Þjóðviljinn - 16.09.1987, Page 2
—SPURNINGIN-
Finnst þér gaman í
skólanurn?
(Spurt í Álftamýrarskóla)
Ásgeir Ólafsson
6 ára:
Já, mér finnst mest gaman að læra.
Ég er farinn að lesa svona smátt og
smátt, og svo er ég mikið úti í frímínú-
tum.
Gerður Guðmundsdóttir
6 ára:
Já, mór finnst mest gaman að teikna.
Ég teiknaði hús og stelpu og strák.
Hrafnhildur Lára Ragnars-
dóttir
sex ára:
Já, ég kann soldið að lesa. Ég hef
lesið tvær hálfar bækur og eina heila
bók og kann soldið af þeim.
Pétur Jónasson
fimm ára:
Já, mór finnst bara gaman að öllu. Ég
er að byrja að læra að lesa og svo er
ég úti að leika mér. Við leikum bófa
og svona.
Ingibjörg Aradóttir
sex ára:
Já, það er allt skemmtilegt, ekkert
leiðinlegt. Svo langar mig að missa
barnatönn sem er laus.
FRÉTTIR
Bankarnir
Mest innlánsaukning
hjá Alþýðubankanum
Heildarinnlánin hjá bönkunum jukust um 35.2% á sl. ári.
Mest í Alþýðubanka. Minnst í Útvegsbanka
Innlánsaukning hjá viðskipta-
bönkunum á árinu 1986 var
35,2% en aukningin var mjög
misjöfn milli banka. Mest var
aukningin hjá Aiþýðubankanum
70.7% en minnst hjá Útvegsbank-
anum aðeins 20.3%.
Heildarinnlán sparisjóðanna
jukust um 34.9% á sl. ári og
innlán innlánsdeilda samvinnufé-
laga jukust um 23.4%. Heildar-
innlán allra innlánsstofnana
hækkuðu þannig um 35.1% á
sama tíma og hækkun lánskjara-
vísitölu var 14.7%.
Þetta kemur fram í skýrslu
bankaeftirlitsins um rekstar-
reikninga viðskiptabanka og
sparisjóða á sl. ári.
í árslok höfðu bankarnir nær
85% af heildarinnlánum við-
skiptabanka og sparisjóða. Þessi
hlutföll eru breytt frá árslokum
1985 en hlutafélagsbankarnir
hafa lítillega aukið hlutdeild sína
á kostnað ríkisbankanna.
Eigið fé bankanna hefur aukist
í heild um 12.6% að raungildi en
eigið fé sparisjóðanna aukist um
9.4%. Raunaukning banka og
sparisjóða hefur aukist í heild um
12%. Til samanburðar má nefna
að á árinu 1985 var raunminnkun
eigin fjár þessara stofnana 0.4%
en raunaukning 1.7% á árinu
1984. -»g-
Jan Mark sölustjóri Svend Larsen sem sýnir Grenaa dísilvél í skip og báta á sjávarútvegssýningunni, en sú vél er þyngsta
stykkið sem verður á sýningunni og vegur 11,5 tonn. En það er ekki nóg að sýna þunga hluti, það má ekki gleyma að hafa
allt fínt og gljáandi þegar hún opnar.
Tónlistarhátíðin
Fjögur íslensk verk frumflirtt
Sjá varútvegssýningin
Fræðandi og
skemmtileg
TómasÞ. Tómasson,
blaðafulltrúi: 460 aðilar
sýna á sýningunni.
„Á þessari sjávarútvegssýn-
ingu sýna jafnmargir aðilar og
sýna á World Fishing í Bella Cent-
er í Kaupmannahöfn, sem er
stærsta sýning sinnar tegundar í
heiminum. Hérna verða 460 aðil-
ar með sýningu á framleiðslu-
vörum sínum og þar af eru 130
íslensk fyrirtæki,“ segir TómasÞ.
Tómasson, blaðafulltrúi sjávar-
útvegssýningarinnar, sem verður
haldin í Laugardalshöll dagana
19.-23. september næstkomandi.
Að sögn Tómasar er nettó sýn-
ingarsvæði sýningarinnar á sjötta
þúsund fermetrar og þar af eru
um fimm þúsund fermetrar í sér-
stökum tjöldum sem sett hafa
verið upp við hliðina á Höllinni.
En hún sjálf rúmar ekki nema V3
af allri sýningunni, sem sýnir
hversu stór hún er miðað við aðr-
ar sýningar sem haldnar hafa ver-
ið hér á landi.
Meðan á uppsetningu sýning-
arinnar hefur staðið, undanfarna
daga, hefur Höllin verið stærsti
vinnustaður landsins með um
1000 manns í vinnu. Á sýning-
unni verða um 360 sýningarbásar
og verða við hvern bás um 4—6
manns við kynningu og aðra
starfsemi, þannig að starfs-
mannafjöldi við sjálfa sýninguna
eftir að hún opnar verður á bilinu
1440-2160 manns.
„Þetta er sjávarútvegssýning
sem er í senn fræðandi og
skemmtileg. Hún á erindi til allra
íslendinga og hingað koma fjöl-
margir erlendir aðilar, bæði þeir
sem sýna og eins þeir sem koma
hingað til að kynna sér það nýj-
asta á sviði sjávarútvegs. Það
liggur við að erlendu gestirnir
komi til með að auka gjaldeyris-
tekjur okkar um 200 milljónir
króna.“
„Sjávarútvegssýningin opnar
klukkan 10.30 á næstkomandi
laugardag og verður opin sýning-
ardagana frá 10 um morguninn til
18 um kvöldið. Aðgangseyrir er
300 krónur," sagði Tómas Þ.
Tómasson. - grh
Norðanvindurinn, tónlistarhá-
tíð ungs fólks, þar sem yngstu
og efnilegustu tónlistarmenn
Norðurlanda, leiða saman hljóð-
færi sín, er nú í fullum gangi. í
kvöld verða tónleikar á Hótel
Borg, þar sem flutt verður verk
eftir Svend Hedegárd frá Dan-
mörku, en Páll Eyjólfsson, Þórar-
inn Sigurbergsson og Kristinn
Árnason munu stilla saman gítar-
strengi. Þá er verk eftir Þorgrím
Pál Þorgrímsson, flutt af segul-
bandi. Lars Petter Berg, leikur á
óbó verk eftir Nils Henrik As-
heim, Noregi, og loks er flutt verk
eftir Þórólf Eiríksson af segul-
bandi.
Eftir hlé verða flutt eftirtalin
verk: Brass sextett eftir Lars Klit,
Danmörku, Terje Winther, Nor-
egi, á verk flutt af segulbandi, og
Kjartan Ólafsson á verk flutt af
honum sjálfum og Sveini Ól-
afssyni.
í Tónlistarskólanum verða
tónleikar kl. 16:30, þar verður
flutt verk eftir Curt Wrangö, Sví-
þjóð, sem Hildigunnur Halldórs-
dóttir og Margrét Kristjánsdóttir
munu flytja á fiðlur. Christina
Wagner Smith á verk sem heitir
Mod Lyset, flutt af henni á píanó
og Jakob Lökkergard á píanó.
Hildigunnur Halldórsdóttir
Dagskrá Bókmenntahátíðar-
innar hefst í dag kl. 14, en þá
verða umræður á ensku um
„Skáldsöguna á vorum dögum“.
Nokkrir helstu skáldsagnahöf-
undar hátíðarinnar munu taka
þátí í umræðunum, sem eru: Isa-
bel Allende, Guðbergur Bergs-
son, P.C. Jersild, Gerhard Köpf,
Alain Robbe-Rillet og Kurt Vonn-
egut.
Isabel Allende flytur fyrirlest-
flytur verk eftir Helga Pétursson,
á fiðlu, sem heitir Við brúna.
Loks er tónverk eftir Rolf Wall-
en, Noregi, sem nefnist Mandala,
sem eftirtaldir munu flytja: Björn
Rabben, Einar Fjærvol, Per
Skoglund og Kenneth Karlsson.
- ekj
ur um suður-amerískar bók-
menntir á ensku kl. 17, sem full
ástæða er til að benda á.
Um kvöldið er bókmenntadag-
skrá í Gamla bíó, þar sem þessi
skáld munu lesa upp úr verkum
sínum: Benoite Groult, Frakk-
landi, Peer Hultberg, Dan-
mörku, P.C. Jersild Svíþjóð,
Thor Vilhjálmsson, Islandi, og
Kurt Vonnegut, Bandarík’jun-
um. Dagskráin í Gamla bíói hefst
kl. 20:30.
Bókmenntahátíðin
fsabella í dag
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 16. september 1987