Þjóðviljinn - 22.07.1987, Page 11

Þjóðviljinn - 22.07.1987, Page 11
ÖRFRÉTTIR Þorri hvítu Suðurafríkumannanna sem fyrir skemmstu áttu viðræður við fulltrúa úr stjórn Afríska þjóðarr- áðsins í Senegal kom heim í gær. Um 150 æpandi og skrækjandi nýfasistar biðu þeirra á flugvellin- um í Jóhannearborg og hugðust veita þeim varmar viðtökur. En lögreglan hafði mikinn viðbúnað og kom ferðalöngunum undan um bakdyr flugstöðvarbygging- arinnar. 948 lögregluþjónar í Sovétlýðveldinu Kazakhstan hafa verið reknir úr störfum á þessu ári fyrir ýms glöp í starfi að sögn dagblaðs í fylkinu. Þar af eru 358 yfirmenn. Þeim er flestum borið það á brýn að handtaka fólk og ganga I skrokk á því fyrir litlar eða engar sakir en láta hjá líða að sinna útköllum. Þjónusta dýralækna í Bandaríkjunum þykir um skör fram dýr. Því hafa tugir þúsund katta og hundaeigenda tekið það ráð að kaupa sjúkratryggingu hjá því eina fyrirtæki sem býður slíka þjónustu þarlendis. Enn sem komið er tryggir firmað aðeins þessar tvær tegundir gæludýra enda ætti veltan að verða umtal- sverð ef allir eigendur slíkra dýra vestra æskja þjónustu þess. Tal- ið er að yfir 100 miljónir katta og hunda séu heimilislausir í Banda- ríkjunum. Slökkviliðsforingi nokkur í Sovétríkjunum sem hlaðinn var heiðursmerkjum eftir glæsta frammistöðu í baráttunni við Tjernóbýlelda segist dauðskammast sín fyrir yfirmenn kommúnistaflokksins í bænum. Þeir hafi misnotað aðstöðu sína gróflega þegar þeir létu ætt- menni sín ganga fyrir um brottf- lutning af hættusvæðinu. „Ég komst að þessu á sjúkrahúsi og fylltist ógeði yfir því að vera í sama kommúnistaflokki og þess- irmenn," sagði LeonidTelyatnik- of ofursti. Indverskur tannlæknir er ótvíræður heimsmeistari í vél- ritun. Hann vann á dögunum öðru sinni mjög harða keppni um titilinn án þess þó að hafa nokkru sinni haft vélritun að atvinnu. Ra- jinder Singh sló fingrum 466 sinnum á ritvélina á mínútu án þess að missa marks í tíu mín- útna nákvæmnisprófi. Og ekki nóg með það. Honum vargert að hamra á vélinni í hálftíma og voru slögin þá 493 á mínútu. í 99,97 prósent tilvika hitti hann naglann á höfuðið. Norðmenn eru nú ekki jafn eindregið mót- hverfir aðiid að Evrópubanda- laginu og þeir voru hér á árum áður ef marka má nýlega skoð- anakönnun sem birt var í dag- blaðinu Aftenposten í gær. Þótt aðeins 28 af hundraði séu hlynntir þátttöku en 39 á móti þá eru hvorki meira né minna en 33 prósent á báðum áttum. Sem kunnugt er lá við borgarastyrjöld í Noregi árið 1972 þegar lands- menn greiddu atkvæði um hvort ganga skyldi í félagsskapinn. 135,000 írsk ungmenni munu hafa hleypt heimdraganum og flutt til Banda- ríkjanna á síðustu sjö árum en láðst að gera gestgjöfunum við- vart og eru því utan við lög og rétt vestra. Þessar fréttir bera fulltrú- ar kaþólsku kirkjunnar í írska lýð- veldinu á borð og bæta við að mörg þúsund til viðbótar hafi flutt til meginlands Vestur-Evrópu. Tilgangurinn var sá sami í öilum tilvikanna, að reyna að verða sér úti um vinnu. ERLENDAR FRETTIR Persaflói íranir hundsa Öryggisráðið Tvö kúwaitísk olíu- flutningaskip hafa dregið bandaríska fánann að húni og bíða þess að sigla inná Persaflóa. íran- ar segja það enga tryggingu fyrir ör- yggi.Frakkar hyggjast veita fleyjum sínum herskipavernd Stjórnvöld í Teheran lýstu því yfir í gær að þau hvgðust hafa að engu fyrirmæli Oryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um tafar- lausa stöðvun vopnaviðskipta írana og íraka og bættu við að það yki ekki öryggi kúwaitískra olíuflutningaskipa þótt þau skört- uðu þjóðfána Bandaríkjanna. Yfirlýsingarnar voru lesnar upp í útvarpi um svipað leyti og tvö olíuskip frá Kúwait drógu bandaríska þjóðtáknið að húni þar sem þau lóna á Ómanflóa austan Hormuzsunds og bíða þess að tveir bandarískir her- nökkvar sláist í för með þeim inná Persaflóa. „Við erum enn sem fyrr reiðu- búnir að sýna Reaganstjórninni í tvo heimana og færa henni heim sanninn um það að byltingarþjóð er ekki lamb að leika sér við og árás á hana mun koma árásar- seggjunum í koll. Meðan írakar halda upptekn- um hætti og ráðast á mannvirki okkar og skip er enginn fáni trygging fyrir neinu á Persaflóa." f utanríkisráðuneyti íran var því ennfremur lýst yfír í gær að sú ögrun sem fólgin væri í nærveru bandarískra herskipa á Persaflóa gerði ályktun Orygeisráðsins marklausa með öllu. Alyktunin væri auk þess óréttlát og drægi taum íraka. Háttsettur embættismaður Sameinuðu þjóðanna kveðst hinsvegar vera vongóður um að báðar þjóðir hlíti fyrirmælum Ör- yggisráðsins og sagðist ekki skipta um skoðun fyrr en formleg neitun bærist frá annarri hvorri eða hvorri tveggja stjórnanna. En það eru fleiri en Kúwaitbú- Starfsfólk sendiráðs Persa í París og sendinefndar Frakka í Teheran sér ekki fram á það að komast heim f bráð þar sem íverustaðir beggja eru umkringd- ir óárennilegum lögregluþjónum. Sem kunnugt er slitu Frakkar stjórnmálasambandi við írana á föstudaginn var vegna gruns um tengsl túlks í sendiráði þeirra í París við hryðjuverkamenn sem fóru hamförum þar í borg í fyrra. Samdægurs svöruðu franar í sömu mynt. Frönsk lögregluyfirvöld hafa ítrekað farið þess á leit við Wahid Gordji að hann mæti til yfir- heyrslna en hann hefur þverskall- ast við og situr enn í húsi því sem fram á föstudag var sendiráð þjóðar hans í höfuðborg Frakk- lands. Alkunna er að 13 manns biðu bana og um 200 slösuðust í sprengiherferð í París í septemb- ermánuði síðastliðnum. I fyrstu grunaði lögregluna Sýrlendinga um græsku en í mars hafði hún hendur í hári átta hryðjuverka- manna sem hún taldi bera ábyrgð á ódæðinu. Nafn foringja þeirra, Muhammed nokkurs Mouhajers, fannst á spjaldskrám yfírvalda og er hann þar titlaður „útsendari írönsku leyniþjónustunnar". Franska leyniþjónustan hóf að hlera síma íranska sendiráðsins Á efri myndinni sjáum við það sem allir óttast á Persflóa, íranskan fallbyssubát. Á þeirri neðri hampa bandarískir og kúwaitískir embættismenn fánanum sem tryggja á öryggi olíuskipa þeirra síðarnefndu. Frakkland/íran Sendiráðin enn í heriorí íranar og Frakkar hafa enn ekki náð samkomulagi um heimflutning sendi - ráðsfólks þarsem túlkurinn Gordji neitar að láta frönsku lögregluna yfirheyra sig ar sem hafa ástæðu til að óttast árásir íranskra fallbyssubáta og orrustuþota. Frakkar eru í hinni mestu ónáð hjá Teheranstjórn- inni einsog allir vita og telja þeir hana munu láta það bitna á frönskum farkostum sem sigla um Persaflóa. Þeir hafa því ákveðið að veita að minnsta kosti tveim olíuskipa sinna herskipa- vernd og vara önnur við að siela inná flóann. og skjótt bárust böndin að Gor- dji. Þegar þar við bættist að rekja mátti BMW bifreið, sem hryðju- verkamennirnir höfðu flúið á eftir sprenginguna í Tati stór- versluninni, til Gordjis þá fannst yfirvöldum mál til komið að hafa tal af kauða. En það var hægara sagt en gert. Einhver hafði varað hann við og hann lokaði sig inní íranska sendiráðinu og þar er hann enn. írönsk stjómvöld halda því fram að ásakanir Frakka á hend- ur Gordji séu út í hött og að fram- ferði þeirra brjóti freklega í bága við Vínarsamþykktina um frið- helgi erlendra sendiráðsmanna og diplómata. Ennfremur hafa þau borið konsúl Frakka í Teheran, Paul Torrri, þungum sökum og hafa stefnt honum fyrir fslamskan dómstól. Honum er borið það á brýn að hafa lagt stund á njósnir og svartamarkaðsbrask. Embættismenn í París segja að ekki séu neinar áætlanir í gangi um að ráðast inní byggingu lran- anna og draga Gordji nauðugan út. Þolinmæði franskra stjórn- valda sé ekki á þrotum og hún vonist til að íranar sjái að sér og framselji hinn grunaða. Hitt kann að orka tvímælis hve þolin- mæði Frakkanna í herkví írana í Teheran er mikil. DJOÐVIIJINN H Tififmu 68 13 33 68 18 66 68 63 00 Blaóburöur er BESTA TRIMMIÐ og borgar sigL Vantar blaðbera til sumar- afleysinga víðs vegar um bæinn Hafðu samband við okkur Sidumula 6 0 68 13 33 Mi&vlkudagur 22. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 © Blikkiðjan1 Iðnbúð 3, Garðabæ. Önnumst hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð. 46711

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.