Þjóðviljinn - 29.07.1987, Side 1

Þjóðviljinn - 29.07.1987, Side 1
Miðvikudagur 29. júlí 1987 163. tölublað 52. órgangur Davíð Oddsson Ríkið mjólkar Landsvirkjun Davíð Oddsson, borgarstjóri: Ætli ríkið að nota Landsvirkjun sem mjólkurkú, hlýtur borgin að gera það sama. Blönduvirkjun getur ekki beðið. Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra: Lántökugjaldið leiðir til hœrra rafmagnsverðs. Pörffyrir Blönduvirkjun. Friðrik Sophusson: Lántökugjöldin alfarið mál fjármálaráðherra Borgin er í jafnri ábyrgð og ríkið á lánum og skuldum Landsvirkjunar og ef ríkið ætlar að fara að nota Landsvirkjun sem mjólkurkú, með því að taka áhættugjald af skuldum og lánum Landsvirkjunar, þá gefur auga- leið að Reykjavíkurborg hlýtur að gera slíkt hið sama, sagði Dav- íð Oddsson borgarstjóri en Reykjavíkurborg er í jafnri ábyrgð og ríkið fyrir lántökum og skuldum Landsvirkjunar. -Það er alveg ljóst að það er ekki hægt að fresta Blönduvirkj- un frekar en orðið er. Við erum komnir að þeim tímamótum að í samningum um vélbúnað til virkjunarinnar eru ákvæði um skaðabótagreiðslur vegna samn- ingsrofa, sem yrðu það dýr, að frestun framkvæmda kemur ekki til greina, sagði Davíð Oddsson vegna ummæla Jóns Baldvins Hannibalssonar að hugsanlegt væri að fresta framkvæmdum við Blönduvirkjun. - Það er hverjum manni ljóst að þetta gjald kemur til með að hafa áhrif til hækkunar á raf- magnsverði. Til þessa hefur verið stefna stjómvalda að halda skatt- lagningu á raforkuöflun í landinu í lágmarki, samanber að virkjun- arframkvæmdir eru undanþegnar aðflutningsgjöldum, sagði Birgir ísleifur Gunnarsson, mennta- Laugavegur Ókeypis strætó Miðbœjarhringur reyndur til áramóta Um leið og Laugavegurinn er tilbúinn á ný um miðjan ágúst verður komið af stað nýrri strætóleið niður Laugaveginn frá Hlemmi og í hring um miðbæinn. Stjórn SVR samþykkti þetta samhljóða á fundi í gær og það með að farið verði ókeypis. Strætóinn gengur þessa leið í til- raunaskyni til áramóta, leggi borgarráð blessun sína yfir sam- þykkt strætóstjórnarinnar. Farið verður frá Hlemmi niður Lauga- veg, eftir Lækjargötu, Vonar- stræti, Suðurgötu, Aðalstræti, Hafnarstræti, upp Hverfisgötu á Hlemm. Á fundinum var frestað að af- greiða tillögu fulltrúa strætó- stjóra um að Laugavegurinn yrði framvegis aðeins opinn strætis- vögnum, leigubílum og bílum fatlaðra, og á að athuga það í stærra samhengi síðar. -m r— málaráðherra og fulltrúi Reykja- víkur í stjórn Landsvirkjunar. - Ég er sammála því að það á ekki að flýta sér að virkja umfram þörfina. Hinsvegar hefur innlend raforkunotkun aukist það mikið að það er full þörf á Blönduvirkj- un áður en langt um líður. Það er búið að gera samninga um aðföng og verkþætti. Ég tel ekki vera efni til að fresta Blönduvirkjun umfram það sem þegar hefur ver- ið gert. Ef við ætlum ekki að setja okkar eign orkuöflun í hættu, þá verðum við að halda strikinu eins og ákveðið hefur verið, sagði Birgir ísleifur Gunnarsson. Stjórn Landsvirkjunar hefur farið fram á viðræður við stjórnvöld um lántökugjöldin. - Forstjóri Landsvirkjunar ræddi við mig fyrir helgi og við fjármálaráðherra í dag. Við Jón Baldvin höfum ekki ræðst við, en ég býst við að það verði á næstu dögum. Ákvörðun um þetta mál er alfarið í höndum fjármála- ráðuneytisins, sagði Friðrik Sop- husson iðnaðarráðherra. f kjölfar boðaðrar hækkunar Landsvirkjunar á rafmagni, afréð borgarráð á fundi í gær að hækka gjaldskrá Rafmagnsveitu Reykjavíkur um 8.1%. -rk Glaftningurinn f póst. Þær stöllur Sigríður Lára Hermannsdóttir, til vinstri, og Guðný Ólafsdóttir hjá Skattstofu Reykjavíkur voru að leggja síðustu hönd á glaðning skattgreiðenda sem er væntanlegur á næstu dögum inn um bréfalúgurnar. Vonandi verður engum meint af sendingunni en hitt er víst að móttakendur verða misglaðir á svipinn þegar innihaldið blasir við. Mynd: E.ÓI. Hvalveiðar Mál gegn Bandaríkja- stjórn Greenpeace: ímál gegn Bandaríkjastjórn efhún notar ekki efnahagsþvinganir Umhverfísverndarsamtök f Bandaríkjunum hafa ákveðið að lögsækja stjórn Bandarfkjanna fyrir að framfylgja ekki banda- rískum lögum ef hún lætur áframhaldandi hvalveiðar íslend- ingá afskiptalausar eftir að Al- þjóða hvalveiðiráðið hefur álykt- að gegn þeim. Þetta kemur fram í viðtali sem Þjóðviljinn birtir í dag við Birgit Seffmark, fulltrúa Greenpeace- samtakanna í Svíþjóð. í viðtalinu kemur einnig fram að Greenpeace-menn hafa nú miklar áhyggjur vegna geisla- virkrar mengunar í N-Atlantshafi frá endurvinnslustöðvum Breta á kjarnorkuúrgangi í Sellafield og Dounreay á Skotlandi. -ólg. Sjá bls. 8-9 Flugstöðin í Eyjum Frekja og níska Starfsmenn í vandrœðum með erlendaferðamenn Það kemur stundum fyrir þeg- ar flugið verður ófært að er- lendu ferðamennirnir sem eru komnir inn í flugstöðina hér í Vestmannaeyjum vilja alls ekki yfirgefa hana og vilja helst gista í henni, sagði starfsmaður á Vestmannaeyjaflugvelli við Þjóð- viljann. Fyrr í vikunni gerðist það að blandaður hópur Þjóðverja og Bandaríkjamanna varð veður- tepptur í Eyjum. Urðu vandræði við að koma þeim út úr stöðinni því þeir vildu dvelja í henni og gista til morguns þangað til flug- fært yrði frá Vestmannaeyjum. Fyrr um daginn höfðu tveir Bandaríkjamenn fengið leyfi til að elda sér súpu í kaffistofu starfsmanna. „Þetta er frekjugangur og ekk- ert annað. Þeir tíma ekki að borga fyrir gistingu inni í bæ og reyna eftir fremsta megni að komast af með sem minnst fjárút- lát. En stundum ganga þeir ein- um of langt í frekjugangnum," sagði fyrrnefndur starfsmaður, sem vildi ekki láta nafns síns get- ið. grh

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.