Þjóðviljinn - 30.09.1987, Side 3

Þjóðviljinn - 30.09.1987, Side 3
A Imannatryggingar Fullar verðbætur Bætur almannatrygginga hækka um næstu mánaðamót sem nemur fullum verðbótum, eða um 7.23%, samkvæmt ný- útgefínni reglugerð þar að lút- andi frá heilbrigðis- og trygging- aráðuneytinu. Eftir hækkunina verða einstak- ir bótaflokkar almannatrygginga sem hér segir: Ellilífeyrir einstaklinga 8.129 krónur, hjónalífeyrir 14.633 krónur, full tekjutrygging ein- staklinga 14.118 krónur, full tekj- utrygging fyrir hjón 28.236 krón- ur, fæðingarorlof 36.348 krónur og hæstu bætur einstaklings, sem nýtur heimilisuppbóta 30.347 krónur. Aðrir bótaflokkar hækka í samræmi við það sem nemur fullum verðbótum. grh FRETTIR Hafnarfjörður Eskifjörður Húsnæðisekla hroðaleg Tugir fjölskyldna íerfiðleikum. Sigurður T. Sigurðsson: Fjöldifjölskyldna tvístraðurum allarjarðir. Ástandiðtil háborinnar skammar. íhaldsmeirihluta síðasta kjörtímabils um að kenna Eg heid að hvergi á landinu sé eins mikil húsnæðisekla og í Hafnarfírði, sagði Sigurður T. Sigurðsson, formaður Verka- mannafélagsins Hlífar í Hafnar- firði. „Ástandið í bænum er í einu orði sagt hroðalegt. Persónulega er mér kunnugt um meira en 50 bráðatilfelli þar sem fjölskyldur eru tvístraðar út um allar jarðir vegna húsnæðisskorts. Auk þess er fjöldinn allur af fjölskyldum sem býr alltof þröngt. Pað er því afar brýn þörf á því að stórátak verði gert í félagslegum bygging- um í Hafnarfirði." Sigurður T. á sæti í stjórn verkamannabústaða í Hafnar- firði. Sagði hann að viðskilnaður íhaldsmeirihlutans hefði verið hroðalegur. Fyrir stjórn Verka- mannabústaða hefðu legið um- sóknir í tugatali og fólk hefði ver- ið orðið úrkula vonar um að fá nokkurntímann greitt úr málum sínum. „Þegar meirihluti A-flokkanna tók við átti svo að gera stórátak í þessum málum, en það er einsog við manninn mælt að þegar kverkatak íhaldsins í bæjarstjórn losnaði þá tóku við aðgerðir íhaldsins í ríkisstjórn. Ríkið tak- markar byggingu verkamanna- bústaða með því að byggingar- tíminn má ekki vera skemmri en 18 mánuðir. Lánveitingar voru því bremsaðar af.“ Sigurður sagði að margt hefði tafið úrlausn í þessu máli en þó ekkert einsog þeir sem stjórnuðu bænum í tíð fhaldsmeirihlutans. Á árunum 1965-1984 voru byggðar 9 íbúðir á þúsund íbúa í Lausráðnir af launaskrá Vinnslan að stöðvast vegna hráefnisskorts „Lausráðið fólk í hraðfrysti- húsinu hefur fengið tilkynningu um að það verði tekið af launa- skrá í lok vinnudags í dag vegna hráefnisskorts í vinnslunni“, segir Hrafnkell A. Jónsson, for- maður Verkalýðsfélagsins Ar- vakurs á Eskifirði. Ekkert hefur þokast í sam- komulagsátt í deilu sjómanna á togurunum Hólmanesi og Hólmatindi og liggja þeir enn bundnir við bryggju. Að vísu barst sjómönnum tilboð frá fisk- kaupendum fyrr í vikunni um 5% uppbót á allan afla frá 15. júní til dagsins í dag, en því höfnuðu þeir alfarið á fjölmennum fundi. Krafa sjómanna er að fá 15% uppbót á þorsk frá áramótum og 10% á allan annan fisk frá sama tíma. Svo virðist sem fiskkaupendur á Eskifirði með Alla ríka í broddi fylkingar ætli sér að egna fisk- vinnslufólk gegn sjómönnum þegar hráefnisskortur verður í hraðfrystihúsinu, og sjómönnum þá kennt um að enga vinnu sé að hafa. grh Ellert Ólafsson mundar nýja Macintoshbókina. Höfundurinn, Halldór Kristjánsson, til vinstri, en hægra megin Óskar B. Hauksson, höfundur bókarinnar IBM PC og samhæfðar tölvur. Útgáfumálin standa með blóma hjá Tölvufræðslunni, og nú er meiningin að gefa vinsælustu bækurnar út erlendis. Mynd. Sig. Tölvufrœðslan Herjað á heimsmarioðiim Nordisk Datautveckling, að meirihluta ííslenskri eign, gefur út tölvubœkur á Norðurlöndunum og víðar Tölvufræðslan hf. hefur ákveð- ið að stofna fyrirtæki sem hef- ur það að markmiði að gefa út tölvubækur á öllum Norðurlönd- unum, og ef vel gengur í Þýska- landi og víðar. Fyrirtækið mun nefnast Nordisk Datautveckling, og mun Töivufræðslan eiga meiri- hluta í fyrirtækinu. Aðrir íslensk- ir aðilar 30% og sænskir aðilar 10%. Tölvufræðslan hf. hefur ný- skeð gefið út þrjár bækur um tölvur og tölvunotkun; Macint- oshbókina, en ritstjóri hennar er Halldór Kristjánsson; Word Perfect (Orðsnilld), höfundur Matthías Magnússon, og IBM PC og samhæfðar tölvur, en þeirri bók ritstýrir Ólafur B. Hauksson, skólastjóri hjá Tölvufræðslunni. Að sögn Ellerts Ólafssonar, stofnanda Tölvufræðslunnar, hafa íslendingar náð ótrúlegu forskoti í tölvunotkun, enda hef- ur bókaútgáfa í greininni staðið með miklum blóma. „Við teljum að margar bókanna eigi erindi til annarra landa, og því verða hinar vinsælustu gefnar út erlendis," sagði hann. Þegar er ákveðið að Macint- oshbókin og IBM PC-bókin verði gefnar út í Svíþjóð á næsta ári. Aðalstöðvar hins nýja fyrirtækis verða á íslandi, bæði til að afla útflutningstekna og eins til að skapa atvinnu hér heima. Hlutur útlendra aðila að fyrirtækinu á fyrst og fremst að tryggja faglega ráðgjöf og markaðssetningu. „Við þekkjum ekki erlenda markaðinn, og því er hið eina rétta að leita til heimamanna og láta þá um markaðssetninguna," sagði Ellert. HS Fiskverð Atök í Verðlagsráði Óskar Vigfússon, forseti Sjómannasambandsins: Minnihlutinn ætlar að kúga meirihlutann. Frjálstfiskverð í hœttu. Dregur til tíðinda í Verðlagsráðií dag Akvörðun um hvort fiskverð verði áfram frjálst verður væntanlega tekin í Verðlagsráði sjávarútvegsins í dag, þegar það kemur saman klukkan 14. En mér sýnist allt stefna í það að minnihlutinn ætli sér að kúga meirihlutann og það verði ekki um það að ræða að fiskverð verði frjálst öllu lengur, segir Óskar Vigfússon, forseti Sjómanna- sambands íslands. Ef svo skyldi fara að Verð- lagsráð sjávarútvegsins kæmi sér ekki saman um fiskverð á fundi sínum á morgun, né næðist sam- komulag um frjálst fiskverð, verður fiskverðsmálinu vísað til Yfirnefndar verðlagsráðs sem tekur þá afstöðu til þess hvert lág- marksverð á fiski verður næsta verðlagstímabil. Um leið og mál- ið er komið til yfirnefndar er frjálst fiskverð úr sögunni í bili. „Við sjómenn teljum reynslu- tímann á frjálsa fiskverðið allt of skamman og vildum við að hann yrði að minnsta kosti í eitt ár. Á þessum stutta tíma sem hér hefur ríkt frjálst fiskverð hefur öll til- högun þess gengið framar öllum vonum. Menn bjuggust við miklu meiri taugatitringi en raun varð á meðal fiskkaupenda, sem allan sinn aldur hafa verið aldir upp við ákveðið lágmarksverð, en ekki þetta frjálsræði,“ sagði Óskar Vigfússon. Aðspurður hvort lágmarks- Hafnarfirði. Á sama tíma voru byggðar 26 íbúðir á þúsund íbúa í Reykjavík, um 17 á Akureyri og 10,4 í Kópavogi. Einsog fram kom í Þjóðviljan- um í gær var hlutdeild Reykja- ness á lánum frá Byggingarsjóði verkamanna á síðasta ári mjög lág, mun minni en Suðurlands, þó íbúafjöldinn sé miklu meiri. í ár er ráðgert að 26 nýjum íbúðum í verkamannabústaða- kerfinu verði lokið í Hafnarfirði. -Sáf verð á fiski byði ekki heim hætt- unni á alls kyns yfirborgunum á fiski eins og tíðkaðist áður en fiskverð var gefið frjálst, þar sem megnið af yfirborgununum rann óskipt til útgerðarinnar en ekki til sjómanna, sagði Óskar að það kæmi engum á óvart að sá skolla- leikur yrði aftur viðhafður milli kaupenda og útgerðar hafðir út- undan, eins og ótal dæmi eru um. grh Miðvikudagur 30. september 1987 ^JÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Barnapössun Nýjar leiðir Kvennréttindafélag íslands gengst fyrir umræðufundi um leiðir til lausnar á dagheimilis- málum. í fréttatilkynningu fél- agsins segir að undanfarið hafi ýmsir vakið máls á nýjum leiðum til lausnar dagheimilisvandanum, s.s. einkavæðingu, foreldrarekin dagheimili og að atvinnurekend- ur og starfsmannafélög tækju að sér dagheimilsrekstur. Meðal frummælenda sem reifa hinar nýju leiðir verða ýmsir þeir sem vakið hafa máls á nýjum leiðum til lausnar dagvistarvand- anum. En frummælendur verða þau Ásmundur Stefánsson, for- seti ASÍ, Inga Jóna Þórðardótt- ur, formaður fjölskyldunefndar ríkisstjórnarinnar, Kristín Á. Ól- afsdóttir, borgarfulltrúi, Sigurð- ur Snævarr, formaður Félags bankamanna og Víglundur Þor- steinsson, formaður Félags ís- lenskra iðnrekenda. Fundurinn verður á laugardag- inn 3. október n.k. og hefst hann kl. 11 fyrir hádegi. Fundarstaður er Holliday Inn og er fundurinn öllum opinn. -rk Alþýðubandalagið Fyrstu fulltrúamir ÆFR lokið vali á landsfund Æskulýðsfylkingin í Reykjavík varð fyrst til að velja fulltrúa á landsfund Alþýðubandalagsins í nóvemberbyrjun, en undirbún- ingur fulltrúakjörs er víðast haf- inn og ættu nöfn landsfundar- manna að liggja fyrir um miðjan október. Aðalfulltrúar ÆFR eru Anna Hildur Hildibrandsdóttir, Arnar Guðmundsson, Árni Páll Árna- son, Ásdís Þórhallsdóttir, Dýrleif Dögg Bjarnadóttir, Gerður Gestsdóttir, Guðmundur Auð- unsson, Gísli Þór Guðmundsson, Guðrún Ómarsdóttir, Hrannar Björn Arnarson, Kristinn H. Einarsson, Ólöf Óladóttir og Runólfur Ágústsson. Varamenn eru Óli Darri And- résson, Hrafn Jökulsson, Helgi Hjörvar. Einar Gunnlaugsson, Óíafur Ólafsson, Ása Björk Stef- ánsdóttir, Bima Bragadóttir, Jó- hannes Jónsson. Guðmundur Guðlaugsson og Ólafur Páll Guð- mundsson. -m

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.