Þjóðviljinn - 01.07.1987, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 01.07.1987, Blaðsíða 8
MENNING Borgarinn Ný plata með lögum eftir Ingva Þór Kormáksson Nýlega kom á markaðinn plata með 11 lögum eftir Ing- va Þór Kormáksson. Á plöt- unni er að finna fjölbreytilega dægurtónlist, sem flutt er af liði valinkunnra hljómlistar- manna og söngvara við texta eftir lagasmiðinn og góðskáld eins og Þórarin Eldjárn, Jó- hann S. Hannesson og Ragn- ar Inga Aðalsteinsson. Söngvararnir sem syngja lögin eru þau Eiríkur Hauksson, Diddú, Edda Borg, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Guðjón Guð- mundsson, Már Elísson, Skarp- héðinn Kjartansson og Þór Heiðar Ásgeirsson. Margir hljóðfæraleikarar koma fram á plötunni, en laga- smiðurinn, Ingvi Þór, leikur á hljómborð. í stuttu spjalli við Þjóðviljann sagði Invi Þór að tónlistin á plöt- unni væri fjölbreytileg, þar mætti finna rokk, sömbu, ballöður, svíng, reggae, bossa nova og fleira. - Þessi tónlist er ekki mið- uð við þröngan áheyrendahóp, heldur vonast ég til þess að hún geti höfðað til sem flestra. Ingvi Þór segist hafa fengist við að spila og semja dægurtónlist frá því á unglingsárunum, og spilaði hann bæði með námi í mennta- skóla og háskóla þar sem hann lagði stund á bókmenntir og bókasafnsfræði. Hann sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu 1983, sem bar titilinn „Tíðinda- laust...“, en á síðustu árum hefur tónlistin verið honum aukageta með starfinu að bókasafnsfræð- inni. - Ég lít frekar á mig sem laga- smið en hljóðfæraleikara, sagði Ingvi Þór, og sagði mikla grósku vera í íslenskri dægurlagasmíð og dægurlagaútgáfu um þessar mundir. - Ég vil ekki dæma kollegana, en oft finnst mér eins og umbúð- irnar skipti meira máli en sjálf lagasmíðin. Aðspurður um hvað væri markverðast að gerast í poppheiminum sagði hann að ný- leg plata hljómsveitarinnar Tí- brár frá Akranesi væri með því athyglisverðasta sem hann hefði heyrt um langa hríð, en sú plata er unnin við texta ísaks Harðar- sonar ljóðskálds. Ingvi Þór segist semja lög sín fyrst, og síðan reyna að gera text- ann sjálfur, því hann viti best hvaða tilfinning liggi á bak við lagið. - En stundum geri ég lög við tilbúin ljóð, og þau verða þá helst að vera hefðbundin í form- inu, því rokkið er svo taktfast og hefðbundið í sinni uppbyggingu. Ingvi Þór sagðist í lokin til- heyra „týndu kynslóðinni“ svo- kölluðu, en margir af þeirri kyn- slóð hefðu staðnað við það að hlusta á gömlu góðu Rolling Stones plöturnar og vildu ekki heyra annað. Það væri misskiln- ingur, og vissulega væri margt áhugavert að gerast í nýrri tónlist sem ætti erindi til þessarar kyn- slóðar ekki síður en annarra. Kannski eru lögin á „Borgaran- um“ dæmi um slíka tónlist. -ólg Karlakórar Leiklist Norskur Landið í karla- kórí heimsókn Norski karlakórinn Levanger Mannsonglag í vinaheimsókn til karlakórsins Stefnis í Mosfellssveit Hingað er kominn norskur karlakór, Levanger Mannsong- lag, í vinaheimsókn til karlakórs- ins Stefnis í Mosfellsveit og dvel- ur hér í vikutíma. Kórinn heldur tvenna tónleika og voru þeirfyrri í Hlégarði í gærkvöldi en þeir síðari verða í Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30. Einnig mun kór- inn syngja á Reykjalundi. Er þetta í þriðja sinn sem Levanger Mannsonglag og karlakórinn Stefnir hittast. Karlakórinn Stefnir tekur á móti norska kórnum og hefur veg og vanda af móttöku þeirra hér. Farið verður með norsku kórfé- lagana um nágrenni Reykjavík- ur, svo og til Vestmannaeyja í skoðunarferðir. Stjórnadi norska kórsins er Leif Ramfjörd og formaður Hans Hofde. -ing Svíþjóð Orfáir úrdrættir úr sænskum blaðadómum um Land míns föður eftir Kjartan Ragnarsson Sigrún Edda Björnsdóttir og Ragnheiður Arnardóttir í hlutverkum sínum Landinu. Eins og kunnugt er fór Leikfé- lag Reykjavíkur með söngleik Kjartans Ragnarssonar í leikferð til Svíþjóðar á Göteborgs festival- en í vor leið. Þessi leiklistarhátíð er haldin af Borgarleikhúsinu í Gautaborg og var þetta í þriðja sinn sem hún er haldin. Tema hátíðarinnar að þessu sinni var norrænt leikhús og var boðið til hátíðarinnar leiksýningum frá öllum Norðurlöndunum. Flestar voru sýningarnar frá Svíþjóð og þar á meðal hin fræga sýning Ingmar Bergman á Fröken Júlíu sem Islendingar kannast við síð- an hún kom hér á síðustu Lista- hátíð. Det Norske Teatret í Oslo sýndi Hamlet í leikstjórn þekkt- asta leikstjóra Norðmanna Stein Winge, frá Danmörku kom sýn- ingin Fölelser og Spögelser og Borgarleikhúsið í Helsinki sýndi Tartuffe í leikstjórn Kalle Holm- berg. Land míns föður var sýnt tvisv- ar á hátíðinni og fékk mjög góðar viðtökur. Þjóðviljanum hafa bor- ist nokkrir sænskir leikdómar um sýninguna og birtum við hér nokkra kafla úr þeim. Utanlandsferð Svanuriim til Rostock Á næstu dögum heldur Lúðra- sveitin Svanur til Austur- Þýskalands til að taka þátt í al- þjóðlegu lúðrasveitamóti í Rost- ock. Mót þetta er árlegur viðburð- ur og hefur verið haldið síðan 1958 og er þetta í þriðja sinn sem íslendingar taka þátt. Lúðra- sveitamótið er liður í hátíð sem kölluð er MUSIKANTEN- TREFF-OSTSEE (Eystrasalts- vikan) og hittast þar listamenn bæði frá austur og vestur Evr- ópu. Sjö ár eru síðan Lúðrasveitin Svanur lagði síðast land undir fót en árið 1980 fór hún til Noregs í Lúðrasveitin Svanur leggur land undir fót austur fyrir járntjald til að taka þátt í alþjóðlegu lúðrasveitamóti í Rostock. boði skólalúðrasveitarinnar í eikarar skipa nú sveitina að Oppegaard. Nýir hljóðfæral- mestu en þó eru nokkrir sem fóru til Noregs fyrir sjö árum sem starfa enn með sveitinni. Enn- fremur er að finna nokkra með- limi sem fara út með sveitinni í þriðja sinn því lúðrasveitin tók þátt í móti barnalúðrasveita í Danmörku árið 1978. Undanfarna mánuði hafa stað- ið yfir stffar æfingar hjá Svanin- um auk margháttaðra fjáröflun- arleiða. Er það ætlun félaga sveitarinnar að gera veg íslands sem mestan austan járntjalds. Stjórnandi Lúðrasveitarinnar Svans er Kjartan Óskarsson og einleikari með sveitinni er Pétur Eiríksson. -ing Anne Járborg segir í Arbetet: „íslensku gestirnir á leiklistarhát- íðinni náðu virkilega góðum tökum á áhorfendum. - Fjöldi söngva gefur sýningunni aukið líf og lit. - Land míns föður er ástrík og gamansöm lýsing höfundar, sem virkilega býr yfir mikilli og fjölbreytilegri frásagnargleði. Sérstaklega vel heppnaður gesta- leikur.“ Kristjan Saag skrifar í Göte- borgstidningen: „Land míns föður er afskaplega vel leikið verk, sem höfundur leikstýrir sjálfur, allir leikararnir leika af- bragðsvel frá upphafi til enda, þar á meðal tvö böm og hljóm- sveitin er felld á fullkominn hátt inn í þetta allt. — Þetta er sú teg- und leikhúss, þar sem öllum með- ulum er beitt (totalteater) innan mjög svo hefðbundins ramma og ef manni er ekki þeim mun meira í mun að fá vandamálin rakin og rædd, er hægt að skemmta sér konunglega í tæpar þrjár klukku- stundir án þess að kunna orð í íslensku.“ í Göteborgsposten skrifar Bo Ludvigsson: „Land míns föður ber keim af alþýðugamanleikjum og er byggt upp eins og hefð- bundinn söngleikur, þar sem söng- og dansatriðin eru há- punktar í söguþræðinum, sem að sjálfsögðu notar ástarsögu sem hinn rauða þráð. - Leikstjóra- hugmyndirnar eru þaulhugsaðar og sjálfum sér samkvæmar í út- færslu, ekki síst er þar gnótt smá- atriða sem bera vott um ríka kímnigáfu." Svo mörg voru þau orð Sví- anna og ekki af lakara taginu. Land míns föður hefur nú runnið sitt skeið hjá Leikfélagi Reykjavíkur enda búið að sýna það oftar en nokkurt annað verk hjá Leikfélaginu og bara ein sýn- ing í íslensku leikhúsi sem hefur verið sýnd oftar, en það var Fló á skinni sællar minningar. Landið hefur verið sýnt 208 sinnum i allt og áhorfendur orðnir 43.437. -ing 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 1. júli 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.