Þjóðviljinn - 30.09.1987, Blaðsíða 8
MENNING
s
Operan
Til heiðurs Kristjáni
kvikmyndasýning í kvöld
í tilefni glæsilegs árangurs
Kristjáns Jóhannssonar, óp-
erusöngvara efnir íslenska
óperan til sérstakrar kvik-
myndasýningar á óperunni
„Hollendingurinn fljúgandi",
eftir Richard Wagner í ís-
lensku óperunni, í kvöld kl.
21:00.
Wagner leit á sjálfan sig frá
upphafi sem skáld fyrst og
fremst, en hann ákvað snemma
að taka tónlistina í þjónustu bók-
menntalegra hugmynda sinna og
aflaði sér í því skyni staðgóðrar
tónlistarmenntunar að mestu
með sjálfsnámi. Takmark hans,
var það sem hann nefndi „das
Gesamtkunstwek", dramatískt
listform, þar sem bókmenntir,
tónlist, hreyfi- og skreytilist áttu
að sameinast og þjóna einum til-
gangi.
Hollendingurinn fljúgandi er
meðal þekktustu ópera Wagners
og var frumflutt í Dresden árið
1843. Sagan er átakamikil og
greinir frá manni sem hefur með
yfirnáttúrulegum hætti hlotið
þann örlagadóm að sigla um
heimshöfin uns hann hljóti end-
urlausn, vegna ástar konu. Sögu-
sviðið er norskt og sagan látin
gerast á 18. öld. Myndin sem
sýnd verður í íslensku óperunni
er Studioupptaka með lista-
mönnum frá ríkisóperunni í
Múnchen. Myndin tekur um tvo
tíma í flutningi. Miðasala er við
innganginn en einnig í síma 27033
frá kl. 9-17.
Tímarit
MM
komið út
Tímarit Máls og menningar
er nýkomiö út. Yfir 20 höfund-
ar leggja aö þessu sinni fjöl-
skrúðugt efni til tímaritsins.
Þar eru tvö Ijóð eftir Stefán
Hörð Grímsson og aðrir sem
eiga Ijóð eru Anton Helgi
Jónsson, Stefán Sigurkarls-
son, RagnaSigurðardóttir,
Sjón, Magnús Skúlason, Frið-
rik Guðna og Sigrún Björnsd.,
auktveggja sonnetta eftir
Kristján Arnason. Berglind
Gunnarsdóttir skrifar hugl-
eiðingartil varnarskáld-
skapnum sem hún nefnir „Er
Ijóðið glataður tími?“
Þá skrifar Tryggvi Emilsson
um Vídalínspostillu, höfund
hennar og húslestrarhefðina og
Gunnar Harðarson ritar grein
„Enn um íslendingabók“, þar-
sem hann hafnar þeirri skoðun
fræðimanna að gera þurfi ráð
fyrir tveimur gerðum íslendinga-
bókar.
í tveimur greinum er fjallað
um ísl. rithöfunda. „Að eignast
líf“ er yfirskrift umfjöllunar Árna
Ibsen um Birgi Sigurðsson og
verk hans og Astráður Eysteins-
son gerir sögum Thors Vilhjálms-
sonar skil undir heitinu „Er ekki
nóg að lífið sé flókið?“ Jón
Proppé fjallar um ýmis einkenni
tragedíunnar og tekur dæmi af
verkum frá ólíkum tímum. Þór-
hildur Ólafsdóttir skrifar um fra-
nskar bókmenntir, þar sem hún
rekur þróun skáldsögunnar í Fra-
kklandi 1880-1960, og jafnframt
birtist þýðing hennar á smásögu-
nni Ariene, eftir J. M. C. Le
Clézíó. Tvær aðrar smásögur eru
í heftinu; Steinunn Sigurðardótt-
ir á smásögu sem heitir: Kona og
Kind og Sigurður A. Magnússon
hefur þýtt sögu suður-afríska rit-
höfundarins Alan Platon, Eyði-
landið.
(Fréttatilkynning.) Kristján Jóhannsson, óperusöngvari og kona hans Sigurjóna Sverrisdóttir, leikari.
Líf
mitt
sem
söng-
kona
- Elízabet Söderström
Elízabet Söderström, hin
heimsfræga sænska söng-
kona, mun tala um líf sitt og
list í Norræna húsinu í kvöld.
Hún er stödd hér á landi, tilað
syngja með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands á fyrstu tón-
leikum vetrarins á fimmtúdag.
Elizabet mun þó ekki syngja í
Norræna húsinu, heldur
spjalla um líf sitt sem söng-
kona.
Hún fæddist í Stokkhólmi árið
1929 og ætlaði sér í fyrstu að
verða leikkona en sneri sér að
söngnámi og náði þegar frábær-
um árangri. Áðuren hún lauk
námi hafði hún sungið hlutverk í
Konunglega leikhúsinu, sem réði
hana til starfa árið 1950. Níu
árum seinna söng hún í Metro-
politanóperunni og síðan hefur
frægðarferill hennar verið óslit-
inn.
Elízabet Söderström sendi frá
sér minningabókina „I min ton-
art“ árið 1978 og þar kom í ljós að
henni lætur ekki síður að tjá sig í
orðum en söng en áheyrendur
geta komist að raun um það sjálf-
ir á miðvikudagskvöldið. Hún
talar auðvitað á sænsku og hefst
dagskráin kl. 20:30. Áðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
(Fréttatilkynning.)
Eg dansa við
Vinsælastadanssýning ís-
lenska dansflokksins frá upp-
hafi, „Égdansavið þig....“
kemur aftur á fjalir Þjóðleik-
hússins, í kvöld. Aðeins verða
6 sýningar á þessu rómaða
verki vegna anna gestaleik
dansarannaerlendis. Sýning-
in þótti fjörug, eggjandi og
fyndin er hún var sýnd um 20
sinnum sl. vor. Þetta er
danssýning sem kemuröllum
í gott skap og vekur Ijúfar
endurminningar hjá mörgum
sem kannast við tónlistina.
Sýningin samanstendur af 22
mismunandi dansatriðum við
tónlist sem byggir á 46 vin-
sælum dægurlögum í nýrri út-
setningu.
Egill Ólafsson leikur undir á
píanó, syngur og segir frá ásamt
Jóhönnu Linnet, söngvara, en
annar hljóðfæraleikur er fluttur
af segulbandi frá upprunalegu
sýningunni í Þýskalandi.
Sveinbjörg Alexanders stjórnaði
æfingum á dansinum sl. leikár,
ásamt höfundinum Jochen Ul-
rich, en Ásdís Magnúsdóttir að-
stoðarmaður þeirra hefur æft upp
sýninguna að nýju með íslenska
danslokknum.
Það er íslenski dansflokkurinn
ásamt gestadönsurum, sem ber
hitann og þungann af sýningunni.
Hver dansari fær að njóta sín í
sérstökum atriðum auk glæsi-
legra hópatriða. Gestadansarar
eru tveir aðalkarldansarar Köln-
aróperunnar, Athol Framer,
Nýja-Sjálandi og Philip Talard,
Frakklandi. Sex íslenskir karl-
dansarar koma einnig til liðs við
íslenska dansflokkinn. Listdans-
stjórinn, Jochen Ulrich, er bæði
höfundur dansa, leikmynda og
búninga en Ásmundur Karlsson
lýsir sýninguna.
Dansarar í Ég dansa við þig...
eru: Ásta Henriksdóttir, Birgitte
Heide, Guðmunda Jóhannesdótt-
þig..».
ir, Guðrún Pálsdóttir, Helena Jó-
hannsdóttir, Helga Bernhard,
Katrín Hall, Lára Stefánsdóttir,
Ólafía Bjarnleifsdóttir, Sigrún
Guðmundsdóttir, Athol Farmer,
Philippe Talard, Björgvin Frið-
riksson, Ellert A. Ingimundar-
son, Ingólfur Stefánsson, Mart-
einn Tryggvason, Sigurður
Gunnarsson, Örn Guðmundsson
og Örn Valdimarsson.
íslenski dansflokkurinn hlaut
Menningarverðlaun DV fyrir list
sína síðastliðið leikár. Nú hefur
nýr listdansstjóri, Hlíf Svavars-
dóttir, verið ráðinn í stað Nönnu
Ólafsdóttur. Auk sex sýninga á
Ég dansa við þig... verður frum-
sýnd listdanssýning í nóvember
og í febrúar og er febrúarsýningin
á aðgangskortum.
Sýningarnar sex á Ég dansa við
þig... verða: Miðvikudag 30.
september, föstudag 2. okt., su.
4. okt., þri. 6. okt., fi. 8. okt. og
lau. 10. okt. Miðasala er þegar
hafin á allar sýningarnar.
8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvfkudagur 30. september 1987