Þjóðviljinn - 29.07.1987, Side 15

Þjóðviljinn - 29.07.1987, Side 15
ÍÞRÓTHR Knattspyrna íkvöld Þrír leikir eru í 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Valur og KA leika á Valsvelli, í>ór og ÍBK á Akureyri og í A og Völsungur á Akranesi. Þessir leikir hefjast kl. 20, nema leikur ÍA og Völsungs sem hefst kl. 19. Þá eru fjórir leikir í 2. deild. ÍBÍ og Einherji leika á Vopna- firði, KS og Þróttur á Siglufírði, Breiðablik og ÍBV á Kópavogs- velli og Leiftur og Selfoss á Ólafs- fírði. Þessir leikir hefjast kl. 20. V-Þýskaland Góð byrjun hjá Bayem Bayern Miinchen varð fyrsta liðið til að sigra í nýrri keppni í Vestur-Þýskalandi. Þetta er nokkurskonar meistaraleikur, þ.e. meistarar í Bundesligunni gegn Bikarmeisturunum. Bayern sigraði Hamburg, 2-1. Það var samt Miroslav Okon- ski sem náði forystunni fyrir Hamburg, en nýliði í liði Bayern, Jurgen Wegmann skoraði tvíveg- is og tryggði Bayern sigur. Bay- ern keypti Wegmann nú fyrir skömmu frá Schalke og hann stóð við sitt í fyrsta leiknum. 1. deild kvenna Enn sigrar ÍA Skagastúlkurnar eru nú aðeins einu stigi á eftir Val í 1. deild kvenna. Þær sigruðu KR í gær, 2-1 á Akranesi. Leikurinn var þokkalegur og fyrsta markið kom á 15. mínútu. Halldóra Gylfadóttir náði foryst- unni fyrir íA, með skalla af stuttu færi. Skagastúlkurnar bættu svo öðru marki við snemma í síðari háfleik. Ragnheiður Jónsdóttir fékk góða sendingu eftir auka- spyrnu og skoraði af öryggi, 2-0. KR-stúlkunrar létu þetta ekkert á sig fá og um miðjan síðari hálf- leik minnkaði Sigrún Sævarsdótt- ir muninn með góðu marki. KR- ingar sóttu svo heldur meira það sem eftir var, en Skagastúlkurnar börðust vel og héldu fengnum hlut. Staöan í 1. deild kvenna: Valur...........10 8 2 lA..............10 8 1 Stjarnan.........9 5 1 KR..............10 4 2 KA..............10 2 3 IBK..............9 2 2 Þór.............9 2 0 UBK.............9 1 1 -MHM Aldursflokkamótið í sundi Bolvikingar sigmðu Þriðji sigurinn áfjórum árum. Góður árangur á mótinu Staðan í 2. deild karla IR 12 6 2 4 23-17 20 Leiftur 10 7 1 2 15-7 19 Vikingur 12 6 1 5 19-18 19 Selfoss 11 5 3 3 22-20 18 Einherji 11 5 3 3 13-15 18 Þróttur 11 5 1 5 23-21 16 UBK 11 5 1 5 12-12 16 KS 11 4 2 5 19-21 14 (BV 10 3 4 3 15-17 13 ÍBÍ 11 1 0 10 13-26 3 Bolungarvík vann sinn þriðja sigur á fjórum árum í aldurs- flokkamótinu í sundi sem haldið var í Vestmannaeyjum um helg- ina. Bolungarvík fékk 312 stig, Ægir hafnaði í 2. sæti með 256 stig og í þriðja sæti kom Njarðvík með 150.5 stig. Því næst komu HSK, Vestri, UMSB, ÍA, Óðinn, USVH og loks Ármann. Keppendur voru um 400 og keppt var í öllum flokkum undir 17 ára aldri. Góður árangur mótsins sýnir að hinn mikli upp- gangur sem verið hefur í sundinu að undanförnu er engin bóla og á eftir að halda áfram. Nokkur íslandsmet litu dagsins ljós. Elvar Dníelsson, USVH, setti tvö met í flokki yngri en 10 ára, í 50 metra skriðsundi og 50 metra flugsundi. Steinar Guð- mundsson setti íslandsmet í 50 metra bringusundi í sama flokki. Hannes Már Sigurðsson setti ís- landsmet í 50 metra flugsundi 17 ára og yngri. Björg Jónsdóttur UMFN setti met í 100 metra skriðsundi stúlkna 13-14 ára. Einnig voru sett nokkur met í boðsundi og árangurinn í heild mjög góður. - Ibe Björn Bjartmarz I dauðafæri og Þorsteinn Magnússon markvörður þegar lag- stur. En honum tókst ekki að skora frekar en öðrum Víkingum. MyndiE.ÓI. 2.deild IR í efsta sæli Fjórða tap Víkings í röð IR-Víkingur 1-0 (1-0) * Það var ekki að sjá að tvö af topp- liðum 2. deildar ættust við í leik 1R og Víkings. Bæði liðin Iéku vægast sagt mjög illa og leikurinn líklegast sá lélegasti sem liðin hafa sýnt. Það má segja að ekkert hafí gerst fyrsta hálftímann. Leikurinn fór að mestu fram á miðjunni og háar sendingar liðanna inní vítateig gáfu I Þær virðast ekki vera með á nótunum þessar stelpur, a.m.k. er boltinn ekki á | sömu leið og þær. Mynd:E.ÓI. Gull & Silfur mótið Breiðablik sigraði Þa6 var ekki svo auðvelt að stöðva Blikastúlkurnar þegar þær voru komnar á skrið og hér er ein þeirra í vítateig Týs, umkringd varnarmönnum. Mynd:E.Ói. ekki mikið af sér. ÍR-ingar náðu forystunni á 42. mínútu. Heimir Karlsson skoraði af stuttu færi eftir að vörn Víkinga hafði verið heldur illa á verði. Síðari háfleikurinn var heldur fjörugri, en þó ekki mikið spunnið í leik liðanna. Trausti Ómarsson átti góðan skalla sem Þorsteinn varði vel og Atli Einarsson skaut framhjá í upplögðu færi. Bragi Björnsson fékk reyndar ágætis færi til að bæta við öðru marki ÍR. Hann komst einn í gegn og lyfti boltanum yfir úthlaupandi markvörðinn, en rétt framhjá stönginni. Síðustu mínúturnar sóttu Víking- ar nokkuð stíft og fengu þokkaleg færi, sem þeim tókst þó ekki að nýta. Trausti skallaði yfir í góðu færi og Atli átti gott skot frá mark- teig, en í varnarmann og í hliðar- netið. Það er fátt gott um þennan leik að segja. Bæði lið léku meira af kappi en forsjá og lítið bar á góðum samleik eða sendingum. ÍR-ingar, sem komu upp úr 3. deild, eru nú komnir á topp deildarinnar, en Víkingar sem byrjuðu mjög vel, töpuðu nú sínum fjórða leik í röð. Maður leiksins: Þorsteinn Magnússon, ÍR. -lbe Markahæstir: HeimirKarlsson, |R..............11' TraustiÓmarsson, Víking...........9 Hatþór Kolbeinsson, KS............7 Jón Gunnar Bergs, Selfossi........6 Sigfús Kárason, Þrótti............5 SigurðurHallvarðsson, Þrótti......5 Kristján Davíðsson, Einherja......5 BergurÁgústsson, ÍBV..............5 Það var mikil spenna í leik Brciðabliks og ÍBK í úrslitum A- liða á Gull & Silfur mótinu í 3. flokki kvenna í knattspyrnu. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 0- 0 og einnig eftir framlengingu. Það var því kastað upp um sigur- inn og Breiðabliksstúlkurnar höfðu heppnina með sér. Breiðablik og ÍBK höfðu yfir- burði í leikjum sínum í riðlakepp- ninni. Þau mættust svo í skemmtilegum úrslitaleik, en mörkin vantaði. Valur og KR mættust í úslita- leik um 3. sætið og eftir framleng- ingu var staðan 1-1. Það var því enn kastað upp og Valsstúlkurn- ar völdu réttu hliðina. ÍA sigraði Tý, 4-0 í úrslitaleik um 5. sætið, Afturelding sigraði Fylki í úrslitaleik um 7. sætið, 1-0 og Stjarnan sigraði Þór í leik um 10. sætið, 1-0. Keppni í flokki B-liða var einn- ig spennandi. KR hafði þó sigur með 8 stig. Þór varð í 2. sæti, einnig með 8 stig, en slakara markahlutfall. ÍBK hafnaði í 3. sæti með 7 stig, því næst kom ÍA, svo Breiðablik og loks FH. Unnur María Sveinsdóttir, Breiðbliki var kosin besti leik- maður mótsins og Magnea Guð- laugsdóttir var markadrottning með 12 mörk. Það var Gull & Silfur sem sá um mótið og gaf öll verðlaun. Mótið heppnaðist mjög vel og ánægjulegt að sjá hve mikið skipuleggjendur lögðu í mótið, en keppendur voru um 160. Að mótinu lokjnu fengu allir viður- kenningu og var boðið uppá hamborgara og skemmtiatriði í íþróttahúsinu í Digranesi. - lbe Miðvikudagur 29. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Punktor úr 11. umferð Ilaraldur Hinriksson, ÍA, skoraði sitt fyrsta 1. deildarmark þegar aðeins 6 mínútur voru liðn- ar af fyrsta 1. deildarleik hans, gegn Fram. Þormóður Egilsson, KR, lék sinn fyrsta 1. deildarleik á mánu- dagskvöldið, gegn FH. Sigurður Már Harðarson, KA, skoraði sín fyrstu 1. deildarmörk gegn Víði, en hann lék þá jafn- framt sinn fyrsta heila leik í 1. deild. Erlingur Kristjánsson, KA, skoraði sitt fyrsta 1. deildarmark í leiknum við Víði. KA vann þar sinn 100. leik í deildakeppninni frá því félagið lék þar fyrst árið 1975. KA vann þarna jafnframt sinn stærsta sigur í 1. deild frá upp- hafí, 6-0. Áður hafði KA unnið FH með mestum mun, 5-1 árið 1981. Víðismönnum hefur aldrei tek- ist að skora mark hjá KA í deilda- leik en eftir fjóra leiki félaganna í 1. og 2. deild er markatalan 8-0, KA í hag. Úrslitin 4-4 höfðu ekki sést í 1. deild í sjö ár uns leik Fram og ÍA lauk þannig á sunnudagskvöldið. Síðast voru það ÍBV og FH sem gerðu 4-4 jafntefli í 1. deild, árið 1980. Valur hefur nú sigrað níu sinn- um í síðustu tíu 1. deildarleikjum sínum í Keflavík. Sigurganga Vals þar er óslitin frá 1977, ef tapleikur 1982 er undanskilinn. Þór hefur enn aldrei tapað deildaleik á Húsavík eftir fimm heimsóknir þangað í 1. og 2. deild. FH vann sinn fyrsta sigur á KR í 1. deild frá árinu 1980. Kristján Jónsson skoraði sitt fyrsta 1. deildarmark fyrir Fram í leiknum við ÍA. Þorsteinn Halldórsson, KR, og Siguróli Kristjánsson, Þór, fengu hvor sitt fjórða gula spjald í um- ferðinni. Þorsteinn fékk reyndar rautt spjald til viðbótar. Einar Arason, Þór, og Ian Fleming, FH, fengu hvor sitt fimmta gula spjald í sumar. - VS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.