Þjóðviljinn - 01.10.1987, Side 6

Þjóðviljinn - 01.10.1987, Side 6
ALÞÝÐUBANDALAGHD SKAK Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Félagsfundir Fundir verða í Alþýðubandalagsfélögum á Noröurlandi eystra á eftirtöldum stöðum: , Ólafsfirði - fimmtudaginn 1. október kl. 21.30. Ath. Fundartimi kl. 21.30. Á dagskrá fundanna verður m.a. kosning fulltrúa á kjördæmisþing og á Landsfund - Stjórnmálaumræður. Steingrímur J. Sigfússon mætir á fundina. Nánar auglýst á hverjum stað. Alþýðubandalagið uppsveitum Árnessýslu AÐALFUNDUR Aðalfundur félagsins verður haldinn í Árnesi mánudaginn 5. október kl. 21 00 Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 3) Kosning fulltrúa á Landsfund. 4) Önnur mál. Alþýðubandalag Héraðsmanna Félagsfundur Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 30. seþtember kl. 20.30 að Selási 9 (kjallara). Fundarefni: 1) Kosning fulltrúa á kjördæmisþmg á Iðavollum. Hjörleifur Guttormsson alþm. kemur á fundinn og segir frá gangi stjórnmálanna. Félaqsmenn eru hvattir til að fjölmenna. Alþýðubandalag Héraðsmanna Alþýðubandalagið Austurlandi Aðalfundur kjördæmisráðs Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn á Iðavöllum laugardaginn 3. október kl. 4.00 og lýkur honum kl. 16.00 næsta dag. Dagskrá fundarins verður samkv. lögum kjördæmisráðs. Umræða: Lífskjör á landsbyggðinni Framsögu hafa: Kristinn V. Jóhannsson, Álfhildur Ólafsdóttir, Björn Grétar Sveinsson og Hjörleifur Guttormsson. Kvöldvaka verður á laugardagskvöldið á vegum Alþýðubandalags Héraðs- manna. Helgi Seljan fyrrv. alþm. verður gestur kvöldvökunnar sem er öllum oþin. Gistingu er hægt að fá í orlofshúsum ASA að Einarsstöðum. Upplýsinqar veita: Sveinn í síma 11681 og Sigurjón í síma 11375. Stjórn kjördæmisráðs Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur ABH boðar til bæjarmálaráðsfundar laugardaginn 3. október kl. 10.00 í Skálanum, Strandgötu 41. Dagskrá: 1) Undirbúningur fyrir komandi bæjarstjórnarfund. 2) Kynntar tillögur að breytingum á starfsreglum bæjarmálaráðs. 3) Starfsskipulagið í vetur. 4) önnur mál. Nefndarmenn ABH eru hvattir til að mæta. Fundurinn opinn öllum flokks- mönnum. Stjórnin Alþýðubandalagið Akureyri Bæjarmálaráðsfundur ABA boðar til bæjarmálaráðsfundar í Lárusarhúsi mánudaginn 5. október kl. 20.30. Dagskrá: 1) Veitumál. 2) Fundargerð bæjarstjórnar. 3) Önnur mál. Alþýðubandalagið á Akureyri Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 1. október i Lárusarhúsi klukkan 20.30. Dag- skrá: 1) Starfið framundan. 2) Reikningar félagsins. 3) Kosningar á kjör- dæmisþing. 4) önnur mál. Fólagar fjölmennið! Stjórnin Alþýðubandalagið á Reykjanesi Stjóm Kjördæmisráðs Stjóm Kjördæmisráðs er boðið til fundar laugardaginn 3. október kl. 14.00 í Þinghóli, Kópavogi. Dagskrá: Undirbúningurfyrirkjördæmisþing. Áríðandi að allir mæti. Stjórnin Alþýðubandalagið Kjósarsýslu Félagsfundur Félagsfundur í Hlégarði, þriðjudaginn 6. október kl. 20.30. Ólafur Ragnar Grímsson mætir á fundinn og ræðir um flokksstarfið og stjórnmálaástandið í upphafi þingsins. Félagar fjölmennið. Stjórnin Margeir Pétursson. Hefur teflt vel á Akureyri og er nánast öruggur um titilinn i ár. Skákþing íslands að loknum 10 umferðum: Margeir efstur Hannes Hlífar hefur unnið sex skákir í röð! Þegar þrjár umferðir eru eftir á Skákþingi íslandsáAkureyri er flest sem bendir til þess að Margeir Pétursson hreppi titil- inn Skákmeistari íslands ann- að árið í röð. Hann hefur þeg- ar þetta er ritað hotið 9 vinn- inga úr 10 skákum, einum vinningi meira en sá sem þetta ritar en aðrir keppendur koma vart til greina sem sigur- vegari að þessu sinni. Mótið hófst þann 17. sept- ember sl. og eru keppendur 14 talsins, þar af tveir stórmeistarar og tveir alþjóðlegir meistarar. Það er einmitt hinn mikli styrk- leikamunur á keppendum sem hefur gert það að verkum hversu hátt vinningshlutfall efstu manna er en til samanburðar má geta þess að í fyrra voru fimm stór- meistarar meðal þátttakenda og breiddin því mun meiri. í fyrstu umferðunum virtist Davíð Olafs- son ætla að blanda sér í baráttuna um efsta sætið en eftir að hafa unnið fjórar skákir í röð hægði hann ferðina mjög og heimsmeistari sveina, Hannes Hlífar Stefánsson sem byrjað hafði afar illa með því að hljóta einungis Yi vinning úr fyrstu fjór- um skákunum, tók við af honum og gerði sér lítið fyrir og vann sex skákir í röð og er nú kominn í 3. sætið. Staða efstu manna er nú þessi: 1. MargeirPétursson9v. 2. Helgi Ólafsson 8 v. Hannes Hlífar Stefánsson 6V2 v. 4.-5. Karl Þorsteins og Davíð Ólafsson 6 v. 6. Þröstur Þórhallsson 5Vi v. í síðustu umferðunum á Mar- geir eftir að tefla við Þröst Þór- hallsson, Ólaf Kristjánsson og Gylfa Þórhallsson en undirritað- ur við Þröst Árnason, Hannes Hlífar Stefánsson og Sævar Bjamason. Margeir hefur teflt vel í þessu móti og ekki verið í neinum sér- stökum vandræðum nema þá helst gegn Dan Hanssyni. Mar- geir vann mikilvægan sigur í 6. umferð yfir Karli Þorsteins. Hvítt: Karl Þorsteins Svart: Margeir Pétursson Nimzoindversk vöm 15. d5-Ra5 16. Rg3-Kh8 17. Rf5? (Eftir skákina var Karl mjög óánægður með þennan leik. Honum sást yfir hinn einfalda svarleik Margeirs. Mun betra var 17. Bg5 og möguleikar hvíts verða að teljast eilítið betri.) 17. .. e4! 18. Re3-Bd3 19. Dd2-Rg4 20. D-Rxe3 21. Dxe3-f5 22. fxe4-fxe4 23. Dd4-Df5 24. Bb2 (Frumkvæðið er vitanlega kirfilega í höndum svarts en þessi leikur bætir ekki úr skák. Betra var 24. Be3 og hvítur heldur í horfínu.) 24. .. Hac8 25. Hacl-Rc4 26. Bal (Uppskipti á c4 bæta ekki víg- stöðu hvíts.) 26. ... b5 27. h3-a6 28. a4-Hcd8 29. Da7-e3 30. Bxc4-Df2+ 31. Kh2-bxc4 32. Dd4-Hf4 33. Db6-Hdf8 34. d6-Be4 35. Hgl-Hg4! Hlutastarf Þjóðviljinn óskar að ráða starfsmann til að sjá um létta máltíð í hádeginu fyrir starfsfólk blaðsins. Vinnutími frá kl. 10.00-14.00. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 681333. 1. d4-Rf6 2. c4-e6 3. Rc3-Bb4 4. e3-0-0 5. Bd3-dd5 6. a3-Bxc3+ (Stundum er skotið inn leiknum 6. ... dxc4 sem hvítur getur svarað með 7. Bxh7+) 7. bxc3-dxc4 8. Bxc4-c5 9. Re2-Rc6 10. 0-0-e5 11. Ba2-b6 12. De2-Ba6 13. Hdl-cxd4 14. exd4-Dc8 - Snotur lokahnykkur. Karl gafst upp því 36. hxg4 strandar á 36. .. Dh4 mát og 36. Db2 á 36... Dg3+ 37. Khl Dxh3 mát. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. október 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.