Þjóðviljinn - 30.09.1987, Síða 13
KALLI OG KOBBI
Pakkarávarp
Kæra þökk til allra fyrir gjafir, hlýhug og heillaskeyti á
afmælisdaginn minn 24. september sl.
Haraldur S. Norðdahl
Esperantosambandið
Alþjóðamálið kynnt í skólum
Á áttunda landsþingi íslenska
esperantosambandsins er var
haldið á Hótel Sögu fyrr í þessum
mánuði flutti gestur þingsins,
breski málfræðingurinn dr. John
C. Wells, erindi á esperanto um
hundrað ára afmæli alþjóðamáls-
ins. Hann er einn kunnasti espe-
rantofræðingur á okkar dögum,
og utan esperantohreyfingarinn-
ar þekktur fyrir rannsóknir sínar
á enskum framburði og rit um
þau efni. Á næsta ári er væntan-
leg eftir hann ensk framburðar-
orðabók þar sem sýndur er fram-
burður 60-70 þús. orða í ensku.
Að loknu þinginu flutti hann er-
indi í boði Heimspekideildar Há-
skólans, mánudaginn7. þ.m., um
ókosti enskrar tungu sem al-
þjóðamáls.
í erindi sínu á landsþingi ræddi
dr. John C. Wells um árangur,
sigra og ósigra esperanto-
hreyfingarnnar, og benti meðal
annars á að við rannsóknir á
tungumálum til að nota við tölvu-
þýðingar úr einu máli á annað
hefur esperanto reynst heppi-
legast mála sökum þess hve það
er reglulegt og rökrétt. En hann
kom á þingið beint af alþjóðlegri
ráðstefnu tölvufræðinga í Edin-
borg, þar sem þetta kom fram.
Þá flutti Árni Böðvarsson stutt
erindi um tungumálamisrétti og
minnti meðal annars á þá al-
kunnu staðreynd að tveir aðilar
við samningaborð eða í kapp-
ræðum njóta ekki sama réttar ef
annar fær að nota móðurmál sitt
en hinn verður að tala útlent mál.
Einnig var sagt frá alþjóða-
þingi esperantista sem haldið var
í Varsjá í Póllandi nú í sumar, en
þátttakendur þar voru um 6000
hvaðanæva úr heiminum, í fyrsta
skipti allmargir frá Afríku. Loks
var sitt hvað til skemmtunar á
landsþinginu, meðal annars
fluttu nokkrir ungir esperantistar
leikþátt.
Á þinginu fóru einnig fram að-
alfundarstörf, rætt um námskeið,
bókaútgáfu og annað í starfsemi
íslenska esperantosambandsins
næstu tvö árin. Formaður sam-
bandins til næstu tveggja ára var
kjörinn Hallgrímur Sæmunds-
son, en aðrir í stjórn eru Árni
Böðvarsson ritari, Jón Bragi
Björgvinsson gjaldkeri, Jón Haf-
steinn Jónsson, Loftur Melberg,
Steinunn Sigurðardóttir og Þór-
arinn Magnússon.
Loks var samþykkt svofelld á-
lyktun og henni beint til mennta-
málaráðuneytisins:
Áttunda landsþing íslenska
esperantosambandsins vekur at-
hygli menntamálaráðuneytisins á
því að í ár eru hundrað ár liðin frá
birtingu alþjóðamálsins esper-
anto. Af því tilefni mælist lands-
þingið til þess við ráðuneytið að
það taki til íhugunar möguleika á
því að kynna alþjóðamálið eftir
föngum í skólum, og verði slík
kynning fastur þáttur í kennslu á
skyldunámsstigi.
íslenska esperantosambandið
er reiðubúið til samvinnu um
slíka kynningu, til dæmis með
gerð kynningarnámsefnis sem
gæti tengst samfélagsfræði.
Rétt mun vera að taka fram að
öll fundarstörf, umræður og fyrir-
lestrar fóru fram á esperanto.
Um þessar mundir eru að hefj-
ast nokkur námskeið í málinu,
bæði fyrir byrjendur og fram-
haldsnemendur, og má fá upplýs-
ingar um þau hjá stjórnar-
mönnum sambandsins.
FRÁ LESENDUM
Flugan á lærinu
í kvikmyndaumfjöllun nýverið
í Þjóðviljanum um frönsku
myndina Yndislegur elskhugi,
sem hér var sýnd á kvikmynda-
hátíð var sagt að fluga nokkur
hefði tekið sér bólfestu á aftur-
enda helsta karlleikara myndar-
innar.
Hafa skal það sem sannara
reynist. Ég sá myndina eftir að
hafa lesið um hana í blaðinu, og
það vakti athygli mína að hér var
ekki sagt rétt frá. Flugan hélt að-
allega til á ofanverðu vinstra læri
karlleikarans, og því ónákvæm
frásögn að hún hafi leikið lausum
hala á rassi hans. Að vísu hefur
kvikmyndaskýringarmaður
Þjóðviljans þá afsökun að þessi
franska fluga virtist nokkuð
reikul í rásinni og því snúið að
staðsetja hana nákvæmlega í
stuttum texta.
Þess er einnig rétt að geta,
vegna sögusagna, að þótt myndin
hafi verið tekin á hrossabúgarði
var flugan ekki hrossafluga, held-
ur líkust íslenskri húsflugu. Til
slíkra kvikinda vísast til bókar
Guðbergs Bergssonar um mann-
inn sem fékk flugu í höfuðið. En
sem betur fer hafa íslenskar hús-
flugur ekki enn tekið upp losta-
fulla hegðun franskra ættingja
sinna, og er full ástæða fyrir hér-
lenda flugnahöfðingja að gera til-
tækar varúðarráðstafanir gegn
þeim skaðvænlegu erlendu áhrif-
um.
Sigurður
Miðvikudagur 30. september
GARPURINN
FOLDA
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöld-
varsla lyfjabúða vikuna
25.sept.-1.okt. 1987 erí
Laugavegs Apóteki og Holts
Apóteki.
Fy rmefndá’apótekið er opið
um helgarog annast nætur-
vörslu alla daga 22-9 (til 10
frídaga). Siðarnefnda apó-
tekið er opið á kvöldin 18-22
virka daga og á laugardögum
9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík.....simi 1 11 66
Kópavogur....sími4 12 00
Seltj.nes....sími61 11 66
Hafnarfj......sími 5 11 66
Garðabær......sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabilar:
Reykjavík.....sími 1 11 00
Kópavogur.....sími 1 11 00
Seltj.nes.....sími 1 11 00
Hafnarfj......sími 5 11 00
Garðabær......sími 5 11 00
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspit-
alinn: alla daga 15-16,19-20.
Borgarspítalinn: virka daga
18.30-19.30, helgar 15-18, og
ettir samkomulagi. Fæðing-
ardeild Landspítalans: 15-
16. Feðratími 19.30-20.30.
Öldrunarlækningadeild
Landspitalans Hátúni 10 B:
Alla daga 14-20 og eftir
samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitala: virka daqa 16-
19.30 helgar 14-19.30 Heilsu-
verndarstöðin við Baróns-
1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
- DAGBÓK
stig: opin alla daga 15-16 og
18.30- 19.30. Landakots-
spítali: alla daga 15-16 og
18.30- 19.00 Barnadeild
Landakotsspítala: 16.00-
17.00. St. Jósefsspítali
Hafnarfirði: alla daga 15-16
og 19-19.30 Kleppsspítal-
inn: alla daga 18.30-19 og
18.30- 19 Sjúkrahúsið Ak-
ureyrl: alladaga 15-16og19-
19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyjum: alla daga
15-16og 19-19.30. Sjúkra-
hús Akraness: alla daga
15.30- 16 og 19-19.30.
Sjúkrahúsið Húsnvík: 15-16
og 19.30-20.
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík,
Seltjarnarnes og Kópavog
er I Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum
og helgidögum allan sólar-
hringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráöleggingar og tima-
pantanir í síma 21230. Upp-
lýsingar um lækna og lyfja-
þjónustu eru gefnar í sím-
svara 18885.
Borgarspítalinn: Vakt virka
daga kl. 8-17 og fyrir þá sem
ekki hafa heimilislækni eða
ná ekki til hans. Slysadeild
Borgarspítalans opin allan
sólarhringinn sími 696600.
Dagvakt. Upplýsingar um da-
gvakt lækna s. 51100. Næt-
urvaktlæknas.51100.
Hafnarfjörður: Heilsugæsla.
■ Upplýsingar um dagvakt
lækna s. 53722 Næturvakt
læknas. 51100.
Garðabær: Heilsugæslan
Garöaflöts. 656066, upplýs-
ingar um vaktlækna s. 51100.
Akureyri: Dagvakt8-17á
Læknamiðstöðinni s. 23222,
hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá
Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavík: Dagvakt. Upplýs-
ingar s. 3360. Vestmanna-
eyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
Jm
ÝMISLEGT
Bilananavakt rafmagns- og
hitaveitu: s. 27311. Raf-
magnsveita bilanavakt s.
686230.
Hjálparstöð RKl, neyðarat-
hvarf fyrir unglinga Tjarnar-
götu 35. Sími: 622266 opið
allansólarhringinn.
Sáltræðistöðin
Ráðgjöf i sálfræðilegum efn-
um.Simi 687075.
MS-félagið
Álandi 13. Opið virkg daga frá
kl. 10-14. Simi 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarp-
anum Vesturgötu 3. Opin
þriðjudaga kl.20-22, sími
21500, símsvari. Sjálfshjálp-
arhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum, s.
21500, símsvari.
Upplýsingarum
ónæmistærlngu
Upplýsingar um ónæmistær-
KROSSGÁTAN
ingu (alnæmi) í síma 622280,
milliliðalaust samband við
lækni.
Frá samtökum um kvenna-
athvarf, sfmi21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrirkon-
ur sem beittar hafa veriðof-
beldi eða orðið fyrir nauögun.
Samtökin '78
Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma Samtakanna
'78 fólags lesbía og homma á
Islandi á mánudags- og
fimmtudagskvöldumkl. 21-
23. Símsvari á öðrum timum.
Síminn er 91 -28539.
Féiageldriborgara: Skrif-
stofan Nóatúni 17, s. 28812.
Félagsmiðstöðin Goðheimar
Sigtúni 3, s. 24822.
GENGIÐ
29. september
1987 kl. 9.15.
Sala .
Bandaríkjadollar 39,150
Sterlingspund... 63,676
Kanadadollar.... 29,928
Dönsk króna..... 5,5355
Norskkróna...... 5,8315
Sænsk króna..... 6,0778
Finnsktmark..... 8,8665
Franskurfranki.... 6,3890
Belgiskurfranki.. 1,0253
Svissn. franki.. 25,6050
Holl. gyllini.... 19,9094
V.-þýsktmark.... 21,2731
Itölsk líra.... 0,02949
Austurr. sch.... 3,0232
Portúg.escudo... 0,2705
Spánskurpeseti 0,3196
Japansktyen..... 0,26806
Irsktpund....... 57,102
SDR............... 50,1949
ECU-evr.mynt... 44,2004
Belgískurfr.fin. 1,0203
Lárétt: 1 hangs 4 hviða6
vafi 7 kjökur 9 ánægð 12
sterk 14 utan 15 líf 16 nudd-
ast 19 látin 20 forfeðurna
21 kaldur
Lóðrétt: 2 óþétt 3 sleit 4
kött 5 hvíldi 7 fyrirlestur 8
athugun10vænar11
sprotar 13 fugl 17 súld 18
litu
Lausnásiðustu
krossgátu
Lárétt: 1 kver 4 seig
8 keflinu 9 eski 11 unnt 12
meiðar 14 al 15 aska 17
skinn19lúr21 Iið22illt24
árar25Æsir
Lóðrétt: 1 krem 2 ekki3
reiðan 4 slurk 5 ein 6 inna 7
gutlar 10 serkir 13 asni 16
alls 17 slá 18 iða 20 úti 23
læ