Þjóðviljinn - 03.10.1987, Page 6

Þjóðviljinn - 03.10.1987, Page 6
-------ALÞYÐUBANDALAGIÐ--------------------- Alþýðubandalagið uppsveitum Árnessýsiu AÐALFUNDUR Aðalfundur félagsins verður haldinn í Árnesi mánudaginn 5. október kl. 21.00. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 3) Kosning fulltrúa á Landsfund. 4) Önnur mál. Stjórnin Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur ABH boðar til bæjarmálaráðsfundar laugardaginn 3. október kl. 10.00 í Skálanum, Strandgötu 41. Dagskrá: 1) Undirbúningur fyrir komandi bæjarstjórnarfund. 2) Kynntar tillögur að breytingum á starfsreglum bæjarmálaráðs. 3) Starfsskipulagið í vetur. 4) önnur mál. Nefndarmenn ABH eru hvattir til að mæta. Fundurinn opinn öllum flokks- mönnum. Stjórnin Alþýðubandalagið Akureyri Bæjarmálaráðsfundur ABA boðar til bæjarmálaráðsfundar í Lárusarhúsi mánudaginn 5. október kl. 20.30. Dagskrá: 1) Veitumál. 2) Fundargerð bæjarstjórnar. 3) Önnur mál. Alþýðubandalagið á Reykjanesi Stjórn Kjördæmisráðs Stjórn Kjördæmisráðs er boðið til fundar laugardaginn 3. október kl. 14.00 í Þinghóli, Kópavogi. Dagskrá: Undirbúningur fyrir kjördæmisþing. Áríðandi að allir mæti. Stjórnin Alþýðubandalagið Kjósarsýslu Félagsfundur Fólagsfundur í Hlógarði, þriðjudaginn 6. október kl. 20.30. Ólafur Ragnar Grímsson mætir á fundinn og ræðir um flokksstarfið og stjórnmálaástandið í upphafi þingsins. Félagar fjölmennið. Stjórnln Alþýðubandalagið Reykjavík Félagsfundur ABR boðar til félagsfundar fimmtudaginn 15. október kl. 20.30 að Hverf- isgötu 105. Fundarefni: 1) Kosning 100 fulltrúa og 100 varafulltrúa á Landsfund Aiþýðubandalagsins. 2) Almenn stjómmálaumræða. ATH: Tillaga uppstillinganefndar mun liggja frammi á skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105 frá og með mánudeginum 12. okt. Aðrar uppástungur undirritaðar af tillögumönnum skulu berast skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105 frá og með mánudeginum 12. okt. Aðrar uppástungur undirritaðar af tillögu- mönnum skulu berast skrifstofu ABR fyrir kl. 20.30 miðvikudaginn 14. okt. Ef til kosningar kemur verða aðalmenn og varamenn kjörnir í einu lagi með einföldu vægi allra atkvæða. Munið að greiða félagsgjöldln Stjórn ABR Alþýðubandalagið í Hafnarfirði Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður haldinn fimmtudaginn 8. október kl. 20.30 í Skálanum, Strandgötu 41. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf 2) Breyting- ar á starfsreglum Bæjarmálaráðs 3) Kosning fulltrúa í Kjördæmisráð 4) Kosning fulltrúa á Landsfund AB. 5) ÍSLENSK FRAMTÍÐ - OKKAR FRAMLAG - Ólafur Ragnar Grímsson fjallar um stöðuna í stjómmálunum og hlutverk AB Félagar fjölmennið Stjórnin Ert þú að missa af lestinni? Síðasti umsóknardagur 12. október. • Ert þú fædd/ur 1970 eða 1971? • Viltu búa eitt ár í framandi landi? • Viltu auka þekkingu þína á umheiminum? • Viltu kynnast lifnaðarháttum annarra þjóða? • Viltu verða skiptinemi? • Opið daglega milli kl. 14 og 17. Ef svarið er já, hafðu samband við: áíslandi Hverfisgötu 39, P.O. Box 753-121 Reykjavík. Sími 25450. ERLENDAR FRÉTTIR Pólland Nýsköpun á næsta leiti Jaruzelski hyggst feta í fótspor Gorbatsjofs Leiðtogar pólska kommúnist- aflokksins viðurkenna að hann hafi misst tiltrú almennings en þeir hyggjast snúa vörn í sókn og færa nokkuð af völdum sínum í hendur alþýðu manna. Þannig telja þeir að þeir vinni fóik til liðs við ýms veigamikil nýmæli í efna- hagsmálum. Framkvæmdastjórn flokksins sendi almennum félögum nýverið langa skýrslu um væntanlegar breytingar í pólskum stjórn- og efnahagsmálum. Þar eru and- stæðingar nýsköpunar eindregið varaðir við því að hafa sig í frammi og þeir hvattir til að snúa frá villu sinni. Ennfremur er skorað á félaga er yfirgáfu flokk- inn er herlög voru sett árið 1981 að ganga til liðs við hann á ný. „Við beinum orðum okkar til þeirra félaga er sögðu skilið við flokkinn árið 1981 af því þeir töldu að aftur yrðu teknar upp gamlar og úr sér gengnar starfs- aðferðir: snúið aftur! Við þörfn- umst ykkar í flokknum!" Skýrsla þessi kvað ekki hafa verið samþykkt átaka- og mótat- kvæðalaust í miðstjórninni. Þar eru á fleti fyrir margir andstæð- ingar hverskyns nýsköpunar. Sérstakt þing miðstjórnarinnar á að halda um miðbik næsta mán- aðar er Wojciech Jaruzelski snýr heim af fundi leiðtoga ríkja Austur-Evrópu í Moskvu. Þar mun hann verða sér úti um úm- boð frá Gorbatsjof til að hefjast handa við viðreisn og umbætur á heimaslóð í anda hins gerska kol- lega síns. Wojciech Jaruzelski. Beitir sór fyrir pólskri „perestroiku". Friðlýsing á norðurhöfum Tillaga Goitatsjofs rædd Varnarmálaráðherra Noregs telur hana skrefí rétta átt Hugmyndir Mikaels Gorbat- sjofs Sovétleiðtoga um við- ræður fulltrúa NATO og Varsjár- bandalagsins um minni hernað- arumsvif á norðurhöfum hefur vakið athygli og umtal á Vestur- löndurn. Sovétleiðtoginn sagði í ræðu I Murmansk í fyrradag að hann væri mjög áfram um að um- ferð herskipa og herflugvéla yrði takmörkuð verulega á fjórum hafssvæðum á norðurslóð, Grænlandshafl, Noregshafl, Norðursjó og Eystrasalti. Bandarískir embættismenn vildu ekki láta hafa neitt eftir sér um tillöguna en sögðu ráðamenn vera að ræða hana. Fyrstu viðbrögð fyrirmanns á Norðurlöndum komu frá varnar- málaráðherra Noregs, Jóhanni Holst. „Þetta er stórt skref í rétta átt,“ sagði hann á blaðamanna- fundi í gær en varaði engu að síður við því að það gæti orðið NATO-ríkjum dýrkeypt ef til ó- friðar dragi að eiga ekki greiðan aðgang að siglingarleiðum til nyrstu hjara. Frá aðalstöðvum NATO í Brússel bárust þær fréttir að menn hygðust athuga tillögur Gorbatsjofs gaumgæfilega en höfðu sömu fyrirvara og Holst, ekki kæmi til greina að leggja fyrir róða áætlanir um herflutn- inga á hættutímum. Tillögur Gorbatsjofs eru um fleira en hemaðarumsvif á nyrstu hafssvæðum. Þær er í sex liðum. Auk hugmyndanna um viðræður fulltrúa hernaðarblokkanna tveggja um takmörkun herskip- asiglinga og flugumferðar segir hann Sovétmenn reiðubúna til að virða hugsanlega yfírlýsingu Norðurlanda um að löndin væru kjarnorkuvopnalaus svæði. MINNING Gorbatsjof vill alþjóðlega sam- vinnu um nýtingu auðlinda norðursins og nefndi í því sam- bandi að til greina kæmi að öll ríki Norður-Evrópu semdu sam- eiginlega áætlun um orkunýt- ingu. Hann stingur uppá því að stjórnvöld allra þeirra ríkja er liggja að Norðurheimskautinu efni til ráðstefnu á næsta ári um samvinnu í vísindalegum rann- sóknum á því svæði. Gorbatsjof vill að norðlæg ríki komi sér saman um umhverfis- vemdaráætlun. Ennfremur segist hann vera til viðræðu um að opna siglingarleiðina norðan Sovétr- íkjanna og austur fyrir erlendum skipum ef samskipti ríkja í heiminum breytast til batnaðar. Þetta myndi stytta siglingarleið skipa frá Vesturlöndum til landa á borð við Kína og Japan mjög mikið. —ks. Guraihildur Guðmundsdúttir Fœdd17.08.1904-Dáin 24.09.1987 í dag verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum Gunnhildur Guðmundsdóttir, ömmusystir mín. Hún fæddist 17. dag ág- ústmánuðar 1904 á Akrahóli í Grindavík, dóttir hjónanna Guð- ríðar Sveinsdóttur (1862-1946) og Guðmundar Magnússonar (1867-1911), sjómanns og síðar verkamanns. Foreldrar Guð- mundar voru Magnús Magnús- son f. um 1838 og Gunnhildur Pálsdóttir f. um 1842. Móðir Gunnhildar heitinnar, Gyðríður, var komin af Jóni Steingrímssyni prófasti, sem fyrir löngu er þjóðkunnur af merkri ævisögu sinni. Var hún dóttir Sveins Pálmasonar (1816-1896) bónda í Björnskoti, hjáleigu frá Ásólfsskála undir Eyjafjöllum, og konu hans Gyðríðar Bjarna- dóttur. Sveinn var sonur Pálma Jónssonar, hvers móðir var Guðný, dóttir Jóns „Eldklerks". Systkini Gunnhildar voru: 1. María Kristín Ágústa f. 1894. Dó ung af berklum. 2. Guð- mundur Max á Rangá, f. 1898, d. 1975.3. Sveinbjörnf. 1901, d.um 1940. 4. Petrína f. 1908 í Reykja- vík, en hin í Grindavík. Gyðríður eignaðist dóttur, Gróu Sesselju að nafni, áður en hún kynntist eiginmanni sínum. Foreldrar Gunnhildar fluttu með börnin til Reykjavíkur 1907. Bjuggu þau að Lindargötu 5, en það hús mun hafa staðið á auðu lóðinni milli Hæstaréttarhússins og íþróttahús Jóns Þorsteins- sonar. Eftir 4 ára búsetu í höfuðstaðn- um fellur Guðmundur frá, sjálf- sagt útslitinn um aldur fram. Hann hafði framfleytt fjölskyldu sinni þessi síðustu ár sín af þræl- dómnum við höfnina. Heldur hafa áttir verið óvissar hjá ekkjunni með barnahópinn, Gunnhildur 7 ára gömul. Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Ættfólk og vinir austur í sveitum munu hafa leyst sem best úr, eftir því sem aðstæður og efni hafa leyft. Eyjafjöllin fögur og gróð- urrík með „silfurbláan Eyjafjall- atind“ eins og skáldið komst að orði, urðu heimkynni Gunnhild- ar. Þaðan er Björgvin Pálsson sem Gunnhildi hefur verið traustur lífsförunautur í yfír 60 ár. Snemma fluttu þau til Vestmannaeyja þar sem Björg- vin starfaði við verkstjóm í ára- raðir. í Eyjum undu þau sér vel, bömin og síðar barnabömin uxu þar skjótt úr grasi. Það urðu mikil tíðindi er frétt- ist um eldgos svo að segja við bæjardyr Vestmannaeyinga að- faranótt 23. janúar 1973. Þau Björgvin og Gunnhildur urðu sem aðrir að leita undan þessum hrikalegu náttúmhamförum. Það hlýtur að hafa verið þeim erfíð spor að slíta sig upp frá þeim stað sem þeim hafði lengi verið kær. 1 annað sinn settu þau saman heimili í Hveragerði, sem ætíð stóð vegmóðum ættingja opið. Ómæld birta og ylur stafaði það- an langt, langt, yfir fjöll og heiðar. Hjartagæskan og kær- leikurinn ásamt regluseminni og látlausri lífsstefnu var hvarvetna í fyrirrúmi. Gunnhildi var ýmislegt til lista Iagt. Hún setti saman vísur við hin ólíklegustu tækifæri. Má rétt ímynda sér hversu oft Iéttist fólki brún og brá, þegar Gunnhildur fór með vísurnar sínar. En - „nú er skarð fyrir skildi nú er svanurinn nár á tjörn". Það em góðar minningar tengdar Gunnhildi Guðmunds- dóttur. Björgvini, bömunum og bamabörnunum sem og öllum vandamönnum er vottuð inni- legust samúð. Með þeirri einlægu ósk og góðar minningar um góða konu megi draga sem mest úr tár- um og trega. Guðjón Jensson Mosfellssveit 6 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 3. október 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.