Þjóðviljinn - 03.10.1987, Side 2

Þjóðviljinn - 03.10.1987, Side 2
-SPURNINGIN- Ætlarðu að setja nagla- dekk undir bílinn í vetur? Skúli Skúlason, verkamaður: Já. Það fylgja nagladekk bílnum sem óg var að kaupa. Ég geri ráð fyrir að nota þau. Annars er ég ekki fylgjandi nagladekkjum. Það hefur bara kostn- að í för með sér og slit á götum. Kjartan Guðmundsson, bílstjóri: Nei. Ég hef ekki gert það síðustu árin. Ég nota bara grófmynstruð dekk. Nagladekk eru viðbjóður. Guðmundur Þ. Ágústsson, verkamaður Nei. Ég er á mudder-dekkjum og það er alveg nóg. Ég er ekkert á móti nagladekkjum. Án efa gera þau sitt gagn. Margrét Ingvadóttir, verslunarmaður: Nei. Ekki frekar en ég hef gert undan- farin ár. Ég hef komist allra minna ferða án þeirra. Ég er á framhjóla- drifnum bíl. Ingibjörg Ólafsdóttir, fóstra: Hef ekki ákveðið það. Undanfarin ár höfum við notað nagladekk. I haust getur verið að við veljum fremur gróf dekk en negld. _________________FRETTIR________________ Við verðum að læra að lilá í lýðræði Viðtal við ritstjóra sovéska vikuritsins Ogonjok um lífsnauð- syn umbóta Gorbatsjovs og hœttur sem að þeim steðja Vítali Korotistsj: ef að þessi mikla tilraun verður eyðilögð þá er það sögulegt stórslys fyrir allar vonir sem við sósíalismann eru bundnar (Ijósm S.Mar) Ef að umbótahreyfíng Gor- abtsjovs mistekst, verður kæfð, þá er það stórslys fyrir vonir okk- ar um sósíalisma með lýðræði. Andstæðingar okkar eru margir, og þeir reyna að sýna fram á það að með því að segja sannleikann, með opnari umræðu, muni altt fara í ringuireið og ríkið hrynja. Segir Vítalí Korotitsj ritstjóri eins helsta málgagns glasnost, opnari umræðu, í Sovétríkjun- um. Vítalí Korotitsj er hingað kom- inn til þátttöku í hringborðsum- ræðum um Reykjavíkurfundinn fyrir ári og framvindu sambúðar- mála síðan. Hann er ritstjóri helsta vikurits Sovétríkjanna, Ogonjok, Neistinn, sem kemur út í 1,5 miljón eintökum. Þetta var eitt íhaldsssamasta blað landsins, segir hann. En við höf- um verið að breyta því. Og ef áður fóru um 300 þúsund eintök af upplaginu í súginn, þá er það núna uppselt allsstaðar kl. 9 á laugardagsmorgna þegar það kemur út, og fer svo á svartan markað og allt er það haria gott. Að skrifa sannleikann Ég spurði Vítalí Korotsitsj, sem hefur skrifað nær fjörtíu bækur, ljóð jafnt sem bækur um Bandaríkin, um helstu breytingar sem orðið hafa á sovéskri blaða- mennsku á dögum glasnost. Svör hans voru á þessa leið: Þú þekkir til í Sovétríkjunum það var eins og tveir sannleikar væru í gangi, annar var sá sem við þekktum og töluðum um á göngum, hinn var sá sem við skrifuðum um - með þeim hætti að útlendingar héldu gjarna að við værum hálfvitar. Nú skrifum við um það sem við töluðum um á göngum áður. Hér áður fyrr, t.d. þegar þú varst við nám í Moskvu, var auðvelt að vera frjálslyndur. Þú komst með grein til ritstjórans- ritstjórinn sagði: þetta er snilldargrein en ÞEIR þarna uppi leyfa aldrei að hún sé prentuð. Og höfundurinn sagði: mikill snilldarritstjóri ertu - en þú færð ekki að birta greinina mína. Og báðir voru ánægðir með sjálfa sig. Nú vilja þeir í Mið- stjórn flokksins ekki vera að Iesa greinar, ekki vera að hnýsast í slíkt. Og nú eru þeir „frjáls- lyndu“ færri, því nú þurfa þeir að standa við það sem þeir skrifa - vegna þess að leyft er að birta það! Og ritskoðunin hefur breyst - áður voru ritskoðarar sífellt að krukka í handrit, rétt eins og þeir væru stílfræðingar - en nú hringja þeir bara og segja: þetta er allt í lagi, nema þú mátt ekki minnast á það hve mikið af gulli við fram- leiðum í landinu, það er leyndarmál. Þegar ég hitti glasnostblaða- menn í Moskvu í vor voru sumir þeirra svartsýnir á það hvernig fara muni fyrir perestrojku, um- bótahreyfingu Gorbatsjovs. Hvað um þig? Ég veit ekki heldur hvernig þetta fer. En ef þessi tilraun verð- ur bæld niður þá er það stórslys fyrir afdrif byítingarinnar, fyrir það sem sósíalisminn gæti verið. Ég veit blátt áfram að stalínskar aðferðir koma ekki til greina, við verðum að læra að lifa við að- stæður lýðræðis. Þú manst tím- ana kringum 1956, þá fengum við von, sem drukknaði svo í skrif- ræði, í loðmullu og skít Brés- hnevtímans. Ég veit sjálfur að ég fæ ekki fleiri perestrojkur. Og mér er það nauðsyn að berjast fyrir umbótunum, ég veit líka að fólkið vill þetta, það vill heyra sannleikann, vill fá að vera manneskjur. Átökin geta orðið tvísýn. Við berjumst fyrir einhverju „af- ströktu“ eins og málfrelsi og rétt- læti - andstæðingamir berjast fyrir áþreifanlegum hagsmunum og forréttindum. Þið í Ogonjok birtuð frásögn af þingi óháðra umbótahópa? Já. Við vorum fyrstir til að birta greinar um Ljúbera og fé- lagið Pamjat sem er hægrisinnað og svo þessa hópa, sem era vinstrisinnaðir, taka mið af sósí- alismanum. Þeir ætla að stofna með sér formlegt samband á þingi í febrúar næstkomandi. Það var vikið að andstæðingum perestrojku og Vítalí Korotitsj rakti saman viss tengsli milli þeirra og hægrisinna í Pamjat, sem hafa haft uppi rússneska þjóðrembu, andgyðingleg vígorð og fleira þessháttar. Við erum að reyna að sýna fram á það, að með því að segja sannleikann, með lýðræðislegri umræðu, hljóti okkur að vegna betur. En andstæðingarnir vilja sýna fram á að opin umræða leiði aðeins til ringulreiðar, til þess að ríkið hrynji. Og þeir fara í mót- mælagöngur og dreifa flugritum og æpa um „samsæri júða og frímúrara" og þessháttar. Við þurfum svo nauðsynlega að ná til æskunnar, sem á dögum Bréshnevs leitaði einhverrar svörunar í rokki og hippastælum, flúði hvunndagsleikann vegna þess að hann var svo fullur af lýgi, við þurfum að gefa þessu unga fólki möguleika. Andstæðingar breytinganna eru margir, ekki síst meðal þeirra sem komið hafa sér fyrir þægilega í miðjuhópum þjóðfélagsins. En þeir sem nú skipa æðstu stöður vita vel að landið ferst ef menn reyna að halda áfram eftir Brés- hnevformúlum. í þeim skilningi koma umbætumar ofan frá. Og ég styð Gorbatsjov blátt áfram vegna þess að hann vill reyna að skapa þann sósíalisma með lýð- ræði sem mig hefur alltaf dreymt um. Umrœðan Breytingarnar ganga greið- legar í fjölmiðlum og í menning- arlífi en í efnahagslífinu, ekki satt? Vitanlega. Það er auðveldara að ræða um hluti en að fram- kvæma. Við vitum nú hvemig við eigum að segja frá því sem slæmt er, en við kunnum ekki svör við því hvað ber að gera, þótt menn séu að fikra sig áfram með sjálf- stæði fyrirtækja, frumkvæði ein- staklinga og svo framvegis. Efna- hagslegur árangur kemur ekki strax. Menn gera mistök og við munum reyna það, eins og sjúk- lingar stundum, að fyrst verður ástandið að versna áður en það batnar. Það var búið að spilla svo mörgu og ræna og rupla að úr því verður ekki bætt á einu ári. Hvað má ekki? Hver eru takmörk þess sem þið getið skrifað um? Ég vil náttúrlega að boð og bönn séu sem fæst. En þau era alltaf einhver til. Og nú er verið að endurskoða lög um fjölmiðla, þar verður reynt að fá á hreint hlutverk ritstjóra, hlutverk rit- skoðunar (mjög skert) osfrv. Ég segi fyrir mig: enn sem komið er er erfitt að skrifa um innri vanda- mál hersins, eða um geimrann- sóknir- um það sem hefðin hefur gert að ríkisieyndarmálum. Þjóð- ernamálin ? spyr þú. Já, við eram að læra að ræða um þau eftir að hafa ýtt þeim undir teppið lengi og sagt að allt væri í lagi og ekki meira um það. Það er mikið rætt um Stalíns- tímann, um þá sem létu lífið sak- lausir, þriðja hvert bréf af um 300 sem við fáum frá lesendum í hverri viku er um áratug hreinsananna. Og sýnist sitt hverjum - en við prentum það allt. Við viljum að þau mál kom- ist á hreint, því annars miðar okk- ur ekki áfram. Við erum ekki að hamast á Stalfn sem persónu, heldur á vissri tegund forystu, við erum að berjast fyrir rétti manna til að ganga uppréttir. Ég hefi sagt á fundum með les- endum Ogonjok: Einu sinni vora til risaeðlur sem dóu út, ekki af því að aðrar eðlur átu þær, heldur af því að veðurfar breyttist. Við verðum að breyta veðurfarinu til að risaeðlurnar deyi út.... Árni Bergmann skráði 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. október 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.