Þjóðviljinn - 29.07.1987, Síða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓOVIUINN
Miðvikudagur 29. júlí 1987 163. tölublað 52. örgangur
&
V \JE3DN jHf *
AÐFARS4ELLI
SKÓLACÖNCU
#
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Vextir á spariskírteinum
Almenn hækkun haf in
Vextir af spariskírteinum ríkissjóðs hœkka í 7,2-8,5%. Almenn vaxtahœkk-
un undanfarið rakin til yfirlýsinga stjórnarinnar. Pétur Blöndal: Vextir á
verðbréfamarkaði munu líklega hækka
Ný spariskírteini ríkissjóðs
verða nú boðin til sölu með
hærri vöxtum en áður, og búast
ýmsir við aukinni almennri
vaxtahækkun í kjölfarið, auk
þess sem þegar framkomna
hækkun er talið mega rekja til
yfírlýsinga stjórnarinnar um
hærri vexti á skírteinunum.
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra tilkynnti í gær
að ríkissjóður byði til sölu nýja
flokka verðtryggðra spariskírt-
eina og beri þau vexti á bilinu
7,2%-8,5%á ári eftir iengd láns-
tíma. Vonir eru bundnar við það
að vaxtahækkunin geri ríkissjóði
kleift að selja bréf fyrir 1,3 milj-
arða það sem eftir er ársins, en
fram í júnímánuð nam salan ein-
ungis 200 miljónum. Fallið var
frá því að selja spariskírteini með
afföllum eins og áður hafði verið
ákveðið.
Um er að ræða tveggja ára bréf
með 8,5% ársvöxtum, fjögurra
ára bréf með 8% vöxtum og 6-10
ára bréf með 7,2% vöxtum. Óvíst
er enn hversu háir vextirnir verða
á þeim bréfum sem lífeyrissjóð-
irnir munu kaupa af ríkissjóði, en
um þá vexti verður reynt að ná
samkomulagi við lífeyrissjóðina
og sagði fjármálaráðherra að þeir
samningar myndu hefjast fljót-
lega að frumkvæði hans.
Á fundi með fréttamönnum í
gær sagði Jón Baldvin að vextir á
fjármagnsmarkaði hefðu hækkað
tímabundið vegna efnahagsþen-
slu og væri ríkissjóður einungis
að laga sig að þeim vaxtakjörum
sem nú væru á markaðnum. Af-
leiðingar vaxtahækkunarinnar á
almennum markaði væru því litl-
ar sem engar. Það er hins vegar
ljóst að sú vaxtahækkun sem orð-
ið hefur hjá bönkum og spari-
sjóðum í þessum mánuði kom í
kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórnar-
innar um fyrstu efnahagsaðgerðir
þar sem kveðið var m.a. á um
vaxtahækkun á ríkisskulda-
bréfum og má því rekja vaxta-
hækkun þeirra að miklu leyti til
yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar.
Þetta sagði háttsettur bankamað-
ur í samtali við Þjóðviljann í gær.
Pétur Blöndal framkvæmda-
stjóri Kaupþings sagði að
augljóst væri að áætlun ríkis-
stjórnarinnar þess efnis að ná inn
1,3 miljörðum króna af peninga-
markaðnum hlyti að hafa áhrif og
þá til vaxtahækkunar. Pétur sagði
að á verðbréfamarkaðnum hefðu
vextir, sem nú eru um 14%,
smám samán verið að lækka en
ljóst væri að aukin samkeppni frá
ríkinu gæti snúið þróuninni við.
„Það er fráleitt ef menn ætla sér
að ná í 1,3 miljarða án þess að það
skilji eftir sig spor á markaðn-
um,“ sagði Pétur.
Enn er óljóst að hve mikil áhrif
vaxtahækkunin hefur á vexti af
húsnæðislánum -K.Ól.
Vesturbæjarlaugin? Jú, þú gengur fyrst út Austurstrætið..
ferðasumri. (Mynd: E.ÓI.)
Hjálpfúsar löggur hafa í nógu að snúast nú á miðju
Skák
Jóhann vann létt
Beljavskí efstur í Szirak, Jóhann, Nunn og Salof nœstir
Auðveldur sigur, sagði
i
Elvar
Guðmundsson aðstoðarmað-
ur Jóhanns Hjartarsonar um
skák hins síðarnefnda í 10. um-
ferð millisvæðamótsins í Szirak í
Ungverjalandi.
Jóhann tefldi gegn Marin frá
Rúmeníu, sem beitti sjaldgæfu
Poulsen-afbrigði af Sikileyjar-
vörn, lék af sér í 10. leik og var
með tapað eftir 11. leik Jóhanns.
Skákin varð alls 35 leikir.
Önnur úrslit: Salof vann
Christiansen, Beljavskí vann Mi-
los, Nunn vann Todorscevic,
Benjamin vann Allan, Velimiro-
Leiðsögumenn
Engin leiðsögn án leyfis
Félagsmálaráðuneytið: Erlendir leiðsögumenn á mála hjá erlendum ferðaskrif-
stofum þurfa ekki atvinnuleyfi. Félag leiðsögumanna ósammála
Okkur finnst það fjandi hart að
erlendir leiðsögumenn geti
komið hingað til lands með hópa
af ferðamönnum og leiðbeint
þeim um land allt án þess að þeir
þurfi atvinnuleyfi til starfans,“
segir Kristín Njarðvík, gjaldkeri
Félags leiðsögumanna.
Að sögn Kristínar hefur félagið
borið þetta mál upp við félags-
málaráðuneytið og fengið þau
svör að á meðan viðkomandi
leiðsögumenn séu á kaupi hjá er-
lendum ferðaskrifstofum þurfi
þeir ekki sérstakt atvinnuleyfi
fyrir starfsemi sína hér á landi.
Þessu vilja leiðsögumenn ekki
una og hafa farið fram á viðræður
við Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra í vikunni.
„Ágreiningur okkar við félags-
málaráðuneytið er fyrst og fremst
um túlkun laga, sem kveða á um
hvort viðkomandi þurfi atvinnu-
leyfi eður ei. Okkur finnst lögin
vera nægilega skýr í þessu og
styðja okkar málstað en ráðu-
neytismönnum finnst annað. Ur
þessum ágreiningi verður vænt-
anlega skorið með fél-
agsmálaráðherra á næstu
dögum,“ sagði Kristín Njarðvík
að lokum. grh
vic vann Flear, Bouaziz og And-
erson gerðu jafntefli, sömuleiðis
de la Villa og Adorjan, en skák
Portisch og Ljubojevic fór í bið
og hefur Portisch betri stöðu.
Efstu menn: 1. Beljavskí 6l/i
og eina frestunarskák, 2.-4. Jó-
hann, Nunn, Salof 6 vinninga, 5.-
6. Portisch, Ljubojevic 5'/2 og
bið, 7. Milos 5l/i, 8. Andersson
4V2 og frestunarskák, 9.-10.
Christiansen, Benjamin 4Vi.
í dag eru aðeins á dagskrá tvær
biðskákir og frestunarskák Belj-
avskís og Anderssons, en á morg-
un verður tefld 11. umferðin af 17
og teflir Jóhann þá við Englend-
inginn Flear. í 12. teflir hann við
Todorscevic, Júgóslava sem býr í
París og teflir fyrir Monaco, þar á
eftir við landa hans Ljubojevic.
Þröstur Þórhallsson og Hannes
Hlífar Stefánsson unnu báðir
skákir sínar í 9. umferð á
heimsmeistaramóti skákmanna
undir 20 ára á Filippseyjum.
Þröstur vann Ariel frá Argent-
ínu, Hannes Hlífar Finnann
Kokkila. Þröstur hefur 5Vi vinn-
ing í 9.-12. sæti, Hannes Hlífar
3>/2. Efstur er Indverjinn Anna
Ant með lx/i. -m
Lífeyrissjóðirnir
Stefnum að
hámaiks
vöxtem
Pétur Blöndal: Geri mér
vonir um að vaxtataka
lífeyrissjóðanna verði
ekki lœgri en 7,5-8%
Lífeyrissjóðirnir eiga í samning-
um sínum við ríkissjóð að
stefna að því að fá eins háa vexti
og þeir mögulega geta með
hagsmuni lífeyrisþega í huga. Ég
sjálfur geri mér vonir um að fá
eitthvað á bilinu 7,5-8% vexti,
sagði Pétur Blöndal formaður
Landssambands lífeyrissjóða, en
fjármálaráðherra mun leita eftir
samningaviðræðum við lífeyris-
sjóðina fljótiega í kjölfar vaxta-
hækkunar á spariskírteinum rík-
issjóðs.
Pétur sagði að áður en gengið
yrði til samninga við ríkissjóð
vildu Iífeyrissjóðirnir líklega sjá
hvernig salan á spariskírteinum
ríkissjóðs sem gefin eru út til 10
ára á 7,2% vöxum gæfist, en á
verðbréfaþinginu seldust spari-
skírteini á um 8% og oft á
hærra verði.
Fjármálaráðuneytið hefur
áætlað að vaxtahækkun á spari-
skírteinum geti leitt til hækkunar
á vöxtum af húsnæðislánum
sem nemur um 1%, eða úr
3,5% í 4,5%.
—K.Ól.
Þjóðviljinn
275þúsund
fyrír Guð-
mund G.
Frétt um tengsl
Guðmundar G.
Þórarinssonar við
skattamál Þýsk-íslenska
dœmd dauð og ómerk.
Þjóðviljinn dœmdur til
hárra bótagreiðslna
Sakadómur Reykjavíkur mun
hafa dæmt í máii Guðmundar
G. Þórarinssonar, nú alþingis-
manns, gegn Þjóðviljanum vegna
fréttar í blaðinu um skattamál
fyrirtækisins Þýsk-íslenska í jan-
úar 1986.
Dómurinn hefur enn ekki ver-
ið birtur ritstjórum Þjóðviljans
en þeir virðast hafa verið dæmdir
til að greiða samtals 275 þúsund
krónur í miskabætur, málskostn-
að og birtingarkostnað. Að auki
er blaðið dæmt til að birta dóms-
orð á forsíðu. Þetta mun vera
þyngsti dómur í máli af þessu tæi í
alllangan tíma.
Þarsem dómurinn hefur ekki
enn verið birtur hefur ekki verið
tekin afstaða til áfrýjunar.
-m