Þjóðviljinn - 01.07.1987, Síða 6

Þjóðviljinn - 01.07.1987, Síða 6
Frá menntamálaráðuneytinu Menntaskólann við Hamrahlíð vantar stunda- kennara í stærðfræði og tölvufræði. Upplýsingar gefur skólameistari. Kvennaskólann í Reykjavík vantar kennara í líffræði. Ennfremur stundakennara í landafræði, skólameistari gefur upplýsingar um þá stöðu. Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennara- stöður við Menntaskólann og Iðnskólann á ísafirði framlengist til 10. júlí. Óskað er eftir kennurum í íslensku, dönsku, efnafræði og þýsku, tvær stöður í stærðfræði og hlutastöður í ensku og frönsku. Ennfremur kennarastöður í rafmagns- og rafeindagreinum, vélstjórnargrein- um, siglingafræði og öðrum stýrimannagreinum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í; „Safnæðar-uppsetning, einangrun og áklæðning pípulagna" á Nesjavöllum. Verkið felst í forsmíði undirstöðu og festujárna, uppstilingu og frágangi þeirra, uppsetningu stálpípa, þrýstiprófun þeirra, einangrun með steinullarstöfum, álklæðningu og frágangi á svæðinu. HITAVEITA REYKJAVÍKUR BÝÐUR VÆNT- ANLEGUM BJÓÐENDUM TIL VETTVANGS- SKOÐUNAR Á NESJAVÖLLUM 6. JÚLÍ 1987 BJÓÐENDUM SEM VILJA NOTFÆRA SÉR ÞETTA MÆTI Á NESJAVÖLLUM KL. 14. FARIÐ VERÐUR YFIR VERKIÐ, VÆNTAN- LEGT VINNUSVÆÐI OG AÐSTÓÐU VERK- TAKA OG VIRKJUNARSVÆÐI í FYLGD MEÐ STAÐARVERKFRÆÐINGI. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí- kirkjuvegi 3 gegn kr. 15 þús. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag- inn 22. júlí kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 Vinningstölurnar 27. júní 1987. Heildarvinningsupphæð: 3.844.869,- T. vinningur var kr. 1.925.074,- Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur. 2. vinningur var kr. 576.779,- og skiptist hann ámilli 149 vinningshafa, kr. 3.871,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.343.016,- og skiptist á milli 4.866 vinningshafa, sem fá 276 krónur hver. Upplýsingasími: 685111. 3ja herbergja íbúð óskast á leigu Reglusemi og góðri umgengni heitið. Meðmæli ef óskað er. Fyrirframgreiðsla og ör- uggar mánaðargreiðslur. Sími 79293. Útför systur okkar Guðrúnar Margrétar Þorsteinsdóttur hjúkrunarfræðings, Stóragerði 10 verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. júlí kl. 15. Guðmundur Þorsteinsson Jón Þorsteinsson Anna Þorsteinsdóttir Frímann Þorsteinsson d: Töframaðurinn með boltann, Robert Walters, sýnir krökkunum listir sínar. Hann bókstaflega drukknaði í krakkaskaran- um á eftir því allir vildu fá eiginhandaráritun hans. ast gat við þann hnöttótta. Að lokum sýndi Björn Thoroddsen listflugmaður hvað hann getur gert í loftinu á litlu rellunni sinni. Mörgum fullvöxnum manninum þótti nóg um fífldirfskuna, hvað þá blessuðum börnunum. Þessi stund verður mörgum krökku- num ógleymanleg. Mikið á sig lagt Öll sú fyrirhöfn sem þátttak- endur jafnt sem mótshaldarar höfðu lagt á sig ætlaði að bera þann árangur sem stefnt var að. Undirbúningur undir svona stór- samkomu eins og Tommamótið er mikill og víst er að krakkarnir þurfa að leggja mikið á sig til þess að komast á það. Þeir hópar sem voru komnir lengst að voru frá ísafirði og Húsavík. Skipulagning mótsins er hand- leggur út af fyrir sig. Eftir því sem árin verða fleiri og þar með reynslan, því betur gengur hjá þeim Eyjamönnum að halda það.„ Mestu máli skiptir að menn komi hingað með réttu hugarfari þá gengur allt vel. Það er ekki hvað síst að þakka jákvæðu hug- arfari og dugnaði bæði þjálfara og fararstjóra krakkanna að þetta gengur eins og í sögu,“ sögðu Týrarar. Allir fóru í bátsferðir og skoðuðu hellana í Ysta-Kletti og laxeldið í Klettsvíkinni. Skin og skúrir í fótboltanum lögðu sig allir fram eftir bestu getu og stelpurn- ar komu margar á óvart. Full- orðnir stóðu sig að því að hegða sér eins og um stórleiki væri að ræða og hvöttu sína menn óspart. Ungir og gamlir glöddust saman og stöppuðu stálinu hver í annan þegar áföllin komu. Þá var kyn- slóðabilið hvergi nærri. Þegar upp var staðið í lok móts- ins höfðu K.R.-strákarnir sigrað í A-flokki en Skagastrákarnir í B- flokki. Gömlu stórveldin í knatt- spyrnunni sem sagt endurborin. Mörg verðlaun voru veitt á mót- inu og allir fengu viðurkenningu fyrir þátttökuna. Að verðlauna fyrir fleira en það að vera góður í fótbolta er nauðsynlegt. Allir eiga þá möguleika á að krækja sér í verðlaun. í knattþrautunum sáust víða skemmtileg tilþrif. Þar komu fram tveir snillingar með boltann sem voru engir eftirbátar töframannsins Roberts. Margir krakkar vöktu athygli fyrir frammistöðu sína en það var samdóma álit flestra að Andri Sigþórsson í K.R. væri maður mótsins. Ingibjörg Ólafsdóttir í K. A. var kjörin besti varnarmað- ur mótsins og sýnir það hvað stelpurnar eru að sækja sig í íþróttinni. Helgi Áss Grétarsson var kosinn markvörður Tomma- mótsins annað árið í röð en pilt- urinn sá er af mörgum betur þek- ktur sem einn efnilegasti skák- maður yngstu kynslóðarinnar. Mömmurnar Guðrún Björg, Oddný, Guðleif og Gunnhildur voru allar saman í barnaskóla í Bústaðahverfinu í Reykjavík. Nú hittust þær að nýju með fótbolta- strákana sína á Tommamóti. Út‘í Eyjum ... Mörg skemmtileg atvik koma fyrir í svo stórum hópi eins og gefur að skilja. Eitt skiptið fór t.d. brunabjallan í skólanum af stað og allir hlupu upp til handa og fóta og af því hlaust mikil kös og spurningar spruttu af hvers manns andliti. í ljós kom að ein- hver hafði í ógáti komið við brunaboðann án þess að vita hvað hann var. Mörgum brá líka í brún þegar fuglarnir drituðu á þá í bátsferðunum meðfram Ysta- Kletti og þótti stórmerkilegur skítur það. Eitt kvöldið kom krakkaskari hlaupandi inn í Barnaskólann með miklum þjósti. Einn í hópnum, Sigurður Pétursson í Ungmennafélagi Aftureldingar, hélt á fótbrotnu lambi í fanginu. Hann fann það ásamt félögum sínum lengst uppi í fjalli og þeir vildu tryggja því góða aðhlynningu sem það og fékk. Sigurður meðhöndlaði lambið af kunnáttu búmannsins enda reyndist hann ekki eiga langt að sækja það, því að afi hans á kindur. Það var að mörgu leyti bæði ánægjulegt og lærdómsríkt fyrir fullorðna að fylgjast með unga fólkinu í keppninni, við borð- haldið, í bátsferðunum, í rútu- ferðunum, á kvöldvökunni og ekki hvað sfst á setningarhátíð- inni. Mótið var öllum til sóma, bæði þátttakendum og hinum hressa og kröftuga hópi Týrara sem stóðu að mótshaldinu fyrir Vestmannaeyinga. Mótsgestir hljóta að þakka þeim öllum fyrir frábært starf í þágu næstyngstu kynslóðarinnar í landinu. _GSv 6 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Miðvlkudagur 1. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.