Þjóðviljinn - 16.09.1987, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 16.09.1987, Qupperneq 11
I ERLENDAR FRETTIR Bretland Kolamenn sýna klæmar Yfirvinnubann í námunum í næstu viku gegn hertum agaregl- um. Scargill gekk út af samningafundi á mánudag Verkamenn í kolanámum í bretlandi hefja yfírvinnubann á mánudag í næstu viku ef ekki semst í deilu þeirra við British Coal, hið ríkisrekna kolanámuf- yrirtæki í Bretlandi. Leiðtogi kolamanna, Arthur Scargill, gekk með sínum mönnum út af samningafundi á mánudag þegar yfírmenn British Coal neituðu að verða við kröfum kolanámum- annasambandsins NUM. Deilan nú sprettur af nýjum agareglum British Coal, sem fyrir skömmu var breytt í fyrsta sinn í fjóra áratugi. Kolanámumenn vilja að sérstakur gerðardómur skeri úr um þær deilur sem upp af þeim kunna að spretta og leggjast að auki gegn ýmsum ákvæðum þeirra. I nýju reglunum segir meðal annars að verkamaður sé réttrækur við annað brot, og þar er afnuminn sá siður að verka- manni sé heimilt að taka með sér samstarfsmann sem vitni þegar hann er tekinn á teppið. Forstjóri British Coal segir að yfirvinnubann mundi kosta fyrir- tækið um 10 milljón pund á viku (hub. 635 milljónir íslenskar), og hafa forráðamenn hótað verka- mönnum því að bannið mundi ieiða til þess að námum verði lok- að með þarafleiðandi atvinnu- missi. Kolanámumenn háðu árslanga baráttu gegn námulokunum frá mars ‘84 til jafnlengdar 85 og lauk þeim slag með ósigri Scargills og félaga, sem mjög tryggði stöðu Thatchers forsætisráðherra. Síð- an hefur 41 námu verið lokað í Bretlandi, vegna meintra arðs- emissjónarmiða og hafa 56 þús- und kolanámumenn misst vinn- una. í NUM, samtökum kola- manna, eru nú um 113 þúsund félagar. Arthur Scargill, leiðtogi kolanámumanna í verkfallinu langa, fyrir tveimur árum. Vopn Engin bjartsýni í Washington Ekki búist við miklum árangri affundi Shevardnadze og Shultz, deilt um eyðileggingu kjarnaodda Vonir manna um hraðari gang í afvopnunarviðræðum risa- veldanna f byrjun viku hafa nú heldur dofnað við fréttir af þriggja daga fundi utanríkisráð- herranna Shultz og Shevardna- dze sem hófst í gær í Washington. Bandaríkjamenn lögðu fram í Genf á mánudag tillögur sem lýst var sem talsverðri tilslökun við Sovétmenn í samningunum um útrýmingu meðaldrægra eld- flauga. Þar var fallist á þær so- vésku kröfur að samningamir tækju til allra meðaldrægra flauga, bæði þeirra sem bæru kjarnahleðslur og hefðbundnar sprengjur, að eldflaugarnar yrðu eyðilagðar undir sameiginlegu eftirliti á ákveðnum stöðum (áður höfðu verið uppi vestra hugmyndir um að eyðileggja flaugar í tengslum við stjörnu- stríðstilraunir og þá auðvitað leynilega), og að víkja til fyrri tímaáætlunum bandarískum, þarsem gert var ráð fyrir að So- vétmenn byrjuðu á að eyðfleggja hluta sinna flauga áður en hafist yrði handa vestanmegin. Þessar tilslakanir kveiktu þær vonir að utanríkisráðherrarnir mundu geta náð langt með að ganga frá samkomulagi á fundi sínum nú og tilkynntu jafnvel um nýjan leiðtogafund til undirritun- ar. Fyrsta fundardag í Washington herma heimildarmenn úr báðum herbúðum að ekki sé við slíku að búast, þarsem deilur hafi harðn- að mjög um hvort væntanlegt samkomulag eigi að ná til kjarna- oddanna í flaugarnar auk flauganna sjálfra. Það hafa Bandaríkjamenn ekki viljað fallast á og segja það aldrei hafa verið til umræðu, enda sé lítil ógn af kjarnaoddum án eldflauga, - og að auki sé eftir- lit með fjölda kjarnaodda tækni- lega ómögulegt. Sovétmenn segjast hinsvegar alltaf hafa verið að tala um kjarnaodda auk burðarflauganna og saka Bandaríkjamenn um að sýna aðeins yfirborðsvilja til samkomulags. -m Geislavirkur úgangur Geymsla undir Irlandshafi Bretar fyrirhuga geysilegar geymsluhvelfingar undir botni írlands- hafs. Göng frá Sellafield í Kumbríu Aætlanir um að grafa geysi- legar geymsluhvelfíngar fyrir úrgang frá breskum kjarnorku- verum undir botni írlandshafs hafa mætt háværri andstöðu í ír- landi. Bæði talsmenn ríkisstjórn- arinnar og stjórnarandstöðunnar hafa sameinast um að fordæma þessar hugmyndir, sem runnar Mið-Ameríku nefndin heldur félagsfund fimmtudaginn 17. sept- ember kl. 20.30 stundvíslega. Á dagskrá: Starfið framundan, útgáfa blaðs nefndarinnar, vinnulið og vinnuliðar til Nicaragua. Gestir velkomnir. Kaffi & veitingar. Fundarstaður: Mjölnisholt 14, 3. hæð. eru undan rifjum bresku stjórn- arinnar. Á síðustu árum hefur andstaða í írlandi magnast mjög gegn los- un geislavirks úrgangs frá Sella- field kjarnorkuverinu í Kumbríu á Bretlandi. En úrgangurinn frá verinu hefur mengað mjög sjóinn við austurstrendur írlands, og írska stjórnin hefur á alþjóða- vettvangi haft frumkvæði að því að berjast fyrir lokun versins. En auk úrgangs í vökvaformi er einnig verulegt magn af geisla- virkum úrgangi á föstu formi og breskum stjórnvöldum hefur reynst torvelt að finna geymslu- stað. Nú er hins vegar búið að leggja til af þeirra hálfu að gífur- legar geymsluhvelfingar verði grafnar undir botni írlandshafs, og tengdar með miklum göngum við Sellafield verið. Eftir þessum göngum verði svo úrganginum komið niður í hvelfingarnar. Mengunin frá Sellafield hefur valdið vaxandi spennu á milii breskra og írskra stjórnvalda og orkuráðherra íra hyggst í fram- haldi af hinum nýju tillögum hitta kollega sinn breskan, Cecil Park- inson, að máli í næstu viku og mótmæla harðlega. Grænfriðungar hafa sömu- leiðis sent frá sér harðorða mót- mælayfirlýsingu, en þess má geta að kafarar á þeirra vegum lokuðu í maí fyrir leiðslur á hafsbotni, sem voru notaðar til að losa geislavirkan úrgang frá Sellafield verinu til hafs. -ÖS Palme-morðið Innlendir öfgamenn? Sœnskur sendiherra segir getgátur um erlenda morðsveit útí hött Olof Palme var myrtur af sænskum öfgamönnum sem suðu saman um það fastmótaða áætlun eftir kosningarnar 1985. Þessu heldur fram Anders Ferm, sem senn lætur af störfum sem aðalfulltrúi Svía hjá Sameinuðu þjóðunum. Ferm, sem var náinn sam- starfsmaður Palme, segir í grein í kratablaðinu „Tiden“ í gær að Palme hafi orðið fórnarlamb sænskra öfgamanna. Vissir aðilar í Svíþjóð óttist mjög um að morð- gátan verði leyst, og sé það meðal annars ástæða þess að rannsókn málsins hefur einkum beinst að erlendum hryðjuverkahópum, segir Ferm. Samtök Kúrda hafa mjög kom- ið við sögu rannsóknarinnar á morði Palmes í febrúar í fyrra, og einnig hafa hryðjuverkamenn ír- anskir og íraskir legið undir grun auk útsendara frá Chile. Um tíma var í haldi sænskur ruglukollur úr alþjóðlegum samtökum hægri- öfgamanna. Ferm neitar í viðtali við „Aft- onbladet“ sænska í gær að gefa neitt upp um heimildir sínar eða sönnunargögn: „Það sem ég hef sagt, það hef ég sagt, ég vil ekki bæta neinu við.“ -m Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem heiöruðu mig og glöddu á90 áraafmælimínu. Vinátta ykkar er mér mikils virði. Guð blessi ykkuröll. Hjörleifur Sigurbergsson Baldursgötu 26 Mlðvlkudagur 16. september 1987 ÞJÓÐVILJINN ^ SÍÐA 11 J

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.