Þjóðviljinn - 30.09.1987, Blaðsíða 11
iÖRFRETTIRi
Heimsmeistarinn
í skák, hann Garrí okkar Kaspa-
rof, hefur valið sér tvo aðstoðar-
menn fyrir einvígið við erkifjand-
ann Karpof sem hefst í Sevilla á
Spáni þann tíunda október
næstkomandi. hað varfyrrum tit-
ilhafi, Míkael Tal að nafni, sem
boðaði þau tíðindi að stór-
meistararnir Sergei Dolmatof og
Zarub Azmaþarayshvili yrðu
Garrí innan handar við rannsókn-
ir biðskáka og byrjanaafbrigða á
meðan á glímunni um krúnuna
stæði.
Frelsistígrar
tamíla á Sri Lanka hafa fallist á að
virða friðarsamning þann er leið-
togar í Nýju-Delhi og Kólombó
gerðu eigi alls fyrir löngu. Tígr-
amir hafa gert kepþinautum út
röðum tamíla lífið leitt að undan-
förnu og krafist þess að fá meiri-
hluta sæta í bráðabirgðastjórn
norðurhéraða landsins þar sem
þjóðarbrotið er í miklum meiri-
hluta íbúa. Fyrir milligöngu Ind-
verja var orðið við þeirri kröfu
þeirra og munu því 7 Tígrar fá
sæti í tólf manna bráðabirgöa-
stjórninni.
48 ára gömul
kona í Suður-Afríku mun vera í
það mund að ala sín eigin barna-
börn. Pat Anthony sá aumur á
dóttur sinni sem aðeins hefur
getað eignast eitt barn þar eð
fósturlegið var fjarlægt úr henni
fyrir þrem árum. Hún féllst því á
að ala henni nokkur börn og sér
fáein barnabörn. Eggfruma var
tekinn úr dótturinni og sæði sogið
úr tengdasyninum sem frjóvgaði
hana. Öllu var þvínæst komið
fyrir í kviði mömmu/tengda-
mömmu/ömmu. Læknar segja
Pat hafa þríbura í maganum sem
er nokkuð mikið af því góða fyrir
konu er ætti að vera komin úr
barneign, enda liggur hún rúm-
föst. Þetta mun vera eina dæmi
um það í heiminum að kona ali
barnabörn í stað barna.
Austurþýskir
landamæraverðir munu hafa
fengið fyrirskipun frá ráða-
mönnum um að hætta að skjóta á
fólk sem reynir að flýja yfir til
Vestur-Þýskalands, að minnsta
kosti um stundarsakir. Upplýs-
ingar þessar bar hið íhaldssama
dagblað „Die Welt“ fyrir lesendur
sína í gær og hafði eftir liðhlaupa
úr austurþýska hernum sem
stakk af til sambandslýðveldisins
fyrir skömmu.
ERLENDAR FRETTIR
Sovétríkin
Gorbatsjof í fínu fonni
Sjálfsöryggið uppmálað fullyrðir leiðtoginn að and-
staða gegn sér og stefnu sinni sé ekki fyrir hendi
Eftir sex vikna fjarveru frá
heimsins glaumi steig Míkael
Gorbatsjof fram á sjónarsviðið í
gær og fullyrti meðal annars að í
Sovétríkjunum væri engin pólit-
ísk andstaða gegn leiðsögn sinni.
Hörundsbrúnn, grannholda og
elegant ræddi aðalritarinn lengi
dags í gær við fulltrúa franskrar
sendinefndar sem skipuð var
ýmsum þekktum broddum þar-
lendum, þar á meðal fyrrum for-
sætisráðherra sósíalistastj órnar-
innar, Pierre Mauroy.
Franskir blaðamenn voru við-
staddir fundinn og heyrðu Gor-
batsjof segja: „Það fyrirfinnst
engin stjórnarandstaða í Sovét-
ríkjunum. Enginn setur sig upp á
móti leiðsögn Gorbatsjofs."
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að á Vesturlöndum gengu
ýmsar draugasögur um orsakir
langrar fjarveru aðalritarans.
Menn veltu sér uppúr bollalegg-
ingum um að Gorbatsjof væri al-
varlega veikur, slasaður eftir
banatilræði ellegar hann sætti svo
mikilli andspyrnu kollega sinna í
æðstu stjórn að hann hafi farið í
felur. Sem betur fer reyndist ekki
flugufótur fyrir kviksögum þess-
um.
Leiðtoginn sagðist hafa tekið
sér gott og verðskuldað frí. Tím-
ann hefði hann ekki eingöngu
notað til þess að liggja á meltunni
heldur hefði hann á þessum tíma
lokið við bók og lagt drög að
mikilvægri ræðu.
„Ýmsir hafa verið að velta
vöngum yfir lengd sumarfrís
míns,“ sagði Gorbatsjof og brosti
glettnislega, „en ég hafði unnið
til þess. Ég var fjarverandi ná-
kvæmlega í mánuð, frá 24. ágúst
til 24. september.
Að sögn Frakkanna minntist
Gorbatsjof ekki aukateknu orði á
væntanlegan fund sinn og Ron-
aids Reagans Bandaríkjaforseta
sem ráðgert er að eigi sér stað í
Washington í nóvemberlok. Þar
munu þeir undirrita samning
þann um eyðingu allra meðal-
drægra kjarnflauga úr heiminum
er utanríkisráðherrarnir Shultz
og Shevardnadze bönguðu sam-
an fyrir skemmstu.
Hins vegar sögðu þeir að hann
hefði verið mjög öruggur í fasi og
bersýnilega í baráttuskapi því
hann jós úr skálum reiði sinnar
yfir blaðamennina og sagði
franska fjölmiðla kosta kapps um
að bera út óhróður og rægja So-
vétríkin.
-ks.
Leiðtoginn. Lifandi, heilbrigður, ríkjandi, brúnn, öruggur, baráttuglaöur, grann-
holda og elegant.
Ping breska Verkamannaflokksins
Kinnock boðar breytingar
Formaðurinn flutti klukkutíma langa rœðu ígœr, boðaði stefnubreytingu íýmsum
málaflokkum en nefndi engin dœmi
Neil Kinnock, formaður breska
Verkamannaflokksins, flutti
skörulega ræðu í gær á öðrum
degi landsfundar flokksins í Brig-
hton. Hann skoraði á alla sósíal-
ista að íhuga og draga lærdóm af
ósigrum flokksins í þrem síðustu
þingkosningum.
Kinnock sór og sárt við lagði að
ýms umdeild stefnumál Verka-
mannaflokksins í síðasta þing-
kjöri yrðu tekin til rækilegrar
endurskoðunar. Hann nefndi fá
dæmi máli sínu til stuðnings og lét
hjá liggja að benda á leiðir til
lausnar. Viðbrögð landsfundar-
fulltrúa við ræðunni kváðu hafa
verið blendin.
Kinnock sagði að félagar
flokksins yrðu að horfast í augu
við þá staðreynd að breytingar
hefðu átt sér stað á Bretlandi,
velmegun stórs hluta þjóðarinnar
hefði aukist í valdatíð Margrétar
Thatchers, og flokksmenn yrðu
að laga baráttuaðferðir sínar að
nýjum háttum. <Einkum yrði að
kveða í kútinn þá meinloku
margra félaga að „velmegun og
sósíalismi" væru einhverjar
grundvallar móthverfur.
Formaðurinn veittist að Thatc-
her og sakaði hana um hálfvelgju
í afstöðunni til nýlegs bráða-
birgðasamnings risaveldanna um
útrýmingu allra meðaldrægra
kjarnflauga. Ennfremur skamm-
aði hann járnfrúna vegna áforma
hennar um að selja einkaaðilum
mikinn fjöida ríkisfyrirtækja og
gerði því skóna að þau gætu hæg-
lega lent í höndum erlendra
auðkýfinga.
-ks.
Perú
Þjóðnýting lögfest
Þjóðþing Perúmanna hefurgert tilskipun Garcias forseta um
þjóðnýtingu banka, fjárfestingastofnana og tryggingarfélaga
að lögum
Mú getur Alan Garcia, forseti
Perú, óhindrað lagt hendur á
einkabanka í Perú því i gær sam-
þykkti löggjafarsamkunda lands-
ins frumvarp um þjóðnýtingu
þeirra.
Öldungadeild þingsins hafði
barið saman frumvarpið og á-
kváðu fulltrúardeildarþingmenn
að samþykkja það breytingalaust
eftir háværar umræður í tólf
klukkustundir. Plaggið var um-
svifalaust sent forsetanum en
undirritun hans gerir það að
lögum.
Vart hefur verið um annað rætt
í Perú um tveggja mánaða skeið
en þá ákvörðun forsetans að láta
ríkið yfirtaka rekstur 10 einka-
banka og 23 fjárfestingarsjóða og
tryggingarfélaga. Það tók öld-
ungadeildina mánuð að semja
frumvarp um þjóðnýtinguna
enda var rætt fram og til baka um
hverja einustu málsgrein.
Tilgangur Garcias er að rífa
stjórn voldugustu banka landsins
úr höndum fáeinna vellauðugra
fjölskyldna og „gera lánamálin
lýðræðisleg" svo notuð séu hans
óbreytt orð. Einsog gefur auga
leið hafa hægrimenn vart getað
haldið vatni né vindi af bræði yfir
þessari ósvinnu forsetans.
Hrundið var af stað herferð í
því augnamiði að bregða fæti
fyrir áform Garcias og var ekki
ómerkari maður en rithöfundur-
inn prýðilegi, Mario Vargas
Llosa, bundinn fyrir þá kerru.
Hann stendur á því fastar en fót-
unum að þjóðnýtingin ógni ný-
bornu lýðræði í Perú sem ekki sé
burðugt fyrir eftir ógnarstjórn
herforingja um tólf ára skeið.
Yfirmaður sambands banka-
eigenda hefur ekki margt gott að
segja um þjóðnýtinguna, sem
vonlegt er, og auk þess sakar
hann ríkisstjómina um að gera
upp á milli erlendra og innlendra
bankabraskara. Hann fullyrðir
að útibú útlendra einkabanka fái
eftir sem áður að starfa í Perú
þegar ríkið hefur yfirtekið inn-
lendu lánastofnanimar.
Samkvæmt ákvæðum laganna
munu 30 prósent hlutabréfa
bankanna áfram verða í einka-
eigu en engin ein fjölskylda má
eiga meira en 14 þúsund banda-
ríkjadala hlut í hverjum og ein-
um- -ks.
Miðvikudagur 30. september 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa
Sveins V. Ólafssonar
hljóðfæraleikara
Sigtúni 29
Sérstakar þakkir til starfsliðs deildar 3B á Landakptsspítala,
til Félags ísl. hljómlistarmanna og til félaganna í Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Hanna Sigurbjörnsdóttir
Ólafur Sveinsson Ingibjörg Jónsdóttir
Arnór Sveinsson Hraf nhildur Rodgers
Sigurbjörn Sveinsson Elín Ásta Hallgrímsson
barnabörnin
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur
hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu
Katrínar Sigurðardóttur
Höfðagötu 2
Hólmavík
Magnús Þ. Jóhannsson
börn, tengdabörn og barnabörn