Þjóðviljinn - 03.10.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.10.1987, Blaðsíða 3
FRÉTTIR Afvopnun Island með frystingu Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra: ísland mungreiða atkvœði með sœnsk-mexíkönsku tillögunni umfrystingu kjarnorkuvopna efhún kemurfram. Hefenga ástœðu til að œtla annað en ríkisstjórnin sé sammála Steingrímur Hermannsson segir að íslenska sendinefndin á allsherjarþingi muni greiða at- kvæði með tillögu Svía, Mexík- ana og fleiri rfkja um frystingu kjarnorkuvopna komi hún enn fram á þinginu nú. Undanfarið hefur ísland verið í hjásetuhópi á þinginu um þessa tillögu meðan aðrar Norðurlandaþjóðir hafa stutt hana. Steingrímur sagði á fundi Framsóknarkvenna í fyrrakvöld að hjáseta íslendinga væri „háðu- leg“, og hann sagði aðspurður við Þjóðviljann í gær að þessi orð mætti túlka þannig að ísland styddi nú tillöguna, sem Banda- rílcin, Bretland, Frakkland og nokkur lönd önnur hafa hingaðtil lagst gegn. Telurðu að ríkisstjórnin styðji þetta? - Ég hef enga ástæðu til að ætla annað, ég hef skýrt ráðherra- nefnd um utanríkismál frá því, og þetta er fullkomlega í samræmi við stefnu stjórnarinnar, enda hafa ýmis Nató-ríki greitt tillög- unni atkvæði. - Undanfarið hefur staðan f þessum málum breyst mjög, og það er full ástæða til að við endur- skoðum fyrri afstöðu þar. Hins- vegar er spurning hvort tillagan kemur fram á þessu þingi þarsem stórveldin eru nú að ræða um fækkun ákveðinna vopna, sem að sumu leyti gengur lengra en til- lagan. Á næstsíðasta alþingi hótaði Sjálfstæðisflokkurinn stjómar- slitum ef Framsóknarmenn styddu tillögu um stuðning við Mexfkó og Svía hjá SÞ. Áttu von á andófi frá Sjálfstæðismönnum nú? - Það er kannski of mikið sagt að þeir hafi hótað stjómarslitum, en utanríkisráðherra var þá Sjálfstæðismaður og ekki eðlilegt að stjómarflokkur greiddi at- kvæði gegn ákvörðun utanríkis- ráðherra, enda var hún þá ekki í ósamræmi við stefnu stjórnarinn- ar. Ég trúi því ekki að Sjálfstæðis- menn leggist nú gegn þessu, það hljóta alhr að vera á móti kjarn- orkukapphlaupinu. -m Holiday Inn Reykjavík - árí síðar ,Ári eftir leiðtogafundinn f Reykjavík - vonir og vandamál“ er yflrskrift alþjóðlegra hring- borðsumræðna sem fram fara nú um heigina í Hoiiday Inn-hótelinu f Reykjavfk. Umræðurnar em á vegum sam- takanna ILF, sem Þjóðviljales- endur kannast við af greinaskrif- um í vikunni, og em þátttakend- ur meðal annars Irving Stolberg þingforseti fylkisþingsins í Conn- ecticut í Bandaríkjunum, Vitality Korotitsj ritstjóri Ogonjok- tímaritsins í Sovét (við hann er rætt hér á opnunni), Alfred Mac- htersheimer þingmaður græn- ingja í Bonn og Milena Stambol- iska varaforseti búlgarska þing- sins. Þrír íslendingar flytja stutt erindi, þau Guðrún Agnarsdótt- ir, Ólafur Ragnar Grímsson og séra Gunnar Kristjánsson. Sjö hérlendir friðarhópar nafa séð um undirbúning umræðn- anna hérlendis, en þær hefjast klukkan tíu í dag og lýkur síðdeg- is á morgun. -m Afvopnun Fagna afstöðu Steingríms Hjörleifur Guttormsson: Vona aðfyrirorðum utanríkisráðherra séfull innistceða ístjórn og á þingi Eg fagna þessari afstöðu utan- ríkisráðherra, sagði Hjör- Ieifur Guttormsson sem sæti á f utanrfkisnefnd alþingis, - það er ánægjulegt að nú sjást merki um breyta afstöflu til ýmissa utanrfk- ismála hjá Steingrími Hermanns- syni frá þvf sem var f sfðustu rfkis- stjórn. - Gagnvart frystingartillög- unni frá Svíum og Mexíkönum er komið annað hljóð í strokkinn en á síðasta þingi. Þá, og einnig á næstsíðasta þingi, bar ég fram til- lögu um að ísland styddi þessa tillögu hjá Sameinuðu þjóðun- um. Formaður þingflokks Fram- sóknarflokksins, Páll Pétursson, lýsti stuðningi flokksins við mitt mál, en formaður Sjálfstæðis- flokksins hótaði stjórnarslitum ef tillaga mín yrði samþykkt með stuðningi Framsóknarmanna, og þeir létu beygja sig með þessari hótun. - Ég vona að það sé full inni- stæða fyrir þessari afstöðu utan- ríkisráðherra, og öðrum áherslu- breytingum hans í utanríkismál- um, þegar á reynir innan ríkis- stjórnarinnar og ekki síst á al- þingi innans skamms. _m Bessastaðir Skorað á Vigdísi fslenskar mæður eru vel upplýstar og eru áfram um að eyðnipróf eigi sér stað ó meðgöngutlma að sögn Ijósmæðra. Mœðravernd Forsetaritari: Býst við ákvörðun fyrir jól Stjórn Kvenréttindafélags ís- lands mun í þessum mánuði ganga á fund Vigdísar Finnboga- dóttur forseta og afhenda henni áskoranir frá aðalfundi félagsins og frá aðildarfélögum þess um að hún gefi kost á sér vifl forsetakjör á næsta ári. Lára Júlíusdóttir formaður KRFÍ sagði Þjóðviljanum í gær að slík áskorun hefði verið sam- þykkt á aðalfundi félagsins í vor, en þá jafnframt ákveðið að gefa aðildarfélögum kost á að leggjast á árina, og hefðu þau brugðist við í sumar. Þegar hefur verið beðið um viðtal við forseta en ekki enn fullákveðið um tíma. Á Landsþingi Kvenfélagasam- bandsins skrifuðu flestir þingfull- trúar undir áskorun sama efnis, og Komelíus Sigmundsson fors- etaritari sagði Þjóðviljanum að Vigdísi hefðu undanfarið borist slíkar áskoranir frá ýmsum fé- lögum, samtökum og einstak- lingum, en taldi ekki rétt að gefa upp nöfn þeirra að sinni. Komelíus sagðist búast við að forseti tæki ákvörðun um þetta á þessu ári en benti á að nægur tími væri enn til stefnu. Kjörtímabil forseta rennur út 31. júlí á næsta ári, og yrði kosið 26. júní ef fleiri en einn verða í kjöri. Framboðum þyrfti að skila fyrir 21. maí. Kjörtímabilið sem nú stendur yfir er hið ellefta síðan alþingi kaus Svein Bjömsson 1944. Síð- an hefur þjóðin gengið þrisvar að kjörborði til að velja húsráðanda að Bessastöðum, en sitjandi for- seti hefur ævinlega verið einn í framboði, og því sjálfkjörinn, hafi hann gefið kost á sér. Sveinn lést í embætti í lok síðara kjörtím- abils síns, Ásgeir Ásgeirsson sat fjögur kjörtímabil, 1952-1968, Kristján Eldjám var forseti þrjú kjörtímabil, 1968-1980, og Vig- dís lýkur á næsta ári öðru kjör- tímabili sínu. -m Eyðnipráf í fyrstu skoðun Haraldur Briem á Rannsóknadeild Borgarspítalans: Eyðnismit ekki fundist hjá neinum ófrískum konum hérlendis enn sem komið er Frá áramótum eða svo hefur ó- frískum konum hér á landi staflifl tíl boða að gangast undir eyflnipróf, og það er orðið n\jög algengt afl þær notfæri sér þafl, sagði Haraldur Briem læknir á á- hætturannsóknastofunni á Rann- sóknadeild Borgarspítalans, enda sýnir reynslan frá Skandinavíu að 99% kvenna vilja eiga kost á slíku eyðniprófl. „Gangur mála er sá að blóð- sýni em tekin og send í mótefna- mælingu. Hluti af þeim kemur til Ráðhús Borgarbúar hunsaðir Tillögu borgarfulltrúaAlþýðubandalagsins um almenna atkvœða- greiðslu vísað frá Iumræðum um byggingu ráð- húss í borgarstjórn í fyrrakvöld lögðu borgarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins fram tUlögu þess efnis afl efnt yrði tU almennrar atkvæðagreiðslu meflal borgar- búa og þeir spurðir í fyrsta iagi hvort byggja eigi ráðhús og í öðru lagi hvort það eigi að rísa f Tjöm- inni. Á meðan yrði afgreiðslu málsins frestað. í máli Kristínar Á. Ólafsdóttur þegar hún fylgdi tillögunni úr hlaði sagði hún að bygging ráð- hússins væri slikt stórmál að það væri meiriháttar hroki og vald- níðsla fhaldsmeirihlutans að ganga framhjá því að efna til al- mennrar atkvæðagreiðslu um málið meðal borgarbúa ef til- lagan yrði felld. I minniháttar skoðanakönnun- um sem um byggingu ráðhússins hafa farið fram í fjölmiðlum hefði komið fram að mjög svo skiptar skoðanir væru meðal borgarbúa um málið og það hefði alls ekki borið á góma í borgarstjómar- kosningunum fyrir rúmu ári. Þama væri um að ræða stórfé sem vel mætti nýta í brýnum félags- legum aðgerðum, sem ekki væri vanþörf á að leysa í borginni- og því væri það réttlát krafa og lýðr- æðisleg að borgarbúar fengju ein- hverju um að ráða þegar ráðist væri í eins fjárfrekar framkvæmd- ir og bygging ráðhússins óhjá- kvæmilegt væri. En lýðræðisást íhaldsins náði ekki lengra en það í þetta sinn sem endranær að frávísunartil- laga borgarstjóra um tillöguna náði fram að ganga og var sam- þykkt með 9 atkvæðum gegn fímm atkvæðum minnihlutans en fulltrúi Framsóknarfloksins sat hjá. grh okkar, en hluti er mældur í Blóð- bankanum. Hingað koma öll áhættusýni, enda er Rannsókna- stofa Háskólans í veimfræði í Ármúlanum ekki komin í gagnið ennþá, en verður líklega seinna á árinu,“ sagði Haraldur. „Eyðnipróf þetta er ekki skylda, en líta má á það sem hluta af mæðravemd,“ sagði Haraldur, og bætti við að hingað til hefðu ekki fundist neinar ófrískar kon- ur hérlendis sem smitaðar væm af eyðni. - Blóðsýni í þessu skyni em tekin þegar ófrískar konur mæta í fyrstu skoðun, nema þær hafi á móti því, sagði Helga Daníels- dóttir yfirljósmóðir á mæðradeild Heilsuverndarstöðvarinnar. Að sögn Helgu mæta konur á landsvísu yfirleitt í fyrstu skoðun ekki seinna en tólf vikum eftir síðustu tíðir, og sumar fyrr. Helga var spurð hvort bams- hafandi konum þætti eyðnisjúk- dómurinn færður óþægilega ná- lægt sér með eyðniprófun í fyrstu- skoðun, og svaraði hún því neitandi. „Þær em það vel upp- lýstar og óhræddar við þetta, og em beinlínis áfram um að eyðnip- rófun eigi sér stað,“ sagði Helga. HS Laugardagur 3. október 1987 tjÓÐVIUINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.