Þjóðviljinn - 19.08.1987, Page 2
p.SPURNINGIN_
Finnst þér viö hæfi aö
fjölmiðlar fjalli á opinská-
an hátt um meint kyn-
ferðisafbrot?
Sveinn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri:
Já, mér finnst það sjálfsagt ef
það er gert á hlutlausan hátt, svo
framarlega sem það er unnt. Þó
mega fjölmiðlar ekki falla í þá
gryfju að setjast í dómarasæti.
Þóra Kristjánsdóttir, heild-
sali:
Nei, mér finnst það ekki. Það er
mín skoðun að rannsaka þurfi
mál sem þessi til hlýtar áður en
hlaupið er með þau í fjölmiðla.
Kristinn Álfgeirsson,
stjóri:
Já, mér finnst það rétt. Ég sé
enga ástæðu fyrir því að segja
ekki frá málum sem þessum. Þó
mega ekki fjölmiðlar dæma við-
komandi fyrirfram.
Linda Hildur Leifsdóttir,
tölvuskrásetjari:
Já, mér finnst rétt að umfjöllun
um þessi mál eigi sér stað í fjöl-
miðlum. Upplýsingar um brot af
þessu tagi eru að mörgu leyti já-
kvæð, en jafnframt er nauðsyn-
legt að þeir sem verða fyrir þess-
um brotum, verði ekki sjálfir að
fórnarlömbum fjölmiðla.
Sigrún Óskarsdóttir, banka-
starfsmaður:
Já, mér finnst það eðlilegt að
vissu marki. Fjölmiðlamenn
verða þó að fjalla um þessi mál á
sem heiðarlegasta máta, en ekki
reyna að nota þau í æsifregnar-
stíl.
FRETTIR
Rœkjustöðin
Húsakostur tvöfaldaöur
Rœkjustöðin hf. byggir 1000fermetra hús yfir rœkjuvinnsluna sem nú er íleigu-
húsnœði. Aðþvíloknu verður starfsemin öll komin í eigið húsnœði fyrirtœkisins
Við tvöfoldum húsnæði okkar
með þessari nýbyggingu sem
við vonumst til að geta tekið í
notkun fljótlega á næsta ári. Þá
flytjum við starfsemina endan-
lega úr ieiguhúsnæði og látum
húsbyggingum lokið, í bili að
minnsta kosti, sagði Guðmundur
Agnarsson framkvæmdastjóri
Rækjustöðvarinnar hf. á ísafirði
í samtali við Þjóðviljann.
Rækjustöðin sem er ein af fjór-
um rækjuverksmiðjum í þessari
vöggu rækjuvinnslunnar, hefur
smám saman verið að byggja yfir
starfsemina allt frá árinu 1978.
Byggt hefur verið yfir frystiklefa
og aðstöðu til pökkunar, en
verksmiðjan sjálf er enn í leigu-
húsnæði. Vinnslan flyst hinsveg-
ar í nýja húsnæðið þegar það
verður tilbúið.
Að sögn Guðmundar var hafist
handa við nýju bygginguna í vor
og verður gólfflötur hennar um
1000 fermetrar á tveimur hæðum.
ísafjörður er stærsta rækjuver-
stöð landsins og má segja að
rækjuvinnsla sé jafn umfangs-
mikil og annar fiskiðnaður á ísa-
firði. Þaðan eru gerðir út 20-30
bátar á rækju. Guðmundur sagði
veiðina í sumar hafa verið nokk-
Með tilkomu nýja verksmiðjuhússins tvöfaldast eiginn húsakostnaður Rækjustöðvarinnar hf.
uð jafna, þótt hún væri ekki með
mesta móti. Þegar Þjóðviljinn
ræddi við Guðmund voru bátarn-
ir nýlega farnir á miðin eftir eina
af hinum þremur lögboðnu 10
daga veiðistöðvunum ársins.
Vinnuvernd
Heymæði og vinnuslys
Samnorræntþing um vinnuumhverfismálstendurfyrir dyr-
um. I annað skipti sem þingið er haldið á íslandi
Seinnipartinn í mánuðinum
verður haldið í Reykjavík
samnorrænt þing um vinnuum-
hverfísmál. Vinnueftirlit ríkisins
stendur fyrir þinghaldinu, og er
þetta í annað sinn sem það er
haldið hér á landi. Hið fyrra var
árið 1982.
„Sá skilningur sem menn
leggja í vinnuvernd er alltaf að
breikka. Framan af var mest um
að ræða mælingar á efnum og þá
sjúkdóma sem tengdust þeim
beint, en nú er farið að taka fyrir
umhverfið í sem víðastri merk-
ingu,“ sagði Víðir Kristjánsson,
deildarstjóri hollustuháttadeild-
ar Vinnueftirlitsins, þegar Þjóð-
viljinn forvitnaðist um fyrirhugað
þinghald. „Nú er meðal annars
farið að fjalla um iðjufræði, og
vinnuslys eru nýtt umfjöllunar-
efni hjá okkur, en um þau verður
fjallað í fyrsta skipti á þinginu nú í
ágúst.“
Mörg fleiri mál verða reifuð á
þinginu, og má nefna faralds-
fræðirannsóknir, en undir þeim
málaflokki verður lögð áhersla á
álagssjúkdóma; atvinnugreina-
rannsóknir þar sem sjónum er
einkum beint að landbúnaði, og
mælingar og greiningar á meng-
un.
Þingið munu sitja yfir 200 þátt-
takendur, þar af um 180 erlendir
gestir. Svíarnir eru flestir, yfir
hundrað talsins, en að öðru leyti
dreifist þátttakan nokkuð jafnt á
Norðurlöndin. Þá er þetta í ann-
að skiptið sem Færeyingar taka
þátt í þingum þessum.
fslensku þátttakendurnir eru
meðal annars frá Vinnueftirlit-
inu, atvinnusjúkdómadeild
Reykjavíkurborgar, landlæknis-
embættinu, og auk þess nokkrir
læknar af Vífilsstaðaspítala, en
þar hafa menn stundað rann-
sóknir á heymæði. Þeir munu
gera grein fyrir þeim rannsókn-
um sínum í samvinnu við Vinnu-
eftirlitið, sem og öndunarfæra-
sjúkdómum hjá bændum. Verð-
ur nú umfjöllun eitt af framlögum
íslendinga á þinginu.
HS
Austurland
Kennarastöður
enn í boði
- Það vantar enn kennara á
nokkra staði hér á Austurlandi.
Ástandið er þó sýnu verst við
skólann í Fáskrúðsfírði, en þar
vantar rúmlega helminginn af
kennurunum, - eða sex kennara
og það gengur afleitlega að fá
þangað kennara til starfa, sagði
Guðmundur Magnússon,
fræðslustjóri Austurlands.
- Það er víða búið að fullráða
en annarstaðar gengur miður.
Hversu marga kennara vantar
núna í augnablikinu get ég ekki
neitt sagt um. Umsóknir þeirra
sem sækja og eru réttindalausir,
fara fyrir sérstaka nefnd, þannig
að við fræðslustjórarnir höfum
ekki sömu yfirsýnina yfir kennar-
aráðningarnar og áður, sagði
Guðmundur Magnússon.
Guðmundur sagðist hvorki
geta merkt að verra né betra væri
að fá kennara til starfa á Austur-
landi nú en áður. -Því miður hef-
ur ekki orðið neinnar breytingar
vart til betri vegar þrátt fyrir síð-
ustu kjarasamninga kennara,
sagði Guðmundur Magnússon.
Undanfarin skólaár hafa milli
30 og 40% kennara á Austurlandi
verið án tilskilinna kennslurétt-
inda.
-rk
Félagsvísindastofnun
Margfeldi
landbúnaðar
Meira enfjórða hvert
starfífimm lands-
hlutum tengist land-
búnaði
Margföldunaráhrif landbún-
aðar í öðrum atvinnugrein-
um benda til þess, að meira en
fjórða hvert stiarf á Vesturlandi,
Norðurlandi vestra, Norðurlandi
eystra, Austurlandi og Suður-
landi tengist landbúnaði.
Þetta kemur fram í ákaflega
fróðlegri og ítarlegri skýrslu, sem
Félagsvísindastofnun Háskólans
hefur unnið fyrir Stéttarsamband
bænda og Landssamtök sauðfjár-
bænda. Mætti þetta vera nokkurt
íhugunarefni þeim, sem virðast
álíta, að farnaður íslensks land-
búnaðar snerti bændastéttina
eina.
Það kemur og fram í skýrslu
Félagsvísindastofnunar að Sví-
þjóð, eitt Norðurlandanna, hefur
lægra hlutfall starfandi fólks í
landbúnaði en ísland. Bent er og
á, að hlutfall landbúnaðar af
starfandi fólki hefur hvergi á
Norðurlöndunum fallið jafn hratt
undanfarin ár og á íslandi.
Hér má svo auka því við, að
samkvæmt nýlegri skýrslu um
sauðfjárrækt hefur störfum í úr-
vinnslugreinum landbúnaðar
fjölgað undanfarin ár meðan
störfum í landbúnaði fækkar.
-mhg
fvar það ekki gott hjá
méraðsegjaað Jón
Baldvin hefði feilreiknað
isig um milljarð í sambandi
Ég sé að
blaðamennirnir
gleyptu viö
þessu
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Mlðvikudagur 19. ágúst 1987