Þjóðviljinn - 22.07.1987, Blaðsíða 2
"SPURNINGIN—
Fylgistu með skákfréttum?
Gunnar Jónsson, bílstjóri:
Já, ég hef fylgst með þeim undan-
farna daga. Það er ekki hægt að kom-
ast hjá því. Ég hef trú á því að Héðinn
Steingrímsson vinni mótið sem hann
tekur þátt í þessa dagana, en hann er
einn okkar efnilegasti skákmaður.
Brynjólfur Björnsson, sölu-
maður:
Já, ég hef fylgst með glæsilegri
frammistöðu Hóðins Steingríms-
sonar að undanförnu og hann lofar
góðu. Þá unnu okkar menn á mótinu í
Þórshöfn alla sína leiki á svart um
daginn og það fannst mér lofsvert.
Flosi Ólafsson, múrari:
Frekar lítið. En fylgist vel með öllum
fréttum af bridds. Þó veit ég að við
eigum fleiri stórmeistara en margar
nágrannaþjóðir okkar og mér sýnist
að við séum á góðri leið með að vinna
enn einn heimsmeistaratitilinn þessa
dagana.
Hafdís Hallsdóttir, afgreiðslu-
stúlka:
Já, það geri ég og þá aðallega með
fréttum blaðanna um árangur okkar
manna á skákmótum hér heima sem
erlendis. Mér sýnist á öllu að staða
okkar í skákinni sé mjög góð, sem
sést best á því hvað við eigum marga
stórmeistara og stórefnilega unga
skákmenn.
Kristrún Helgadóttir, verslunar-
maður:
Já, svona nokkuð. Þó sérstaklega
með árangri Hannesar Hlífar, Þrastar
Þórhalls, og Héðins Steingríms-
sonar. En þessir þrír hafa gert það
gott að undanförnu.
FRETTIR
Veiðar
Leggurinn
Tilraunir með leggtrollpoka lofa góðu. Smáfiskur á greiðari
leið út úr honum en venjulegum trollpoka
Aðalmunurinn á leggtrollpoka
og venjulegum trollpoka er sá
að hver möskvi í leggtrollpoka er
með 90 gráðu horn, en í venju-
legum poka er hver möskvi í
laginu eins og tígull. Ennfremur
benda þær tilraunir sem gerðar
hafa verið með leggtrollpokann
til jiess að smáfiskur eigi greiðari
leið út úr honum en úr venju-
legum trollpoka, segir Guðni Þor-
steinsson fiskifræðingur.
Að sögn Guðna hafa verið
gerðar rannsóknir með leggtroll-
poka um borð í tveimur togurum
hér við land. Fyrst með Bjarti NK
fyrr í sumar og reyndist hann þá
vel þegar afli var blandaður. Þá
var hann prófaður fyrir skömmu
um borð í Arnari HU og sagði
Guðni að þar hefði komið fram
að leggurinn hefði reynst best
upp á afla sem næmi tveimur
tonnum á togtíma. Þegar afli fer
upp fyrir þau mörk fer að draga
saman með leggnum og öðrum
trollpokum, hvað varðar þann
smáfisk sem sleppur úr trollinu.
Guðni sagði að kanadískir tog-
arar hefðu í vetur notað leggtroll-
poka og reynsla þeirra verið sú að
stærri fiskur fengist í hann en í
venjulegan poka, en aflinn að
sjálfsögðu minni þar sem fleiri
fiskar sleppa úr honum. Legg-
pokarnir hafa því verið í notkun
þegar afli er mikill, en þegar að-
eins er um reyting að ræða er not-
aður venjulegur poki.
„Það virðist því allt benda til
þess að leggtrollpokinn eigi vel
við á þeim svæðum hér við land
þar sem skyndilokunum hefur
mikið verið beitt, en þær miðast
við 55 cm fisk og smærri og í með-
alfiskeríi, sleppur helmingi meiri
smáfiskur úr leggpokanum en úr
hefðbundnum pokum. Hann
virðist því koma að góðu gagni
við verndun smáfisks," sagði
Guðni Þorsteinsson að lokum.
grh
Stœrðfrœði
Frábærar
móttökur
á Kúbu
M
óttökur Kúbana voru meira
en frábærar, sagði Jón
Magnússon fararstjóri sem ásamt
fjórum keppendum er nýkominn
heim frá 28. Ólympíuleikunum í
stærðfræði í Hvana á Kúbu. Besti
íslenski keppandinn varð í 121.
sæti, um miðbik. Þetta er í þriðja
sinn sem íslendingar senda lið til
keppni, og sagði Jón að frammi-
staða sveitarinnar hefði verið
betri nú en í hin skiptin.
í liðinu voru fjórir
menntaskólanemar, Davíð Aðal-
steinsson Menntaskóla Kópa-
vogs, Geir Agnarsson
Menntaskólanum í Reykjavík,
Guðbjörn Freyr Jónsson
Menntaskólanum á Akureyri, og
Sverrir Örn Þorvaldsson
Menntaskólanum í Reykjavík.
Fulltrúi íslands í dómnefnd var
Reynir Axelsson dósent.
I keppninni voru 237 einstak-
lingar frá 42 þjóðum. Sjálf
keppnin fólst í að leysa sex dæmi.
Henni var skipt á tvo daga, og
höfðu keppendur fjórar og hálfa
klukkustund hvorn dag til að
leysa þrjú dæmi. Sjö stig voru
gefin fyrir fullkomna lausn á
hverju dæmi. Veitt voru 120
verðíaun; þar af voru 22 gullverð-
laun, 42 silfurverðlaun og 56
bronsverðlaun.
Efstur fslendinga var Sverrir
Öm Þorvaldsson, hann var í 121.
sæti og vantaði eitt stig til að
komast á verðlaunapall. Davíð
Aðalsteinsson var í 151. sæti,
Geir Agnarsson í 159. sæti og
Guðbjörn Freyr Jónsson í 181.
sæti.
Þótt keppnin teljist ekki opin-
berlega vera keppni milli ríkja
eru þó óformlega lögð saman stig
hvers liðs. Kemur þá í ljós að
Rúmenía var í 1. sæti, Vestur-
Þýskaland í 2. sæti, Sovétríkin í 3.
sæti, Austur-Þýskaland í 4. sæti
og Bandaríki Norður-Ameríku í
5. sæti. ísland var í 32. sæti. Það
var í hópi sex landa sem höfðu að
meðaltali milli 11 og 12 stig á
keppanda og röðuðu sér í sæti 28
til 33; þau voru íran, Noregur,
Finnland, Kólumbía, ísland og
Mongólía. Svíþjóð stóð sig best
Norðurlanda og var í 17. sæti með
rúm 23 stig að meðaltali á kepp-
anda.
Mesta athygli vakti frábær
frammistaða ellefu ára pilts, Ter-
ence Tao frá Ástralíu, sem tók
þátt í keppninni í annað sinn og
hlaut 40 stig af 42 mögulegum.
Á myndinni sést vel munurinn á venjulegum poka og leggpoka í drætti. Efri
pokinn er venjulegur poki og ef myndin prentast vel sést greinilega hvað
möskvarnir dragast saman í drættinum en í leggpokanum haldast þeir og
smáfiskurinn á greiða leið út úr honum.
Grashagabörnin kunnu vel að meta grillveisluna i götunni.
Seifoss:
Morgunblaðið/Sigurður Jónuo
Grillað í Grashaganum og
lífgað upp á tilveruna
ÍHÚAR við Grashaga á Sel- | I |f |
fossi brugðu á leik síðdegis á • ' ^
laugardag, skreyttu hluta göt-
unnar og grilluðu gómsæta
rétti.
Það mætti hver með sitt grill
og garðhúsgögn og var öllu raðað
upp á götunni. Síðan grillaði hver
fyrir sig og voru það jafnt karlar
sem konur sem sáu um að vel
hitnaði í kolunum. Bömin kunnu
að meta þessa nýbreytni og biðu
spennt eftir afurðunum af grill-
inu.
Nýiokið er að veita viðurkenn-
ingar fyrir góða umgengni um
lóðir og hús á Selfossi. I sam-
bandi við uppákomu Grashaga-
fólksins stakk einn (búanna upp
& Kirí oð Koð uoari oÞÞi vitlmiof
Kjöt steikt
á Selfossi
Morgunblaðið fœr gúrku dagsinsfyrir elsku-
lega frétt af matarœði á Selfossi
Gúrka dagsins fellur að jæssu
sinni í skaut ritstjörn Morgun-
blaðsins fyrir aðalfrétt sína á
þriðju síðu í gær: „Grillað í Gras-
haganum og lífgað upp á tilver-
una“.
Þar segir frá því að á laugardag-
inn fóru nokkrir Selfyssingar útá
götu í góðviðrinu og grilluðu sér
pulsur og kótilettur, „og voru það
jafnt karlar sem konur sem sáu
um að vel hitnaði í kolunum"
einsog Sig. Jónss. fréttaritari
segir í Morgunblaðinu.
Gúrka dagsins bíður næstu
grillveislu í Aðalstrætinu.
Skúmur
GURKA fc
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 22. júlí 1987