Þjóðviljinn - 01.10.1987, Síða 2
—SPURNINGIN-
Ætlarðu að taka slátur?
FRÉTTIR
Verslunin
Asta Björnsdóttir, frú.
Nei. Ég er hætt því. Ég tók alltaf
slátur áður fyrr. Barnabörnin taka
heldur ekki slátur, þannig að ég
kaupi mér kepp við og við. Á sín-
um tíma tók ég alltaf 10 slátur, og
setti í súrt en það eru fáir nú til
dags sem kunna að meta það.
Eftir að frystikisturnar komu til
sögunnar, minnkaði ég slátur-
töku í 5.
Gígja Steinsdóttir, kaffi-
tæknir.
Nei. Ég tek ekki slátur. Elsku
maðurinn minn borðar ekki
slátur. En ég kaupi einn og einn
lifrarpylsukepp og svo sendi ég
dóttur minni í London slátur.
Guðbjörg Steinþórsdóttir,
afgreiðslumanneskja.
Nei. Ég er ekki vön því og geri
ekki ráð fyrir að taka slátur í
haust. Ég borða helst ekki slátur.
Þorsteinn Guðlaugsson,
rekur bókhaldsskrifstofu.
Slátur! Jú, mæðgumargera það,
konan mín og tengdadóttir. Þær
hafa tekið slátur í mörg ár og ég
hef stundum fengið að sauma
keppi. Þær tóku alltaf 20 slátur
hér áður fyrr, en minna núna,
sennilega 5 slátur. Er ekki alltaf
verið að segja að slátur sé óhollt
og of fitandi. Þetta er samt herra-
mannsmatur.
Magnús Sigurðsson, gerir
ekkert.
Nei. Það hefur ekki verið gert í
mörg ár. Við kaupum bara eftir
hendinni’
163 á hverja heildverslun
Rúmlega hundrað manns um hverja smásölu. Litlar birgðir í
heildversluninni
Það er þó a.m.k. ein atvinnu-
grein, sem virðist blómstra hér á
landi með miklum ágætum og það
er verslunin, a.m.k. heildsalan.
Samkvæmt athugun sem Snorri
Egiison aðstoðarframkvæmda-
stjóri Verslunardeildar SÍS hefur
gert og greint er frá í nýjustu
Samvinnufréttum, eru aðeins 163
íbúar um hverja heildverslun,
117 um hverja smásöluverslun og
68 íbúar á hverja verslunar-
einingu, séu allar taldar.
Snorri Egilson segir greinilegt
að ekki sé litið til heildverslana
um birgðahald því að birgðir hjá
smásöluverslunum væru margfalt
meiri en hjá heildverslunum.
Snorri bendir einnig á að í árs-
lok 1985 hafi svokallaðar bland-
aðar verslanir - matvara og tals-
vert af sérvöru -169 talsins, verið
með birgðir upp á rúmlega 3 milj-
arða kr. en birgðir allra
heildverslana landsins, annarra
en olíudreifingar, bílaumboða og
byggingavöruverslana, námu þá
2.7 miljörðum kr. Á sama tíma
voru á landinu 1485 heildverslan-
ir sem áttu að þjóna 2069 smá-
söluverslunum. Telja mætti samt
á fingrum sér þær heildverslanir,
sem hirtu um að liggja með birgð-
ir og væri varan því gjarnan ekki
fyrir hendi þegar smásalinn þyrfti
á henni að halda.
„Það liggur í augum uppi að
þegar 1500 aðilar annast innkaup
fyrir okkar litla land verður hag-
kvæmni illa við komið og erlendir
seljendur njóta helst þeirra að-
stæðna, sem við búum til með
þessum hætti,“ segir Snorri Egil-
Iðnaður
Starfsnám
á Álafossi
Yfír stendur nú á Álafossi
starfsnám í fata-, vefjar- og
skinnaiðnaði. Segja má að námið
hafi fernskonar tilgang: að gera
vinnustaðinn betri, að auka vinn-
ugæðin, að bæta kjör starfsfólks-
ins. að auka framleiðni.
I fyrra var gert samkomulag
um að koma á þessu starfsnámi.
Lögð er áhersla á þjálfun starfs-
þjálfara, þjálfun núverandi
starfsfólks og þjálfun nýliða.
Með þessu gera menn sér vonir
um að lagður verði grundvöllur
að fagmenntun í verksmiðjuiðn-
aði í þessum greinum. Að því er
stefnt að öllum starfsmönnum í
þessum iðngreinum gefist kostur
á að sækja námskeið á yfirstand-
andi ári. mhg
Ingvar Kristinsson leiðbeinir áhugasömum nemendum. Mynd: Sig.
Skák
Alþjóöamót í Ólafsvík
Sjöunda landsbyggðarmót Skákar á 300 ára afmœli Ólsara. Nær
Þröstur titli?
Asunnudaginn hefst alþjóðiegt Góður árangur í mótinu gefur
skákmót í Ólafsvík og eru áfanga að alþjóðlegum titli og
keppendur tólf, þaraf fjórir er- beinast sjónir manna einkum að
lendir. Þresti Þórhallssyni sem á
Fyrirlestur
Stjómun fiskveiða
Rögnvaldur Hannesson prófessor ífiskihag-
frœði með fyrirlestur í
Idag klukkan 17.15 flytur
RögnvaldurHannesson prófess-
or í flskihagfræði við Verslun-
arháskólann í Bergen í Noregi,
fyrirlestur við Háskóla Islands á
vegum viðskiptadeildar, í stofu
101 í Odda, sem hann nefnir
Stjórnun fiskveiða: Markmið og
leiðir. Fyrirlesturinn er öllum op-
inn á meðan húsrúm leyfir.
í umræddum fyrirlestri mun
Odda, kl. 17.15 í dag
prófessor Rögnvaldur fjalla um
markmið fiskveiðistjórnunar og
þær aðferðir við fiskveiðistjórn,
sem líklegastar eru til þess að ná
þeim markmiðum. í ljósi þess, að
stjórnvöld beita sér nú fyrir end-
urmati og endurskoðun á stjórn-
kerfi fiskveiða hér á landi, er þess
að vænta að efni þessa fyrirlesturs
eigi sérstakt erindi til lands-
manna. grh
skömmum tíma hefur unnið sér
tvo af þremur slíkum, en aðrir
keppendur eru Jón L. Árnason,
Karl Þorsteins, Sævar Þorsteins-
son, Ingvar Ásmundsson, Björg-
vin Jónsson, Dan Hansson, Tóm-
as Björnsson, Danirnir Henning
Danielsen og Lars Schandorff,
Svíinn Robert Bator og Petter
Haugli frá Noregi.
Meðalstigafjöldi er 2373 stig og
mótið í fimmta styrkleikaflokki.
Til áfanga að alþjóðlegum titli
þarf 5 Vz vinning í ellefu umferð-
um.
Tímaritið Skák stendur að
mótinu ásamt Ólafsvíkurbæ, og
er það sjöunda alþjóðlega mótið
sem Skák heldur á landsbyggð-
inni. Jafnframt er mótið þáttur í
hátíðahöldum Ólsara vegna 300
ára kaupstaðarafmælisins.
Mótið stendur til 16. október
og eru veitt verðlaun fyrir sex
efstu sætin, samtals tæpar 120
þúsund krónur.
-m
Flokkur mannsins
Gegn kúgun
í S-Afríku
Undirskriftasöfnun
um viðskiptabann á
Suður-Afríku
Á vegum Flokks mannsins er
nú hafln undirskriftasöfnun þar-
sem skorað er á ríkisstjórnina að
gangast fyrir lögum um viðskipt-
abann á Suður-Afríku, banna
innflutning þaðan, útflutning
þangað og alla þjónustu við
suðurafrísk fyrirtæki eða ein-
staklinga.
Samskonar aðgerðir standa
yfir á vegum systurhópa Flokks
mannsins í um 50 löndum. „Við
viljum ekki sitja aðgerðalaus og
horfa á það ofbeldi sem
milljónum manna er sýnt bara af
því að þeir eru af öðrum kyn-
þætti“. segir í fréttatilkynningu
frá aðstandendum söfnunarinn-
ar.
Listar verða sendir í fyrirtæki,
skóla og til verkalýðsfélaga næstu
daga. -m
Ríkisstjómin hefur einmitt
rætt þá lausn á Útvegsbanka
málinu að kaupa bankann
aftur
Ástæðurnar eru örðugleikar \
við að skipta honum upp á
réttan hátt
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. október 1987