Þjóðviljinn - 22.07.1987, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 22.07.1987, Blaðsíða 8
Manuela og Einar í Skálholti Telemarm- tónleikar Hj ónin Manuela Wiesler og Einar G. Sveinbjörnsson léku Dúo-sónötur og sólófantasíur eftir Telemann á fyrri Skál- holtstónleikunum s.i. laugar- dag. Alls voru þetta sex tón- verk og öll innblásin þeim mikla og eilífa anda, sem lék að sunnan um þýskar smá- bæjasálir á öndverðri 18du öld. Það var mikil guðsgjöf að fá svona trakteringar. Ég missti að vísu af fyrstu dúósónötunni og kom í kirkj- una í miðri sólófantasíu fyrir fiðlu. Og mikið var leikið fal- lega, stílhreint og án nokkurs yfirgangs eða belgings. Þessi músík, fantasíur í f moll og D dúr, varð bráðlifandi í hönd- um Einars, án þess að vera uppáþrengjandi og stór í snið- um. Miðað við Bach er þetta minniháttar músík, sem ber að taka sem slíka. Manuela lagði hinsvegar mikla dramatík í sólófantasíur í E dúr og g moll. Það er un- aðslegt hvernig hún veltir breiðum tóninum um tiltölu- lega venjubundna tónhugsun meistarans, og nýtir sér dramatískar pásur og hik til hins ýtrasta. En stundum finnst manni þó að hún eyði of miklu púðri að tilefnislausu. Lokaverkið, sónata í A dúr fyrir fiðlu og flautu var skemmtilega flutt, létt og án djúpra pælinga, og það var góður endir á fyrri hálfleik. Bach með meiru Seinni Skálholtstónleikar s.l. laugardag, kl. 5 e.h. voru einnig með þeim Manuelu og Einari. Þar var prógrammið blandað ýmsum þjóðernum: hófst með þýskum Bach og lauk með léttum Hotteterre rómönskum með þunnum Þorkatli og daufum spænskum Halffter á milli. Einar hóf tónleikana með E dúr partítu Bachs, og vitaskuld var það vel þess virði. Að vísu var leikur hans ekki alveg eins frísk- legur og maður hefði óskað, á honum voru nokkur þreytumerki á köflum. Ég er bara að hafa orð á þessu, vegna þess að ígóðu formi Ieikur Einar við hvurn sinn fingur f svona músík. Kransakökubitar fyrir flautu og fiðlu úr bakaríi Þorkels Sigurbjömssonar voru búnir til vegna brúðkaups þeirra hjóna í fyrra. Þetta em léttar og sléttar varíasjónir, þar sem at- burðarásin er einsog kennslu- æfíngar og auðvitað fær enginn gert við því. Faglega fönsuð smásmíð, án merkilegheita. Sólóverkið, Debla, fyrir flautu, eftir spánska tónskáldið Cristob- al Halffter, náði ekki tökum á manni, þó Manuela blési af allri sinni ómælanlegu snilld. Það vantaði eitthvað, andalúsíub- læinn, þjóðarangistina, eitthvað. Kannski það hafi verið talentið? Svo fóru klukkurnar að slá í miðju léttmeti Hotteterres. Þar léku hjónin fjörlega, einsog fyrir dansi og hefðu alls ekki átt að láta klukkurnar trufla sig. Þær vildu bara vera með. LÞ íslensk tunga Beygjum ættarnöfnin! Ingólfur Pálmason gefur út rit um ættarnöfn og er- lend mannanöfn og hvet- ur til einurðar við eignarfallsbeyginguna „Það væri núlifandi kynslóð til vansa að horfa á augljós málspjöll ágerast daglega fyrir augum sér,“ eru lokaorð Ingólfs Pálssonar fyrrverandi lektors við Kennar- aháskólann, í nýútkomnu riti hans „Um ættarnöfn og erlend mannanöfn í íslensku“, þar sem hann færir rök að því að flest slík orð skuli taka eignarfallsendingu í góðu máli. f riti sínu rekur Ingólfur nokk- uð sögu ættarnafna og tekur dæmi frá ýmsum tímum um beygingu þeirra. Hann telur að á fyrri öldum og í máli helstu rithöfunda og málsmekksmanna nú á tímum séu velflest ættarnöfn beygð í eignarfalli, og sama máli gegni um flest erlend nöfn úr granntungum, sem auk þess eru oftar en ekki íslenskuð ef erlenda nafnið á sér hliðstæðu í íslenskum nafnforða. Þó ágerist í nútíma- máli að sleppa beygingunni, tala um ríkisstjórn Gunnars Thor- oddsen, sögur Áma Bergmann, fræði Karl Marx, sinfóníur Beet- hoven. Ingólfur varar við þessu með tilvísun til málfarsfyrirmynda, og segir ekki ólíklegt að beygingar- leysi ættarnafna muni með tíð og tíma veikja beygingarkerfi tung- unnar. í riti sínu leggur Ingólfur til að ættarnöfn flest, og þau erlend nöfn (síður ættarnöfn) sem tök eru á, séu látin taka eignar- fallsendingu, oftast -s: deilur Sig- urðar Nordals og Einars Ævars Kvarans, ræður Matthíasar Á. Mathiesens, Þórarins Eldjárns, Sigurðar Breiðfjörðs, Gríms Thomsens og Matthíasar Johann- essens. Á þessu eru þó nokkrar mikil- sverðar undantekningar sam- kvæmt riti Ingólfs. Til dæmis er fátítt að ættarnöfn sem enda á sérhljóða taki eignarfalls- endingu: framboð Geirs Haarde, orkudraumur Jóhannesar Zoéga. Og enn víðtækari er sú unda- ntekning að ættarnöfn kvenna taka helst ekki eignarfallsend- ingu: myndlist Sigrúnar Eldjárn, ritgerð Bem Nordal, framkoma Völu Thoroddsen, fegurð Unnar Steinsson, rannsóknir Guðrúnar Kvaran. -m Söguslóðir í Grikklandi Sveinbjörn Egilsson, 1791-1853. Hann var merkt skáld og afkastamikill þýðandi úrgrísku. „Frægur...", segir Sigurður Nordal í Mannlýsingum sínum, „fyrir þýðingar sínar, framar öllum Odysseifskviðu og lllionskviðu á óbundið mál..." Sigurður Nordal, jöfur íslenskra fræða á þessari öld. Hann segir á einum stað um Sveinbjörn Egilsson: „Honum auðnaðist á sínu sviði hið sama sem Jóni Sigurðssyni á sínu: að slá lífsins vatn úr hellu lærdómsins með fortíðina að bakhjarli." Þór Jakobsson veðurfræðingur stingur upp á því ( grein sinni að hin nýja Stofnun Sigurðar Nordals, sem Sverr- ir Hermannsson kom á fót í menntamálaráðherratíð sinni, haldi menningarhátíð 1991, sem verði helguð minningu Sveinbjarnar og verka hans. En á því ári eru einmitt liðin 200 ár frá því Sveinbjörn fæddist. Mikil tilbreyting fylgir því að eiga heima á jörð sem hallast, hallast miðað við braut sína um sólu! Fyrir bragðið höfum við árstíðirnar, sem koma og fara hver með sínu sniði, veðurfari, gróðurfari og dýra- lífi. Sumarið er mönnum kær- komið, hin sólríka hlýja tíð - með sumarleyfum hjá flestum. Sumarleyfísferðirnar eru nú æði viðamikill þáttur í þjóðfé- laginu, en það er mönnum nauðsynlegt að skipta um um- hverfi öðru hverju, hafa annað landslag fyrir augunum en ella og kynnast þar staðháttum og fólki. Þannig halda þeir sem eiga heimangengt á annað borð í ferðalag á sumrin, stutt eða langt, heima á íslandi eða til annarra landa - og hafa af því skemmtun, hressingu og fróðleik. Væntan- Iega snúa flestir heim á leið endurnærðir á sál og líkama - og sumir hafa jafnvel fengið afdrifa- ríka opinberun, svo mjög hefur sjóndeildarhringurinn víkkað eða reynslan orðið ríkari. Kios - heimkynni Hómers Sjálfur er ég nýkominn heim úr þriggja vikna ferð fjögur þúsund ár aftur í tímann, með undirleik lifandi nútíma í suðausturhorni Evrópu: í hópferð 50 ágætra landa minna um söguslóðir í Grikklandi. Farið var um Pelops- skaga syðst á meginlandinu og á allmargar eyjar. Stórmerkar fornmenjar á Krít og Santorini voru skoðaðar, einnig var dvalist á Kios-eyju við Tyrkland, þar sem sagan segir að hafi verið heimkynni Hómers og í lok ferð- arinnar var farið einn dag gegn- um vegabréfa- og vopnaleitar- múrinn milli Grikklands og Tyrk- lands, og ekið til Efesus þar sem eru stórfenglegar menjar grískrar stórborgar. Efesus var um aldir ein stærsta borg við Miðjarðarhaf og þar starfaði t.d. Páll postuli í tvö ár og boðaði kristni. Efesus lagðist smám saman í eyði vegna þess að hin góða höfn fylltist vegna árframburðar. Verslun og viðskipti sem héldu uppi hinu blómlega menningarlífi urðu fyrir óviðráðanlegum skakkaföll- um, þegar ströndin færðist út. í Efesus þótti mörgum okkar hápunktur ferðalagsins, svo heillaðir voru menn af því sem enn stóð og minnti á glæsilega borg og iðandi líf fyrr á tíð. Eru þó byggingar og vegir nú að von- um ekki nema svipur hjá sjón. Á Krít lentum við reyndar óvart á villtum fagnaðarfundi við komu okkar. Svo vildi til að for- ingi stjórnarandstöðunnar í Grikklandi og erkifjandi Papand- reos forsætisráðherra var sam- ferða okkur íslendingunuin frá Aþenu til Krítar. Samherjar stjórnmálaforingjans voru mættir þúsundum saman á flugvöllinn, veifuðu flöggum, sungu og æddu um ganga flugstöðvarinnar. Undruðumst við norrænir menn trúarhita Krítverja er þeir tóku á móti átrúnaðargoði sínu. Annan dag er við landar vorum á Krít vildi svo til að Evrópukeppni í körfubolta lauk með sigri Grikkja yfir Rússum. Ætlaði þá allt um koll að keyra og streymdu Krítverjar í miðbæinn, þeyttu lúðra, sungu og dönsuðu af hams- lausri gleði langt fram eftir nóttu. Smáþjóðin hafði slegið við stór- veldinu og öðrum gamalreyndum þjóðum í keppninni. Skemmst er frá að segja, að við ferðalangar þóttumst kynnast Grikkjum nokkuð vel, flókinni sögu þeirra og lifnaðarháttum nú á dögum. Margt hefur á daga þeirra drifið, friður hefur ríkt, en æði oft harla skammvinnur, mörg handaverkin við byggingar stórra og smárra húsa verið eyðilögð af miskunnarlausum innrásarherj- um og erlendum drottnurum. Við sáum verksummerki slíkra átaka, en við sáum líka blómlegar byggðir, iðandi mannlíf höfu- ðborgarinnar með kostum og göllum margmennis og bílmergð- ar, kynntumst lifandi list á forn- grískum leiksviðum og við fs- lendingarnir kynntumst líka hverjir öðrum þessar þrjár vikur á flækingi okkar um Grikkland hið forna og Grikkland hið nýja. Við tengdumst böndum, allar manngerðirnar, eins konar ís- lenskum Grikklandsböndum, en sá sem vígði var hinn fróði og andríki fararstjóri okkar Sigurð- ur A. Magnússon rithöfundur. Sveinbjöm Egilsson og íslensk menning Sólstöðudaginn, 21. júní, vor- um við í ferð þessari stödd á So- unionhöfða syðst á Attíkuskaga, en þar stendur súlnahof kennt við sjávarguðinn Póseidon. Forn- Grikkir höfðu hafið byggingu hofsins á hinum helga höfða um 500 f.Kr., en verkinu var varla lokið þegar Persar komu og skemmdu tuttugu árum síðar. Það var að vísu endurreist nokkru síðar og nú vorum við komin að skoða þennan fallega stað í sumarhitanum og heit sólin skein á okkur eins og raunar alla dagana þar syðra. Það kom ekki dropi úr lofti allan tímann. Á einni súlunni má sjá nafn Byrons lávarðar greipt eigin hendi, en hann var mikill aðdáandi grískrar menningar og studdi Grikki í frelsisstríði þeirra gegn Tyrkjum snemma á 19. öld. Þennan dag héldum við ferða- langar dálitla sólstöðuhátíð með söng og upplestri og hugsuðum til sólstöðugöngunnar heima þenn- an sólarhring um Seltjarnarnes, 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 22. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.