Þjóðviljinn - 30.09.1987, Síða 16

Þjóðviljinn - 30.09.1987, Síða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓÐVIUINN Miðvikudagur 30. september 1987 216. tðlublað 52. órganour Þjónueta í|»$na|»á9u SAMV4NNUBANK4 Í9LANÐS HF. Fjármálaráðherra Nýr matarskattur Fœðissalamötuneyta, skólafólks og starfsmannahópa söluskattsskyld með sama hœtti ogsalaveitingahúsa. Sverrir Magnússon, skólastjóri á Skógum: Verið að skattleggja þá sem sístskyldi Mórallinn sem að baki býr er afleitur, og ég skil raunar ekki hvað stjórnvöld hugsa sér með þessu, sagði Sverrir Magnús- son, skólastjóri Héraðsskólans á Skógum, er hann var inntur álits á þeirri ákvörðun fjármálaráð- herra að leggja söluskatt á fæðis- sölu skólamötuneytanna. í reglugerð sem fjármálaráð- herra hefur gefið út kemur fram að fæðissala mötuneyta, skóla- fólks og starfsmannahópa verður söluskattsskyld með sama hætti og sala veitingahúsa frá og með mánaðamótunum. Sama gildir um fæðissölu atvinnurekenda til starfsmanna sinna. - Héraðsskólarnir hafa lagt áherslu á að hafa fæðið sem allra ódýrast og gert allt sem í þeirra valdi hefur staðið til að halda verðinu niðri, sagði Sverrir: Hér er verið að skattleggja þá sem síst skyldi, og má benda á að matvara er þegar margskattlögð áður en þessi söluskattur bætist við. 66 nemendur eru nú í Skóga- skóla, og að sögn Sverris borða að jafnaði 57 þeirra í mötu- neytinu í hádeginu. Þá kaupa nokkrir kennarar fæði á staðn- um. Frá og með 1. október verður einnig breyting á undanþágu sem hefur verið í gildi hvað varðar matsölu veitingahúsa. Framvegis verður þeim einungis heimilt að draga fjárhæð sem nemur 75% af innkaupsverði hráefnis til matar- gerðar frá heildarveltu sinni áður en söluskattsskil eru gerð. Til þessa hefur þeim leyfst að draga innkaupsverðið frá að fullu, að viðbættri meðaltalssmásölu- álagningu, en hún hefur verið metin á 25%. Þessar breytingar hafa það í för með sér að framvegis munu veitingahús og mötuneyti greiða 10% söluskatt af matarsölu sinni, en 25% af annarri sölu. Þá veldur reglugerð fjármálaráðherra því að 25% söluskattur leggst á ís- sölu, og er sú afurð þar með kom- in í flokk með „öðru“ sælgæti. HS Skákþingið Margeir enn efstur Efstu menn héldu sínu striki er 11. umferðin á Skákþingi íslands var tefld í gær. Margeir, Helgi, og Hannes Hlífar unnu allir and- stæðinga sína, þá Þröst Þórhalls- son, Þröst Arnason og Gylfa Þór- hallsson, í þessari röð. Þá sigraði Dan Hansson Gunn- ar Frey og Davíð Ólafsson vann Áskel Örn Kárason. Sævar Bjamason tefldi við Ólaf Krist- jánsson og var með unnið tafl er síðast fréttist. Skák Karls Þorsteins og Jóns G. Viðarssonar var frestað. Þegar tveimur umferðum er ó- lokið er staða efstu manna þessi: Margeir er efstur með 10 vinn- inga. Næstur kemur Helgi Ólafs- son með 9 vinninga, og í þriðja sæti er Hannes Hlífar með 7,5 vinninga. Helgi og Hannes Hlífar tefla saman í næstu umferð. HS Alþýðusamband Austurlands Um 40.000 í mánaðaitaun Sigfinnur Karlsson: Fer best áþvíað við verðum einir. Vilborg Porsteinsdóttir, Snót: Bíðum átekta. Óðinn Baldursson, Alþýðusambandi Vestfjarða: Óráðið hvað við gerum Við verðum sér - það er útséð leiddi til útgöngu fiskverkafólks á mcð það. Hvort aðrir feti í ráðstefnu Verkamannasam- bandsins. Nefndin hefur ekki enn ið verðum sér - það er útséð mcð það. Hvort aðrir feti í fótspor okkar get ég ekkert full- yrt. Ætli það sé ekki best að við verðum einir og óstuddir, það fer sennilega best á því eftir því sem á undan er gengið. Við teljum þess- ar kröfur sanngjarnar og ef þær nást fram er stigið veigamikið skref til að rétta hlut fiskverka- fólks, sagði Sigflnnur Karlsson, formaður Alþýðusambands Austurlands, en sambandið hefur sett fram kröfugerð í komandi samningum. í kröfugerð Alþýðusambands Austurlands er gert ráð fyrir að fjskverkafólk fái 38.000 til 43.000 krónur í í byrjunarlaun á mánuði og byrjunarlaun almenns verka- fólks verði frá 35.000 til 38.246 krónur á mánuði. - Ég býst við að fyrsti fundur með atvinnurekendum verði í næstu viku, sagði Sigfinnur, en kröfugerðin er nú til kynningar meðal aðildarfélaga Alþýðusam- bands Austurlands, jafnframt því sem hún verður kynnt atvinnu- rekendum. - Við bíðum átekta og sjáum hvað setur hjá Austfirðingum og samninganefnd Verkamanna- sambandsins. Við ætlum ekki að lenda í því aftur að vera með í samflotinu og sitja svo eftir með sárt ennið, sagði Vilborg Þor- steinsdóttir, formaður Verka- kvennafélagsins Snótar í Vestmannaeyjum. Á félagsfundi í Snót var ákveðið að bíða eftir því hvaða viðbrögð kröfugerð Alþýðusambands Austurlands fær hjá vinnuaflskaupendum, - hvort þeir verða gerðir afturreka með sínar kröfur eða gengið verði til samninga. - Hvað við gerum ræðst einnig af því hvað 24 manna samninga- nefndin gerir með bókunina sem tekið af skarið með hvorum hún stendur, - hvort hún er á sömu nótum og Austfirðingarnir, sagði Vilborg. - Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það hvort Al- þýðusamband Vestfjarða freisti þess að ná samningum heima í héraði eða ekki. Það verður fundur um málið á næstu dögum og þá skýrist væntanlega hvaða háttur verður hafður á við samn- ingsgerðina, sagði Óðinn Bald- ursson, á skrifstofu Alþýðusam- bands Vestfjarða. _rk Margrét Árnadóttir fiskvinnslukona við snyrtingu á fiskflökum hjá Síldarvinnslunni h/i á Neskaupstað. Mynd hb, Neskaup- stað. Bankastjórastöður Mönnum skipað í stóla Samkomulag stjórnarflokka um uppskipti á bankastjórastöðum. Sverrir Hermannsson og Valur Arnþórsson íLandsbanka. Kjartan Jóhannsson í Búnaðarbanka anna um skiptingu bankastjóra- _ Ég kannast að sjálfsögðu stóla milli flokkanna. I sama ekki við það, því ég tók á síðustu streng tók Sverrir Hermannsson Þetta mál er ekki umræðuhæft af minni hálfu eins og sakir standa, sagði Sverrir Hermanns- son, Sjálfstæðisflokki, en sam- kvæmt heimildum blaðsins er ó- formlegt samkomulag meðal stjórnarflokkanna um að banka- stjórastöðum sem kunna að losna á næstu mánuðum í Landsbanka og Búnaðarbanka verði skipt upp á milii flokkanna og Sverrir taki við bankastjórastöðu í Lands- bankanum. Samkomulagið gerir ráð fyrir því að fyrir hönd Sjálfstæðis- flokksins taki Sverrir Hermanns- son við stöðu Jónasar Haralz, en hann hefur eindregið gefið til kynna við bankaráðsmenn Landsbankans að hann hafi hug á að fá lausn frá störfum um mitt næsta ár, þar sem sér hafi verið boðin staða við Alþjóðabankann í New York. Vali Arnþórssyni, stjórnarformanni SÍS, er fyrir hönd Framsóknarflokksins ætluð staða Helga Bergs við hlið Sverris í Landsbanka og í hlut Alþýðufl- okksins fellur bankastjórastaða Stefáns Hilmarssonar í Búnaðar- banka, sem Kjartani Jóhannssyni er ætlað að skipa. - Ég hef ekkert um þetta að segja, sagði Kjartan Jóhannsson, er hann var inntur eftir þessum ráðahag. Kjartan vildi hvorki játa né neita tilvist einhverskonar samkomulags milli stjórnarflokk- Það er svo margt sem ber fyrir eyra að maður hefur ekki undan að trúa. Svo mikið er víst að ég hef ekki verið hafður með í þeim ráðum, sagði Sverrir. Talið er að Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans, hafi hug á bank- astjórastöðu við Landsbankann, en hann hefur lengi starfað við bankann. Starfsmenn Lands- banka safna nú undirskriftum í sínum hópi að næsti aðalbanka- stjóri verði valinn úr hópi þeirra. Ekki eru þó nefnd nein nöfn í því sambandi. stundu ekki þátt í samningunum um myndun ríkisstjórnarinnar. Hafi þetta verið verið afráðið í þeim samningum þá veit ég ekk- ert um það, enda sísti maður til að spyrja um svona hluti. Þetta eru hlutir sem eru víðsfjarri mín- um þankagangi. Þetta á að vera á allt öðru plani en að menn séu að tryggja sig í gegnum pólitík með einum eða öðrum hætti, sagði Karvel Pálmason, er tilvist samkomulags ríkisstjórnarflokk- anna var borin undir hann. -rk Sjá Klippt og skorið bls. 4

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.