Þjóðviljinn - 16.09.1987, Page 3
mmm ÖRFRÉTTIR ■■
Hugtækni
og fyrri líf nefnast tvö námskeið
sem Þrídrangurstendurfyrirdag-
ana 17.-20. september. Á
laugardegi verður fjallað um á-
hrifamátt stýrðra hugsýna, á
sunnudegi verður kennsla í því
hvernig hægt er að upplifa fyrri
og komandi æviskeið. Leiðbein-
andi er Andrew Nevai, sem hefur
24 ára reynslu í ástundun frum-
speki og andlegrar iðkunar.
Kynningarkvöld er í Þrídrangi á
fimmtudag kl. 19.30 og eru allir
velkomnir. Allar nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu Þrídrangs
milli klukkan 17 og 19.
Togveiðar
i Héraðsflóa utan línu sem dregin
er í einnar sjómílu fjarlægð frá
fjörumarki meginlandsins eru
heimilar. Að norðan markast
svæðið af línu, sem dregin er
austnorðaustur frá Bjarneyjarvita
og að sunnan af línu, sem dregin
er austnorðaustur frá Ósfles.
Ný umferðarljós
verðatekin í notkun á morgun 17
septemberklukkan 14. Þá verður
kveikt á tveimur hnappastýrðum
umferðarljósum fyrirfótgangend-
ur á Snorrabraut við Flókagötu
°g á Hringbraut við Bræðraborg-
arstíg.
Hafrannsókna-
stofnun
og Rannsóknastofnun fiskiðnað-
arins verða opnar almenningi
föstudaginn 18. september frá
klukkan 10-16 í tilefni af hálfrar
aldar afmæli rannsókna í þágu
atvinnuveganna. 18. september
árið 1937 tók Atvinnudeild há-
skólans til starfa í nýju húsnæði á
háskólalóðinni. Atvinnudeildin
skiptist í Fiskideild, Iðnaðardeild
og Búnaðardeild. Með lögum frá
1965 var Atvinnudeildin lögð nið-
ur en Rannsóknastofnanir at-
vinnuveganna tóku við hlutverki
hennar. Starfsmenn Hafrann-
sóknastofnunar og
Rannsóknastofnunar fiskiðnað-
arins munu taka á móti gestum í
anddyrinu að Skúlagötu 4 og
sýna þeim stofnanirnar og skýra
þá starfsemi sem þar fer fram í
máli og myndum.
Borgaraflokkurinn
hefur lagt til við ríkisstjórn fs-
lands, að hún geri þegar allt sem
hún getur til að sá sögulegi at-
burður, nýr leiðtogafundur á sér
stað, verði hér á Islandi. Segir í
ályktun frá þingflokki Borgarafl-
okksins að á fundi utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og Sovétr-
íkjanna í næstu viku verði rætt
um undirbúning að leiðtogafundi
stórveldanna, þar sem líklegt er
talið að leiðtogarnir hittist innan
tíðar og undirriti afvopnunars-
amning. Segir (álkyktuninni að ef
vilji sé fyrir hendi þurfi að koma
boðum á framfæri við sendimenn
viðkomandi ríkja þegar í stað.
Ólafur Gunnarsson
hefur sagt starfi sínu lausu sem
framkvæmdastjóri framleiðslu-
mála hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, þar sem hann hefur
gerst eigandi að Hraðfrystihúsi
Olafsvíkur hf, ásamt fleirum.
Hjalti Einarsson, framkvæmda-
stjóri, tekur við starfi Ólafs. Aðrar
tilfæringar innan SH í framhaldi
af uppsögn Ólafs eru að Stur-
laugur Daðason, verkfræðingur,
verður framkvæmdastjóri tækni-
og eftirlitsmála, jafnframt því sem
Innkaupadeild SH heyrir undir
hann.
SópranblokkfÍMtan
heitir kennslubók eftir Jón Þórar-
insson, sem komin er út hjá
Námsgagnastofnun og er fyrir
byrjendur í blokkflautunámi. Bók-
in er í sex köflum og hefst á undir-
stöðuatriðum, en í lokin eiga
nemendur að geta leikið ýmis
jólalög. Bókin kostar 950 krónur.
FRÉTTIR
Líf og fjör í Álftamýrarskóla í upphafi skólaárs. Betur að allir væru svona hressir sem maður er að mynda, varð
Ijósmyndaranum að orði um leið og við kvöddum. Mynd: E. Ól.
Skólarnir
Mest gaman að læm
Heimsókn íÁlftamýrarskólann. Áslaug Brynjólfsdóttir
frœðslustjóri: Mikið lagtupp úrþjálfunaræfingum
hjá þeim yngstu
Igrunnskólunum í Reykjavík
eru um 13.600 nemendur þegar
einkaskólarnir eru taldir með. í
nýjasta árganginum, sex ára
bekknum, eru um 1300 nemend-
ur og svipaður fjöldi í sjö ára
bekk, sagði Áslaug Brynjólfsdótt-
ir, fræðsiustjóri í Reykjavík, í
spjalli við blaðið í gær.
Reiknað er með einni kennslu-
stund á nemanda hjá sex ára
krökkunum; ef þau eru tuttugu í
bekk eru þau því tuttugu tíma á
viku í skólanum. Að sögn Ás-
laugar er yfirleitt meiri fjöl-
breytni í kennslunni hjá þeim en
hinum sem eldri eru. Talsvert er
lagt upp úr ýmisskonar þjálfun-
aræfingum sem tengja saman hug
og hönd, og reynt að fylgjast sem
best með því hvar þau eru stödd í
þroska.
Aðspurð um bekkjarstærðir
hjá þeim yngstu sagði Áslaug að
reynt væri að hafa þau færri í
bekk en tíðkast á eldri stigum.
Þannig er algeng stærð á sexára-
bekk tuttugu krakkar. Meðaltal-
ið í sjö ára bekk er aftur á móti 24
til 25, en í einstaka bekkjar-
deildum eru 28 nemendur, en
það er hámark.
„Það þarf að leggja áherslu á
að börnin séu ekki ein í öryggis-
leysi heima, og því þyrfti að
lengja viðveruna. Leyfa þeim að
koma fyrr og vera aðeins lengur
ef enginn er heima. Þá er brýnt að
skólarnir verði einsetnir, þarsem
samræmdur tími hefur augljóst
hagræði í för með sér fyrir alla
fjölskylduna,“ sagði Áslaug. HS
VMSÍ
Samstaða er lykillinn
Framkvœmdastjórn Verkamannasambandsins telur ógæfu að deilur
um 3 prósent skipti félögum í fylkingar
Iályktun frá framkvæmdastjórn
VMSI er ítrekuð fyrri ákvörð-
un um að nefnd fiskvinnslufólks
vinni með stjórninni að samn-
ingagerð, og þar er harmað að
deilur um örfá prósent skipti að-
ildarfélögunum í fylkingar.
Ályktun framkvæmdastjórnar-
innar frá í gær er svohijóðandi:
„Framkvæmdastjórn VMSÍ
samþykkir að í komandi kjara-
samningum verði lögð höfuðá-
hersla á að bæta kjör fiskvinnslu-
fólks. Ljóst er að launaskrið og
þensla í þjóðfélaginu hefur haft
þau áhrif að fiskvinnslufólk hefur
dregist aftur úr í launakjörum
þrátt fyrir þá staðreynd að bættur
hagur útgerðar og fiskvinnslu er
ástæðan fyrir því góðæri sem ríkir
í landinu.
Það er þjóðfélaginu til
skammar að meta hverskonar
þjónustustörf meira en störf að
höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar.
Formannafundur Verkamanna-
sambandsins hefur samþykkt að
gera kröfur um allt að 40%
kauphækkun. Það eru hærri kröf-
ur en gerðar hafa verið um fjökia
ára. Framkvæmdastjómin telur
það mikla ógæfu ef deilur um
hvort kröfur skulu vera 3% hærri
eða lægri skulu skipta aðildarfél-
ögunum í andstæðar fylkingar.
Það verður spurt að leikslok-
um, hvaða árangur næst í samn-
ingaviðræðum og hvaða kaup-
mátt tekst að tryggja. Fundurinn
telur að samstaða verkafólks sé
lykillinn að því að ná fram bætt-
um kjörum fyrir verkafólk. Ann-
að er aðeins vatn á myllu atvinnu-
rekenda, sem þá geta deilt og
drottnað með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum.
Framkvæmdastjórnin ítrekar
fyrri ákvörðun um, að ásamt
framkvæmdastjórn vinni að
endanlegri samningagerð nefnd
fiskvinnslufólks, sem verði þann-
Eftir því sem ég hef heyrt hefur
hreindýraveiðin, sem hófst 1.
ágúst og lauk í gær, gengið vel í
þeim hreppum sem höfðu mestan
veiðikvóta í sumar. Heildarkvót-
inn i ár var um 600 dýr, segir
Runólfur Þórarinsson, deildar-
stjóri í menntamálaráðuneytinu.
í hreindýratalningu sem fram
fór í sumar, í júlímánuði
snemma, voru talin 1226
hreindýr við norð-austur horn
Vatnajökuls. Af þeim voru 425
hreindýrakálfar eða um 35%,
sem er óvenjumikið. Bendir það
til þess að sumarið hafi verið
einkar gott fyrir dýrin og þau haft
nóg að bíta. Á undanförnum
árum hefur hlutfall kálfa verið í
kringum 28%.
Að sögn Runólfs var veiðik-
ig skipuð: Þrír fulltrúar frá hverju
svæðasambandi, frá Vestmanna-
eyjum tveir, Reykjavík tveir,
Hafnarfirði tveir og Suðurnesj-
um þrír.
Framkvæmastjórnin treystir
því að nefnd þessi vinni sem sam-
hent og sterk heild undir merkj-
um VMSÍ og minnir á að verkefn-
ið er að ná árangri í samningum
við atvinnurekendur."
vótinn í fyrra 700 dýr en af þeim
veiddust aðeins 500. 1985 var
kvótinn 500 dýr og af þeim
veiddust tæp 400 dýr.
í ár höfðu 31 hreppur fyrir
austan veiðikvóta og er eftirlits-
maður í hverjum hreppi og hefur
hann frjálst val á aðstoðarmanni
til veiðanna, nema hvað viðkom-
andi verður að hafa bréf uppá va-
sann um það að hann kunni að
fara með skotvopn og hafi til-
skilda leikni í meðferð þeirra sem
að gagni getur komið við veiðam-
ar.Þeir hreppar sem höfðu mest-
an veiðikvóta í sumar voru Borg-
arfjarðarhreppur með 54 dýr,
Helgustaða- og Norðfjarðar-
hreppur 52 dýr og Fljótsdals- og
Jökuldalshreppur með 45 dýr.
- grh
Hreindýraveiðar
Skytteríið gekk vel
Suðurnes
Fiskur
gegnum
fjarskipti
„Við byrjuðum í fyradag með
fískmarkað hér á Suðurnesjum,
þar sem físksalan fer fram í gegn-
um fjarskipti. Bátarnir gefa okk-
ur þann afla sem þeir eru með
hverju sinni og við se(jum hann á
meðan viðkomandi bátur er enn á
veiðum. Síðan þarf kaupandinn
ekki annað en að vera tilbúinn
með bfl undir fískinn þegar bát-
urinn kemur að landi,“ segir
Brynjar Vilmundarson, bjá Fisk-
markaði Suðurnesja.
Tvenns konar greiðsluskil-
málar eru við fikskaupin hjá fisk-
markaðinum. Annarsvegar með
bankaábyrgð eða með stað-
greiðslu í peningum. Ekki er
tekið við ávísunum. Markaður-
inn er til húsa í 240 fermetra
húsnæði í Ytri Njarðvík, rúm-
góðu, sem getur tekið allt að 50
manns. Enda búast aðstandend-
ur hans við því að hann komi til
með að njóta vinsælda þegar nær
dregur vertíðinni í vetur.
Að sögn Brynjars hafa undir-
tektir kaupenda verið góðar en
afstaða seljenda, það er að segja
útgerðarmanna, verið blendin,
enda um algjöra nýjung að ræða,
sem þarf ákveðinn umþóttunar-
tíma til að byrja með. En það er
hugur í mönnum þar syðra og
þeir eru sannfærðir um að fisk-
markaðurinn eigi eftir að pluma
sig í framtíðinni.
í gær voru seld nokkur tonn af
þorski og var meðalverðið sem
fékkst fyrir hann 44 krónur.
Nokkur tonn af keilu fóru á 11
krónur og nokkur hundruð kíló
af ufsa fóru á 20 krónur kílóið að
meðaltali.
Starfsmenn fiskmarkaðarins
eru fjórir. Þrír í Ytri Njarðvík og
einn í Grindavík. .
Foreldrasamtökin
Nýrra
leiða leitað
Opinnfundurí
kvöld. Rekstrarform
dagvistarheimila í
brennidepli
„Við höfum velt því fyrir okkur
sem leið til að auka virðingu
fóstrustarfsins að fó fleiri til að
reka dagvistarheimiii en bæjar-
og sveitarfélög,“ sagði Viðar Ág-
úsísson,varaformaður stjórnar
Foreldrasamtakanna í Reykja-
vík, en samtökin boða til opins
fundar í kvöld, þar sem meðal
annars verður rætt hvort ekki
megi leita nýrra leiða til að leysa
dagvistarvandann.
Að sögn Viðars er hér um að
ræða foreldrarekin heimili, heim-
ili á vegum fyrirtækja, og eins
gætu húsfélög í stórum blokkum
tekið að sér slíkan rekstur. „Með
þessu móti yrði borgin ekki eini
viðsemjandi fóstra um kaup og
kjör,“ sagði Viðar.
Ellefu deildir á dagvistar-
heimilum borgarinnar eru nú lok-
aðar og séð er fram á lokun fleiri
deilda, jafnvel heilu heimilanna,
segir f fréttatilkynningu Foreldr-
asamtakanna.
Á fundinum verður reynt að fá
talsmenn atvinnurekenda,
stjórnmálamanna og uppeldis-
stétta, en fyrst og fremst er fund-
urinn ætlaður foreldrum, enda
öllum opinn. Hann verður hald-
inn í sal vélstjóra að Borgartúni
18, og hefst klukkan hálfníu í
kvöld.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3