Þjóðviljinn - 01.07.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 01.07.1987, Blaðsíða 11
ERLENDAR FRETTIR Haiti Verkföll AUsherjarverkfall lamaði allt athafnalíf á Haiti í gær, annan daginn í röð. Einnig kom víða til átaka lögreglusveita og mótmæl- enda í borgum en í fyrradag var einn andófsmanna skotinn tU bana. Það voru ýms stjórnarand- stöðusamtök, með Alþýðusam- band Haiti í broddi fylkingar, sem áttu frumkvæði að aðgerð- unum. Markmið þeirra var upp- haflega að fá níu verkalýðsleið- toga leysta úr haldi og knýja stjórnvöld til að breyta tilskipun um kosningar. Samkvæmt henni á að draga mjög úr áhrifum kjörnefnda í bæjum og hreppum og er það tal- ið Þjóðstjórnarráðinu mjög til hagsbóta en það hefur haldið um valdataumana í landinu frá því einræðisherrann fyrrverandi, Jean-Claude Duvalier, flúði land í ársbyrjun í fyrra. Verkalýðsleiðtogarnir voru leystir úr haldi í fyrrakvöld en áfram héldu mótmælin og snerust nú fyrst og fremst um Þjóð- stjórnarráðið. í höfuðborginni gengu mótmælendur fylktu liði um götur og kröfðust afsagnar þess innan 60 klukkustunda frests því að öðrum kosti myndu þeir... „brenna, brenna, brenna.“ Útvarpsstöð kaþólsku kirkj- unnar, Soleil, útvarpaði í gær orðsendingu frá Willy Romelus biskupi í hverri hann hallast á sveif með andófsmönnum, gagnrýnir Henri Namphy forseta og krefst afsagnar Þjóðstjórnar- ráðsins. _ks. Nýja Sjáland Kosninga- karpið hafið Leiðtogar stóru flokkanna tveggja á Nýja Sjálandi, Verkamannaflokksins og Þjóð- arflokksins, blésu í gær í herlúðra og hófu formlega baráttuna um hylli atkvæða en þann fímmtánda ágúst næstkomandi munu lands- menn ganga að kjörborðinu og kjósa sér þingmenn. Ekki þykir mönnum bera jafn mikið á milli í stefnu flokkanna og ástríðuþrungnar þrumuræður leiðtoganna eiga að gefa til kynna. Ríkisstjórn formanns Verkamannaflokksins, David Lange, þykir standa vel að vígi í efnahagsmálum og hefur ekki sætt miklu ámæli vegna utanríkis- stefnunnar en sem kunnugt er var Nýja Sjáland lýst kjarnorku- vopnalaust svæði fyrir skemmstu þrátt fyrir andstöðu ráðamanna í Bandaríkjunum og Ástralíu. ' Formaður Þjóðarflokksins, Jim Bolger, hefur átt í mestu brösum með að sýna og sanna að stefna flokks síns sé eitthvað ann- að en upptugga úr málefnaskrá ríkisstjórnarinnar. Á dögunum varð hann æfur af bræði þegar saklaus blaðamaður vakti máls á þessu við hann og sagði: „Fólk fer að halda það fyrst blaðamenn tönnlast á því sýknt og heilagt. Ég skil ekki af hverju þið látið svona.“ En landsmenn virðast hafa gin- ið við þessari „flugu blaða- manna" því samkvæmt skoðana- könnunum nýtur Verkamanna- flokkurinn fylgis langflestra og hefur hvorki meira né minna en 26 af hundraði umfram Þjóðar- flokkinn. Þing Nýsjálendinga er skipað 95 fulltrúum sem sitja í einni mál- stofu. Nú hefur Verkamanna- flokkurinn umráð yfir 55 sætum, Þjóðarflokkurinn 38 en Lýðræð- isflokkurinn aðeins 2. -4tS. Evrópubandalagið Bretar einangraðir Thatcher neitaði að fallast á fjárhagsáœtlun bandamannanna 11. Frakkar og Vesturþjóðverjarsemjasín á milli um landbúnaðarmál Tveggja daga fundi leiðtoga Evrópubandalagsríkjanna 12 lauk í gærkveldi án þess að sam- komulag tækist um leið til að rétta af auman fjárhag banda- lagsins. Það var járnfrúin Margrét Thatcher sem kom í veg fyrir samþykkt áætlunar sem allir aðrir töldu sig geta fallist á og höfðu sagt bráðnauðsynlega, eigi bandalagið ekki að fara á hausinn síðla í ár. Hún sagði að ekki kæmi til nokkurra mála að Bretar ykju framlög sín til Evrópubandalags- ins á næstu árum nema útgjalda- áætlanir þess yrðu teknar til gagngerrar endurskoðunar. Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, staðfesti í gærkveldi að Bretar hefðu komið í veg fyrir samþykkt útgjaldaauka sem hefði átt að renna til fátækari að- ildarþjóða og bæta stöðu land- búnaðar í bandalagsríkjunum. Hann sagðist hinsvegar fagna samkomulagi Vesturþjóðverja og Frakka um verðlagningu land- búnaðarafurða og kvað báðar þjóðir geta vel við unað. Samkomulag þetta bendir til þess að Frakkar og Vesturþjóð- verjar séu að hefja að nýju nána samvinnu ríkja sinna í efna- hagsmálum sem mjög var áber- andi á fyrstu árum Evrópubanda- lagsins en þjóðirnar tvær eru í hópi sex stofnríkja þess. Ósveigjanleg afstaða Thatc- hers hefur valdið mikilli reiði full- trúa annarra aðildarríkja Evr- ópubandalagsins og kvað for- maður framkvæmdastjórnar þess, Frakkinn Jacques Delors, hafa hótað að segja af sér. En uppistand Thatchers hefur í sjálfu sér ekki komið svo ýkja mjög á óvart. Löngum hefur ver- ið dregið í efa að Bretar starfi af heilindum í bandalaginu og væru áfram um einingu Evrópuríkja. Tortryggnin hefur hinsvegar aldrei verið meiri en frá því járnf- rúin varð forsætisráðherra og hóf markvisst að auka sérstöðu Breta innan bandalagsins og auka ein- angrun þeirra. -ks. Margrét Thatcher kom í veg fyrir aukin útgjöld Evrópubandalags- ins við lítinn fögnuð banda- manna. Suður-Kórea Fellst Chun á tilslakanir? ídag kemur í Ijós hvortforseti Suður-Kóreufellst á umbótahugmyndir Rohs skjólstœðings síns r Idag er að vænta yfírlýsingar Chun Doo Hwan, forseta Suður-Kóreu, þess efnis að hann fallist á tilmæli flokks síns um víð- tækar breytingar í lýðræðisátt. Meðal nýmælanna er að forseti landsins verður kjörinn i beinum kosningum. Þar með virðist stjórnmála- kreppan í landinu að mestu úr sögunni. Til marks um það er að 120.000 lögreglumenn landsins eru nú ekki lengur í viðbragð- sstöðu, en það hafa þeir verið upp á hvern dag síðustu þrjár vik- urnar. Meðal annarra nýmæla sem menn vænta í ræðu forsetans er sakaruppgjöf fyrir Kim Jae-Jung, helsta leiðtoga stjórnarandstöð- unnar, að flestir pólitískir fangar verði leystir úr landi og að rit- skoðun verði létt af dagblöðum. Það var Roh Tea-Woo, for- maður stjórnarflokksins, Lýð- ræðislega réttlætisflokksins, sem kynnti umbótatillögurnar í gær, Evrópubandalagið Tyrkir vilja verameð Ozal forsætisráðherra: Sameiginlegir hagsmunir Tyrkja og Grikkja innan bandalagsins verða til að draga úr árekstrum Forsætisráðherra Tyrklands, Turgut Ozal, segir í viðtali við þýska blaðið Die Welt í dag að deilumál Tyrkja og Grikkja yrðu til muna viðráðanlegri ef hinum fyrrnefndu yrði veitt aðild að Evrópubandalaginu. Ozal segist sjá ýmislegt líkt með ástandinu heima fyrir og gangi mála í Evrópu í stríðslok, er fyrrum fjandmenn Frakkar og Þjóðverjar treystu samskipti sín á grunni efnahagstengsla. Tyrkir sóttu formlega um aðild að Evrópubandalaginu í apríl síð- astliðnum við dauflegar undir- tektir aðildarríkjanna, en meðal þeirra er Grikkland. Drógu menn í efa að Tyrkir væru tilbúnir að gerast fullgildir meðlimir. „Ef Tyrkland fær ekki aðild að Evrópubandalaginu verður erfitt að finna lausn á deilum lands- manna við Grikki,“ segir Ozal í viðtalinu. „Ef þjóðirnar eiga hins vegar báðar aðild að bandalaginu er ekki vafi á því að sameiginlegir hagsmunir verða til að draga úr árekstrum," segir hann. Báðar eru þjóðirnar meðlimir Atlantshafsbandalagsins, og hafa samskiptin verið stirð svo árum skiptir vegna deilna um yfirráð yfir hafsvæðum á Eyjahafi, svo og vegna ágreinings um lofthelgi. Engu mátti muna að stríð hlytist af í marsmánuði. Hernaðaríhlut- un Tyrkja á Kýpur árið 1974 hef- ur og gert sitt til að ala á sundur- lyndinu. Flestir eru Tyrkir múhameðs- trúar, en Ozal vísar því á bug að fyrir vikið eigi landsmenn ekki samleið með Vestur-Evrópu og eigi ekkert erindi í Evrópubanda- lagið. „Tyrkland er eitthvert ver- aldlegasta ríkið í Evrópu," segir hann. HS og komu þær allmjög á óvart, bæði leiðtogum stjórnarandstöð- unnar sem og þeim sem eru valds- ins megin. Búist er við uppstokkun á stjórninni seinna í vikunni til að gefa Roh frjálsari hendur varð- andi endurskipulagningu flokks- ins, en Roh hefur verið útnefndur forsetaframbjóðandi stjónar- flokksins. Búist er við að af þeim verði síðar á árinu. Eins og komið hefur frarn í fréttum vakti tilkynning Rohs í gær mikinn fögnuð meðal lands- manna. Þá hefur henni verið vel tekið víða um heim, ekki síst í Bandaríkjunum. HS Fóstrur - fóstrur eöa starfsfólk meö reynslu á uppeldissviði óskast á leikskólann Árborg, Árbæjarhverfi frá og meö 4. ágúst. Upplýsingar veitir forstööumaöur, Emilía B. Möller í síma 84150. Óskum að ráða Fóstrur til starfa frá og meö 4. ágúst og 1. september. Upplýsingar gefur forstöðumaöur í síma 31105. Blaóburóur er BESTA TRIMMIÐ og borgar sig Vantar blaðbera til sumar- afleysinga víðs vegar um bæinn Hafðu samband við okkur Siðumúla 6 0 68 13 33 Aðalheimild: REUTER Miðvikudagur 1. júlí 1987 ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.