjálfstæðismenn hafa flutt tillögu þar um nokk- urnveginn algert afnám allra reglna um opnunartímann, og er nú beðið seinni umræðu. í Heimdalli er litið á þessar reglur sem tákn um hin voðalegu opin- beru afskipti af einstaklingsfrels- inu, nánast sem alvarlegt brot á mannréttindum, -en víðar á hinu pólitíska sviði hafa menn viljað hreyfa við þessu. Þannig flutti Sigurjón Pétursson fyrir nokkru um það tillögu að endurskoða þessar reglur með rýmkun í huga, -tillaga sem dagaði uppi á skeri íhaldsmeirihlutans einsog flest önnur mál lýðræðisaflanna í borgarstjórninni. Pvert á flokka- skiptinguna Deilan um opnunartíma versl- ana í höfuðborginni gengur nokkurnveginn þvert á pólitíska flokkaskiptingu. Fréttir berast um það innanúr borgarstjórn að ýmsir stjórnarandstæðingar þar séu ekki með öllu fráhverfir því að taka undir tillögu Árna Sigfús- sonar og félaga, en forseti borg- arstjórnar, sjálfstæðismaðurinn Magnús L. Sveinsson, hélt hins- vegar við fyrstu umræðu um þessi mál þrumuræðu gegn samflokks- mönnum sínum. Og í Þjóðviljanum í gær tekur Birna Þórðardóttir, VR-maður og einn virkustu félaga í Sam- tökum kvenna á vinnumarkaði, undir með Magnúsi L., aldrei þessu vant. Hagsmunir stórmarkaða Birna gagnrýnir Þjóðviljann fyrst fyrir að nota í fréttafrásögn af málinu orðið „frelsi“, og skal hér tekið undir þá gagnrýni. Að viðhafa þetta orð um öll þau til- vik þarsem reglur eru rýmkaðar, markaðnum gefinn ákvörðunar- réttur eða einkaréttur afnuminn er ótæk útvötnun á frelsishugtak- inu, —og með því orði eru menn að auki - stundum óvart, stund- um meðvitað- að taka fyrirfram- afstöðu. Fyrir utan þá nykruðu hugsun sem felst í orðaleppunum frjálsar kartöflur, frjálst útvarp, frjáls opnunartími. Birna segir að með rýmkuðum reglum um þessi efni sé verið að „lengja vinnutíma verslunarfólks og festa lág laun og vinnuþræl- dóm í sessi hjá sífellt fleirum", og hún segir að kröfumenn um lengri opnunartíma séu fyrst og fremst eigendur stórmarkaða í borginni. Tillaga sjálfstæðis- mannanna komi fram nú vegna væntanlegrar Kringlu-verslunar Hagkaups. Birna segir að lengri opnunar- tíma muni fylgja hærra vöruverð til engra hagsbóta fyrir neytend- ur, og aukið vinnuálag á verslun- arfólk, meiri vinnuþrælkun, meðal annars vegna þess að Verslunarmannafélagið sé veikt félag. Birna segir líka að svona rýmkun sé ótæk meðan dagvist- unarmál eru öll í klúðri í borg- inni; í raun sé tillagan „hatrömm atlaga að börnum í Reykjavík". Launafólk - neytendur Allt eru þetta tækar rök- semdir, einsog Birnu var von og vísa. En málið hefur fleiri hliðar, og snertir á ýmsan hátt grundvall- arspurningar í verkalýðsbaráttu og pólitík vinstrimanna. f fyrsta lagi sýnast hagsmunir verslunarfólks stangast hér á við þá hagsmuni neytenda að geta keypt sér mjólkurpott eftir að þeir koma heim úr vinnu, að geta á borgarsvæðinu gengiö að öðru en sjoppufæði um helgar, hafi fyrirhyggjan ekki verið næg á erf- iðum föstudegi. Jafnvel á hærra verði, -er fáránlegt að ætla að upp kæmu með rýmri reglum tvennskonar verslunarhættir? Búðir opnar á venjulegum tíma með venjulegt vöruverð, og aðr- ar búðir opnar frammeftir og um helgar með hærra vöruverð á þeim tímum, einhverskonar álag? í annan stað hlýtur sú spurning að vakna hvort ýmsu verslunar- fólki sé ekki í hag að geta unnið sveigjanlegan vinnutíma, auðvit- að fyllilega samningsbundinn og með bótum fyrir óþægindi. VR kann að vera veikt félag, en mað- ur hefði haldið að það væri eðli málsins samkvæmt veikast á litl- um vinnustöðum og fámennum, til dæmis hjá kaupmanninum á horninu, þarsem vinna ömmur og frændur og stelpan úr næsta húsi, og sterkast á fjölmennum vinnu- stöðum, til dæmis stórmörkuðun- um, sem fyrst og fremst mundu notfæra sér lengri opnunartíma. Verkalýðsfélög og samfélags- breytingar í þriðja lagi er rétt að velta fyrir sér viðhorfum samtaka launa- fólks gagnvart tæknilegri fram- þróun og öðrum samfélagsnýj- ungum. Verkalýðsfélög hafa iðu- lega farið halloka og einangrast í hæpinni vörn gegn slíkum breytingum. Nýjasta dæmið er haldlaus barátta breskra prentara gegn tækninýjungum í blaðaút- gáfu, barátta sem nú er töpuð, og átti sinn þátt í að alltof margir kjósendur lögðu Margréti járnfrú lið í krossferð hennar gegn verka- lýðshreyfingu og Verkamanna- flokki. Þetta dæmi er í mikilli andstöðu við viðhorf íslenskra prentara sem hafa tekið tækni- nýjungum opnum örmum, haft af þeim viðbrögðum sínum hags- bætur, og tekið virkan þátt í að móta hinar nýju aðstæður. Og enn má spyrja af hverju borgarstjórn Reykjavíkur eigi með sérstökum hætti að grípa inní samningamál einnar starfs- stéttar í borginni og ekki annarra. Málið varðar sumsé með nokkr- um hætti verkaskiptinguna milli faglegra alþýðusamtaka og verkalýðssinna í fulltrúastarfi í sveitarstjórnum og á alþingi. Sá grunur læðist raunar að að með því að standa á opnunarreglum hafi Sjálfstæðisflokkurinn í borg- arstjórn vcrið að launa forystu- mönnum VR stuðninginn, og viðhalda um leið íhaldsforystu í því félagi. VR-forystan hefur sem kunnugt er ekki verið sú allra beittasta í stéttabaráttunni, og borgarstjórnarmeirihlutinn tekur með nokkrum hætti af henni ó- makið með eigin reglum. Treystir VR sér ekki til að semja sjálft við verslunareigend- ur um vinnutíma félaga sinna? Og á borgarstjórnin kannski að koma öðrum starfsstéttum til að- stoðar? Ákveða vinnutíma fisk- verkunarfólks í borginni? Leigubílstjóra? Blaðamanna? Þannig vekur tillagan um opn- unartíma verslana ýmsa spurn, og hvetur til þess að verkalýðs- sinnar ræði grundvallarmál, - hversu mjög sem menn andæfa vinnuþrælkun hjá verslunar- mönnum. -m þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Ritatjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðinsson. Fróttaatjóri: Lúðvík Geirsson. Blaftamenn:GarðarGuðjónsson,GuðmundurRúnarHeiðarsson, Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir, Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason, RagnarKarlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, StefánÁsgrímsson.Vil- borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. LJóamyndarar: Einarólason, SigurðurMarHalldórsson. Útlltatelknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofuatjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson. Auglýslngastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Unnur Ágústdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Kristins- dóttir. Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóftlr: Soffía Björgúlfsdóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Utbrelftslu-og afgreiftslustjóri: HörðurOddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sfmi 681333. Auglýslngar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiftja ÞJóft viljans hf. Prentun: Blaftaprent hf. Verft í lausasölu: 55 kr. Helgarblöft:60kr. Áskriftarverft á mánufti: 550 kr. 4 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Ml&vikudagur 1. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.