Þjóðviljinn - 30.09.1987, Qupperneq 10
ERLENDAR FRÉTTIR
Heims um ból
Allir verði læsir árið 2000
Fjórði hverjarðarbúi er ólœs og óskrifandi. Fyrirmenn Menningarmálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna hyggjastfá ríkisstjórnir til liðs við sig og ráða bót á fyrir aldamót
Pað myndi kosta svipaða upp-
hæð að útrýma ólæsi úr
heiminum og rennur til vopna-
framleiðslu á fjórum mánuðum.
Helsti sérfræðingur Menning-
armálastofnunar Sameinuðu
þjóðanna (UNESCO) um skipu-
lagningu lestrarherferða, Arthur
nokkur Gillette, viðurkennir að
þetta sé aðeins talnaleikur en
engu að síður færi þetta mönnum
heim sanninn um að aðeins eitt
stendur í vegi fyrir því að hvert
cinasta mannsbarn njóti lág-
marksupplýsingar; viljaskortur
ráðamanna.
889 miljónir ólæsra
Þótt míkið hafi áunnist í
menntamálum á umliðnum
árum, einkum í Asíu og Afríku,
er það engu að síður staðreynd að
fjórði hver jarðarbúi kann hvorki
að lesa né skrifa. Samkvæmt upp-
lýsingum frá UNESCO eru 889
miljónir af 3,2 miljörðum jarðar-
búa ólæsir.
Ólæsi er mest í hinum svo-
nefnda þriðja heimi. í Afríku
kunna 54 af hundraði íbúa ekki
að lesa, 36,6 af hundraði í Asíu og
17,3 af hundraði í Rómönsku
Ameríku. f sex löndum heims
þjakar þessi vankunnátta 80-95
hundraðshluta íbúa. Þetta eru
Nígería, Chad, Mið-
Afríkulýðveldið, Guinea Bissau,
Haiti og Norður-Jemen.
„Jafnvel þótt það kosti ekki
nema 200 dali að kenna sérhverj-
um íbúa þessara landa lestur og
skrift ef það fé væri til reiðu þá er
aðalvandamálið eftir: skortur á
kennurum," segir Gillette.
Þótt stjórnvöld á Indlandi og í
Kína hafi kostað kapps um að út-
rýma ólæsi úr löndum sínum með
ærnu erfiði og miklum tilkostnaði
þá býr enn um helmingur allra
ólæsra í þessum tveim fjölmennu
ríkjum. I sex ríkjum Asíu eru ó-
stautfærir yfir helmingur lands-
manna. 76,3 af hundraði inn-
byggjara Afganistans kunna
hvorki að lesa né draga til stafs,
74,4hundraðshlutaríNepal, 70,4
af hundraði í Pakistan, 66,9
hundraðshlutar í Bangladesh,
56.5 af hundraði á Indlandi og
54.5 hundraðshlutar í Papúa
Nýju-Guineu.
Um helmingur 50 miljóna íbúa
Kúbanir eru til stökustu fyrirmyndar hvað viðvíkur alþýðumenntun.
Egyptalands er ólæs samkvæmt
tölum UNESCOs en heimilda-
menn í menntamálaráðuneytinu í
Kaíro segja að nær lagi sé að tala
um 70 prósent ólæsi í landinu.
Mikið hefur áunnist
En víðsvegar um byggð bói
hefur náðst glæsilegur árangur í
baráttunni fyrir lágmarks-
menntun og kveikir það vonir um
að metnaðarfull áform aðalritara
UNESCOs, Amadou-Mahtar
MÉows, geti orðið að veruleika
en hann stefnir að því að allir
jarðarbúar verði læsir og skrif-
andi um aldamót.
Þann 8. þessa mánaðar var
haldinn hátíðlegur „alþjóðlegur
lestrardagur" í höfuðstöðvum
UNESCOs í París. í þeim
mannfagnaði hélt MÉow ræðu og
kvað forráðamenn stofnunarinn-
ar hafa í hyggju að auka mjög
þrýsting á ráðamenn landa og
héraðsstjórnir að veita fé til
menntamála. UNESCO bjóðist
til að hafa veg og vanda af allri
Sjúkrahús
á Seyðisfirði
Tilboö óskast í innanhússfrágang í rýmum er til-
heyra eldhúsi og þvottahúsi í nýbyggingu sjúkra-
húss á Seyðisfirði.
Byggingarhlutinn er um 310 m2 og er nú tilbúinn
undir tréverk með uppsettum loftræstistokkum.
Innifalið sé allt til að skila húshlutanum fullgerðium,
þar með talið loftræstitæki.
Verkinu skal vera lokið 30. apríl 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík og á bæjarskrifstofunni á
Seyðisfirði gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
fimmtudaginn 15. október 1987 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartuni 7. simí 26844
skipulagningu lestrarherferða og
samræmingu aðgerða á málsvæð-
um.
„Við munum beita okkur fyrir
því að árið 1990 verði helgað bar-
áttunni gegn ólæsi og hyggjumst
uppskera ríkulega árangur erfiðis
vors því árið 2000 á ekki að vera
einn einasti fullorðinn einstak-
lingur í þessum heimi sem ekki
kann að lesa og skrifa."
Sem fyrr er getið er ólæsi enn
mikið vandamál í Kína. Um 200
miljónir manna kunna ekki að
lesa. Engu að síður hafa orðið þar
miklar framfarir á þessu sviði frá
því eftir byltingu. í febrúar síð-
astliðnum birtist grein í „Peking
Review" þar sem staðhæft er að
80 af hverjum 100 landsmönnum
hafi verið fákunnanadi í lestri og
skrift fyrir 37 árum en nú séu
ólæsir aðeins 20 af hundraði og
þeim fari ört fækkandi.
f Afríku hefur mikill árangur
náðst í þrem löndum. í Eþíópíu
voru 93 af hundraði íbúa ólæsir
árið 1974 þegar Haile Selassie var
steypt af stóli. Nú er talið að um
66 prósent landsmanna séu læsir
og skrifandi. Tanzanía er fátækt
land og þar eru meðaltekjur
manna um 9 þúsund krónur á ári.
Þar hafa orðið miklar framfarir í
baráttunni gegn ólæsi á síð-
astliðnum 16 árum. Árið 1970
voru 69 af hundraði landsmanna
vankunnandi í þeim efnum en nú
eru ólæsir aðeins 10 af hundraði
þjóðarinnar.
í Zimbabwe hefur hálf miljón
manna lært lestur og skrift frá því
herferð fór í gang árið 1983. Það
ár kunnu 31,6 af hundraði ekki að
lesa en sú tala hefur lækkað niður
í 26.
„Ég er 24 ára gömul og er nú
fyrst að læra að lesa. Ég hlakka
mikið til þess að geta lesið og
skrifað.“ Þannig farast Violu
Ndavangei orð en hún er í hópi 14
kvenna sem leggja stund á nám í
kvöldskóla í sveitaþorpinu Mar-
ondera í Zimbabwe. Konur eru í
miklu meirihluta á námskeiðinu
og leggja mikið kapp á námið
þótt þær séu oft úrvinda á kvöldin
eftir daglangt strit á ökrum og
heimilum.
Naison Mpofu vinnur við skip-
uiagningu lestrarherferða í
landinu. „Það gekk oft illa að
sannfæra eldra fólk um gildi þess
að geta lesið sér að gagni, einkum
voru karlmenn á miðjum aldri og
eldri tregir. Þeir báru því gjarna
við að þeir væru orðnir of gaml-
ir.“
Mahfuz Anam er upplýsingar-
fulltrúi Asíudeildar UNESCO í
Bankok í Thailandi. „ Þegar allt
kemur til alls er útrýming ólæsis
háð pólitískum vilja ráðamanna í
hverju ríki. Hvort þeir gera sér
grein fyrir því að það verða engar
framfarir í löndum þeirra nema
almenningur búi yfir lágmarks
þekkingu og hæfni.“ Hann kvað
ýmsar ríkisstjórnir bera því við að
þær hefðu ekki efni á því að
kenna þegnum sínum lestur og
skrift. „Við svörum þeim um hæl
með því að fullyrða að lönd
þeirra séu það fátæk að þau hafi
ekki efni á því að láta hjá líða að
mennta alþýðu manna.“
Hann bætir við: „Margir
stjórnmálamanna telja mun
brýnna að reisa brýr og leggja
vegi en mennta fólk enda sj áist þá
árangurinn strax. Árangur lestr-
arherferðar kemur ekki í ljós fyrr
en að lengri tíma liðnum. En
menn mega ekki vera skamm-
sýnir í þessum efnum.“
Ráðamenn Thailands unnu ný-
verið sérstök verðlaun UNESCO
fyrir góðan árangur í
menntamálum. Árið 1970 kunnu
79 af hundraði þjóðarinnar að
lesa og skrifa en nú er hlutfallið
91 prósent. Á þessum árum voru
um miljón sjálfboðaliðar fengnir
til kennslustarfa og 900 þúsund
manns lærðu lestur.
Kúbanir til
fyrirmyndar
í Rómönsku Ameríku er ólæsi
minnst á Kúbu. Þar eru aðeins
1,9 af hundraði þjóðarinnar fá-
kunnandi í þeim efnum. Gífur-
legar framfarir urðu þar á fyrstu
árum eftir byltingu þegar 200
þúsund sjálfboðaliðar vítt og
breitt um landið kenndu alþýðu
manna lestur og skrift.
Vandamál þetta þjakar ekki
einvörðungu fátækar þjóðir
heims. Voldugasta þjóð veraldar
fer ekki varhluta af vandanum.
Talið er að 7 miljónir Banda-
ríkjamanna séu gersamlega ólæs-
ir og óskrifandi og 22 miljónir
kunni nógu mikið til að geta pár-
að nafn sitt en ekki meir. Þeir eru
sagðir „ólæsir í raun“ því al-
mennar upplýsingar í rituðu máli
koma þeim ekki að notum.
-ks.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN
Félagsfundur
Rafvirkjar - rafvélavirkjar
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 1.
október kl. 18 í Félagsmiðstöðinni Háaleitisbraut
68.
Fundarefni:
1. Kjaramálin.
2. Val fulltrúa á 9. þing R.S.Í.
3. önnur mál.