Þjóðviljinn - 16.09.1987, Page 6

Þjóðviljinn - 16.09.1987, Page 6
VIÐHORF LANDSVIRKJUN Útboð Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í jarð- vinnu vegna nýrrar stjórnstöðvar við Bústaðaveg í Reykjavík í samræmi við útboðsgögn nr. 0202. Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeg- inum 15. september á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu ajaldi að upphæð kr. 1500. Áætlaðar magntölur eru um 4600 m3 af sprengdri klöpp, um 3200 m3 af lausum uppgreftri, um 1200 m3 af fyllingu og um 400 m3 af riftækum jarðvegi auk frárennslislagna, girðingar o.fl. Miðað er við að verkið geti hafist 10. október n.k. og að því verði lokið fyrir 4. desember n.k. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík, föstudaginn 2. okt- óber 1987 fyrir kl. 10.30, en tilboðin verða opnuð þar sama dag kl. 11.00 að viðstöddum bjóðend- um. Reykjavík 15. september 1987 Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma Þorbjörg Pálsdóttir Álfhólsvegi 24 Kópavogi lóst í Borgarspítalanum aðfaranótt 15. september 1987. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurjón Björnsson Sigurrós M. Sigurjónsd. Jónas Gunnar Guðmundsson Erla Sigurjónsdóttir Kristmundur Þorsteinsson Sigurbjörg Sigurjónsdóttir Haraidur Sumarliðason Páll Sigurjónsson Ágústa Hulda Pálsdóttir Guðmundur Á. Sigurjónsson Hildur Pedersen Birna Sigurjónsdóttir Jón Páll Sigurjónsson Steinunn Guðlaugsdóttir Sigurður Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi Sveinn V. Ólafsson hljóðfæraleikari Sigtúni 29 verður jarðsettur frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 17. september kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarfélög. Hanna Sigurbjörnsdóttir Ólafur Sveinsson ingibjörg Jónsdóttir Arnór Sveinsson Hrafnhildur Rodgers Sigurbjörn Sveinsson Elín Ásta Hallgrímsson og barnabörn ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Dagskrá landsþings ÆFAB 2.-4. okt. 1987 að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Föstudagur 2. okt. 20.00 Setning. 20.20 Skýrslur fluttar, umræður: a) framkvæmdaráðs, b) gjaldkera, c) deilda, d) Utanríkismálanefndar, e) Verkalýðsmálanefndar, f) Birtis. 23.00 Lagabreytingar og hópvinna kynnt. 23.30 Hlé. Laugardagur 3. okt. 9.00 Lagabreytingar, fyrri umræða. 10.00 Hópavinna: a) unnið að þingmál- um, b) Almenn stjómmálaályktun, c) lagabreytingar. 12.00 Matur. 13.00 Hópavinnu framhaldið. 20.00 Matur. 21.30 Kvöldbæn. Sunnudagur 4. okt. 9.00 Lagabreytingar, seinni umræða. 10.00 Hópavinna, niðurstöður. 13.00 Matur. 14.00 Kosningar. 15.30 Þingslit. Þingið er opið öllum ÆF-félögum. Félagar sem greiða þurfa háan ferða- kostnað utan af landi fá 1/z fargjaldið greitt. Skráið ykkur sem allra fyrst. Nánari upplýsingar færð þú á skrifstofunni í síma 17500. Framkvæmdaróð ÆFAB ÆFAB Skrifstofutími Skrifstofa ÆFAB er opin á miðvikudögum, fimmtudögum oq föstudöqum frá kl. 14-19 að Hverfisgötu 105. Sími 17500. Innheimtukerfi rafmagns- veitu og hitaveitu Aðalsteinn Guðjónsson skrifar: í Þjóðviljanum 11. ágúst s.l. er beint til undirritaðs fjórum spurningum um aðskilnað á innheimtu Rafmagnsveitu og Hitaveitu. Svörin eruþessi: 1. Fækkar starfsfólki Raf- magnsveitunnar? Við sameiginlega reiknings- gerð og innheimtu fyrir bæði fyr- irtækin starfar nú 41 starfsmaður. Af þeim vinna þó 3 einnig að hluta við önnur störf. Aðskilnað- ur er talinn geta leitt til fækkunar um 1,5 starfsmann (stöðugildi). 2. Hvað greiddi Hitaveitan Rafmagnsveitunni? Á árinu 1986 greiddi Hita- veitan Rafmagnsveitunni 15,6 millj. króna fyrir reikningsgerð og innheimtu. Fyrir bæði árin 1985 og 1986 var „innheimtu- gjaldið" framreiknuð tala, byggð á útreikningi skv. fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1984. Aðferðin við útreikninggjalds- ins hefur verið sú að skipta beinum kostnaði í hlutfalli við fjölda útsendra hitaveitureikn- inga (um 190.000 á ári) og raf- magnsreikninga (um 360.000 á ári). Tölur í svigum eru fyrir árið 1986. Þess má geta, að gjald þetta nemur 1,25% af áætluðum sölu- tekjum Hitaveitunnar í ár. Það hefur farið lækkandi á undan- förnum 15 árum, var hæst um 3%. 3. Leiðir aðskiinaður til sparnaðar fyrir Rafmagns- veituna? Aðskilnaðurinn leiðir til um 7,1 millj. kr. lækkunar útgjalda hjá Rafmagnsveitunni, miðað við verðlag fjárhagsáætlunar 1987. Naumast er hægt að kalla það „sparnað", þar eð tekjur af inn- heimtugjaldi Hitaveitunnar hverfa. Miðað við 15,6 millj. kr. tekjur, verður „tap“ Rafmagns- veitunnar 8,5 millj. kr. 4. Hverjar eru ástæður Hita- veitunnar(slæm innheimta, þjónusta, annað)? Innheimta gekk illa fyrst eftir að dráttarvextir tóku gildi, - úti- standandi skuldir jukust. Eftir að viðskiptavinir hafa áttað sig betur á áhrifum dráttarvaxta - svo og með auglýsingaherferð og hert- um aðgerðum, hefur innheimtan gengið mjög vel. Útistandandi skuldir beggja fyrirtækjanna hafa lækkað stórlega á síðasta og þessu ári. Þjónustu má alltaf bæta. Ég tel þó starfsfólk Rafmagnsveitunnar hafa lagt sig fram við að veita góða þjónustu, bæði fyrir Raf- magnsveitu og Hitaveitu. Ég veit ekki betur en að starfsfólk Hita- veitunnar sé einnig þessarar skoðunar. Viðurkennt er að fjöldi bilaðra hitaveitumæla er mjög mikill (um 6000 á ári), en vandamál af þeim sökum eru langflest leyst af starfsfólki Rafmagnsveitunnar, eftir að það fær í hendur áætlun Hitaveitunnar. Hitaveitustjóri leggur hins veg- ar áherslu á þau sérstöku tilvik, þar sem vísa verður fólki til Hita- veitunnar, svo að það fái viðun- andi úrlausn sinna mála. Þetta er fólk, sem unir ekki áætlun Hita- veitunnar, sem send er Raf- magnsveitunni. Starfsfólk Raf- magnsveitunnar telur þennan fjölda vera tæplega 150 á ári. Þessir notendur ættu að fá fljótvirkari þjónustu eftir að- skilnað. Alla hina tel ég munu fá verri þjónustu vegna mikils tvíverkn- aðar. Þetta gildirum tilkynningar og álestur vegna flutninga (um 10.000 á ári), um allan álestur, viðvaranir, lokanir, greiðslu- samninga, greiðslumóttöku og almennar upplýsingar. Eftir aðskilnað verða notendur að snúa sér til tveggja fyrirtækja og bæði fyrirtækin verða að senda álesara og lokunarmenn til not- enda. FRÁ LESENDUM Barðaströnd Ekki dauflieyrst við óskum okkar Þingmenn hafa ekki daufheyrst við óskum Barðstrendinga, eins og fram kemur í viðtali við Krist- ján Þórðarson í Þjóðviijanum 7. ágúst sl. þvert á móti hafa þeir með fyrrverandi samgönguráð- herra í fararbroddi staðið sig mjög vel. Svo nú er útlitið allt annað í hafnarmálum, en var fyrir ári, með tilkomu 170 m langs hafn- argarðs við ferjubryggjuna á Brjánslæk. Það hefur verið bar- áttumál hreppsnefndar Barða- strandarhrepps nú sl. fimm ár, að koma þessum hafnarfram- kvæmdum af stað og á síðasta ári ‘86, fóru þrír af fimm hrepps- nefndarmönnum, sinn af hvorum lista sem buðu fram við hrepps- nefndarkosningar það ár, á fund Matthíasar Bjarnasonar og fullvissuðu hann um að ekki væri óskað eftir fé frá því opinbera til annarra framkævmda í hafnarm- álum í Barðastrandarhreppi, að svo stöddu. Hins vegar myndi sveitarsjóður halda við, eftir megni, þeirri aðstöðu sem fyrir er við Haukabergsvaðal. Ég hef ekki hugsað mér að fara í blaðadeilur við sveitunga minn um þessi mál, en upplýsingar hans í umræddu viðtali eru vill- andi á ýmsan hátt og það er ljóst, að Kristján talar þar ekki fyrir marga. T.d. eru hafnarframkvæmdir á Brjánslæk ekki aðeins „3-4 grá- sleppukörlum" til nota, heldur líka 2-3 stórum bátum sem gerðir eru út þaðan, og skapa vinnu fyrir 20-30 manns allt árið - auk þess að Breiðafjarðarferjan fær þar nauðsynlega aðstöðu. Seftjörn 10. ág. “87 Einar Guðmundsson. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 16. september 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.