Þjóðviljinn - 03.10.1987, Side 1
Laugardagur 3. október 1987 219. tölublað 52. ðrgangur
Karnabœr
Orkustofnun
r -------------
41 fá reisupassann
Ovissa um
framhald
rannsókna
Starfsmönnum saumastofu Karnabœjar sagt uppfrá og með áramótum.
Guðlaugur Bergmann, kaupmaður: Hagrœðing á rekstri saumastofunnar.
Lœtekkert uppskátt. Ekki hœttur klœðagerð. íslenskurfataiðnaður á í
vök að verjast. Klondyke-œði ííslensku efnahagslífi
Guðlaugur Bergmann, kaup-
maður í Karnabæ tíl margra
ára, hefur sagt upp 41 starfs-
manni á saumastofu fyrirtækis-
ins. Starfsmennirnir 41, sauma-
konur og fatahönnuðir, sem ný-
lega fengu uppsagnarbréfið í
hendur, eiga að vera búnir að
taka pokann sinn um áramót.
Guðlaugur Bergmann segist segja
starfsfólkinu upp, til að fá svig-
rúm til nauðsynlegra hagræðinga
á rekstri fyrirtækisins.
Grœnland
Yfír-
gangur
danskra
verktaka
íslenskum verktaka í
Grœnlandi bolað burt af
dönskum
- Þvi er ekki að neita að við
höfum orðið fyrir barðinu á yfír-
gangi danskra verktakafyrir-
tækja á Grænlandi. Danskir
verktakar virðast til alls vísir og
neyta allra tiltækra ráða til að
koma í veg fyrir að ísiensk fyrir-
tæki fái verk á Grænlandi. Inuít-
ar hafa aftur á móti mikinn áhuga
á að fá íslenska verktaka, - ein-
faldlega vegna þess að þau bjóða
lægra f verk, sagði Gunnar Bigis-
son, hjá verktakafyrirtækinu
Gunnar og Guðmundur, en hann
er jafnframt formaður Verktak-
asambandsins.
Verktakafyrirtækið Gunnar og
Guðmundur hefur að undan-
fömu unnið við smíði sútunar-
verksmiðju í Julianehaab ásamt
dönsku fyrirtæki, en nýlega var
smíði skinnaverkunarhúss boðin
út í lokuðu tilboði milli þessara
fyrirtækja. Tilboð Gunnars og
Guðmundar var nokkru lægra,
en dönsk stjóm verksmiðjunnar
afréð að taka tilboði danska fyrir-
tækisins.
- Þegar um lokuð tilboð er að
ræða, er það almenn regla að
lægsta tilboði er tekið. Við emm
því að vonum mjög óánægðir
með þessar málalyktir. Við höf-
um rætt þetta við Jonatan Mos-
feldt, en hann hét því að grafast
fyrir um málið, sagði Gunnar.
Gunnar sagði að samstarf
þeirra og samskipti við Inúíta
hefðu verið með ágætum, en
sama væri ekki að segja um Dan-
ina. -RK
- Ég þarf að gera hagræðingar
á rekstrinum. Eg er ekki hættur
að framleiða föt. Hvernig getur
nokkmm manni dottið slíkt í hug,
þegar ég er búinn að eyða nánast
allri starfsævinni í að framleiða
og selja föt og ganga í gegnum
alla þá vitleysu sem hefur við-
gengist hér á landi, - óðaverð-
bólgu og aðra óstjórn. Það kemur
bara ekki til greina, sagði Guð-
laugur.
- Ég ætla ekkert að segja
Steingrímur Hermannsson
utanrfldsráðherra telur að
A tlanshafsbandalagsr íkj unum
beri að skoða af opnum hug nýj-
ustu tillögur Gorbatsjofs Sovét-
leiðtoga um viðræður milli blokk-
anna um afvopnun á Eystrasalti,
Norðursjó og á hafínu austan ís-
lands og vestan, Grænlandshafí
og Noregshafí.
hvaða breytingar ég er að ræða
um. Ég þarf að fá að breyta fyrir-
tækinu í friði. Hvers vegna finnst
mönnum þetta svona mikil frétt?
Ég hef þurft að stokka af og til
upp. Aðrir hafa verið að rifa segl-
in og jafnvel lagt árar í bát. Allur
fataiðnaðurinn á í vanda, sagði
Guðlaugur Bergmann.
Guðlaugur sagðist vera til-
neyddur til að aðlaga reksturinn
að þeim aðstæðum sem ríkja í ís-
lensku efnahagslífi.
-Við höfum hvað eftir annað
lýst því yfir, að minnsta kosti við
Framsóknarmenn að það skipti
miklu máli að fækka vopnum í
sjónum ekki síður en á landi,
sagði Steingrímur við Þjóðvilj-
ann í gær, - og ég tel að Atlants-
hafsríkin hljóti að skoða hverja
tillögu sem fram kemur um þetta
af opnum hug og án allrar
- Við lifum hér á „Klondyke-
gullfiskpeningum og hverri
krónu er eytt. Gengið er fallið að
minnsta kosti um 20%, erlendur
gjaldeyrir er á útsöluverði og inn-
flutningurinn flæðir óheftur inn í
landið. Þetta eru skilyrðin sem
innlendum fataiðnaði eru sett.
Hvernig færi fyrir öðrum inn-
lendum iðnaði ef innflutningur
væri leyfður án takmarka?
Hvernig færi fyrir landbúnaðin-
um? sagði Guðlaugur Bergmann.
-rk
fyrirfram-tortryggni. En það þarf
auðvitað að nícja jafnvægi milli
stórveldanna, bæði í kjamorku-
búnaði og hefðbundnum herafla.
- Það er enginn vafi á að þetta
er breyting á afstöðu Sovét-
manna. Þeir hafa breytt afstöðu
sinni í ýmsu undanfarið og þetta
er framhald á þeim breytingum,
sagði Steingrímur. - Menn era að
Lykilmönnum og stjór-
nendum stórra
rannsóknaverkefna sagt
upp störfum
- Það er allt óljóst um fram-
haldið á þessu stóra verkefni okk-
ar og fleiri rannsóknir raskast
verulega. Bæði lykilmönnum og
stjórnendum hefur verið sagt upp
og menn hafa þannig verið rifnir
út úr miðjum stórverkefnum,
sagði Ólafur G. Flóvenz deildar-
stjóri á jarðhitadeild Orkustofn-
unar í samtali við Þjóðvifjann í
gær.
- Við eram búin að vera með
mjög stórt verkefni í gangi varð-
andi könnun á skilyrðum til fisk-
eldis víða um land. Þetta verkefni
sem er fjármagnað af ríki og
sveitarfélögum er verið að vinna í
Öxarfirði, og að byrja í Skaga-
firði og síðan átti að fara á Vest-
firði og Suðurland.
Ólafur sagði að þessi niður-
skurður á stofnuninni væri gerður
án allrar pólitískrar stefnumörk-
unar. Það er bara eitthvað skorið
niður út t loftið. - Nú hefur nýr
iðnaðarráðherra boðað þriðju
endurskoðunina á Orkustofnun á
einum áratug. Það sem skiptir
öllu máli er hvort það verður fólk
úr orkuiðnaðinum sem vinnur
það verk eða menn sem era að
vinna að sínum eigin persónulegu
hagsmunum, sagði Ólafur G.
Flóvenz. -•g-
Skákþingið
Manjeir vann
„Margeir er mjög vel að sigrin-
um kominn. Hann tefldi af geysi-
legu öryggi og festu, og vart hægt
að segja að hann hafi komist í
taphættu í nokkurri skák,“ sagði
mótsstjórinn á skákþinginu
Ólafur Ásgrímsson, en því lauk á
Akureyri í gær með sigri Marg-
eirs Péturssonar stórmeistara.
Margeir hlaut 12 vinninga af 13
mögulegum - ekki dónalegt hlut-
fall það - og varði þar með titil
sinn frá því í Grandarfirði í fyrra.
HS
sjá það að kjamorkustyrjöld get-
ur ekki verið lausn á neinum
vandamálum. Ég trúi því að þess-
ir menn séu í alvöra að reyna
smátt og smátt að fikra sig af
þeirri braut.
-m
Sjá einnig síður 3 og 6
Á sama tfma og Margeir Pétursson tryggði sér glæsilegan sigur á Skákþingi Islands á Akureyri i gær, tefldi
stórmeistarabróðir hans Johann Hjartarson fjöltefli við háskólastúdenta I Árnagarði. Jóhann tapaði þremur skákum af 18
og gerði 1 jafntefli. Mynd - Sig.
Sjá síðu 15
í Sunnudagsblaði
Gorbatsjof-tilboð
Skoða af opnum hug
Utanríkisráðherra: Viðrœðutillögur Sovétmanna um afvopnun íhöf-
unum verður að skoða af opnum hug og án fyrirframtortryggni